Tíminn - 10.05.1978, Side 9
Miövikudagur 10. mai 1978.
9
a viðavangi
Rauntekjur og
taxtakaup
Meðal þeirra máia sem
rædd eru i ársskýrsiu Seðla-
banka tslands er þróun launa-
mála á árinu 1977 og tengsl
þeirrar þróunar við almenna
verðlagsþróun i landinu.
t þeim kafla skýrslunnar
sem fjaiiar um þessi efni segir
meðal annars:
„Eftir gildistöku nýju
kjarasam ninganna varð
þenslan ekki aftur tekin, held-
ur hlaut hún að halda áfram
en varð annars eðlis en áður. t
stað þess að nærast af fram-
leiðsiustarfsemi og hagstæð-
um ytri skilyröum, magnaðist
hún þaðan af fyrst og fremst
af innri tekjuþenslu, eyðslu-
hneigð og spákaupmennsku i
von um verðbólgu- og gengis-
ávinning. Um mitt árið
þrengdi af þessum sökum
mjög að peningakerfinu, en úr
greiddist að nokkru leyti aftur
þegar varnaraðgerðum varö
við komiö með vaxtabreyting-
VERKIN TALA
Framsóknarmenn vilja eigna rikis-
stjórninni framkvæmdir
i Neskaupstað
I Timanum 30. april s.l. birtist
„viðtal” við bæjarstjórann i Nes-
kaupstað undir fyrirsögninni
„Verkin tala i Neskaupstað”,
sem Magnús ólafsson, blaðamað-
ur, tók 2. marz s.l.
Eitthvað hefur skolazt til i höfði
blaðamannsins frá þvi hann
ræddi við mig, þvi „viðtalið”, ef
viðtal skyldi kallast, er fullt af
rangfærslum. Blaðamaður hirðir
ekkert um að fara rétt með um-
mæli viðspyrjanda heldur sýnir
það smekkleysi að gera sfnar eig-
in skoðanir og óskir að orðum
undirritaðs.
í stuttri athugasemd verður
ekki komið við nema nauðsynleg-
ustu leiðréttingum, en „viðtalið”
gefur tilefni til mun fleiri athuga-
semda. Fjölbrautarskólabygg-
ingin er ekki risin af grunni,( 1
viðtalinu segir, „Búið er að
steypa upp tvær hæðir” ) en i
sumar er hugmyndin, að reistar
verði 2 hæðir. Eðlilegur bygg-
ingaráfangi hefði verið að skila
húsinu fokheldu á þessu ári, en
framkvæmdir miðast við fjár-
framlög ríkissjóðs.
SjUkrahUsið er myndarleg
bygging, en byggðastefna nUver-
andi rikisstjórnar speglast glöggt
varðandi þessa framkvæmd i þvi,
að fjárframlög til hennar hafa
verið hin sömu að krónutölu
undanfarin ár.
Ranghermt er, aö unnið hafi
verið við höfnina fyrir 300 millj.
króna. I kjölfar snjóflóðanna var
talið nauðsynlegt að hraða þess-
um framkvæmdum og varð
kostnaður nálægt 200 milljónum,
en verður ekki undir 300 milljón-
um þegar framkvæmdum verður
lokið. 1 sumar verður steypt
þekja á hluta viðlegukantsins, en
ráðgert er að ljúka framkvæmd-
um innan þriggja ára.
Mig undrar ekki, þótt ungan
framsóknarmann langi til að geta
státað sig af framkvæmdum og
uppbyggingunni f Neskaupstað,
jafn myndarlega og norðfirzk al-
þýða hefur staðið að henni undir
forystu Alþýðubandalagsins. Hitt
er litilþæg smekkleysa, að blanda
saman uppbyggingu, tengdri
hörmulegasta atburði, sem yfir
Neskaupstað hefur dunið, og
byggðastefnu núverandi rikis-
stjórnar.
Vegna uppbyggingarinnar i
Neskaupstað og i Vestmannaeyj-
um var þjóðin sérstaklega skatt-
lögð og ber að þakka henni fórn-
fýsi og samhug. Þegar greiðslun-
um vegna uppbyggingarstarfsins
var hætt, var skattlagningu hald-
iðáfram ogrennurnú ágóði þessa
söluskattsstiga i rikishitina.
Með þökk fyrir birtingu.
Reykjavik, 3. mai 1978.
Logi Kristjánsson
RAFKERTI
„Orginal" hlutir i
frægustu bilum
V es tur-Þjóð verja
Gott úrval fyrirliggjandi
TT
ARMULA 7 - SIMI 84450
Auglýsið í TÍMANUM
um i ágúst og aftur i nóvem-
ber”.
Það er með öðrum oröum
mat Seölabankans að ákvarð-
anir um tekjudreifingu hafi
haft mjög veruleg áhrif á þró-
un verðbólgunnar I ógæfuátt á
siðasta ári. Hins vegar er rétt-
mætt að benda á þaö að hér er
þvi engan veginn haldið fram
að það hafi verið laun þeirra
tekjuminnstu sem röskun ollu.
Menn verða að hafa það
hugfast að tekjuskiptingin er
með þeim hætti i þjóðfélaginu
að almennar kjarabætur auka
einnig umsvif þeirra sem fyrir
hafa góð lffskjör og geta þvi
veitt sér ýmislegan munaö,
sem er utan seilingar fyrir þá
lægst launuðu.
