Tíminn - 14.06.1978, Side 20

Tíminn - 14.06.1978, Side 20
Sýrð eik er sígild eign HU&CiQGW TKtSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822 Gagnkvæmt tryggingafélag Miðvikudagur 14. júní 1978 123. töiublað —62. árgangur Aðalfundur KEA: Heildarvelta félagsins nam 16.9 milljörðum á síðasta ári — en launakostnaður hækkaði um 51.6% á sama tima ESE — Mjög góö fundarsókn var á aðalfund Kaupfélags Ey- firðinga á Akureyri sem haldinn var um siðustu helgi, þvi að af 228 fulltrúum sem rétt áttu til setu á fundinum, mættu 220, eða um 96,5% fulltrúanna. Mikill einhugur rikti á fundin- um um vöxt og viögang sam- vinnuhreyfingarinnar og þótti aðalfundurinn takast mjög vel. Fundarstjóri var Vernharöur Sveinsson, mjólkursamlags- stjóri á Akureyri, en fundarrit- arar voru þeir Haraidur M.Sig- urðsson, iþróttakennari á Akur- eyri, Hreinn Bernharðsson, kennari á ólafsfirði og Þór Hjaltalin, bóndi á Akri i önguls- staðahreppi. I upphafi fundar minntist Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn, formaður stjórnar kaupfélags- ins, látinna félaga og flutti að þvi búnu skýrslu stjórnarinnar. Iskýrslu hanskom m.a.fram að fjárfestingar félagsins á ár- inu 1977 námu samtals 354, 5 milljónum króna, en auk þess voru færðar til bókar fjárfest- ingar undangengmna ára i vela- búnaði nýju mjólkurstöðvarinn- ar, 206, 6 milljónir króna þannig að bókfærður stofnkostnaður var alls 561,1 milljón króna. Fjárfestingar Höfuðfjárfesting ársins var i nýju mólkurstöðinni á Akureyri, en aö öðru leyti dreifðust fjár- festingarnar niöur á fjölmörg viðfangsefni viðs vegar um félagssvæðið. Aö loknu máli Hjartar Þórar- inssonar tók Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri til máls, og i skýrslu hans kom fram, að heildarvelta félagsins á árinu 1977 jókst um 43,2% miöað við árið áður og varö heildar velta félagsins 16,9 milljaröar króna. Fastráönir starfsmenn kaup- félagsins i árslok 1977 voru 788 og heildarlaunagreiðslur kaup- félagsins og fyrirtækja þess, beinar og óbeinar, námu 1.906 milljónum króna og hafði launa- kostnaður hækkað um 51,6% frá árinuáður. I reikningum félags- ins kom fram að félagið hafði veitt félagsmönnum og öðrum viðskiptavinum afslætti i verzl- unum félagsins fyrir samtals 27,5 milljónir króna á siðasta ári, en auk þess samþykkti að- alfundurinn að endurgreiöa 3% tekjuafgang til félagsmanna, og miðað við ágóðaskyld viðskipti þeirra færist sá endurgreiddi tekjuafgangur á stofnreikninga félagsmanna. Þá samþykkti fundurinn að endurgreiða 4% tekjuafgang af viðskiptum félagsmanna við lyfjabúð félagsins, Stjörnuapó- tek, og ennfrepnur samþykkti aðalfundurinn að leggja 4 millj. kr. i menningarsjóð félagsins. Alls var rekstrarafgangur ársins 1977 36. 5 millj. kr. og heildarf jármunamyndun i rekstrinum 180 millj. kr. Þá kom fram að félagið hafði greátt bændum fullt grundvallarverö fyrir afurðir á siðasta ári og reyndar rúmlega það i ýmsum tilvikum. Áhrif efnahagsþróun- arinnar 1 skýrslu sinni gerði Valur Arnþórsson einnig greinfyrir á- hrifum efnahagsþróunarinnar og þá sérstaklegaverðbólgunnar á rekstur félagsins og reyndar á allan atvinnureksturi Eyjafirði. 