Tíminn - 10.05.1978, Page 8

Tíminn - 10.05.1978, Page 8
8 Miðvikudagur 10. mai 1978. Haukur Ólafsson Gisli Sighvatsson Friðjón Skúlason Anna Björnsdóttir Ari Daniel Arnason. Framboðslisti Framsóknarflokksins í Neskaupstað Þvi miður áttu sér staö myndabrengl i blaöinu i gær þar sem birtur var framboöslisti Framsóknarmanna við bæjar- stjórnarkosningarnar i Neskaup- stað 28. mai n.k. Listinn er þvi birtur aftur, en hann er þannig skipaöur. 1. Haukur Ólafsson, verzlunar- maður. 2. Gisli Sighvatsson, skólastjóri 3. Friðjón Skúlason, hiisasmið- ur. 4. Anna Björnsdóttir, húsmóðir. 5. Ari Daniel Arnason, húsa- smiður 6. Benedikt Guttormsson, skrifstofúmaður. 7. Guðmundur Sveinsson, bifreiðastjóri 8..Jón ölversson, skipstjóri 9. Þóra Jónsdóttir, hjúkrunar- fræðingur 10. Guögeir Guðjónsson, húsa- smiður. 11. Freysteinn Þórarinsson, vélstjóri 12. Björn Steindórsson hárskeri 13. Friðrik Vilhjálmsson, neta- gerðarmaður. 14. Sveinn Þórarinsson, hús- gagnasmiðameistari. 15. Bjarni H. Bjarnason, neta- gerðarmaður. 16. Agnar Armannsson, vélstjóri 17. Sigrfður Guðröðardóttir, verzlunarmaður. 18. Jón S. Einarsson, húsasmiða- meistari. Allharður árekstur i gærmorgun ESE —Rétt fyrir kl. 8 i gærmorg- un varö allharður árekstur á mót- um Miklubrautar og Háaleitis- brautar, en þar rákust saman tvær fólksbifreiðar. Flytja varð telpu sem var far- þegi i annarri bifreiðinni á slysa- deild, en hún skarst þó nokkuð i andliti og hlaut heilahristing við áreksturinn. önnur urðu ekki slys á mönnum, en báðar bifreiðarnar eru þó nokkuö skemmdar. ER KOMIN Þessi vinsælasta brúða veraldar er nú komin aftur ásamt fatnaði og. alls konar aukahlutum sem hægt er að fá með þessari heimsfrægu draumadís ungra og fullorðinna INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1 Starfsfólk Sjúkrahúss Skagfirðinga ásamt Lionsfélögum. Lionsmenn gefa fæðingarrúm Miðvikudaginn 12. april afhenti Magnús Sigurjónsson formaður Lionsklúbbs Sauðárkróks, Sjúkrahúsi Skagfirðinga fæðing- arrúm að gjöf frá klúbbfélögum. Stefán Pedersen, varaformaður sjúkrahússtjórnar, veitti giöfinni viðtöku og flutti Lionsmönnum þakkir fyrir rausnarlega gjöf. S.l. haust höfðu sömu aðilar gefi sjúkrahúsinu litasjónvarp. Einnig gáfu Lionsfélagar i vet- ur, Tónlistarskólanum d Sauðár- króki, vönduð hljómflutningstæki tii minningar um látinn félaga, Steinbjörn Jónsson, bónda, Hafsteinsstöðum. Hraunprýði í Hafnarfirði Kaffi- og merkjasala Slysavarnadeildin Hraunprýöi, Hafnarfirði heldur sina árlegu fjáröflun i dag miðvikudaginn 10. mai. Kaffisala verður i Skiphóli frá kl. 3-10. e.h. ogeinnig i hinunýja björgunarstöðvarhúsi að Hjalla- hrauni 9 frá kl. 3 - 6 e.h. Vinnuflokkum er bent á að panta á milli kl. 10 og 12 f.h. Merki deild- arinnar verða tii sölu að venju. Afhending þeirra fer fram i and- dyri Bæjarbíós kl. 9. f.hád. Sölu- börneruhvött til að koma og selja merki. Hafnfirðingar hafa ævinlega tekið virkan þátt í fjáröflun deildarinnar þennan dag. Hraunprýðiskonur vænta velunnarra sinna og þakkar þeim veittan