Tíminn - 27.08.1978, Síða 35
Sunnudagur 27. ágúst 1978
35
flokksstarfið
S.U.F. ÞING
17. þing Sambands Ungra framsóknarmanna verður haldiö að
Bifröst i Borgarfiröi dagana 8. og 9. september næstkomandi, og
hefst föstudaginn 8. sept. kl. 14.00.
Auk fastra dagskrárliða á þinginu verður starfað i fjölmörgum
umræðuhöpum.
Þegar hafa verið ákveðnir eftirtaldir hópar.
a. Bætt kjör yngri bænda og skipulag landbúnaðarframleiðsl-
unnar. Umræðustjóri: Guðni Agústsson.
b. Skipulegnýtingfiskimiðaogsjávarafla. Umræðustjóri: Pétur
Björnsson.
c. Niður meö verðbólguna. Umræöustjóri: Halldór Asgrimsson.
d. Framhald byggðastefnunnar. Aukin félagsleg þjónusta. Um-
ræðustjóri: Haukur Ingibergsson.
e. Umhverfisnefnd og breytt lifsgæöamat. Umræðu-
stjóri: Geröur Steinþórsdóttir
f. Samvinnuhugsjónin. Umræðustjóri: Dagbjört Höskuldsdóttir.
g. Samskipti hins opinbera við iþrótta- og æskulýðsfélög. Um-
ræðustjóri: Arnþrúöur Karlsdóttir.
h. Breytingar á stjórnkerfinu. Umræðustjóri: Eirikur
Tómasson.
i. Kosningaréttur og kjördæmaskipan. Umræðustjóri: Jón
Sveinsson.
j. Nútima fjölmiðlun. Umræöustjóri: Magnús Ólafsson (Rvik).
k. Aukin áhrif flokksfélaga á stjórn og stefnumótun Fram-
sóknarflokksins. Umræðustjóri: Gylfi Kristinsson.
l. Nýjar hugmyndir um starfsemi S.U.F. Umræðu-
stjóri: Kristján Kristjánsson
Sérstaklega skal minnt á umfangsmiklar tillögur að laga-
breytingum sem lagðar verða fyrir þingið.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst og eigi slðar en 3.
september.
Hittumst að Bifröst
S.U.F.
Héraðsmót í Skagafirði
Hið árlega héraðsmót Framsóknarflokksins I Skagafirði verð-
ur haldiö I Miðgarði laugardaginn 2. september n.k. og hefst þaö
kl. 21. Meðal annarra mun ólafur Jóhannesson formaður Fram-
sóknarflokksins, flytja ávarp.
Skemmtiatriði:
Elin Sigurvinsdóttir syngur viö undirleik Agnesar Löve.
ómar Ragnarsson flytur gamanþætti.
Hljómsveit Geirmundar leikur fyrir dansi.
Stjórnin
FUF f Reykjavík — Félagsgjöld
Vinsamlegast munið aö greiða heimsenda glróseðla fyrir félags-
gjöldum ársins 1978, eöa greiðið þau á skrifstofu félagsins,
Rauðarárstig 18 á auglýstum skrifstofutima. Stjórn FUF I
Reykjavik.
Félagsfundur FUF í Reykjavík
FUF Reykjavik heldur félagsfund þriðjudaginn 29. ágúst 1978 kl.
20.30 að Rauðarárstíg 18.
Dagskrá:
1. Næsta SUF þing.
2. Val fulltrúa FUF I Reykjavik á SUF þing.
3. önnur mál.
Stjórnin.
Kjördæmisþing á Vestfjörðum
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Vestfjarðakjördæmi
verður haldið dagana 26.-27. ágúst I Reykjanesskóla við Isa-
fjarðardjúp. Flokksfélög eru hvött til að kjósa sem fyrst fulltrúa
á bingið. Stjórn kjördæmissambandsins.
