Tíminn - 14.06.1978, Page 2
iamiiiii.
Mibvikudagur 14. júni 1978
Svissnesk
stúlka ákærð
í Líbanon
Ætlaði að flytja
sprengiefni
til Evrópu
- ^
ísraelsmenn farnir frá
S-Líbanon — sveitir Falan-
gista teknar við af þeim
Spurning um framtiðarhlutverk friðargæzlusveita S.Þ. þar
Beirut-Reuter. Ung svissnesk
kona er var handtekin á flugvell-
inum i Beirut i fyrra mánu&i fyrir
aö hafa i fórum sinum tima-
sprengju var i gær ákærö fyrir aö
hafa ætlaö aö gera tilraun til
hryöjuverka á erlendri grund.
Nanni Albonico 23 ára nemandi
frá Zurich var handtekin 6. mai
sl. i þann mund er hún var aö fara
um borö i vél Miöaustur-flug-
félagsins til Zurich og Frankfurt.
öryggisveröir sögöu aö þeir
heföu fundiö á stúlkunni 600 gr. af
mjög virku sprengiefni og tæki
heföu veriö i farangri hennar til
aö stilla timasprengjur. Þaö var
upplýst siöar aö Nanni heföi viö
yfirheyrslu játaö aö hafa ætlaö aö
afhenda efniö og tækin fulltrúa
Palestinuskæruliöa i Sviss til aö
nota gegn tsraelsmönnum i
Evrópu.
Sprengiefniö sem aö þvi er sér-
fræöingar sögöu var nægilegt aö
magni til aö sprengja upp flugvél,
en það var Palestinumaður sem
lét hana fá það. Ef Nanni
Albonico veröur sek fundin i
Libanon á hún yfir höföi sér allt
aö fimmtán ára fangelsisdóm.
Mál hennar verður tekiö fyrir hjá
herrétti. I fyrra var Norðmaður
dæmdur i sex mána&a fangelsi i
Libanon fyrir aö reyna aö smygla
sprengiefni um borö i flugvél er
var að fara til Evrópu.
Suður-Líbanon-Beirut. Israels-
menn luku brottflutningi herja
sinna frá herteknu svæöunum i
suðurhluta Libanons i gær.
Drógu þeir niður fána sina og
hurfu á hervögnum sinum yfir.
landamærin, — rétt þrem mán-
uðum eftir að þeir réðust yfir
þau til aö eyðileggja bækistööv-
ar palestinskra skæruliða á
svæðinu. Fólu tsraelsmenn her-
sveitum kristinna hægri manna
alla stjórn viö landamærin og
voru þeir strax farnir að búa um
sig.
Viö brottför Israelsmanna
hefur vaknað spurning um
framtiðarhlutverk gæzlusveita
Sameinuðu þjó&anna i S-Liban-
on, en þar til fyrir fáum dögum
var talið að þær tækju við völd-
um Israelsmanna á landamær-
um tsraels og Libanons. Aö þvi
er israelskir formælendur
segja, tókusveitir hægri manna
aðeins við af tsraelsmönnum á
nokkrum af þeim stöðum, sem
tsraelsmenn yfirgáfu i gær.
Við athöfni þorpinu Shi’ite þar
sem tsraelsmenn létu yfirráð
sin formlega af hendi i gær, var
hvergi sjáanlegur maður úr
gæzluliði S.Þ. utan tveggja
iranskra hermanna er óku um
héraðið. Saad Haddad hershöfö-
ingi, yfirmaður Falangista-
sveitanna, sagöi i ræðu sinni við
þessa athöfn m.a.: ,,Það er
Israelsmönnum að þakka, að
Suður-Libanon er nú aftur i
höndum Libana og laust við
ágang skæruliða”. Lét hann i
ljós vonum að sveitir S.Þ. gætu
haldið skæruliðum Palestinu-
manna utan svæöisins, en þeir
hafi löngum verið erkióvinir
samfélaga kristinna manna á
svæðinu. „Annars”, sagöi hann,
„vonum viö að tsraelsmenn
verði til taks aftur ef þörf kref-
ur”.