Og hvað svo sem sagt verö-
ur um kjarasamningana 1977,
þá ber að muna að hagsmuna-
samtökum launþega og vinnu-
veitenda tókst ekki aö fram-
fylgja launajöfnunarstefnunni
I það skiptiö, hvað svo sem
siðar getur orðið. Eins og
margsinnis hefur komið fram
i Tlmanum, og sagt var þegar
samningarnir voru gerðir,
hlaut þessi slagslða að koma
harðast niður á láglaunafólk-
inu þegar fram I sækti.
Ekki nóg
að festa
á pappír
Um visitölukerfið segir m.a.
i ársskýrslu Seðlabankans:
„Akvörðun verðlags á
grundvelli kauplags og kaup-
lags aftur á grundvelli verð-
lags felur þannig i sér vél-
genga framrás verðbólgunn-
ar, hvað sem liður almennri
eftirspurn og öðrum skilyrð-
um efnahagslegs jafnvægis.
Verðtrygging launa ræður
þannig ekki nema að mjög
litlu leyti varðveizlu kaup-
máttar, heldur fyrst og fremst
hraða verðbólgunnar, enda
má einsýnt vera að heil þjóð,
eða allar launastéttir hennar,
getur ekki tryggt sér hvaða
Ilfskjör sem vera skal með þvi
einu að festa þau á pappir”.
Þetta eru orö að sönnu, og er
timabært að menn hugleiði
efni þeirra nú þegar hæst ris
krafan um að samningar séu
„i gildi” eins og það er oröað.
Misræmið
verður
að liggja
fyrir
En I þessu sambandi er það
einnig mjög athyglisvert I
þeim upplýsingum sem árs-
skýrslan gefur að kaupmáttur
hefur á síöast liðnum árum
vaxið langt um fram taxta-
kaup, eða samningsbundnar
ákvarðanir um launin. Um
þetta segir m.a.:
„Eins og fram kemur hefur
kaupmáttur ráðstöfunartekna
á mann vaxið um 12,5% frá
ársmeðaltali 1972 til meðaltals
1977, en kaupmáttur kaup-
taxta rýrnað um 6%. Það er
þvi mjög mikilvægt aö skýr
greinarmunur sé gerður hér á,
þegar þessi mál eru til um-
fjöllunar, svo miklu hefur
munaö um ofan greinda
launaþætti. Hækkun ráðstöf-
unartekna hefur veriö langt
um fram hækkun umsaminna
launataxta á árabilinu þrátt
fyrir breytingarnar milli 1976
og 1977, en hækkun kauptaxta
um fram ráðstöfunartekjur þá
á að hluta rætur að rekja til
yfirvinnubanns sem i gildi var
fyrir miðbik ársins”.
Misræmið milli kauptaxta
og raunverulegra tekna er
atriði sem þarf að liggja miklu
betur fyrir við ákvarðanir um
tekjustefnu en verið hefur. i
þessu sambandi koma til álita
ýmisleg bónuskerfi, yfirvinna
og yfirborganir. Það er siöur
en svo þannig að skilja aö ver-
ið sé að harma að menn fái
meiri tekjur en um er samið
miðað við dagvinnu. Það sem
um er að ræða er hitt að I þess-
um efnum á ekki að vera að
fela neitt, heldur eiga stað-
reyndirnar að liggja á samn-
ingaborðinu svo að ákvarðanir
geti reynzt farsælar.
Það var ekki slzt þetta sem
viðskiptaráðherra átti við
þegar hann sagði I eldhús-
dagsumræðunum nýlega að
ryöja yrði úr vegi þeirri tor-
tryggni sem rikir i launamál-
unum á islandi, og að ef til vill
væri skynsamlegt að stofna
sérstakt launamálaráð til að
fylgjast með raunverulegri
tekjuöflun og tekjumyndun
manna i þjóðfélaginu.
—JS
r4xiwtrv 9 b
Lengi getur gott botnnð!
Ennþá betri
BLTRVCCinC
FYRIR HEIMILI OG FJÖLSKYLDU
SUMARLEYFISROF
Sem bætir óhjákvæmileg aukaútgjöld og endur-
greiðir ónotaðan ferðakostnað, ef sumarleyf isdvöl
er rofin vegna ýmissa ófyrirsjáanlegra atvika
BÓNUS
vegna tjónlausra ára, allt að 20% lækkun á iðgjaldi
ALTRYGGING ÁBYRGÐAR
er ný heimilistrygging sem bætir missi eða tjón á persónu-
legum lausaf jármunum, sem á rætur að rekja til einhverra
skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atvika og tryggingin
gildir í öllum heiminum!
— bæði menn og munir eru verndaðir á ferðalagi sem við dvöl
ALTRYGGING ÁBYRGÐAR
tekur einnig til:
Skaðabótaskyldu
— bætir lífs-eða likamstjón meðalltað 10.000.000 kr. og eigna-
tjón allt að 4.000.000 kr.
Réttarverndar — Skaðabótaréttar
Slysa
— örorku, lækniskostnaðar, tanntjóna
Ferða- og sjúkratryggingar
-I- aukakostnaður vegna fæðis og húsnæðis
Ef pabbi missir
málninguna ofan i
nýja teppiö
þá bætir
ALTRYGGINGIN
tjónið
Ef þú fótbrýtur þig I
Napoli eða
Neskaupstaö -
Altryggingin
greiöir aukakostnaðinn
H
ABYRGÐ
TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN
Skúlagötu 63 — 105 Reykjavik. — Slmi 26122