Tíminn - 05.08.1978, Side 8

Tíminn - 05.08.1978, Side 8
8 Laugardagur 5. ágúst 1978 á víðavangi Vonlítil viðreisn l>essa dagana hugsa kratar mikið uin samstarf við Sjálf- stæöisflokkinn einan. Þessi hugsun er hvorki ný né frum- leg i Alþýðuflokknum, heldur hefur hún vakað fyrir ýmsum hclstu forystumönnum hans leynt og Ijóst um árabil. llugsanir krata um þessi efni nú eru þó ekki með öllu áhyggjulausar. Finnur Torfi Stefánsson alþingismaður rit- ar grein um þessi efni i Alþýðublaðið i gær og tekur fram ýmislegt fróðlegt i þessu sambandi. t upphafi greinar sinnar fjallar Finnur Torfi um „Viðrcisnarstjórnina” og reynsluna af henni, m.a. fyrir gengi Alþýðuflokksins. Hann fjallar einnig náið um þá breyttu aðstöðu sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur eftir að hann hefur misst alræði sitt i Keykjavik og orðið fyrir fleiri áföllum. Finnur Torfi segir siðan: „Við þær aðstæður sem nú rikja cr staða Sjálfstæðis- flokksins öll önnur. 1 stað samstöðunnar sem áður ein- kenudi flokkinn virðist nú upp kominn verulegur ágreiningur með forystumönnum jafnt sem almennum flokksmönn- uin og er ekki fyrirsjáanlegt á þcssari stundu hvernig þeim deilumálum lyktar. Tiltrú al- mennings á stjórnmála- frásagnir Morgunblaðsins hefur minnkað verulega og áhrifamáttur þess aö sama skapi. 1 stað yfirburðaaðstöðu áður þarf Sjálfstæðisflokkur- inn nú að sætta sig við allt að þvi jafnstöðu við aðra stjórn- málaflokka hvað varðar miðl- un upplýsinga. Stjórn Reykja- vikurborgar er ekki Iengur i höndum sjálfstæðismanna og þar með er brotið niður það viðhorf, sem áður var útbreitt, að enginn gæti stjórnað þvi bæjarfélagi nema Sjálf- stæðisf'okkurinn einn. t>á eru Finnur Torfi Stefánsson itök flokksins i verkalýðs- hreyfingunni ekki nema svipur hjá sjón frá þvi sem áð- ur var. Aðgerðir rikisstjórnar Sjálfstæöisflokksins i kjara- málum á nýliðnu kjörtimabili gerði verkalýðsleiðtogum flokksins mjög erfitt fyrir. Þó kastaði tólfum er flokksfólkið tók þá ákvöröun i prófkjöri að vikja verkalýðsleiötogunum úr þeirn sætum er þeir höfðu haft á framboðslista og gáfu möguleika á endurkjöri til Alþingis, niður i sæti, er talin voru vonlaus sem og kom á daginn. Nú á enginn verka- lýðsleiðtogi sæti i 20 manna þingflokki Sjálfstæðisflokks- ins. Af þessum sökum og ýmsum öðrum er Sjálfstæðisflokkur- inn mjög breyttur flokkur. Aðstaða hans til að stjórna málefnum þjóðarinnar er önn- ur. Engin ástæða er til að efast um að þinglið Sjálfstæðis- flokksins hefur vilja til að leysa þau vandamál, sem nú blasa við þjóðinni. Efa- semdirnar snúast miklu frem- ur um getuna. Það er fleira sem hefur breytst i islenskum stjðrnmál- um en Sjálfstæðisflokkurinn. Hér skiptir t.d. núverandi staða Alþýðubandalagsins iniklu. A upphafsárum Viðreisnar var Alþýðubanda- lagið sambræðsla gamalla kommúnista og nokkurra undanhlaupsmanna úr Alþýðu- flokknum. Hugur þess var þá enn að miklu leyti bundinn við að verja ofbeldisaðgerðir Stalinista i Rússlandi. Það hafði þa einmitt nýlokið við að sprengja vinstri stjórn með ábyrgðarleysi og gunguhætti. Slíkur flokkur gat ekki orðið skeinuhættur i stjórnarand- stöðu. Á þeim tima sem siðan er liðinn hefur staða Alþýðu- bandalagsins