Haddad sagði á fundi með
fréttamönnum, aö sveitir krist-
inna manna hefðu nú fengiö
völdin á landamærunum á svæöi
afmörkuöu af Miöjarðarhafinu
að vestan og hæðunum i Her-
monfjalli að austan. Sagði hann
samkomulag um þetta hafa
verið gert á fundi i fyrradag
meö Emmanuel Erskine, yfir-
manni sveita S.Þ. Talsmaður
S.Þ. i Jerúsalem, Jacques da
Silva, sagði hins vegar á fundi
fréttamanna, að samkvæmt
ályktun Oryggisráðsins nr. 425,
hefði tsrael átt að afhenda
gæzlusveitum S.Þ. yfirráð sin á
landamærasvæðunum. Hlut-
verk S.Þ. sveitanna samkvæmt
ályktun 425 var að stjórna brott-
flutningi tsraelsmanna, að
halda vopnuðum hersveitum ut-
an svæðisins og að fela völd þar
libönskum stjórnvöldum um
leið og það hefði verið talið
æskilegt.
Rök tsraelsmanna fyrirþvi að
láta stjórnina i hendur Haddads
voru þau, aðhonum væriborgað
af libanska rikinu og þar af leið-
andi hlytu liðsmenn sveita hans
að teljast opinberirlibanskir ör-
yggisverðir. „tsraelsstjórn
hefur nú framfylgt kröfum
ályktunar 425 og yfirgefið svæð-
ið, sem orðið er laust við skæru-
liða”, sagði Avigdor ben Gal,
hershöfðingi. Við kveðjuathöfn-
ina i gær, sagði hann, að tsrael
myndi standa við þau vilyrði
sin, að vernda minnihlutahópa
kristinna manna og bætti siðan
við: „Það er hlutverk gæzlu-
sveita S.Þ. að tryggja það að
skæruliðar haldi ekki uppi hern-
aði á svæðinu og tryggja að frið-
ur og spekt riki þar”. Faðmaði
hann libanska herforingjann að
sér og óskaði „vinum sinum”
alls hins bezta.
Haddad tilkynnti að sveitum
S.Þ. yrði leift að hafa bæki-
stöðvar i bænum Marjayouh,
sem er sterkt virki kristinna
manna. „Við erum við stjórn-
völinn hér, og Sameinuðu þjóð-
irnar eru hér til að hjálpa”,
sagði hann. t öðrum þorpum ná-
lægt landamærunum voru her-
menn Falangistasveitanna að
koma sér fyrir á svæðum nærri
þeimsem S.Þ. höfðu stjórn yfir.
Urðu menn vitni að þvi að þeir
stöðvuðu bifreiðar S.Þ. við
vegatálma og kröfðust skilrik ja.
Eini staðurinn, sem tsraels-
menn létu beint af hendi við
sveitir S.Þ., var i þorpinu Zayie,
sem irsk sveit tók við.
Haddad sagði að ákveðinni
leið yrði haldið opinni milli
landanna. Leiðin sem um ræðir
er s.k. „Good Fence”, og hefur
verið aðalleiðin, sem tsraels-
menn . hafa sent Falangistum
vopn og birgðir um.
t viðtali við Avigdor ben Gal,
yfirmann israelsku hersveit-
anna sem voru i S-LIbanon, lýsti
hann yfir, óánægju með sveitir
S.Þ., sem hann sagði ekki hafa
gegnt hlutverki sinu, en kvaðst
vongóður um að á landamærun-
um rikti friður i framtiðinni.
SOVÉTMENN REYNA AÐ JAFNA METIN
Bandaríkjamaður handtekinn í
Moskvu fyrir smygl
Moskva-Reuter. Sovézk yfirvöld
upplýstu i gær, að þau hefðu i
haldi ameriskan kaupsýslumann,
sem grunaður sé um smygl. Á
hann á hættu að verða dæmdur i
tiu ára þrælkunarvinnu ef hann
finnst sekur. Maðurinn F. Jay
Crawford sem er frá Alabama
var handtekinn igær, i bil er hann
beið við umferðarljós i hjarta
Moskvu. Var hann þar ásamt
unnustu sinni.
Utanrikisráðherra Sovétrikj-
anna viðurkenndi handtöku
Crawfords eftir itrekaðar fyrir-
spurnir frá bandariska sendiráð-
inu i' borginni. En sendiráðið
sagði að það hefði þegar sent
skrifleg mótmæli vegna þessarar
framkomu Sovétmanna. Sögðu
sendiráðsstarfsmenn að hann
væri fulltrúi alþjóðlegs fyrirtæk-
is, International Harvester.