FUF, Keflavík
FUF Keflavfk heldur fund I Framsóknarhúsinu I Keflavlk
sunnudaginn 27. september kl. 14. Kosninir verða fulltrúar á
SUF þing. Mætið stundvlslega.
Stjórnin.
F.U.F. Kópavogi
FUF Kópavogi heldur fund I Framsóknarhúsinu i Kópavogi að
Neðstutröð 4 mánudaginn 28 þ.m. kl. 8.30.
Kosnir verða fulltrúar á SUF þingið. Félagar mætum öll stund-
víslega.
Stjórn FUF Kópavogi.
r---------------------^
Auglýsið í Tímanum
^_____________________________J
\
hljóðvarp
Sunnudagur
27. ágúst
8.00 Fréttir
8.05 Morgunandakt
8.15 Veðurfregnir. Forustu-
greinar dagblaðanna (út-
dr.)
8.35 Létt morgunlög
9.00 DægradvöIÞáttur I umsjá
Ólafs Sigurössonar frétta-
manns.
9.30 Morguntónleikar (10.00
Fréttir. 10.10 Veöurfregnir).
11.00 Messa I Hallgrims-
kirkju Prestur: Séra
Agúst Sigurösson á Mæli-
felli. Organleikari: Antonio
Corveiras.
12.15 Dagskrá Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
sjónvarp
Sunnudagur
27. ágúst
18.00 Kvakk-kvakk (L) ttölsk
klippimynd.
18.05 Sumarteyfi Hönnu (L)
Norskur myndaflokkur.
18.25 Saga sjóferðanna (L)
Þýskur fræðslumynda-
flokkur I sex þáttum um
upphaf og sögu siglinga. 2.
þáttur. Vindurinn beislaður.
Þýðandi og þulur Björn
Baldursson.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
13.30 Fjölþing Óli H. Þórðar-
son stýrir þættinum.
15.00 Óperukynning: „Veiði-
þjófurinn” eftir Albert Lort-
zing Flytj.: Irmgard
Seefried, Rita Streich,
Claudia Hallmann, Ernst
Hafliger, Horst Gunther,
Kurt Böhme, Filharmonlu-
kórinn og hljómsv. I Bam-
berg. Stjórnandi: Christoph
Stepp. Guðmundur Jónsson
kynnir.
16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregn-
ir. Heimsmeistaraeinvigið i
skák Jón Þ. Þór fjallar um
skákirnar I liðinni viku.
16.50 Heilbrigð sál I hraustum
líkama: — annar þáttur.
Geir Vilhjálmsson sál-
fræðingur tekur saman.og
ræðir við sálfræðingana
Guðfinnu Eydal og Sigurð
Ragnarsson, Bergljótu
Halldórsdóttur meinatækni,
Jónas Hallgrimsson lækni,
Martein Skaftfells og fleiri
um ýmsar hliðar heilsu-
gæslu. (Aöur útvarpað I
febrúar s.l.)
17.40 Létt tónlist a. Edith Piaf
syngur nokkur lög. b.
20.30 Lilja (L) Kvikmynd
byggö á samnefndri smá-
sögu Halldórs Laxness.
Kvikmyndahand-
rit Hrafn Gunnlaugsson og
Snorri Þórisson. Hlutverka-
skrá: Nebúkadnesar ...
Eyjólfur Bjarnason, 1.
læknastúdent ... Viðar
Eggertsson, 2. læknastúdent
... Sigurður Sigurjónsson, 3.
læknastúdent ...»ólafur örn
Thoroddsen; "Hjúkrunar-
kona ... Margrét Akadóttir,
Lilja yngri ... Ellen
Gunnarsdóttir, Móðir Lilju
... Þóra Þorvaldsdóttir,
Faöir Lilju ... Már
Nikulásson, Húsráðandi ...