breytst mikið. Eftir mikið ómak og erfiði hefur þvi tekist að þvo af sér kommúnismann, a.m.k. á ytra borði, og i siðustu Alþingis- kosningum fékk það meir en fimmtung atkvæða. Þaö hefur ennfremur tryggt sér mikil áhrif á marga leiðtoga i sam- tökum launafólks, enda þótt sú staöa hafi að likindum breytst nokkuð eftir atburði siðustu daga. Alþýðubandalagið hefur þannig skilyrði til mikillar skemmdarverkastarfsemi i sjórnarandstööu, skilyrði sem hvergi inundu njóta sin betur en undir Viðreisnarstjórn. Ekkert bendir til annars en Alþýðubandalagið mundi hag- nýta sér þa aðstöðu út i æsar. A það hefur verið bent að SjMfstæöisflokkurinn myndi fús til að ganga að öllum stefnumálum Alþýðuflokks- ins, ef kostur yrði gefinn á Viðreisnarstjórn. Þetta má ef til vill til sanns vegar færa. En það er fleira sem máli skiptir i þessu , en hvaða samþykktir kynnu að vera gerðar í stjórnarsáttmáia, Mikilvæg- ast er auðvitað hverju unnt yrði að fá áorkað I fram- kvæmd, hver styrkur stjórnarinnar yrði til aðgerða. Fyrirsjáanlega yrði sá styrk- ur lltill hjá Viðreisnarstjórn. Hún yrði veik stjórn” Fróðlegt verður að vita hvort flokksbræður Finns Torfa eru honum samm&la um þau atriði sem hann nefnir i grein sinni. Astæða er til að ætla að mismunandi skoðanir séu uppi i flokknum um flest þeirra. JS U pplituð tónlist Islenskir kvikmyndahúsa- gestir geta ekki tekið mark á kvikmyndaauglýsingum i dag- blöðunum. Þeir fá rangar upp- lýsingar úr þeim. í aug- lýsingunum er yfirleitt gefið i skyn að myndirnar séu mikið eftirsóknarverðari en þær eru. Þeir sem semja auglýsingarnar eru ósparir á tælandi lýsingar- orð. Hvað margar myndir eiga að vera óvenjulegasta, upp- reisnargjarnasta, fyndnasta, djarfasta og hrottalegasta mynd sem sést hefur á hvita tjaldinu? Þetta er leiðinlegur ósiður. Einhvern tima stöðvuðu Neytendasamtökin auglýsingu sem gaf rangar upplýsingar um gæði sjónvarpstækja. Aug- lýsingar kvikmyndahúsanna eru alveg sama eðlis. Kvik- myndahúsin selja vöru (aögang að sýningu) sem stenst ekki þau fyrirheit sem auglýsingarnar lofa. Kaupandinn er blekktur til að kaupa eitthvað annað en þaö sem hann heldur að hann sé að kaupa. Þetta eru vörusvik og ekkert annað. Neytandinn á að eiga rétt til að vita hvað hann er aö kaupa. Ég er ekki aö hvetja Neyt- endasamtökin til að stöðva kvikmyndaauglýsingar. Ég er aðeins að vekja athygli á þeirri sjálfsögðu þjónustu sem kvik- myndaauglýsingar eiga að vera, en eru þvi miður ekki. Hitt getur svo alltaf komið fyrir, að kvikmyndahús viti ekki hvaö það er að sýna. Það er að visu mjög sjaldgæft. Þó eru til dæmi um slikt. Að undanförnu hefur Há- skólabió haft á spólunum mynd um ameriska blökkumanninn Leadbelly. Háskólabió kallar myndina „Svört tónlist”. Engar upplýsingar um efni myndar- innar eru gefnar i dagblaöaaug- lýsingunum. En með aug- lýsingunum fylgir mynd af blökkumanni i fangafötum. Leadbelly er litið sem ekkert þekktur hér á landi. Þess vegna er hætt viö að margir fái rangar hugmyndir um myndina af aug- lýsingunum. Nafnið „Svört tón- list” gefur til kynna að myndin fjalli um svarta tónlist. Nú flokkast margar tónlistar- tegundir undir svarta tónlist. Sá sem fer á myndina og hefur ekki annað