Tíminn - 10.05.1978, Page 6

Tíminn - 10.05.1978, Page 6
6 Mibvikudagur 10. mai 1978. Meira bákn — enn meira bákn — frumvarp um f jölgun fræðsluskrifstofa orðið að lögum þrátt fyrir að allar umsagnir voru neikvæðar Eitt af þeim frumvörpum sem urbuað lögum rétt undir þinglok- in er frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla. Efni laganna er i meginatriðum að ráðherra er veitt heim ild til að stofna sérstakt fræðsluumdæmi i sveitarfélagi með 10 þúsund ibúum eða fleiri, ef sveitarstjórn óskar þess og fjárveiting cr fyrir hendi. Við þriðju umræðu i efri deild um frumvarp þetta flutti Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra ræðu og gagnrýndi frumvarpið enn harðlega. Ráðherra rakti i fyrstu ákvæði grunnskólalaga um stjórnun og skipulag. Þar væri rik áherzla lögð á samstarf rikis og sveitar- félaga og að byggðirnar fengju beina aðild að stjórnun og fram- kvæmd. Skipting landsins i 8 fræðsluumdæmi með jafnmörg- um fræðsluskrifstofum og fræðslustjórum væri þar eitt af grundvallaratriðunum. Þessum aðilum væri ætlað aö annast þar hluta af þeim stjórnunarstörfum, sem áður voru unnin i ráðuneyt- inu, auk margvislegra annarra verka. Með þvi að setja niður fjór ar skrifstofur i hnapp á Stór-Reykjavikur-svæðinu væri þessu skipulagi splundraö. Þá benti hann á að hvergi væri að finna stafkrók til rökstuðnings þessu tiltæki, nema ályktun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá árinu 1974. En þaðárvoru grunn- skólalögin sett og þvi engin reynsla komin á framkvæmd þeirra. Hins vegar væru aliar umsagnir neikvæöar. Með frumvarpinu væri boðiö upp á nýjar fræðsluskrifstofur i Kópa- vogi og á Akureyri, auk Hafnarfjarðar. En bæjarstjórnin i Kópavogi mótmælir þessu eindregið fyrir sitt leyti. Umsögn að noröan er einnig algjörlega neikvæð. Menntamálaráðherra minnti enn á fjárhagserfiðleika ndver- andi fræðsluskrifstofa. En hann hafði áður upplýst að svo hefði að þeim sorfið um skeið að fræðslu- stjórar hefðu sjálfir þurft að lána fé i reksturinn. Hann sagöi að reynthefði verið að gæta aðhalds i rikisrekstri og nefndi sem dæmi að það tók nærri tvö ár að viður- kenna stöðu sérkennslufulltrúa i Forsætisráöherra, f jármála ráðherraoe formaður fjárveitinga nefndar studdu allir frumvarp um fjölgun fræðsluskrifstofa. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaraðherra beitti sér gegn samþykkt frumvarpsins. menntamálaráðuneytinu eftir áð Alþingi haiði samþykkt áskorun um að stofna það embætti. Einnig nefndi hann að algengt væri að takast á um „hálfan ritara” hjá stofnunum rikisins árum saman. Aðhaldsaðgerðir gætu stundum orðið sársaukafullar en hjá þvi yrði varla komizt ef nokkur telj- andi árangur ætti að nást. — Nú brygðihins vegar svo við að boðið væri upp á þrjú ný embætti með tilheyrandi starfsliði. Væri þetta enn furðulegra þegar þess væri gætt að tveir af þeim sem njóta skyldu hinna nýju embætta mótmæla eindregið! Auk þess sem allar umsagnir væru neikvæðar eins og áður sagði og viðkomandi ráðherra legðist eindregið gegn þessari ráða- breytni. Ráðherra vakti sérstaka athygli á þvi að meðal fylgis- manna frumvarpsins væru fjár- málaráðherra, forsætisráðherra og formaður fjrveitinganefndar, allir úr þeim flokki sem hefði tekið sér kjörorðið „báknið burt” Menntamálaráðherra kvað þetta fáheyrða uppákomu og var þungorður i ræðum sinum við aðra og þriðju umræðu málsins i efri deild. Kvað hann það ekki hafa hvarflað að sér að sam- starfsmenn