Tíminn - 05.08.1978, Side 5

Tíminn - 05.08.1978, Side 5
Laugardagur 5. ágúst 1978 5 Lagadeild H.í. Miklar deilur um próf á 4.ári HR — Að undanförnu, hefur töluvert verið fjallað i dagblöð- um um málefni háskólans og þá sérstaklega um hinar ýmsu deildir er viðhafa „siun” á nemendum. Hefur lagadeildin einkum verið i sviðsljósinu i þeim efnum. t Morgunblaðinu i gær er fjallað um þetta mál á breiðsiðu og er tilefnið greinarstúfur er birtist iTimanum, þar sem mál lagadeildar eru gagnrýnd. Rætt er við kennara og nemendur og kemur þar fram að kennararnir telja að of margir stúdentar setjist á skólabekk i háskólan- um með lélegar einkunnir með þeim afleiðingum að fall á próf- um verður meira en ella. Nemendur eru hins vegar nokk- uð einróma um að allt of miklar kröfur séu gerðar til nemenda og eigi það sérstaklega við um próf á 4. ári. Þannig segir Asdis Rafnar laganemi að ,,i saman- burði við prófkosti og lágmarks- einkunnir sem nemar við aðrar deildir H.t. búa við', þá á laga- deildin engan sinn lika.” Og (Páll Björnsson, laganemi segir að „mikil brögð séu áð þvi i lagadeild að stór hluti nemenda hefur fallið eða hætt i annars hluta prófum, en þessi próf ganga menn undir eftir 4-5 vetra nám við deildina”. Arnljótur Björnsson deildar- forseti lagadeildarinnar segir i þessari sömu grein „nemendur koma upp úr menntaskóla upp til hópa með þriðju einkunn og Lögberg, hús lagadeildar H.t.: Laganemar og kennarar þeirra ekki á eitt sáttir um þyngd prófa. með þann efnivið eru kannski ekki gerðir mjög stórir hlutir.” Sneri Timinn sér til nokkurra aðila sem mál þetta snertir og spurði þá álits á „slunarmál- um” háskólans og þá sérstak- lega lagadeildarinnar. Fyrst var haft samband við deildarforseta lagadeildarinn- ar, Arnljót Björnsson prófessor, en hann sagðist ekkert vilja láta hafa eftir sér um þessi mál. Hins vegar náðist I Jón Steinar Gunnlaugsson, sem kennt hefur við lagadeildina, og var hann fyrst spurður um það álit nemendanna að of miklar kröf- ur séu gerðar á 4. árs prófum. Jón Steinar Gunnlaugs- son: „Prófkröfur hafa ekki aukist” „Ég held að það sé rétt að það má gera lagfæringar á reglu- gerð lagadeildarinnar og raun- ar hlýtur svo að vera þvi reglur eru breytingum háðar. Ég tel ástæðu til að færa námsefni af 2. hluta yfir á fyrsta hluta. Um þetta hefur verið rætt i deildinni og hafa kennarar tekið þessu vel. Það er hins vegar út I hött að tala um að kennarar hegði sér miður drengilega þegar þeir eru að gefa nemendum einkunnir fyrir próf. Þeir eru aðeins að gegna skyldum sínum.” — Nú kemur fram hjá nemendum að námsefni hafi verið stóraukið og jafnvel komið með eitt 100% verkefni úr mjög litlum hluta námsefnis — hvað viltu segja um það? „Hvað snertir námsefni I þeirri grein sem ég hef kennt, þ.e.a.s. fjármunarétti, þá kann- ast ég ekki við að námsefni hafi verið stóraukið. Viðvikjandi hvernig próf skuli vera, þá gilda engar sérstakar reglur um það. Meginatriði málsins er , að ekki er fyrirfram hægt að gera ráð fyrir neinni ákveðinni gerð af prófum. Nemendur vilja gjarn- an fá mörg og dreifð verkefni á prófi og þá kannski til að þurfa ekki að fara yfir allt námsefnið, en þeir verða að skilja það, að þeir verða að fara yfir allt námsefnið fyrir próf og kunna það allvel.” — Finnst þér þá eðlilegt að 42% falli á prófi og það á 4. ári? „Auðvitað er það há fall- prósenta og auðvitað er það leiðinlegt, en þessir nemendur fá annað tækifæri.” — Hvað viltu segja um þá fullyrðingu prófessora I laga- deild að e.t.v. megi kenna þetta háa fall lélegri námsárangri i menntaskólum? „Ég held að ekki sé alveg rétt eftir þeim haft. Það er þó ljóst að sú fjölgun sem orðið hefur i hópi stúdenta er mest á meðal þeirra, sem mjög naumlega hafa staðist stúdentspróf. Það er þvi ekki að undra þótt fallprósenta sé há I háskólan- um.” — En þarf þá að auka próf- kröfur, ef nemendurnir eru lélegri en áður var. Falla þeir þá ekki sjálfkrafa? „Ég visa þvi algerlega á bug aö prófkröfur hafi verið auknar. Að visu hef ég ekki fylgst svo lengi með þessum málum, en mér sýnist þó að kröfurnar séu ósköp svipaðar og áður. Það er þó rétt, að gera þarf eðlilegar breytingar á námsfyrirkomu- laginu sem og i öðrum deildum. Þvi má þó aldrei gleyma að þetta er háskólanám og það er vinna og aftur vinna. Fólk sem stundar háskólanám verður aö gera kröfur til sjálfs sin, en ekki hugsa um að sleppa i gegnum námið á sem ódýrastan hátt.” stéttar” Bolli Héðinsson formaður