fyrir sér um efni hennar en auglýsinguna getur þvi átt von á að hún fjalli um jass eða blues eða soul eða reggae eöa.... Svört tónlist á ekki miklum vinsældum að fagna hérlendis. Enda hefur aðsókn að myndinni verið dræm. Ef „Svört tónlist” væri rétt auglýst myndi aðsókn- in verða mjög góð. Tónlistin i henni er nefnilega ekki svört.Að visu á hún rætur sinar að rekja til svartrar tónlistar. En hún er það vel hvitþvegin að hún er ekki svört frekar en úr- kynjunarblues sá er Status Quo er fræg fyrir eða discodrasl þeirra Gibbbræöra. Þó Leadbelly sjálfur sé litið þekktur hérlendis, þá hafa mörg laga hans náð miklum vinsæld- um hér á landi, sem og viða er- lendis, i flutningi annarra tón- listarmanna. T.d. hafa Beach Boys, Joan Baez, Woody Guthrie, Greedence Clearwater Revival, Pete Seeger o.m.fl. flutt lög eftir Leadbelly við mik- inn fögnuð. Hver man t.d. ekki eftir laginu „Cotton Fields” sem tröllreið öllum óskalaga- þáttum rikisútvarpsins fyrir nokkrum árum. Margar okkar heittelskuðustu (?) skallapopp- hljómsveitir hafa „Cotton Fields” m.a.s. ennþá á dagskrá hjá sér. Og alltaf gerir lagið jafn mikla lukku. Það hefði ekki sakað að telja upp i dagblaðaauglýsingunum eitthvað af þeim lögum sem flutt eru i myndinni. Þó ekki væri nema „Cotton Fields”. „Svört tónlist” er byggð á sögulegum staðreyndum um ævi eins besta lagasmiðs sem Amerika hefur alið, Leadbelly. Uppbyggingu myndarinnar svipar til „Litla risans”. Tón- listarsérfræðingurinn John Lomax safnar þjóðlögum i Suðurrikjum Bandarikjanna fyrir bókasafn Þjóðþingsins. Hann heimsækir Angolafangelsi i Texas til að taka upp lög með Leadbelly, sem situr þar inni hlekkjaður vegna þess að hvitir menn höfðu ráðist á hann. Þeg- ar Leadbelly fer að rifja upp fyrir John Lomax lög sin kemst hann ekki hjá þvi að tengja þau liðnum atburðum úr lifi sinu. I myndinni er gert litið úr ömurlegum kjörum svertingj- anna á fyrri hluta aldarinnar. Þvert á móti er látið að þvi liggja að t.d. Leadbelly gæti sjálfum sér kennt um að þurfa að eyða stórum hluta ævi sinnar i hlekkjum. Að visu var hann ekkert að leggja á flótta þegar hvitir menn réðust á hann, held- ur tók hann hraustlega á móti. En var það honum að kenna að hvitir menn kæmu fram við svart fólk eins og skepnur? Reyndar lenti hann stundum upp á kant við svart fólk lika. Þjóðfélag hvita mannsins bauð upp á það. Einhvern tima heyrði ég ein- hvern segja að stórmynd væri mynd sem hefði kostað mikinn pening að gera. Sé þetta rétt þá hlýtur „Svört tónlist” að vera smámynd. Hún getur ekki hafa kostað mikinn pening. Það er litlu eytt i smáatriði. T.d. er Leadbelly gerður gamall bara með þvi að hár hans er litað ~ hvitt. Þetta kemur illa út. Það verður enginn maður gamall i útliti bara við það eitt að fá hvitt hár. Það þarf að bæta hrukkum o.fl. við. Ég er ansi hræddur um að Fellini gæfi ekki mikið fyrir svona hálfkák. Þó að „Svört tónlist” sé að mörgu leyti gölluð mynd, þá er hún forvitnileg engu að siður. Hún kynnir öll helstu æviágrip virtasta lagasmiðs Ameriku, auk þess sem hún nær einnig yf- ir stutt atriði úr lifi eins mesta gitarsnillings þess tima, Blind Lemons. — énz

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.