Tíminn - 23.06.1978, Page 3

Tíminn - 23.06.1978, Page 3
Föstudagur 23. júnl 1978 3 „Viðreisnarstefnan” með nýju nafni: 15 milljónir atvinnulausar 1 V-Evrópu undir , ,markaðsstefnu’ ’ Efnahagsstefna Sjalfstæöis- flukksins hefur hlotiö nýtt nafn. Nú er hún kölluö markaðs- stefna. Það er raunar gamla viðreisnarstefnan aftur gengin, og von Sjálfstæöisflokksins er sú, að Alþýðuflokkurinn fái nægjanlegt þingfylgi til þess, að þeir tveir geti tekið höndum saman og stjórnað landinu eftir sömu formúlu og á árunum 1960- 1970. Þá leiddi stjórn þeirra og stefna til þess, að atvinnuleys- ingjar i landinu komust upp i 5500. Þá leiddi stjórn þeirra og stefna til þess, að fjölmörg byggðarlög voru að þrotum komin. Þá leiddi stjórn þeirra og stefna til þess, að um ellefu þúsund islendingar flúðu land. Það má lika lita á það, hvernig „markaösstefnan” hefur gefizt i nágrannalöndum okkar. 1 iðnaðarrikjunum i Vestur-Evrópu eru fimmtán milljónir atvinnulausar undir „markaðsstefnu”. Bak við þetta fróma nafn, „markaðsstefna”, er falin hót- un um atvinnuleysi — þetta, sem einu sinni var nefnt berum orðum „hóflegt atvinnuleysi”. En atvinnuleysi er aldrei hóflegt Atvinnuleysi er alltaf böl- Þetta vilj um vio: Tryggingar og heilbrigðismál Arnór Valgeirsson: „Trúi ekki spám um fylgis- hrun” — Ég vona alls hugar, að Framsóknarflokkurinn hljóti gott fylgi i kosningunum fram- undan. Stefna hans og störf á liðnum árum sýna, að hann á skilyrðislaust skilið brautar- gengi fólks, sagði Arnór Val- geirsson, framkvæmdastjóri Dráttarvéla, I samtali viö Timann. Þrátt fyrir ýmsar hrakspár, sem duniö hafa yfir okkur sið- ustu daga, og kveða á um mikið fylgishrun fyrir Framsóknar- flokkinn i fyrirhuguðum kosn- ingum, þá er ég bjartsýnn, enda þykir mér einsýnt um, að þær séu ekki nægjanlega vel úr garði Arnór Valgeirsson. gerðar, þannig að hægt sé aö byggja á þeim að einhverju marki. Ég vil að lokum segja það, aö ég mun eindregið styðja Framsóknarflokkinn við þessar kosningar, og hvet alla aðra til að fylgja þvi fordæmi. Kappreiðar Freyfaxa að Iðavöllum Þingið telur aö efling félags- legrar samstöðu og samhugar sé forsenda þess aö við varð- veitum sérkenni Islenzks sam- félags og búum hér I farsælu menningarriki i framtiðinni. Flokkurinn vill stuöla aö fjöl- þættri félagslegri þróun og leggja áherzlu á að manngildi og mannhelgi verði i heiðri höfð I allri þjóöfélagsstarfseminni. Viö mótun efnahags- og at- vinnumálastefnu ber að miöa að félagslegri uppbyggingu sem geri okkur kleift aö verða sjálf- um okkur nóg á sem flestum sviðum, þannig að draga megi úr innflutningi á vörum og þjón- ustu. Stefna ber að þvi aö efla og auka islenzkt efni I sjónvarpinu úr þeim 40% sem það er nú. Þingið varar eindregið viö hinum félagslega eyðileggjandi áhrifum verðbólgunnar og hins mikla vinnuálags I landinu. Leggur þingið til að Fram- sóknarflokkurinn setji fram áætlun þar sem metnar eru félagslegar afleiðingar aögeröa gegn verðbólgunni. Tryggingamál Velferð þarf að sjá i viðu félagslegu samhengi. Fjárhags- legir styrkir skulu þvi aðeins vera einn þáttur af mörgum I trygginga- og styrkjakerfi þjóð- arinnar. Flokksþingið leggur áherzlu á að hraðað verði svo sem unnt er þeirri endurskoðun laga um al- mannatryggingar sem nú er unnið að: — að tryggja verði jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu, svo sem með greiðslu ferðakostn- aðar þeirra sem leita þurfa sérfræðiþjónustu um iangan veg og á þvi þurfa að halda. — að komið verði á sameigin- legu verðtryggöu lffeyriskerfi fyrir alla landsmenn. — að valdssviö Tryggingarráðs verði aukiö, þannig að það hafi meira vald en nú er til þess að skera úr um vafaatriöi i túlk- un laga og reglugerða er starf- semi þess varöa. — að sjúkrasamlög