Tíminn - 12.07.1978, Page 7
MiOvikudagur 12. júli 1978
7
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SiOumúla 15. Simi
86300. ,
Kvöldsimar blaOamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö i lausasölu kr. 100.00. Áskriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi. ,
Biaöaprent h.f.
Hvað vilja þeir?
Nú dregur það enginn lengur i efa að rikisstjórnin
sagði satt og rétt frá ástandi og horfum
efnahagsmála á siðast liðnum vetri. Nú dregur það
enginn lengur i efa heldur;að óhjákvæmilegt var að
gripa til ákveðinna aðgerða.
Andspænis þessum staðreyndum er það aðeins
sýndarmennska þegar stjómmálamenn segja það
nú i svo kölluðum ,, könnunarviðræðum” sinum, að
upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun bendi til mikilla
erfiðleika i þjóðarbúinu fram undan.
Ef lengra er skyggnzt minnast menn þess enn
fremur, að rikisstjórnin og málgögn hennar bentu á
það þegar i fyrra sumar að kjarasamningamir þá
myndu leiða af sér mikinn vanda.
Og nú draga það engir i efa i einlægni lengur, að
efnahagsaðgerðum rikisstjórnarinnar var mætt af
ábyrgðarleysi sem nú dregur með sér enn meiri
erfiðleika, einkum fyrir launafólkið.
Fyrir kosningar virtust Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag hafa ráð undir rifi hverju, og þessir
flokkar virtust hafa samstöðu um flest mikilsverð-
ustu úrlausnarefni efnahags- og kjaramála.
Eftir kosningarnar kemur það hins vegar i ljós að
svo mikið djúp er milli flokkanna að þeir verða að
hefjast handa með einhverju sem kallað er „könn-
unarviðræður”, og svo mikil er óvissan um viðhorf
þeirra og úrræði, að i þessum samtölum koma eng-
ar beinar tillögur fram, hvorki frá Alþýðuflokki né
Alþýðubandalagi.
Fólk er þegar farið að spyrja, hvort þetta sé
einlægni stjórnmálamanna i áður óþekktri mynd,
eða hrein og klár pólitisk taflmennska, sem miðar
að markmiði sem enn hefur ekki verið látið
uppskátt.
1 þessu sambandi kemur leiðari Þjóðviljans i gær
mátulega á óvart. í honum er þvi af ósvifni haldið
fram, að Framsóknarmenn hyggist nú taka sér
eitthvert „langt pólitiskt orlof” eins og það er
orðað.
Það vekur athygli að þessi leiðari birtist sama
dag og forystumenn Framsóknarmanna lýsa yfir
þvi skýrt og skorinort við leiðtoga Alþýðubanda-
lagsins, að Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn til
formlegra viðræðna um stjórnarmyndun við
Alþýðuflokk og Alþýðubandalag, en höfðu þegar
áður lýst yfir þvi, að þeir væru fúsir til að bera
meðábyrgð á samstjórn sigurvegara kosninganna
eftir að þeir hefðu lagt fram málefnasamning sinn.
í yfirlýsingum og afstöðu Framsóknarmanna til
vinstra samstarfs er fullt samræmi bæði fyrr og sið-
ar. Við þær nýstárlegu aðstæður, sem nú eru upp
komnar i stjórnmálum og styrkleikahlutföllum
flokkanna, eru viðbrögð Framsóknarmanna þau
einu sem leitt gætu til myndunar vinstri stjómar.
1 dag spyrja Framsóknarmenn þess vegna hver
sé i rauninni einlægni og eiginlegur vilji Alþýðu-
bandalagsmanna og Alþýðuflokksins.
Reynslan hefur sýnt það, allt frá árum rikis-
stjórnar Hermanns Jónassonar 1959 og til kosning-
anna 1974, að veiki hlekkurinn i vinstra samstarfi er
óheilindi þeirra manna, sem hafa forystu
launþegasamtakanna i vasa sinum > einkum þegar
harðnar á dalnum og á reynir hvort rikisstjórn fær
ráðizt gegn vandanum.
Afstaða Framsóknarmanna i þessu máli er ljós
og skýr. Nú er spurn, hvað vilja sigurvegaramir
eiginlega? Eru þeir einlægir eða em þeir bara að
leika sér?
J.jS'.
ERLENT YFIRLIT
Filbinger kvað upp
f jóra dauðadóma
Segist hafa verið búinn að gleyma þeim
Helmut Kohl
UNDANFARNAR vikur
hefur staöiö mikill styr I
Vestur-Þýzkalandi um for-
sætisráöherrann i
Baden-Wiirttemberg, Hans
Filbinger. Hann hefur á siöari
árum veriö meöal vinsælustu
leiötoga kristilegra demó-
krata, og oft komiö til oröa, aö
hann yröi kanslaraefni þeirra,
ef Helmut Kohl hlekktist á.
Filbinger þykir landsfööurleg-
ur i framkomu, ihaldssamur
og frekar öfgalaus. Þó getur
þaö breytzt fyrir kosningar.
Þaö var hann sem fann upp
kjöroröiö: Frelsi eöa sósial-
ismi. Hann beitti þvi fyrst i
þingkosningum i
Baden-Wurttemberg, en siöan
hafa kristilegir demókratar
oft notaö þaö.