Herdis Þorvaldsdóttir,
Afgreiðslustúlka... Krist-
björg Kristmundsdóttir,
Prestur ... Valdemar Helga-
son, Meðhjálpari
Guðmundur Guðmundsson,
Lilja eldri ... Auróra
Johnny Meyer og félagar
hans leika á harmoniku. c.
Söngflokkur Peters Knights
syngur vinsæl lög. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Tilkynningar. ^
19.25 Svipmyndir frá Strönd-
um Jón Ármann Héðinsson
blandar saman minningum
og nýrri ferðasögu: — fyrri
þáttur.
19.55 Frá tónlistarhátiðinni i
Björgvin I vor Eva
Knardahl leikur á pianó tón-
list eftir Edvard Grieg og
Frederic Chopin.
20.30 Urvarpssagan: „Maria
Grubbe ” eftir J.P. Jacobsen
Jónas Guðlaugsson is-
lenskaði. Kristin Anna
Þórarinsdóttir les (10).
21.00 Stúdió IITónlistarþáttur
t umsjá Leifs Þórarinssonar
21.50 „Brúin” smásaga eftir
Howard Maier Baldur
Pálmason þýddi. Steindór
Hjörleifsson leikari les.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikar
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Halldórsdóttir, Sögumaður
... Halldór Laxness. Auk
þess börn, áhorfendur og
fjöldi annarra. Fram-
leiðandi N.N. Framleiðslu-
ár 1978. Förðun Ragnheiöur
Harwey. Hljóðblöndun
Marinó Ólafsson. Klipping
Jón Þór Hannesson. Tónlist
og útsending Gunnar Þóröar
son. Hljóðupptaka Jón Þór
Hannesson. Kvikmyndun
Snorri Þórisson. Aðstoðar-
leikari Guðný Halldórs-
dóttir. Leikstjóri Hrafn
Gunnlaugsson.
21.00 Gæfa eða gjörvileiki (L)
Bandariskur framhalds-
myndaflokkur. Tólfti
þáttur
2'.50 IþróttirUmsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
23.30 Að kvöldi dags(L) Séra
Frank M. Halldórsson
sóknarprestur I Nespresta-
kalli flytur hugvekju.
O Ný viðhorf
Enda þótt hér I Evrópu hafi
för Hua Kuo Fengs, eftirmanns
Maos, til Rúmeniu og Júgó-
slaviu skyggt á flest annaö
undanfarna viku, þá er þó
friðar- og vináttusáttmálinn,
sem undirritaður var milli Kin-
verja og Japana i Peking hinn
12. ágúst sl. langtum mikilvæg-
ari. Þegar haft er i huga, að fyr-
ir fjórum áratugum var veru-
legur hluti Kína hernuminn af
Japönum, og siðan hefur Japan
verið I nánu sambandi við
Bandarikin, þáer þessi sáttmáli
hinna gömlu fjandþjóða harla
merkilegur áfangi á leiöinni til
að efla frið i Austur-Asíu.
Unnið hefur veriö að þessum
sáttmála I mörg ár, en þaö var
fyrst nú, að utanrikisráðherrar
landanna, þeir Huang Hua frá
Kína og Sunao Sonoda frá Jap-
an, undirrituðu sáttmálann f
viðurvist Hua Kuo Fengs.
