Tíminn - 10.05.1978, Qupperneq 1
Miðvikudagur 10. maí 1978
62. árgangur — 96. tölublað.
Borgarmálefni
Bls. 10 - Fjögur til-
brigði um sama stef
Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Orkustofnun
hyggst færa
út kvíarnar
í trássi við
áætlanir
Alþingis
— segir f jármála-
ráðuneytið
Krefst skýringa
JB—Fjármálaráöuneytið hefur
sent frá sér fréttatilkynningu
viðkomandi Orkustofnun og
þeirri umræðu, sem orðið hefur
um fjármálhennar og starfsemi
að undanförnu.
Kemur fram i þessari tilkynn-
ingu, að ef litið sé á fjárhags-
áætlun Orkustofnunar fyrir
þetta ár, virðist sVo sem ekki
standi til að draga starfeemina
saman eins og Alþingi ákvað við
afgreiðslu fjárlaga, en það
lækkaði áætlanir um 50
milljónir frá frumvarpi við
lokaafgreiðslu laganna. Þvert á
móti séu uppi áform um aukna
starfsemi.
Er i fjárhagsáætlun Orku-
stofnunar gert ráð fyrir heildar-
útgjöldum að fjárhæð einn
milljarður króna, sem er um 170
millj. króna hærri upphæð en
fram kemur i f járlögum.
Hefur fjármálaráðuney tið
óskað eftir þvi að Orkustofnun
geri grein fyrir hvaða viðfangs-
efnum stofnunin ætli að sinna
miðað við endurskoðaðar áætl-
anir, þannig að hægt sé að bera
þessar fyrirætlanir saman við
afgreiðslu fjárlaga og tryggja
að stofnunin starfi innan þess
ramma sem Alþingi og rikis-
stjórn hafa ákveðið.
Einnig er i tilkynningu
Framhald á bls. 19.
Aldo
Moro
myrtur
Róm/Reuter. Lfk Aldo Moro,
fyrrum forsætisráðherra
Italiu, fannst i gær í miðborg
Rómar. Moro hafði þá verið i
haldi hjá skæruliðum Rauðu
herdeildarinnar frá 16. marz.
Hann hafði verið skotinn til
bana, og var likið skilið eftir i
bil nærrihöfuöstöðvum Kristi-
legra demókrata, en Moro var
einn af leiðtogum þess flokks.
Moro var langvaldamesti
maður sem skæruliðar hafa
nokkru sinni rænt og drepið.
Þjóðarleiðtogar viða um heim
hafa fordæmt ódæðið og lýst
harmi sinum yfir morðinu á
Moro. Á Italiu voru fánar
dregnir i hálfa stöng og fjöldi
launþega lagði niður vinnu til
að lýsa harmi sinum vegna
morðSins. Sjá nánarbls.2.
Grásleppuveiðar eru ná i algleymingi og grásleppukarlar um land allt landa fleiri þúsundum tonna af
grásleppuhrognum á degi hverjum. Róbert ljósmyndari Timans rakst á þennan grásieppukarl I
Reykjavíkurhöfn i gær, þar sem hann var að landa 150 kiióum af grásleppuhrognum og var hæstánægð-
ur með dagsverkið.
Bezta
vertíð
í Eyjum
eftir gos
HEI—Égheldaöóhætt séaö fuli-
yrða að þetta sé bezta vertiöin
eftir gos hér i Vestmannaeyjum
sagði Hjörtur Hermannsson,
verkstjóri i Fiskiðjunni i Vest-
mannaeyjum, i gær. Það kom
eiginlega aldrei veruleg aflahrota
að undanskildum mokafla nokk-
urra trollbáta um páskaleytið. En
aflinn hefur verið aö segja má
jafn og góður undanfarna tvo
mánuði. Þetta hefur auðvitað
skapað mikla vinnu og hefur
undantekningarlitið verið unnið
til kl. 10 á hverju kvöldi rúmhelga
daga þennan tima, og ef að vanda
lætur verða næstu tveir mánuðir
ekki lakari. Hjörtur sagði að
nokkrir bátar hafi farið á
spærlingsveiðar og mokfiskað til
að byrja með en færu nú trúlega
að hætta, enda færi eitthvað af
þeim bátum að búa sig til humar-
veiða á næstunni.
Myndir frá
dýrasýningu
bls. 13
Frystigeymslur
víða að fyllast
Eyjamenn búast við undanþágu til útskipunar í dag
HEI —Við liggjum með fullt af
birgðum, sem við gætum verið
búnir að losna við, svo þetta er
mjög dýrt fyrir fyrirtækið, sagði
ólafur Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri hjá Sildarvinnsl-
unni I Neskaupstað aðspurður um
afleiðingar útflutningsbannsins.
Hann sagði að eitthvert rými
hefðuþeir ennþá en það minnkaði
óðum. Þá sagði hann að menn þar
væru ekki hressir yfir þeim galla
á framkvæmdinni, að bannið
bitnaði aðallega á tveim lands-
hlutum. Ólafur bað fyrir kveðjur
til Reykvikingaog sagðiað gjarn-
an mætti koma þaðan hópur til
búsetu eystra, þvi nóg væri af
fiski og mikil vinna.
Vilhelm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyrar hafði nær sömu sögu
að segja um geymslurými hjá
þeim . Hann sagði útgerðarfélagið
ekki hafa sótt um undanþágur
ennþá,enda hlytu þeir sem bann-
inu stjórnuðu að fara að leysa
þetta mál, bæði sjálfra sin vegna
og þjóðarinnar.
Greinilegt er að menn ætla ekki
að láta þetta bann slá sig út af
laginu, þvi Þórir Danielsson hjá
Verkamannasambandinu sagði
aðallt væri rólegt i kringum þetta
núna, þó að visu bærist alltaf eitt-
hvað af beiðnum um undanþágur.
1 Keflavik og Grindavik erver-
ið að skipa út saltfiski tíl Spánar
frétti blaðið hjá Andrési Péturs-
syni hjá SIF. Hann sagðist ekki
vita hvað farmurinn yrði stór.
Sótt hefði verið um undanþágu
fyrir útskipun frá nokkrum stöð-
um en ekkert svar hefði borizt.
Hjörtur Hermannsson, verk-
stjóri Fiskiðnunnar i Vestmanna-
eyjum, sagði að ástandið i frysti-
húsunum i Eyjum væri hvergi
gott, en segja mætti að það væri
misjafnlega slæmt. Frvsti-
geymslur i Vestmannaeyjum
væru fullar flestar. en liklega
fengist svona einnar viku frestur
þvi þeir byggjust við að fá undan-
þágu i dag til að skipa út svolitlu
magni á Rússlandsmarkað.
Mikið annriki er i Vestmannaeyjum þessa dagana.
Timamvnd Jón Frevr Jóhannsson.