Tíminn - 27.08.1978, Blaðsíða 14

Tíminn - 27.08.1978, Blaðsíða 14
14 Sunnudagur 27. ágúst 1978 Sigurvegarar kappreiðanna, frá vinstri: Alli á Fannari sem sigraði í skeiði á 23,1 sek. Sigurbjörn á Faxa sigraði í 800 m brokki á 1:44,4, Atli Guðmundsson sat Glóu í úrslit- um i 350 m stökki, því Fríða gat ekki setið bæði á Glóu og Loku, sem hljóp þarna sinn síðasta sprett i keppni. Glóa hljóp á 25,1 sek. en Loka á 25,2 sek. Friða hleypti Reyk til sigurs í folahlaupinu á 18,5 sek. og Pálmi Guðmundsson sat Gutta, sem sigraði i 800 m stökki á 71,2 sek. Myndirnartók S.V. Gustur, jarpstjörnótti vekring- urinn hans Högna Bæringsson- ar varð efstur A-flokks gæð- inga með 8,36 í meðaleinkunn, knapi var Ragngr Hinriksson. Sörli, jarpi 6 v. stóðhesturinn hans Jónasar Þorsteinssonar á Ytri-Kóngsbakka, varð. annar Á KALDÁRMELUM Loka hefur lokið keppni Félagar Jónasar á Ytri-Kóngsbakka i Snæfellingi heiðr- uðu hann sérstaklega með þessum bikar. Áður en ég kom að Kaldármelum hélt ég að mót Snæfellings væru smámót, haldin á kulda- legum mel, einhvers stað- ar þar sem hefði tekist að ryðja nægilega langa braut til að hleypa á. Nafnið Kaldármelar verkaði þannig á mig, og ég er ekki frá því að svipað sé farið um fleiri ókunnuga. Snæfellingar komu mér þar í opna skjöldu. Mótstaður þeirra er frá náttúrunnar hendi einn af þeim fegurstu sem hesta- mannafélög hafa yfir að ráða og félagar í Snæfell- ingi hafa komið sér þar upp þokkalegri keppnisað- stöðu og eru stöðugt að græða upp mela og bæta vellina þannig að innan fárra ára verður þar besta aðstaða á Vesturlandi til mótahalds og sennilega fyllilega sambærileg við Vindheimamela og Rangárbakka. Daginn sem mótið var haldið var auk þess dýrðar veður og margir knáir kappar mættir til leiks svo mótið varð allt hið skemmtileg- asta. S.V. Gösli, brúnskjóttur sem Guð- mundur Eiðsson á, en Guð- mundur Teitsson sat, varð efstur í B-flokki með 8,18 og sömu einkunn hlaut Sörli, Hildibrandar Bjarnasonar, sem Jónas á Ytri-Kóngs- bakka sat og Blakkur, Ingveldar Kristjánsdóttur varð þriðji með 8,04. Knapi var Andrés Kristjánsson.- Unglingarnir kepptu i tveim flokkum, eins og víðast er gert. í eldri flokki sigraði Kristjana Bjarnadóttir á Eld- ingu með 8,0 í einkunn, Jóna- tan Ragnarsson á Jarp varð annar með 7,50 og Sigrún ólafsdóttír á Skjóna varð þriðja með 7,33. Sigurður Ábyrgðin hvílir þungt á tima- vörðum og einbeitnin skín úr svip þeirra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.