sinir myndu knýja málið fram með aðstoð stjórnar- andstöðunnar. Það vakti athygli að stuðnings- menn frumvarpsins i efri deild reyndu ekki að verja það með emuorði, þögðu þunnu hljóði eftir ræöu menntamálaráðherra. Frumvarpið var svo afgreitt i efri deild sem lög frá Alþingi gegn atkvæðum framsóknarmanna, Axels Jónssonar og Helga Seljan. Aðrir deildarmenn greiddu þvi allir atkvæði. Nú er eftir að vita hvort og þá hvenær m enntamálaráðherra notar þá heimild sem i lögunum felst. M alþingi Námsgagnastofnun Menntamálaráðherra lagði fram stuttu fyrir þinglok frum- varp til laga um námsgagna- stofnun. Helztu breytingar frá núgildandi lögum sem frum- varpið felur i sér eru eftirfar- andi: 1. Rikisstofnanir sem starfa að útgáfu, miðlun og framleiðslu námsefnis og kennslugagna eru sameinaðar i Náms- gagnastofnun er lúti daglegri stjórn eins forstjóra, náms- gagnastjóra. 2. 1 stað Námsbókanefndar og stjórnar Fræðslumyndasafns rikisins kemur óskipt Náms- gagnastjórn og skal hún hafa meö höndum yfirstjórn á starfsemi og fjárreiðum Námsgagnastofnunar. 3. Ákvæði eru um náið samstarf Námsgagnastofnunar og þeirra aðila er vinna að endurskoðun námsefnis og nýjungum i kennslustarfi á vegum menntamálaráðu- neytisins, við Kennarahá- skóla Islands og aðrar þær stofnanir er kennaramenntun veita. Námsgagnastofnun mun framleiða ýmis náms- og kennslugögn miðað við islenzkar þarfir og aðstæður önnur en prentað mál. 5. Lögfest er að auk eiginlegra námsbóka skuli gefnar út handbækur og kennsluleið- beiningar handa kennurum, svo og ýtarbækur, þ.e. við- bótarbækur fyrir nemendur, auk hvers konar nýsigagna. 6. Akvæði er um löggildingu námsbóka og hlutverk Náms- gagnastjórnar i þvi sam- bandi, svo og hversu fara skuli með ágreining i slikum málum. • 7. Akvæði um fjármögnun deilda Námsgagnastofnunar eru einfölduð og samræmd miðað við það sem nú er. Er miðað við að allt rikisfé til stofn- og rekstrarkostnaðar veröi i formi venjulegra fjár- veitinga i fjárlögum. Aðrar tekjur stofnunarinnar verði eðlilegar sölu- og leigutekjur af efni og tækjum.” r Ný lög frá Alþingi Tollskrá Samþykkt hefur verið sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um tollskrá og fleira. Eru lög þessi fyrst og fremst tii að samræma islenzku tollskrána þeim breytingum sem gerðar hafa verið á tollnafnaskrá Tollasamvinnuráðsins. Við frumvarpið höfðu Pálmi Jónsson (S), Ingóifur Jónsson (S) og Páll Pétursson (F) flutt breytingartillögu sem þeir drógu aftur til baka er frumvarpinu var breytt til að koma til móts við sjónarmiö þeirra. Breyting þessi felur f sér að tollar á hjóladráttarvélum, heyhleösluvögnum og ámoksturs- tækjum lækka úr 7% niður i 2% frá næstu áramótum aö telja. t umræð- um um frumvarpið á laugardag lét Ragnar Arnalds (Abl) m.a. svo um mælt, aðhér væri um að ræöa lítilfjörlega dúsu. Jón Helgason (F) mót- mælti þeirra fullyröingu, en frumvarpið var samþykkt sem lög sam- dægurs. Skattafrumvarp Frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt var afgreitt sem lög frá nýloknu þingi. Er hér um aö ræða endurskoðaða heildarlöggjöf og margvislegar breytingar frá fyrri lögum. Helstu breytingar, sem f frumvarpinu felast frá fyrri tekjuskattlögum, eru eftirfarandi: Frá- dráttarliðum er fækkað verulega og framteljendum heimilað aö eigin vali að nota fastan frádrátt. Aðferð viö skattlagningu hjóna er breytt. Skattmeðferð einstaklinga sem fást við atvinnurekstur er breytt veru- lega. Veruleg breyting