Handtaka Crawfords er talin
vera visir þessað sovézk yfirvöld
ætli að taka ómjúkum höndum á
Amerikönum i landinu i fram-
haldi af handtöku tveggja
sovézkra starfsmanna Samein-
uðu þjóðannai New York i siðasta
mánuði. Þeir voru ákærðir um
njósnastarfsemi. Rennir það
einnig stoðum undir grun manna
um hug Sovetmanna, að i gær
birti blað stjórnarinnar, Izvestia,
njósnaákærur á hendur vara-
sendiherra Bandarikjanna i
Moskvu, sem var visað úr landi i
júli i fyrra.
Sagði Izvestia að andsovézkur
áróður væri það mikill i Banda-
rikjunum nú, að það nálgaðist
móðursýki, en bætti siðan við að
Sovétmenn óttuðust ekki.
Unnusta Crawfords, sem hand-
tekin var i gær, vinnur sem
skrifstofustúlka i bandariska
sendiráðinu i Moskvu. Sagði hún
fréttamönnum, að þau hefðu
verið á leið I matarboð hjá kunn-
ingja þegar lögreglan handtók
Crawford. Sagði hún að hún hefði
lent i nokkrum ryskingum við
lögreglumennina, þegar þeir
reyndu að ná af henni billyklun-
um. Gerði hún yfirmönnum
sendiráðsins strax viðvart, sem
aftur kröfðu sovézka utanrikis-
ráðuneytið skýringa. Liðu að sögn
17 ti'mar f rá þvi ungfrúin tilkynnti
handtökuna þar til ráðuneytið
staðfesti hana, og gaf sendiráðs-
ritara leyfi til að hitta Crawford
að máli.
Yfirvöld sögðu sendiráðinu, að
Crawford, sem starfað hefur i
Moskvu i tvö ár, hefði brotið gegn
grein no. 78 i refsilögum Rúss-
lands. En þessi grein k veður á um
ólöglegan flutning vara eða ann-
arra verðmæta yfir landamæri
rikisins. Viðurlög við að brjóta
þessa lagagrein eru frá þrem til
tiu ár.
Framhald á bls. 19.
Óttast Frakkar veru
Þjóðverja í Zaire?
Ekkert lát er á deilum i
Frakklandi um þá stefnu, sem
rikisstjórnin og forsetinn hafa
tekið i málefnum Afriku. Eins
og kunnugt er hefur Giscard
d’Estaing Frakklandsforseti
sent útlendingahersveitina til
Shaba-héraðs i Zaire til að að-
stoðaher landsins við að hrekja
innrásarmenn af höndum sér.
Aöur hefur hér i blaðinu verið
sagt frá ýmsu i sambandi við
hiðpólitiskaspil sem á sér stað i
Mið-Afriku um þessar mundir.
Þess hefur verið getið hvaða
aðilar það eru sem eigast við i
Shaba, eða Katanga eins og
héraöið hét áður. t Shaba er
mikill auður saman kominn i
málmum og verðmætum efn-
um, en löngum hefur þetta
hérað verið vettvangur óróa og
ólgu, bæði vegna landfræöilegr-
ar stöðu á mótum þriggja nú-
verandi rikja: Angóla, Zaire og
Zambiu. Lunda-ættflokkurinn
er þarna öflugur i'öllum löndun-
um og hiö forna Lunda-rjki var
eitt hið merkasta af fornum
menningarrikjum i álfunni.
Hætt er við að koparinn i Shaba
sé þó það sem einkum heillar
framandi þjóðir og veldur kapp-
hlaupinu um áhrif þar.
Þar hefur verið talið óliklegt
að Frakkar ætluðu sér að láta
sitja við timabundna aðstoð við
Zaire-stjórn. Að visu er herlið
það sem þeir sendu til Shaba i
mai'mánuði á leið burt að sögn
en þess i stað hefur
franska stjórnin beitt sér fyrir
stofnun afriskra gæzlusveita,
sem taki við af evrópskum
friðargæzlusveitum i álfunni.