1 þessu sambandi minntist Val- ur Arnþórsson á rekstur verk- smiðja Sambandsins i Eyja- firði, sem eiga við verulega rdrsturserfiðleika að etja, þar sem verðbólgan innanlands er gjörsamlega að grafa undan samkeppnishæfni framleiðslu þeirra á erlendum mörkuöum. Einnig geröi Valur Arnþórsson að umtalsefni þá gifurlegu birgðasöfnun sem orðið hefur á landbúnaðarvörum og sjávaraf- urðum, en binding félagsins á eigin fjármagni i afurðabirgð- um þessara framleiðslugreina er nú i júnibyrjun 700 millj. kr. og hefur aukizt um 400 millj. kr. frá sama tima 1977. Heildar- verðmæti afurðabirgðanna hjá félaginu i þessum tveim grein- um er nú 2,3 múljaröar kr. I þessu sambandi varaði Valur Arnþórsson sérstaklega bændur við og bað þá að forðast eftir megni fjárfestingar á þessu ári og hinu næsta vegna þeirra verðmiðlunargjalda, sem útlit er fyrir að tekin verði af mjólk- urverði þeirra. 1 sambandi við efnahagsmál- in var ýtarlega rætt um þróun launamála á fundinum og lagði Valur Arnþórsson höfuðáherzlu á að i grundvallar atvinnugrein- um þjóðfélagsins væri ekkert svigrúm fyrir þá c.a. 20% launahækkun sem tók gildi þann 1. júni. Sú launahækkun hlýtur einungis að fela i sér aukinn fjölda verðbólgukróna. Augljöst væri að binding kaupgjalds við visitölu framfærslukostnaðar hefði alls ekki tryggt hlut hinna lægst launuðu heldur þvert á móti grafið undan rauntekjum þeirra þannig að þetta kerfi þyrfti rækilegrar endur- skoðunar við ef launajöfnunar- stefna ætti að rikja. V er zlunarþ jónust a samvinnuhreyfingar- innar Þá fóru fram á fundinum ýt- arlegar umræður um verzlunar- þjónustu samvinnuhreyfingar- innar i' framhaldi af framsögu- raaðu sem Björn Baldursson verzlunarfulltrúi flutti, en þetta mál er sérmál aðalfunda kaup- félaganna og Sambands ís- lenzkra samvinnufélaga á þessu vori. Hús Sildarverksmiðja rikisins á Skagaströnd Kröflubúðir komnar á Skagaströnd Loðnubræðsla gerð úr sildarverksmiðju SJ — Rifið hefur verið innan úr stóð, voru nýlega fluttar á Skaga- verksmiðjuhúsi Sildarverksmiðja strönd til afnota fyrir þá, sem aö rlkisins á Skagaströnd og er ætl-. þessum byggingaframkvæmdum uninin að breyta þvl I loðnu- vinna. Sildarverksmiðjur rlkisins bræðslu. Vinnubúöirnar, sem not- standa að þessum framkvæmd- aöar voru viö Kröflu meðan á um. byggingu virkjunarinnar þar Deilan i Bæjarútgerð Hafnarfjarðar: V er kstj órunum sagt upp störfum — með þriggja mánaða fyrirvara GEK — A fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar i gær var sam- þykkt með atkvæöum meirihlut- ans að segja tveimur verkstjór- um Bæjarútgerðar Hafnarfjaröar upp störfum með þriggja mánaða fyrirvara. Fulltrúar minnihluta- flokkanna sátu hjá, á mismun- andi forsendum þó. Fulltrúar Alþýðuflokks og Al- þýöubandalags vildu að verk- stjórarnir yrðu látnir hætta störf- um strax, en Markús Á. Einars- son fulltrúi Framsóknarflokks vildi að nýkjörnu útgerðarráði yröi gefinn kostur á að reyna sættir i deilu starfsfólksins og verkstjóranna tveggja. Mál þetta var tekið fyrir utan dagskrár á fundi bæjarstjórnar og var fundi lokað á meðan um- ræður um það fóru fram. Meirihluta i bæjarstjórn Hafnarfjarðar skipa Sjálfstæðis- menn og óháðir og hljóðar tillaga þeirra, sem