Sovétstjórnin hefur þegar
borið fram mótmæli við stjórn-
ina i Tókió vegna þess, að þar sé
beinlfnis vegið að Sovétrikjun-
um. Sú grein sáttmálans, sem
þannig er túlkuð, kveöur svo á,
að Kína og Japan hafni „áhrif-
um (hegemony) eins rikis yfir
tilteknum heimshlutum” Talað
er um, að eitt riki hafi forystu i
tilteknum heimshlutum ef það
geturhaft beineða óbein áhrifá
smærri riki á þessum svæðum
og felst i þvi, að önnur stórveldi
viðurkenni þetta sem stað-
reynd. Klnverjar segja að
klausan eigi beinllnis við Sovét-
rikin, en Japanirhafa af veikum
mætti og litilli sannfæringu neit-
að ásökunum Sovétstjórnarinn-
ar. Enginn vafi er á þvi, aö
greininni er beint gegn Sovét-
rlkjunum. Með tilliti til þess, að
enn hefúr ekki verið gengið frá
friðarsamningi Japana og
Sovétmanna eftir heims-
styr jöldina siðari, þá er ekki að
furða þótt Japanir vilji ekki
viðurkenna opinberlega, að þeir
hafi fallist á stefnu Kina gagn-
vart Sovétrikjunum. Sovétmenn
og Japanir eiga eftir að semja
um stöðu nokkurra eyja, sem
Japanir telja, að Sovétrikin hafí
lagt undir sig á styrjaldarárun-
um en beri skylda til að skiia
aftur.
Sáttmáli Kinverja og Japana
er athyglisverður fyrir þá sök,
að þar með hafa þriðja mesta
iðnriki veraldar og fjölmenn-
asta sósialistariki heims tekið
upp eðlileg samskipti. Vænta
má mikilla viöskipta þessara
rikja á næstunni, og er ekki ólik-
legt, aö bilaiðnaöur Japana fái
allgóðan markað i Kina, a.m.k.
þar til Kinverjar hafa sjálfir
byggt upp öflugar bilaverk-
smiðjur.
Þá verður einnig aö hafa i
huga, að hernaðarlega séö er
Austur-Asia nú öflugri en áður.
Japanir hafa fámennan her og
eiga ekki nema litiö af nýtisku-
vopnum. Allt bendir til þess, að
þeir muni á komandi árum
oyggja upp nýtiskuher búinn
öllum vopnum, sem notuð eru i
nútimahernaöi, nema kjarn-
orkuvopnum. Þessi uppbygging
er nú auðveldari eftir að vin-
áttusáttmálinn var gerður viö
Kina. I honum felst einsog áður
sagði, aö báðar þjóðirnar telja
sér stafa hættu af umsvifum
Sovétrikjanna. öflugur her i
Japan þrengir að Sovétrikjun-
um, sem þurfa aö fara um til-
tölulega þröng sund til að kom-
ast frá flotastöðvum við
Japanshaf, m.a. hinni miklu
flotahöfn Vladivostok. Sovésk
skip verða að fara annaðhvort
um Tsushima-sundiö milli
Kóreu og Japan (þar, sem
Japanir eyddu flota Rússa árið
1905) eða þá Tsugaru-sundiö
milli Hokkaido og Honsu. Norð-
lægari leiðir liggja um ótrygg
svæði og fram hjá miklum eyja-
klösum. Raunverulega eru ein-
ungis fyrrnefnd sund einu færu
leiðirnar að vetrarlagi.
Aukin hergagnaframleiðsla
Japana er þó ekki einungis meö
eigin herlið i huga, heldur virð-
ist einnig vera i undirbúningi af
þeirrahálfuaðflytja út vopn, og
þá líklega fyrst og fremst til
þróunarlandanna.
Eftir sáttmálann við Kina eru
Japanir frjálsari en áður að þvi
að efla her sinn og auka vopna-
framleiðsluna án þess að eiga á
hættu gagnaðgerðir Klnverja.
Frá viðskiptasjónarmiði er
það ljóst, að Japanir hafi meiri
hug á aö fjárfesta i Kina, og
vegna framleiðslu fyrir kln-
verskan markað en að leggja
féö til framkvæmda i Siberiu
eins og búist haföi veriö við.
V.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Kristján Hannesson
læknir, Barmahlið 28
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 29.
ágúst, kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð,en þeir sem vildu minnast
hans er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Anna M. Sigurðardóttir
Guörún Hanna Kristjánsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir,
Sigurður örn Kristjánsson
Magnús Guðjónsson,
Jón S. Friðjónsson,
og barnabörn.