Tíminn - 10.05.1978, Page 2

Tíminn - 10.05.1978, Page 2
2 Miðvikudagur 10. mai 1978. Lík Aldo Moro f undið í Róm Hóm/Reuter. Italski þingmaður- inn Aldo Moro fannst i gær, skot- inn til bana, i bil er lagt hafði verið nærri aðalstöðvum flokks hans, Kristilega demókrata- flokksins. Moro er valdamesti stjórnmálamaður sem rænt hefur verið og myrtur af skæruliðum i nokkru landi heims. Lögreglan sagði að Moro hefði verið skotinn aðminnsta kosti fjórum sinnum i brjóstið. Vitni að líkfundinum sagði að likið hefði verið illa útlit- andi og Moro muni hafa verið lát- inn i nokkra daga. Likið af Moro en hann gegndi sem kunnugt er embætti forsætis- ráðherra á Italiu, var skilið eftir háðulega nærri aðalstöðvum kristilegra demókrata og komm- únista i hjarta Rómar. Fánar blöktu i hálfa stöng um alla ftaliu og launþegar lögðu niður vinnu til að mótmæla morðinu á þing- manninum. Leiðtogar verkalýðs- félaganna, en margir þeirra eru kommúnistar, efndu til fjölda- funda til að sýna andstöðu við Rauðu herdeildina, sem kallar sig „baráttusamtök kommúnista” er vinni að byltiúgu á Italiu. Skæruliðarnir, sem rændu Moroogdrápu fimm lifverði hans 16. marzs.l., myrtu þingmanninn eftir að italska stjórnin neitaði að láta 13 skæruliða lausa úr fang- elsi i skiptum fyrir hann. Skæru- liðarnir virtu að vettugi bænir Páls páfa, en hann kvaðst biðja þá „á hnjánum” um að þyrma lifi Moro. Svipuð beiðni Kurts Wald- Óeirðir Teheran/lteuter. Talsverð mót- mælaalda gengur nú yf ir Iran, og i gær var tilkynnt að tveir hefðu látið lifið er andstæðingar stjórn- arinnarefndu til óeiröa. Stúdent- ar við háskólann i Tabriz hófu i fyrradag mótmælaaðgerðir sem leiddu til þess að 24 nemendur og þrir lögreglumenn særöust. 1 Siðasta myndin af Aldo Moro. heim aðalritara Sameinuðu þjóð- anna var einnig árangurslaus. Skæruliðarnir drápu Moro eftir að þeir höfðu haldið réttarhöld yfir honum i „fangelsi fólksins”, en lögreglan leitaði ákaft að þeim felustað skæruliða i 54 daga. Skæruliðar dæmdu Moro til dauða, en kváðust fúsir til að láta hannlausan i skiptum fyrir 13 fé- laga sina, þar á meðal Renato Curcio stofnanda Rauðu herdeild- arinnar. Kristilegir demókratar og allir helztu stjórnmálaflokkar á Italiu neituð að semja þrátt fyrir að 15 tilfinningarik og bitur bréf kæmu frá Moro á meðan hann var i haldi. Leiðtogi Kommúnistaflokksins, Enrico Berlinguer, sagði og var . fölur: „Mikill leiðtogi lýðræðis er fallinn, hann var myrtur af sam- tökum glæpamanna”. Einn af framámönnum kristilegra demó- krata og vinur Moros, Benogno Zaccagnini, kvaðst ekki finna orð yfir tilfinnigar sinar, sér yrðu hugsað til fjölskyldu Moros og hversu mikils virði hann hefði verið. Ekkja Moros, Elinora, fór ásamt fjórum börnum þeirra til likhússin? eftir að Moro fannst. Barre gerir grein fyrir aðgerðum Paris/Reuter. Nýja franska stjórnin lofaði i dag að afnema i áföngum verðlagshöft á iðnaðar- vörum og almennri þjónustu til þess að efla franskan iðnað og hvetja til fjárfestinga. Frjálst verðlagerein aðalaðgerð Barres i þá átt að efla fjárhag Frakk- í Iran marz kom einnig til óeirða við sama háskóla og létu þá 12 manns lifið. Stjórnin i Teheran hefur ekkert sagt um málið, en fram til þessa hefur hún kennt öfgahópum til hægri og vinstri ásamt trúarof- stækismönnum um svipaða at- burði. lands, en ákvörðuninni var ákaft fagnað i hópi viðskiptajöfra. Fjárhagsðætlun Barres felur meðal annars i sér að tekjuskatt- ur og skattur, sem lagður er