var samþykkt með 6 atkvæðum, þannig: „Bæjarstjórn lýsir vonbrigðum sínum með, að ekki skuli hafa tekizt sættir á grundvelli itrekaðra sáttatillagna hennar I deilu verkstjóra og starfsfólks fiskiðjuvers bæjarút- gerðarinnar og virðist þvf ljóst að hér sé um aö ræöa ósættanlegt sundurlyndi milli viðkomandi að- ilja”. Með þvi' að ekki er forsvaran- legt að reka fiskiðjuyerið til frambúðar, nema að reynt verði aðtryggja þar sem beztan starfs- frið og rekstraröryggi, hvað snertir sambúð starfsfólks og verkstjóra, telur bæjarstjórn ekki hjá þvi komizt að segja verkstjór- um fiskiðjuversins upp starfi og með þriggja mánaða fyrirvara. Bæjarstjórn samþykkir þvT að fela útgeröarráði aö annast nú þegar slika uppsögn úr starfi og jafnframt að auglýsa eftir nýjum verkstjórum. Sem fyrr segir sat Markús A. Einarsson bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins hjá við atkvæða- greiðsluna og lét hann gera eftir- farandi bókun: ,,Ég tek undir þann hluta fyrirliggjandi tillögu þar sem lýst er vonbrigðum með, aðekki hafi tekizt sættir á grjgsd- velli itrekaðra sáttatillagna. Ég Framhald á 19. siðu. Telur Þjóðviljinn samninga marklausa — nema þeir séu undirritaðir af þýðubandalagsmenn sem undir- Þá sagði hann að núna i vikunni rita þá sagði Jón. væru fyrirhugaðar viðræður milli verkalýðsfélagsins og Kaupfélags Borgnesinga og þaö væri von Verkalýðsfélagsins að árangur yrði af þeim viðræðum. Þá sagði Jón að á undanförnum árum hafi verkalýðsfélagiö einnig gert sér- samninga við kaupfélagið um launakjör i almennri 'verka- mannavinnu sem væru hag- stæðari verkafólki en almennir samningar gerðu ráð fyrir. Alþýðubandalagsmönnum? HEI —Þessi frétt er alröng sagöi Jón A. Eggertsson form. verka- lýösfélagsins i Borgarnesi er blaöiö bar undir hann frétt i Þjóð- viljanum i gær þar sem segir að aöeins sveitarstjórnir þar sem Alþýöubandalagsmenn hafi for- ystu fyrir meirihluta hafi gert sérsamninga við launþega. Jón sagði að Verkalýðsfélag Borgarnessog Borgarneshreppur hafl undirritað samkomulag um laun verkamanna hinn 19. april s.l. og heföu það veriö fyrstu kjarasamningar sem undirritaðir hafi veriö eftir að kjara- skerðingarlögin voru sett. Sam- komulag þetta hafi veriö gert meöfullu samkomulagi viö A.S.l. og Verkamannasambandiö og gildi frá 1. marz til 1. sept. Blaö Alþýöubandalagsmanna i Borgarnesi hafi aftur á móti kallaö þetta samkomulag kosningabombu og aö dómi Þjóö- viljans virðast samningar ekki taka gildi, nema aö það séu Al- Þjóðviljalygi hrakin — af Guðmundi J. Guðmundssyni Blaðið bar umrædda frétt Þjóðviljans einnig undir Guö- mund J. Guðmundsson form. Verkamannasambandsins. Hann staöfesti aö Borgarnes- hreppur hati verið fyrstur til að semja við sitt fólk og aö þvi hafi verið fagnað mjög af Verkamannasambandinu. Samið hafi verið um hækkun sem kaupskerðingunni nam og riflega þaö og jafnframt um 9% hækkun 1. júní sem þá hafi verið meira en gert var ráð fyrir að visitöluhækkuninni næini. Það væri þvi ekkert um að sakast við þá, nema siður væri.sagði Guömundur og bætti við að samningurinn i Borgarnesi hafi veriö ákaf- lega gieöilegur og góður.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.