stúdentaráðs háskólans hafði þetta um málið að segja: „Stúdentaráð er á móti þvi að verið sé að fella menn eða beita þá fjöldatakmörkunum eins og viðgengst i sumum deildum háskólans. Hvað varðar laga- deildina er þvi ekki að neita, aö okkur hjá stúdentaráði hefur þótt það undarlegt hve fastur fjöldi hefur náð upp af fyrsta ári i lagadeildinni. Það bendir til þess að verið sé að sia meö einkunnum og virðist þvi vera beitt viða þar sem ekki eru bein- ar fjöldatakmarkanir”. „Hvað viltu segja um þá full- yrðingu prófessora lagadeildar- innar, að nemendur i háskólan- um séu lélegri en áður?” „Prófkröfur út í hött” Guðriður Guðmundsdóttir, laganemi, hafði þetta um málið að segja: „Það er eins og kennararnir reikni með að allt botnfallið fari i lögfræðideild og að það skýri þennan slaka árangur. Nemendur verða hins vegar að fá sömu möguleika og fólk I öðr- um deildum, en ég held að svo sé ekki meðan núverandi prófa- fyrirkomulag rikir. Mér finnst þannig að próf m§ð einu verkefni, sem gildir 100% úr fjórþættu fagi þar sem fleiri þúsund blaðsiður eru til prófs, en aðeins er prófað úr örfáum siðum — það finnst mér út i hött. Enda er útkoman sú að 42% falla eða hætta. Þvi er ég al- Ég tel það alrangt að nú séu lélegri nemendur en áður. Hins Bolli Héðinsson, formaður Stúdentaráðs. gerlega sammála þeirri gagn- rýni, sem framhefur komið hjá laganemum og fleirum varð- andi þessi mál.” „Kennarar verða að stíga þetta hænufet í átt til réttlætis” Páll Björnsson, laganemi, sagði: „Mér finnst það athyglisverð- ast hvað kennararnir tala mikið um að breytinga sé þörf á skipulagningu námsins og það virðist mega lesa það út úr um- mælum þeirra að þeir séu opnir fyrir breytingum'. Ég er mjög ánægður með þetta og vona svo sannarlega að þessir ágætu menn hafi bæði vilja og getu til að standa að breytingum. Ég er þeirrar skoðunar að þær breytingar verði fyrst og fremst að vera fólgnar i þvi að afstýra að stór hluti nemenda veröi fyrir stóráföllum á siðara hluta námsins. Það verður ekki gert nema með þvi að breyta fyrirkomulagi náms milli 1. og 2. hluta námsins. Það er út i hött að kenna slök- um árangri á 2. hl. lélegum menntaskólum. Það má kannski nota þessa röksemd til að skýra slæman árangur á 1. ári en svo ekki meir. Hvað um það, breyt- inga er þörf — ekki róttækra breytinga er geri námiö aö leik, heldur breytinga sem þoka rétt- lætinu einu hænufeti framar. Það eru kennarar i lagadeild, sem verða að stiga þetta hænu- fet og það hið allra fyrsta.” vegar hefur fleiri gefist kostur á að stunda langskólanám og um leið hlýtur nemendum i háskólanum að fjölga.” Hvað með siun á 4. ári i laga- deildinni?” „Ég er á móti öllum sium og mér finnst rangt að segja að siun á 1. ári eigi rétt á sér til að ekki þurfi að koma til siunar á 4. ári. Ég vil bæta þvi við að kennar- ar lita ekki á menntun með sömu augum og stúdentar. Kennararnir, t.d. þeir i lög- fræðideild, lita svo á að stétt þeirra, lögfræðingastéttin, eigi ekki að stækka um of, þvi það skaði hagsmuni stéttar þeirra. Sama má segja um læknis- fræðina og tannlæknisfræðina, kennararnir hugsa fyrst og fremst um hagsmuni sinnar stéttar en ekki þjóðfélagsins i heild.” Formaður stúdentaráðs: „Kennarar í lögfræði hugsa fyrst og fremst um hagsmuni sinnar “tiStrangari inntöku kröfur í háskólann” Rektor Guðni Guömundsson rektor M.R. 1 Morgunblaðsgreininni skelltu prófessorar lagadeildar skuld- inni að töluverðu leyti á menntaskólana og fullyrtu að þeir útskrifuðu lélegri nemend- ur en áður. Þess vegna hafði blaðamaður samband við Guðna Guðmundsson rektor og bað hann að segja álit sitt á þessu máli. „Það er greinilegt að úr menntaskólunum koma nú fleiri nemendur en áður með 2. og 3. einkunn. Tölurnar segja okkur það. Viðhorf nemenda er oft það að nóg sé að skriða i gegnum prófin. Þetta var öðru visi áður fyrr, en þá kepptust menn meira við nám sitt en nú. Á þessu máli eru þó margar hliðar, t.d. eru inntökuskilyrði i menntaskóla mun minni en áður var, og stafar það af of litlum kröfum upp úr grunnákóla. Við viljum heldur herða kröfur en hitt. Hvað snertir stúdentsprófið og inntökuskilyrði i háskólann, þá held ég að stúdentsprófið hafi ekki léttst, heldur fari fleiri i gegnum það með lélegri eink- unnir en áður. 1 þvi sambandi held ég að háskólinn gerði okkur mikinn greiða með þvi að taka upp strangari inntökukröfur en lágmarks stúdentspróf,” sagði Guðni að lokum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.