Tíminn - 12.05.1978, Page 6
6
Föstudagur 12. maí 1978.
Menn kvöddust með virktum eftir að forseti islands hafði slitiö 99. löggjafarþingi islendinga s.l. laugar-
dag.Fremst ámyndinni má m.a. sjá þá Asgeir Bjarnason og Ingólf Jónsson, en þeir sátu nýliðinn vetur
sitt siðasta þing og gefa ekki kost á sér aftur.
alþingi
Frjálst
verðlag
Að hálfu ári liönu tekur gildi
ný verölagslöggjöf I landinu,
en Alþingi samþykkti sem lög
frumvarp til laga um verðiag,
samkeppnishömlur og órétt-
mæta viöskiptahætti nú rétt
undir þingiokin. Samkvæmt
hinni nýju löggjöf er gert ráð
fyrir frjálsri verölagningu,
þegar samkeppni er nægiieg,
til þess að tryggja æskilega
verðmyndun og sanngjarnt
verölag.Hins vegar er jafn-
framt bráðabirgöaákvæöi um
þaö að öll verðlagsákvæöi
haldi gildi sinu við gildistöku
laganna, þar til verðiagsráð
hefur tekið afstöðu til þeirra.
Embættisgengi kenn-
ara og skólastjóra
Frumvarp um emðættisgengi
kennara og skólastjóra hefur ver-
ið samþykkt sem iög frá Alþingi.
Löggjöf þessi felur i sér skilgrein-
ingu á lágmarksmenntun til að
verða skipaður kennari við
grunnskóla og framhaldsskóla
og mat umframmenntunar varð-
andi kaup og kjör. Kennarar, sem
lokiö hafa kennaranámi fyrir
gildistöku þessara laga, halda
óskertum réttindum. t bráða-
birgðaákvæðum laganna segir,
að „þeir sem við gildistöku þess-
ara iaga hafa starfað sem settir
kennarar við skyldunámsskóla 6
ár eða lengur, en fullnægja ekki
skilyrðum laganna til að hljóta
skipun I stöðu, skulu eiga kost á
að ljúka námi á vegum Kennara-
háskóla islands til að öðlast slik
réttindi. Um tilhögun námsins og
mat á fyrri menntun og starfs-
reynslu skal setja ákvæði i reglu-
gerð”.
Lög um
hlutafélög
Samþykkt hafa verið ný lög um
hlutafélög frá Alþingi. Er hér um
að ræða mikinn lagabálk I 160
greinum og 19 köflum. Margvis-
iegar breytingar og endurbætur á
lagasetningu um hlutafélög er að
finna i lögum þessum. Markmið
lagasetningarinnar er m.a. að
tryggja heilbrigðan rekstur
hlutafélaga og hag viðskipta-
aðila og stuðla að meiri fjöida-
þátttöku við stofnun hlutafélaga.
Þá eru greinar I frumvarpinu til
að tryggja þá grunnstoð hlutafél-
aganna að hluthafar beri ekki
persónuiega ábyrgö á skuldbind-
ingum hlutafélags en þetta hefur
viljaö brenna nokkuð viö hér á
landi.
Ný lög frá Alþingi
Fjölmörg lög voru samþykkt á Alþingi síöustu dagana fyrir þinglok.
Hér á eftir verða talin upp þau nýsett iög sem ekki hefur veriö gerð sér-
staklega grein fyrir:
Frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu.
Frumvarp tii laga um tæknistofnun islands.
Frumvarp til laga um breytingu á umferöarlögum.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heyrnleysingaskóia
(framhaldsdeild).
Frumvarp til iðnaðarlaga.
Frumvarp til laga um bann við fjárhagslegum stuðningi eriendra aö-
ila við islenzka stjórnmálaflokka og blaðaútgáfu erlendra sendiráða á
islandi.
Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum.
Frumvarp til laga um heimild fyrir rikisstjórnina að selja eyðijörö-
ina Koilsvik I Rauðasandshreppi.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar.
Frumvarp til laga um ónæmisaögeröir.
Frumvarp til laga um lyfjafræðinga.
Frumvarp til laga um manneldisráð.
Frumvarp til laga um eftirlit með framleiðslu á fóðurvörum, áburði,
og sáðvörum og verzlun með þær vörur.
Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum.
Frumvarp til laga um vátryggingastarfsemi.
Frumvarp til laga um breytingu á umferöarlögunum.
Frumvarp til laga um breytingu á mörkum' lögsagnarumdæma
Reykjavikur og Seltjarnarneskaupstaðar.
Frumvarp til laga um sáttastörf i vinnudeiium.
Frumarp til laga um heyrnar- og talmeinastöð islands.
Frumvarp til byggingarlaga.
Frumvarp til laga um Þjóöleikhús.
Frumvarp til laga um breytingu á Iögum um Stofnlánadeild
landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar i sveitum.