Það er þessi ákvörðun Frakka
sem hvaðmesta gagnrýni hefúr
hlotið bæði heima fyrir og eins
meðal margra þjóðarleiðtoga
bæði i Afriku og annars staðar i
heiminum. I umræðum um
þetta mál i franska þinginu nú
fyrir helgina var stjórnin gagn-
rýnd af sósialistum og
kommúnistum annars vegar og
gaullistum undir forystu
Jacques Chirac hins vegar.
Meðal þeirra sem harðlega hafa
gagnrýnt stjórnina er Couve de
Murville, fyrrum forsætis-
ráðherra si'ðasta stjórnarár de
Gaulle. Chirac hefur einnig
mjög látið til sin taka i þessu
máli og ekki látið sitja við gagn-
rýnina á Zaire-ævintýrið hefur
einnig ráðizt á stjórnina fyrir
aðstoðina við rikisstjórnir
Tchad og Mauretaniu. t þeim
löndum styðja Frakkar stjórn-
irnar i baráttu þeirra við upp-
reisnarmenn.
Gaullistar telja að hornsteinn,
franskrar Afrikustefnu eigi að
vera góð sambúð við Maghreb,
þ.e. Arabarikin við Miðjarðar-
haf: Alsir, Marokkó, TUnis og
svo Libýu. Afskiptin af málum
uppreisnarmanna i Tchad og
Mauretaniu hafa valdið erfið-
leikum i sambúðinni við Alsfr og
Libýu en rikisstjórnir þeirra
landa styðja uppreisnar-
hreyfingarnar.
Með tillögum sinum um af-
riskt gæzlulið hafa Frakkar
raunverulega stuðla að að þvi
að viðhalda evrópskum áhrifum
nær þvi hvar sem er i áliunni.
Reiknað er með að þetta gæzlu-
lii^sem þegar er byrjað að koma
á laggirnar með herliði frá
Marokkó, Senegal, Togo og
Gabon, verði búið evrópskum
vopnum og með þvi verði
hernaðarráðgjafar frá Evrópu-
löndunum. Þannig yrði liðið
alltaf undir raunverulegri
stjórn Evrópurikjanna.
Þetta finnst ýmsum f rönskum
stjórnmálamönnum of langt
gengið og vilja forðast að
Frakkar verði einhvers konar
lögreglumenn Afriku. Chirac
sagði i ræðu á franska þinginu
fyrir nokkrum dögum að hvorki
Bandarikjamenn né Rússar
ættu nokkurn rétt á ihlutun i
málefni Afriku og Frakkar séu
þvi að ganga erinda stórveld-
anna með aðgerðum sinum.
Vinstri menn i Frakklandi gripa
á hinn bóginn til þeirra venju-
legu raka sem nú hafa heyrzt i
ýmsum tilbrigðum i 30 ár að það
sé C.I.A. og Bandarikjamenn
sem með ihlutun sinni hafi neytt
Sovétmenn og nú Kúbumenn til
að hefjast handa. Hinn djúp-
stæði ágreiningur breytir þó
ekki þvi að allir frönsku stjórn-
málaflokkarnir telja að Frakk-
land eigi hagsmuna að gæta i
Afriku og beri að hafa hönd i
bagga með þvi sem þar gerist.
En fleiri eru komnir á vettvang i
Zaire en Frakkar, Belgiumenn,
C.I.A. Rússar og Kúbumenn.
Vestur-Þýzkaland hefur enn á
ný reynt að ná ofurlitlu tangar-
haldi á hinni svörtu álfu. í Zaire
hafa þeir fengið til umráða
svæði þar sem þeirgera tilraun-
ir með eldflaugar. Sú stofoun,
sem um það séq nefnist OTRAG
og staða hennar i landinu er
nánast sú að hafa sérstök lands-
réttindi á talsverðu svæði þar
sem Þjóðverjar eru einráðir.
Þeim er þvi i senn þökk i að aðr-
ir sjái um að halda friði i Zaire
en eins er ekki óliklegt að
Frakkar og jafnvel fleiri riki
hafi nokkrar áhyggjur af til-
raunum Þjóðverja með fáguð
rafeindatæki og hugsanlega
hernaðartæki mitt i hjarta Af-
riku.
H.(ð.