á fyrirtæki, verður óbreyttur i tvö ár. Einnig verður haft mjög náið eftirlit með verðlagi. Barre sagði i stefnuræðu sinni, eftir að stjórn hefði verið mynduð, að lægstu laun yrðu endurskoðuð þrisvar á ári, og eftirlaun og fjölskyldubæt- ur yrðu hækkaðar, slikt myndi tryggja að kaupgeta hinna lægst- launuðu ykist hraðar en hjá öðr- um launþegum. Til að auka fjárfestingar enn frekar lofaði forsætisráðherrann að skattar yrðu ekki lagðir á fé er varið væri tii hlutabréfakaupa. Frankinn hefur hækkað á gjald- eyrismörkuðum siðan grein var gerð fyrir stefnu hinnar nýju stjórnar hægri- og miðflokka. Ródesia: Skæruliðar gera árás á hótel Salisbury/Reuter. öryggis- sveitir finkembdu i gær skóga og fjalllendii leit að skæruliðum er gert höfðu árás á eitt bezta hótel Ródesiu. Skæruliðarnir drápu og særðu gesti og starfs- menn á hótelinu i vélbyssuskot- hrið. Arásin á hótelið er einn mesti harmleikur og vafalaust sá skaðlegastifyrir efnahag Rö- desiu, er gerzt hefur frá þvi að þeldökkir skæruliðar hófu bar- attu sina fyrir sex árum. Skæruliðar réðust inn i hótel- ið, sem er nærri landamærum Mozambique, drápu tvær hvitar konur og særðu aðrar tvær ásamt aðstoðarframkvæmda- stjóra hótelsins. Handsprengj- um var kastað og eldflaugum skotið að hótelinu eftir árásina inn i það. Yfirmaður öryggissveitanna sagði að árásin væri ákaflega svivirðileg þar eð skæruliðarnir hefðu vitað að á hótelinu dvelur nær eingöngu aldrað fólk. Arás- in mun hafa mikið áhrif á ferða- mannastrauminn til Ródesiu, en frá þvi skæruliðar hófu starf- semi 1972 hefur ágóðinn af ferðamönnum minnkað um nær 50%. Hótel i Ródesiu hafa orðið fyrir árásum áður, en þá hefur vitzt um mistök að ræða. Þetta er i fy rsta skipti sem skæruliðar ryðjast inn i hðtel og hefja skot- hrið. Bandarikin: Deilt um vopnasölu Washington/Reuter. Utanrikis- ráðherra Bandarikjanna Cyrus Vance sagði i gær, að stjórn Saudi-Arabíu hefði ekki sett sölu 60 F-15 herþotna til landsins i neitt samband við hlutverk doll- arans i oh'umálum. Þetta kom fram í ræðu Vance á fundi með alþjóðamálanefnd fuhtrúadeildar Bandarikjaþings, er fjallaði um vopnasölu Carters til Miðaustur- landa. Auk þess að selja Saudi-Aröb- um 60 þotur af gerðinni F-15 hefur forsetinn lagt til að Egyptum verði seldar 50 F-5e þoturog tsraelsmönnum 15 F-15 og 75 að 28. mai, en Carter hefur varað við þvi og sagt að verði einhverjir hlutar vopnasölusamningsins felldir, veri ekkert úr vopnasölu til neins af rikjunum þrem. Vance kvaðst i gær ekki sjá nein merki þess að Saudi-Arabar hygðust hverfa frá þeirri stefnu sinni að halda oliuverði stöðugu og verðleggja oliuna i dollurum. Vance viðurkenndi að miklar um- ræður hefðu orðið um ummæli Saudi-Araba m.a. hefði hannrætt bæði við Carter forseta og hátt- setta menn í Saudi-Arabiu. Talsverðar deilur hafa orðið á þinginu vegna vopnasölunnar og hafa þingmenn krafizt þess að Israelsmenn fái fleiri orrustuþot- ur, að færri vélar verði seldar til Saudi-Arabiu og gengið verði tryggilega frá þvi að Arabar noti vélarnar eingöngu i varnarskyni. Óvissa í Vestur-Asíu vegna byltingarinnar í Afghanistan Byltingin i Afganistan gekk fljótt fyrir sig. Hundruð manna féllu i átökum uppreisnar- manna og verjenda fyrri stjórn- ar. Móhammeð Daoud, leiðtogi, landsins, bræður hans og frænd- ur, synir og barnabörn voru drepin, ásamt dyggustu stuðningsmönnum hans. Hinn nýi forseti og forsætisráðherra sagði í fyrsta ávarpi sinu til þjóðarinnar, að þetta