Filbinger hefur óspart lýst
þvi á siöari árum, aö hann
væri andvlgur nasisma og
heföi sterka andúö á þeim
hryöjuverkum, sem nasistar
unnu I valdatiö Hitlers. Þaö
kom þvi talsvert á óvart, þeg-
ar rithöfundurinn Rolf
Hochhuth birti grein, þar sem
hann upplýsti, aö Filbinger
heföi rétt fyrir striöslokin,
þegar hann var ákærandi i
Noregi á vegum þýzku her-
stjórnarinnar, krafizt dauöa-
dóms yfir 22 ára gömlum liö-
hlaupa úr þýzka hernum,
Hans Gröger, og slöan hlutazt
til um aö dómnum væri fram-
fylgt. Hochhuth taldi þetta
dæmi um, aö enn sætu gamlir
nasistar á valdastólum i
Vestur-Þýzkalandi. Hochhuth
hefur um alllangt skeiö unniö
aö þvi, aö rannsaka feril ým-
issa þekktra manna meö þaö
fyrir augum aö ljóstra upp
skiptum þeirra viö nasista áö-
ur fyrr. Þaö vakti á sinum
tima mikla athygli, þegar
Hochhuth réöist á Pius XII
páfa fyrir aö hafa veriö hliö-
hollan nasistum.
FILBINGER svaraöi árás
Hochhuth strax á þann veg, aö
hann heföi oröiö aö fara eftir
herlögum, og þvi ekki átt ann-
ars völ en aö krefjast dauöa-
dóms yfir Gröger. Þaö yröi
einnig aö taka meö i reikning-
inn, aö á þessum tlma, eöa i
marz 1945, hafiupplausn veriö
vaxandi i þýzka hernum og
óhjákvæmilegt hafi veriö aö
reyna aö sporna gegn henni og
reyna m.a. þannig aö hamla
gegn framsókn rússneska
hersins. Jafnframt lýsti Fil-
binger hátiölega yfir þvl, aö
hann heföi ekki átt aöild nema
aö þessum eina dauöadómi.
Sem dómari hafi hann aldrei
kveöiö upp liflátsdóm.
Þá yfirlýsinguheföiFilbing-
er ekki átt aö gefa, þvi aö nán-
ari athuganir hafa leitt i ljós,
aöhannhefur kveöiö uppfjóra
dauöadóma yfir þýzkum
strokuhermönnum meöan
hann starfaöi sem dómari I
Noregi, en hann gegndi þar
ýmist embætti opinbers ákær-
anda eöa dómara. Filbinger
hefur nú oröiö aö viöurkenna,
aö hann hafi gefiö ranga yfir-
lýsingu um aö hann hafi aldrei
kveöiö upp dauöadóm. Hann
segist þó ekki hafa gefiö ranga
yfirlýsingu visvitandi, heldur
hafi hann hreinlega veriö bú-
inn aö gleyma þessum dóm-
um. Samthafi hann legiö and-
vaka I tvær nætur eftir aö þaö
rifjaöist upp fyrir honum, aö
hafa veriö viöstaddur, þegar
dómnum yfir Gröger var
framfylgt. Hann hafi ómögu-
lega getaö munaö eftir þess-
um dómum umræddar and-
vökunætur og stafi þaö senni-
lega af þvi, aö þeim var aldrei
fullnægt, en þeir voru kveönir
upp yfir mönnum, sem höföu
komizt til Sviþjóöar og þýzki
refsivöndurinn náöi þvi ekki
til þeirra.
Raunum Filbinger var ekki
lokiömeöþessu.Komiöhefur i
leitirnarkatólsktblaöfrá 1934,
þar sem birt er grein eftir Fil-
binger um hina nýju hegninar-
löggjöf Hitlers. Filbinger'ter
þar miklum lofsoröum um
hana, en hún byggist aö veru-
legu leyti á kynþáttakenning-
um nasista og hefur aö geyma
mörg refsiákvæöi, sem eiga aö
tryggja aö germanska stofnin-
um sé haldiö hreinum. Fil-
binger hefur reynt aö afsaka
sig meö þvi, aö hann hafi aö-
eins veriö 21 árs, þegar hann
skrifaöi þetta, og skoöanir
hans hafi þá veriö ómótaöar.
AF HALFU flokksbræöra
Filbingers hefur veriö tekin
full samstaöa meö honum
vegna þessara ádeilna. Sam-
tök kristilegra demókrata i
Baden-Wiirttemberg hafa lýst
trausti sinu á honum og telja
þaö ofsókn eina aö rifja fortiö
hans upp á þennan hátt. Sama
hefúr Helmut Kohl, foringi
flokks kristilegra demókrata i
Vestur-Þýzkalandi gert,
ásamt öörum helztu leiötogum
flokksins. Eina undantekning-
in er Erwin Rommel, borgar-
stjóri i Stuttgart, sem er
höfuöborgin i
Baden-Wiirttemberg. Hann
hefur gagnrýnt Filbinger og
telur hann illa geta réttlætt
dauöadómana. Rommel hefur
jafnframt lýst þeirri skoöun
sinni, aö timi sé til þess kom-
inn, aö hætt veröi aö deila á
menn vegna fortiöar þeirra á
þeim tima, sem nasistar réöu I
Vestur-Þýzkalandi, þvi aö
margir hafi þá oröiö aö haga
sér ööruvisi en þeir vildu.
Af hálfu jafnaöarmanna og
frjálslyndra demókrata hefur
mjög veriö deilt á Filbinger og
taliö rétt aö hann segöi af sér.
Einkum hafa samtök yngri
manna, sem styöja jafnaöar-
menn og frjálsa demókrata,
látiö til sin taka aö þessu leyti.
Utan Þýzkalands er máli
Filbingers veitt veruleg at-
hygli þvi aö þaö getur oröiö
verulegur mælikvaröi á, hvert
er nú viöhorf Vestur-Þjóö-
verja ti! nasismans.
Þ.Þ.
Hans Filbinger