Tíminn - 14.06.1978, Qupperneq 3
Miftvikudagur 14. júnl 1978
3
Breytta kvótatölur i fiskveiði-
samningi Færeyinga og Rússa
— mjög hagstæðir segja Færeyingar
Nýlega var færeysk sendi-
nefnd í Moskvu til viðræðna viö
Alexander Ishkov, fiskimála-
ráöherra Sovétrikjanna, um
breyttar kvótatölur í fiskveiöi-
samningi rikjanna, og aö þvi er
segir i frétt I færeyska blaöinu
14. september, eru nýju kvóta-
tölurnar mjög hagstæöar
Færeyingum.
Samkvæmt nýju tölunum fá
Færeyingar nú heimild til aö
veiöa 8. þús tonn af þorski i
Barentshafi og auk þess fá
fimm færeysk skip leyfi til aö
stunda rækjuveiöar þar. t
staöinn fá Rússar heimild til aö
veiöa 60 þús. tonn af kolmunna i
færeyskri fiskveiöilögsögu.
t viötali viö 14. september
segir einn sendinefndarmann-
anna, sem voru i Moskvu á dög-
unum, aö þessar nýju tölur séu
mjög til bóta fyrir færeyskan
sjávarútveg. Þær muni tryggja
enn frekar atvinnu þeirra, sem
aö sjávarútvegi starfa og skapa
verkefni handa 5—6 stórum
togurum.
Sibrotamaður í
gæsluvarðhald:
30 afbrot
á einu og
hálfu ári
GEK — A mánudag úrskurðaöi
sakadómur Reykjavikur mann
um þritugt i gærzluvaröhald til 2.
ágústs næst komandi. Maður sá
er hér um ræðir á að baki sér lit-
rikan afbrotaferil en einkum eru
þaö þjófnaðir og innbrot sem
hann fæst við. Honum var siðast
sleppt úr fangelsi þann 7. júni
siðast liöinn, en þá hafði hann
setið i gæzluvarðhaldi I nokkrar
vikur. Skömmu áður hafði saka-
dómur Kópavogs fellt yfir honum
20 mánaða fangelsisdóm vegna
jafn margra afbrota sem hann
hafði framið á þessu og siðasta
ári.
Ekki var unnt að framfylgja
refsingunni, þar sem dómi saka-
dóms Kópavogs var áfrýjaö til
Hæstaréttar. Var manninum þvi
sleppt lausum.
Auk þeirra 20 mála sem dæmt
var i i Kópavogi var ólokið 8 mál-
um til viðbótar sem sami maður
var tengdur og voru þau send
saksóknara rikisins þann 5. mai
s.l. og höföaði saksóknari nýtt
mál á hendur honum þann 18.
sama mánaðar.
Sem fyrr segir var manninum
sleppt lausum þann 7. júni siðast
liðinn, en ekki var hann fyrr stig-
inn úr fangelsinu en hann tók til
við sina fyrri iðju. Gæzluvarð-
haldsúrskurðurinn sem kveöinn
varuppá mánudagvar byggður á
tveimur innbrotum til viðbótar
sem hánn játaði á sig.
Fyrra innbrotið var framið
þann 8. júni eða strax daginn eftir
að hann hlaut frelsið en siöara
innbrotið þremur dögum siðar.
Þessi mál eru nú til rannsóknar
hjá rannsóknarlögreglu rikisins.
Embætti
húsameistara
rikisins laust
til umsóknar
Hörður
Bjarnason lætur
af starfi
um áxamót
SJ — Embætti húsameistara
ríkisins hefur verið auglýst laust
til umsóknar og er umsóknar-
frestur til 3. júli næstkomandi.
Hörður Bjarnason hefur gegnt
embætti húsameistara rikisins
frá 1954, en hann var áður skipu-
lagsstjóri rikisins frá 1944 og
skrifstofustjóri skipulagsnefndar
frá ’37. Hörður er nú i nokkurra
mánaða veikindafrii að læknis-
ráði og hefur sagt embætti sinu
lausu frá næstu áramótum.
Embætti húsameistara rikisins
var stofnað 1904 og gegndi Rögn-
valdur Ólafsson þvi fyrstur
manna, þá tók við Guðjón
Samúelsson og siðan Einar Er-
lendsson.
Þessi 42 ár i þjónustu rikisins
hafa verið viðburðarikur starfs-
ferill, sagöi Hörður Bjarnason. —
Ég geri ráð fyrir að ég haldi
áfram einhverjum störfum fyrir
rikiö en segi embætti minu lausu
til að létta á mér störfum.
Fjölsóttur fuU-
trúaráðsfundur
Fulltrúaráö Framsóknar-
félaganna f Reykjavik hélt I
fyrrakvöld mjög fjölsóttan fund,
þar sem rætt var um undirbúning
fyrir þingkosningarnar. Mikill
áhugi kom'fram á fundinum fyrir
þvi að hefja öfluga sókn til efl-
ingar flokknum. Meðal þeirra,
sem töluöu á fundinum, voru
efstu menn B.-listans, Einar
Agústsson og Guðmundur G.
. Þórarinsson. A efri myndinni sést
yfir fundarsalinn og á hinni flytur
Guðmundur G. Þórarinsson ræöu
sina.