veröur á fyrningarreglum og reglum um skatt- lagningu söluhagnaðar. Verður hér gerð nánari grein fyrir lögum þessum og breytingum sem þau hafa í för með sér fyrir einstaklinga, hjón og börn, sem ekki hafa með höndum atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Samkvæmt hin- um nýju lögum ber hvoru hjóna aö telja fram tekjur sinar sérstaklega. Tekjur af leigu, arð, vexti,veröbætur og þvi um lfkt ber þó aö teija til tekna hjá þvihjóna sem hærri hefur hreinar tekjur. Til frádráttar tekj- um má færa ýmsa liði sem halda sér frá fyrri lögum. Þá getur fram- teljandi valið á milli þess að telja sér til frádráttar 10% af launatekjum eða hins vegar iðgjöld af Iffeyri, iðgjöid tU stéttarfélaga, vaxtagjöld og gjafir til menningarmála. Við álagningu er felldur niður sérstakurfrádrátturgildandi laga vegna launatekna giftrar konu. Skattstigi og persónuafsláttur er hinn sami fyrir alla menn án tillits til hjúskaparstööu. Barnabótum er skipt til helminga milli hjóna. Þær nema nú 65 þús. meö fyrsta barni en 100 þús. með hverju barni umfram eitt. Fyrir börn yngri en 7 ára á tekjuárinu skulu barnabætur vera 25 þús. hærri og 40% hærri fyrir börn á framfæri einstæöra foreldra. Samkvæmt hinum nýju lögum greiðist 18% tekjuskattur af fyrstu tveimur milljónum tekna einstaklinga eöa hvors hjóna. Af næstu tveimur milljónum reiknast 26% og af tekjum yfir fjórar milljónir reiknast 34%. Af niöurstööutölum hér dregst sfðan persónuafsláttur en samkvæmt lögunum neraur hann 250 þús kr. til einstaklinga og hvors hjóna um sig. Nýtist persónuafsláttur annars hjóna ekki skal nota hann til frádráttar fyrir maka þess. Söluskattur Samþykkt var á nýloknu Alþingi frumvarp til laga um breytingu á söiuskattslögum. Samkvæmt þessum nýju lögum eru viðurlög fyrir vangreiddan söluskatt hækkuð úr 2% i 4% fyrir hvern byrjaöan dag eftir eindaga, þó ekki hærri en 20% I staö 10% áður. Þá eru viöurlög til viðbótar af vangreiddri upphæð fyrir hvernbyrjaðan mánuðfrá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga ákveðin jafnhá og dráttarvextir innlánsstofnana, en voru áður bundin við 1 1/2% Jöfnunargj ald Frumvarp um jöfnunargjald var afgreitt sem lög á nýafstöðnu þingi. Samkvæmt lögunum verður lagt á allar innfluttar iðnaöarvörur, sem jafnframt eru framleiddar innanlands, 3% jöfnunargjald til að vega upp á móti þeim söiuskatti sem verður hluti framleiöslukostnaðar þessara vara hér i landinu. Tekjum af jöfnunargjaidinu skal ráðstafa I fjáriögum ár hvert og að hluta til eflingar iðnþróunar. Lög þessi taka þegar gildi og gilda til 31. desember 1980, en þá er stefnt aö þvi aö taka upp viröisaukaskatt og verður jöfnunargjald þetta þá óþarft. Ríkisreikningur Samþykkt voru á nýafstöðnu þingi frumvarp til fjáraukalaga og frumvarp til laga um samþykkt á rfkisreikningum fyrir áriö 1976. Upp- hæð fjáraukalaganna hljóðaði upp á rúma 11 milljarða og niðurstööu- tölur rfkisreiknings árið 1976 eru síðan rúmlega 71 milljaröur. Erfðafj ár skattur Frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt var af- greitt sem lög frá Alþingi nýlega. Lög þessi fela I sér breytingu á erföa- fjárskattstiganum til samræmis við veröþróun sföustu ára. Erföafjár- skatturinn fer stighækkandi eftir fjárhæö þeirri, sem til arfs fellur, þar til ákveðnu hámarki er náð. Samkvæmt þessum nýju lögum veröa þessi skattþrep miðuð við 1200 þús. kr. en miðuðust áður viö 200 þús. kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.