stuðning á undanförnum árum. Gunnar Brusewitz Norræna húsið: Kvikmyndir um gróður- far og dýralif Sænski rithöfundurinn og teikn- arinn Gunnar Brusewitz mun halda tvö erindi í Norræna húsinu nú i vikunni og verða kvikmyndir sýndar i bæði’skiptin. Fyrri kvik- myndin verður sýnd i- kvöld kl. 20.30 og nefnist hún „Glantan dör af lif”. Fjallar hún um viðkvæm- an skógargróöur á norðurslóðum, og sambýli mannsins og gróðurs- ins. Síðari kvikmyndin nefnist „Skog och sjö”, og lýsir dýra- og fuglalifi i skógum og við vötn. Hún verður sýnd laugardaginn 13. mai kl. 16.00. Báöar kvikmynd- irnar eru i litum. Þá hefur veriö sett upp sýning á nokkrum vatnslitamyndum, teikningum og grafikmyndum eftir Gunnar Brusewitz i bóka- safni Norræna hússins. Fáeinar myndanna eru til sölu. SKDGUR ag VATS SWiNg' í HÁINU tír-Sim'lJlg í Leiðrétting Það skal tekið fram, að maður- inn, sem stóð við ólöglega eld- stæðið i Skaftafelli i öræfum á bis 26 i siðasta sunnudagsblaði Timans, var ekki útlendingur heldur Haukur Eirfksson gæzlu- maður og er hann beðinn vel- virðingar á þessum mistökum. Leiðrétting Það skal tekið fram, vegna fréttar frá aðalfundi Skógræktar- félags Reykjavikur, aö gróður- setning trjáplantna i Elliðaár- hólmum, sem hófst vorið 1951 i tilefni af 30 ára afmæli Rafmagnsveitu Reykjavikur, hefur alla tið verið á vegum Raf- magnsveitunnar, en plöntur fengnar úr gróðrarstöð Skógrækt- arfélags Reykjavikur i Fossvogi. Frá Tónlistarskóla Skagafj arðar sýslu AS Mælifelli — öðru starfsári Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu lauk með nemendatónleikum i Höfðaborg á Hofsósi sl. laugar- dag og var þar fjölmenni saman- komið. Settu söngfélagar i Hörp- unni mjög svip á samkomuna og sungu nokkur lög við mikinn fögnuð gesta. Skólastjórinn Ingi- mar Pálsson stýrði samkomunni og greindi frá ýmsu i skólastarf- inu sem og formaður skólanefnd- ar, Jón Guðmundsson oddviti á Óslandi. Kennarar auk Ingimars hafa verið bæöi starfsár skólans Anna Jónsdóttir I Mýrarkoti og Ernst Ole Solem, Norðmaður, sem haft hefur aðsetur i Varmahlið. Er hann nú á förum heim og voru honum og Kristínu konu hans, sem einnig hefur stundað nokkra kennslu, færðar þakkir og árn- aðaróskir. Ernst Ole söng nokkur ein- söngslög i kveðjuskyni við undir- leik konu sinnar. Hafa þau alloft áður komið fram viö góðan orð- stir og Ernst auk þess æft bland- aðan kór, Hljóma, sem hélt söng- skemmtun nýlega i Miðgarði viö mjög góðar undirtektir. Nemendur Tónlistarskólans voru um 150 i vetur, sem mun vera hæsta þátttökuhlutfall á landinu. Starfsemin var mikil á hinu stóra skólasvæði, er nær allt utan úr Fljótum og fram i Lýt- ingsstaðahrepp, en allar sveitir i héraðinu eru aðilar aö skólanum nema Akra-, Ripur og Skefils- staöahreppar. Aðstoðarmaður skólastjóra hefur verið Heiðmar Jónsson BA og voru honum og öðru starfsliði skólans og styrktarmönnum færðar þakkir tónlistarfélagsins i sýslunni, sem beitti sér i upphafi fyrir stofnun skólans.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.