Breytingar i aðsigi á skrifstofu
verðlagsstjóra
SJ — Stöður verðlagsstjóra og
varaverðlagsstjóra hafa veriö
auglýstar lausar til umsóknar og
er umsóknarfrestur til 25. júnink.
Hjá skrifstofu verðlagsstjóra
fengust þær upplýsingar að þetta
væri gert vegna þeirra breytinga
sem gera þyrfti á skrifstofunni
áður en nýja löggjöfin um verðlag
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti sem sett var i mai
sl. tæki gildi 16. nóv. nú i haust.
Inýjulögunum er gertráðfyrir
aö nafni skrifstofunnar verði og
breytt og að hún heiti i framtið-
inni Verðlagsstofnun. öllu starfs-
tólki skrifstofunnar veröur
væntanlega sagt upp og ráðið i
stöður á ný en verulegar
breytingar verða á starfseminni.
Dagpeningar
rikisstarfs
manna
á ferðalögum
erlendis hækka
SJ — Dagpeningar rikisstarfs-
manna á ferðalögum erlendis
hafa verið hækkaðir frá og meö 1.
júni' sl. Dagpeningar til greiöslu
ferðakostnaðar i Evrópu eru nú
180 þýzk mörk en voru 165 mörk
frá i nóvember sl. I Ameriku eru
dagpeningar nú 80 dollarar,
hækkuðu úr 72 dollurum.
Dagpeningar vegna þjálfunar
og eftirlitsstarfa eru lægri, 110
þýzk mörk i Evrópu og 48 dollarar
i Ameriku.
Stjórn BSRB
ályktar:
Afnám skerð-
ingar ekki
i áföngnm
A fúndi stjórnar BSRB sem
haldinn var i gær var eftirfarandi
tillaga samþykkt einróma:
„Stjórn BSRB mótmælir enn á ný
harðlega efnahagsaðgerðum
rikisstjórnarinnar, sem felast
m.a. i riftun kjarasamninga,visi-
töluskerðingu á laun, samhliða
gengisfellingum og stórhækk-
uðum vöxtum, sem hvort tveggja
hefur stóraukið dýrtið á siðustu
mánuðum.”
„Jafnframt skorar stjórn
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja á nýkjörna borgarstjórn i
Reykjavik og aðrar bæjar- og
sveitarstjórnir i landinu að
afnema hina ranglátu vísitölu-
skerðingu og verða við kröfum
BSRB og annarra samtaka
launafólks um að gera nú þegar
gildandi þá kjarasamninga, sem
rift hefur verið með lögum.”
„Stjórn BSRB telur aö afnám
kjaraskerðingarinnareigiekki aö
koma til i áföngum, heldur eigi
strax aö standa viö löglega gerða
kjarasamninga. Einnig eigi að
bæta starfsmönnum refsifrá-
drátt, sem framkvæmdur hefur
verið vegna vinnustöðvana 1. og
2. marz: sl..”
Greenpeace samtökin:
Albúin að hef ja aðgerðir
á Islandsmiðum y°r"ká{ytri höfninni
í Rvik í gær
JB — Rainbow Warrior, skip
Greenpeace samtakanna, kom
á ytri höfnina i Reykjavik i gær-
morgun, en skipið hefurnú ver-
ið á miðunum við landiö i rúma
viku. Að sögn talsmanns sam-
takanna i skipinu i gær, komu
þeir inn vegna bilunar á fjar-
skiptatækjum, og hyggjast sigla
út jafnskjótt og búið er aö gera
við hana.
Sagöi talsmaðurinn að til
þessateldu þeir að leiðangurinn
hefði gengið að óskum. Þeir
hefðu litt haft sig i frammi viö
hvalskipin, en fylgzt með ferð-
um þeirra og stundað æfingar
að sögn. Nú telja þeir sig full-
búna aö hefjast handa við yfir-
lýstar aðgerðir, þ.e. að sigla
gúmbátum sinum á milli hval-
veiðibátanna og dýranna til að
hindra veiðarnar. Ekki kvaðst
hann álíta að veður né sjólag á
miðunum verði þeim á neinn
hátt til trafala.
Talsmaðurinn sagði að þeir
hefðu sent áhöfn eins hvalveiði-
bátsins orðsendingu, þar sein
þeir kynntu starfsemi sina, og
að þar hefði komið fram, að
leiðangursmenn voru hvorki á
móti þeim né öðrum Islending-
um. Þeir væru einungis
uggandi vegna ástands
búrhvalastofnsins i Norðuhöf-
um ogstæðu i þessum aðgerðum
alfarið til að vernda hann. Enda
væri þaö öllum fyrir beztu.
Þá sagði hann aö leiöangurinn
væri i reynd hálfnaöur, en skipið
myndi verða á miðunum eins
lengi og þörf krefði, en það færi
mikið eftir þvi hvaö ætti eftir a.ö
gerast á næstu dögum.
Aðsiðustu itrekaöi talsmaöur
Greenpeace-samtakanna, að
þeir væru ekkert á möti Islend-
ingum, og benti á baráttu
samtakanna til verndar hvölum
gegn Japönum og Rússum.