og trygg- ingastofnanir greiði kostnað við þjónustu starfsstétta á andlega og félagslega sviðinu á sama hátt og greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu á likam- lega sviðinu. — að kostnaður við tannvið- gerðir og tannréttingar verði tekinn inn I tryggingakerfið i áföngum. — að auka beri stuðning við samtök öryrkja og stefna beri að þvi að allir þjóöfélagsþegn- ar sem þess óska og einhverja vinnugetu hafa, eigi rétt á vinnu viö sitt hæfi bæði á frjálsum vinnumarkaði og sérstökum vernduðum vinnu- stöðum. Heilbrigðismá! Flokksþingið bendir á mikil- vægi góðrar andlegrar og lik- amlegrar heilsu fyrir velferð einstaklinga og þjóðfélags og bendir á það að öflugur stuðn- ingur við heilsugæzlu, heil- brigðisþjónustu og heiláu- ræktarstarfsemi skilar sér margfalt aftur i betri heilsu og aukinni lifshamingju. Efla þarf þátt fyrirbyggjandi aðgerða og heilsuverndar i heil- brigðisþjónustunni og stórauka fræðslu og félagslegar aðgeröir er varðar samband milli heilsu og lifnaöarhátta. í þessu sam- bandi má benda á hið mikla heilsufarslega gildi iþrótta og útivistar og á það, að neysla hollrar fæðu er stór þáttur I varðveislu heilsunnar. Einnig fagnar þingið aukinni starfsemi á sviði bindindisjjiála. Slikt varnarstarf þarf að efla enn meira og ná til allra vimu- gjafa og fikniefna. Einnig varar þingið við sivaxandi notkun á róandi lyfjum. Flokksþingið áréttar stuöning við lög um heilsbrigöisþjónustu frá 1974 og hvetur til þess að við framkvæmd þessara laga sé lögð meiri áherzla en verið hef- ur á hinar félagslegu og andlegu hliöar heilsugæzlustarfseminn- ar. Með réttri uppbyggingu og hópvinnu heilsugæzlulækna, sérfræðinga, félagsráögjafa, sálfræðinga og annarra heil- brigöisstétta, má ætla að heilsu- gæzlustöðvarnar gætu vel og hagkvæmlega annað allri al- mennri og að nokkru leyti sér- hæfðri heilsugæzlu i landinu. Með þessu fyrirkomulagi má ætla aö fleiri læknar og annað sérhæft starfsliö fengist til starfa á heilsugæzlustöövum, hvar sem væri á landinu. Efla þarf samband heilsu- gæzlustarfseminnar við heimil- in og auka hlut heimilislækn- inga. Nauösynlegt er aö rekstur sjúkrahúsanna i landinu sé endurskoðaöur með tilliti til aukins samstarfs. Við uppbygg- ingu sjúkrahúsa verði tekið tillit til vaxandi starfsemi göngu- deilda eða dagdeilda þar sem koma megi við sérhæfðu eftir- liti, lækningum og rannsóknum án innlagningar. Slik heildar- samræming heilbrigðiskerfisins skapar mun betri aðstöðu til menntunar lækna og annarra heilbrigðisstétta og aukna hag- kvæmni I rekstri. Flokksþingið telur að stórátak beri að gera i málefnum lang- sjúkra og vill að Framsóknar- flokkurinn beiti sér fyrir þvi aö gert sé ráð fyrir að ákveðinn fjöldi rúma sé viö hverja legudeild sjúkrahúsa handa slikum sjúklingum. Varðandi málefni öryrkja er nauðsyn skipulegra fram- kvæmda með tilliti til endurhæf- ingar og allrar aöstöðu. Þá skal bent á nauðsyn þess að efla skilning á mikilvægi hjúkrunar, samhæfa hjúkrun öðrum þáttum heilbrigðisþjón- ustunnar og samræma hjúkr- unarnám”. Hestamannafélagið Freyfaxi á Héraði heldur sitt árlega mót að Iðaföllum laugardaginn 24. júni. Á mótinu veröa gæöingar dæmdir og valdir til þátttöku I landsmóti og kappreiðar veröa háöar. Nemendur Margrélar Jónsdótt- ur, sem hefur verið með reið- kennslu á félagssvæðinu aö undanförnu, munu sýna æfingar i gerði og fleira verður til gamans gert. Klukkan 10 á laugardags- morgun leggja félagar af stað frá Egilsstöðum I hópreið að Iðavöll- um, þar verða nemendur reið- skólans með i flokki, en þeir eru 40—50 talsins. Meðal keppnis- hrossa i kappreiðum veröur Nös frá Urriöavatni. A sunnudag veröur héraðssýn- ing kynbótahrossa. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.