hefði ekki verið stjórnarbylting heldur alþýðu-bylting. Og hann bætti við, að það væri rangt að þús- undirmanna hefðu fallið. Innan við hundrað manns hefðu látið lifið i hinni miklu alþýðubylt- ingu, og aðeins þeir sem neituðu að gefast upp. Furðu hljótt hefur verið um þessa atburði, enda landið fjar- lægt og sjaldan i fréttum. Það er þó fyrsta afleiðing byltingarinnar á alþjóðavett- vangi, að frestað hefur verið ráöstefnu hlutlausra rikja, sem hefjast átti i Kabúl áiðar á árinu. Fréttastofum ber saman um, að hinn sterki maður i Afghanistan, Taraki, sé kommiínisti. Hann var einn af stofnendum Lýðræðisf lokks alþýðunnar (Kalk) árið 1964, og var foringi harðasta kjarna hans eftir að Daoud kom til valda 1973 eftir að hafa hrakið konunginn Zakir Shah frá völd- um. Taraki er fyrrverandi blaðamaður og starfaði um skeið um sem þýðandi i sendi- ráði Bandarfkjanna i Kabúl. Hann taldi að Daoud væri of hægfara, og baröist gegn stefnu hans. Fram til 25. april sl. var hann i fangelsi, dæmdur ásamt félögum sinum fyrir að hafa nokkru áður skipulagt „ólög- lega” mótmælagöngu. Var þar verið að mótmæla morði á þekktum kommúnistaleiðtoga. Er talið að það morð hafi átt nokkurn þátt i að hrinda bylt- ingunni af stað. Hinir nýju valdhafar i Afghanistan eru eins og fyrir- rennarar þeirra háðir sovézkum vopnum. Herflugmenn þeirra eru þjálfaðir i Sovétrikjunum. Mig-21 þotur gerðuárásir á for- setahöllina byltingardaginn 27. april. Vera má, að stjórnarskiptin i Afghanistan séu mikilvægari en virðist i fljótu bragði. Þegar litið er á landfræðilega stöðu landsins þá sést, að það er lokað inni á milli Iran, Sovétrikjanna, Pakistan, og i Hindu Kush-hálendinu snertir það Kina (Sinkiang). 1 Pakistan og Iran hafa atburðirnir i Afghanistan valdið nokkrum óróa og Iranir hafa þegar sent herlið til landamæranna og eru við öllu búnir. Pakistanar hafa einnig aukið gæzlu á landamær- unum. Astæður þessa eru þær, að til þessa hefur Afghanistan fylgt hlutleysisstefnu i orði kveðnu, en „alþýðulýðveldi” sem fleygar Iran og Pakistan getur verið Sovétrikjunum mik- ilvægur bandamaður, hernað- arlega og pólitiskt. Kinverjar lita þessa atburði einnig horn- auga, svo ekki sé meira sagt, og Indverjar óttast alla röskun á valdahlutföllum á þessu svæði. Ástandið i Asiu vest- anverðri er það viðkvæmt að allar brey tingar vekja þjóðum á þvi svæöi nokkurn ugf*. Rikisstjórn i Afghanistan, sem nyti stuðnings og trúnaðar Sovétríkjanna getur þrýst óþyrmilega á bæði Pakistan og Iran. Sá þrýstingur er ekki svo óraunhæfur, sem virðast mætti. Pathanar eru eitt fjölmennasta þjóðarbrotiö i Afghanistan 60 af hundraði fbúanna. Þeir eru einnig f jölmennir I Pakistan og nokkrir búa innan landamæra Irans. Pathanar hafa að undanförnu látið æ meira i til sin heyra og krefjast sjálfetjórnar og jafnvel, að þeir fái að stofna eigið riki. Ekkert þeirra þriggja landa, sem Pathanar eru þegnar i, vill sinna þessum kröfum, en Pakistanar og Iranar telja, að Afghanir noti frelsishreyfingu Pathana til að kynda undir oróa meðal Pathana utan landamæra sinna. Ibúar i Afghanistan eru tæp- legatuttugu milljónir. Yfir átta- tiu af hundraði ibúanna eru bændur. Teppagerð er mikið stunduð og afghönsk teppi eru flutt út i stórum stil. Allmargir málmar finnast þar i jörðu, en lambskinn af Karakúlfé ásamt teppum eru þó mikilvægustu útflutningsvörurnar. Forsætisráöherra Afgahnistans, Nur Mohammed Taraki.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.