Frumvarp til laga um veitingu rikisborgararéttar.
Frumvarp tii laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og
heilbrigöiseftirlit.
Heyrnleysingjaskóli
Lagt hefur verið fram til
kynningar stjórnarfrumvarp
um breytingu á lögum um
heyrnleysingjaskóla. Frumvarp
þetta var lagt fram rétt fyrir
þinglok og felur i sér að við
Heyrnleysingjaskólann skuli
starfa framhaldsdeild er hafi
það hlutverk að veita nemend-
um undirbúning að aðstoð til að
afla sér menntunar og þjálfun-
ar i ýmsum starfsgreinum og
réttinda til sérnáms i fram-
haldsskólum eða háskólum.
Erföaf járskattur
Rétt fyrir þinglok var lagt
fram þingmannafrumvarp um
ráðstöfun erfðafjárskatts og
erfðafjársjóðs. Flutningsmenn
frumvarpsins eru Pálmi Jóns-
son (S), Stefán Valgeirsson (F),
Ölafur öskarsson (S), Páll
Pétursson (F), Sigurlaug
Bjarnadóttir (S), Sighvatur
Björgvinsson (A), Karvel
Pálmason (Sfv) og Gunnlaugur
Finnsson (F). Felur frumvarp
þetta i sér að erfðafjárskattur,
sem til ’fellur i hverju lög-
sagnarumdæmi landsins, renni
þar i sérstakan sjóð, sem varð-
veittur sé i heimahéraði og
gangi þar til uppbyggingar á
aðstöðu fyrir fatlað fólk, gam-
^lt fólk og börn, einkanlega ef
um þroskaheft börn er að ræða.
Samkvæmt núgildandi lögum
rennur erfðaf járskattur til
erfðafjársjóðs sem er i vörzlu
Tryggingarstofnunar rikisins.
Fuglaveiöar og fuglafrið-
un
Menntamálaráðherra hefur
lagt fram frumvarp til laga um
fuglaveiðar og fuglafriðun. Er
hér um að ræða endurskoðaða
löggjöf.
Framboðslisti Framsóknarflokksins á Dalvik
Framboðslisti Framsóknar-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Dalvik 28. mai n.k. er
þannig skipaður:
1. Helgi Jónsson,
rafvirkjameistari.
Helgi Jónsson
2. Kristján ölafsson,
útibússtjóri.
3. Kristinn Guðlaugsson,
_ sláturhússtjóri.
4. Kristin Gestsdóttir,
skrifstofumaður.
Kristján ólafsson
5. Hilmar Danielsson,
framkvæmdastjóri.
6. Guðriður Ölafsdóttir,
húsmóðir.
7. Kristinn Jónsson,
bifvélavirki.
Kristinn Guðlaugsson
8. Hafsteinn Pálsson,
bóndi.
9. Valgerður Guðmundsdóttir,
verkakona
10. Ottó Gunnarsson,
stýrimaður.
Kristin Gestsdóttir
11. Hörður Kristgeirsson,
bifvélavirki.
12. Arni Óskarsson,
frystihússtjóri.
13. Kristján L. Jónsson,
deildarstjóri.
14. Jón Sigurðsson,
fyrrv. húsasmiðam.
Hilmar Danielsson
Dr. Leó Kristjánsson viö hiö nýja segulmælingatæki.
Tækjagjöf
til Haunvísindastofnunnar
Háskólans
Hinn 14.april sl. var Raun-
visindastofnun Háskólans
afhent formlega að gjöf frá
vlsindasjóönum „Alexander von
Humboldt Stiftung” i Þýzkalandi
vandað mælitæki til mælinga á
segulsviði jaröar og á segul-
mögnun bergsýna. Tækið mun
auövelda mjög þær rannsóknir á
segulstefnu i hraunlögum,
sem Raunvisindastofnunin hefur
staðið að allmörg undanfarin ár i
samvinnu við aðrar innlendar og
erlendar stofnanir. Hafa niöur-
stöður rannsóknanna veitt marg-
háttaðar upplýsingar bæöi um
jarðfræöi Islands og um eðli jarð-
segulsviðsins. Þær hafa birzt
mjög vlða I fræðiritum og á ráð-
stefnum og vakiö athygli, enda
eru aðstæður til slikra rannsókna
betri frá náttúrunnar hendi á
íslandi en viðast annars staðar.
Tækjagjöfina afhenti hr.
Karlheinz Krug, sendiráðunautur
i sendiráði Sambandslýðveldisins
Þýzkalands, að viðstöddum próf.
Guðlaugi Þorvaldssyni háskóla-
rektor og ■próf. Sveinbirni
Björnssyni, formanni stjórnar
Raunvisindastofnunar
Háskólans, en við gjöfinni tók fyr-
ir hönd stofnunarinnar dr. Leó
Kristjánsson, jarðeðlisfræöingur.