Tíminn - 08.09.1978, Side 5
Köstudanur h. september 1978
5
brimklo
Halli og
Laddi með hljóm-
leika á Laugar-
dalsvellinum
— fyrir Evrópuleik Vals
og Magdeburg
SOS-Reykjavík. — Popp-
ara hefur lengi dreymt
um að halda stór hljóm-
leika á Laugardalsvellin-
um — frammi fyrir 5-6
þús. áhorfendum.
Draumurinn verður nú að
veruleika/ því að búið er
að ákveða að hljómsveit-
in Brimkló og þeir félag-
ar Halii og Laddi halda
hljómleika á Laugardals-
vellinum miðvikudaginn
13. september.
Brimkló, Halli og Laddi halda
hljómleikana i sambandi við
leik Vals gegn Magdeburg frá
A-býskalandi i Evrópukeppni
Málaskóli
Halldórs
25 ára
Málaskóli Halldórs borsteins-
sonar er 25 ára um þessar mund-
ir. Fyrstu 9 starfsárin var skólinn
starfræktur i Kennaraskólanum
gamla. bá var hann fiuttur I
Barnaskóla Austurbæjar þar sem
hann var starfræktur i 10 ár og
siðustu 6 árin hefur skólinn verið
til húsa I Miðstræti 7.
Námsgreinar skólans eru
danska, enska þýska, franska,
spænska, italska og islenska fyrir
útlendinga. Um árabil voru einn-
ig svokallaðar undirbúnings-
deildir fyrir landspróf.
Auk skólastjórans, sem kennir
mest sjálfur, starfa bæði erlendir
og innlendir kennarar við skól-
ann.
Meðal nýjunga i skólastarfinu
má nefna, að næsta vor kemur
skólastjóri málaskólans Estudio
Internacional Sampere til
Reykjavikur i boði Halldórs bor-
steinssonar. Hann mun kenna
væntanlegum Spánarförum á eins
til tveggja vikna námskeiði. Að
þvi loknu er ætlunin að fara með
30-40 manna hóp til Madrid og
halda þar náminu áfram i 3-4 vik-
ur eða lengur, i skóla Sampere,
Nemendur búa hjá spænskum
fjölskyldum meðan námskeiðið
er sótt og er þeim dreift á jafn-
margar fjölskyldur. bað er gert
til þess að koma I veg fyrir að
nemendur tali sitt eigið móður-
mál sin á milli. Ollum er heimil
þátttaka jafnt nemendum i Mála-
skóla Halldórs sem nemendum úr
öðrum skólum, þar sem spænska
er kennd.
Ný bók
um Morgan
Kane
Komin er út ný bók i bóka-
fiokknum um Morgan Kane, og er
það sú ellefta i röðinni. Nafn
bókarinnar er „Hefnd”, og hún
fjaliar eins og hinar fyrri um
ævintýraríkt og spennandi lif
söguhetjunnar Morgans Kane.
Fyrirhugað er að bók nr. 12,
„Stormur yfir Sonora” komi út i
október. bá er ákveðið að út komi
fyrir jól stór bók um Morgan
Kane, þar sem hann blandast inn
i atburðina viö Little Big Horn 26.
júni 1876, þegar striðsmenn
Indiánahöfðingjans Sitting Bull
gersigruðu riddarasveitir Cust-
ers hershöfðingja.
Tímann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtaiin
hverfi:
Suðurlandsbraut
Ægisiða
Snorrabraut
Kjartansgata
Akurgerði
VMmi
Sími 86-300
meistaraliða i knattspyrnu, og
hefjast hljómleikarnir einum
klukkutima fyrir Evrópuleik-
inn.
bað voru Valsmenn, sem
höfðu frumkvæðið að þessum
hljómleikum, til þess að koma
upp stemningu á áhorfendapöll-
unum fyrir leikinn, en fram að
þessu netur verið frekar dauft
yfir áhorfendum á kappleikjum
i Laugardalnum.
Brimkló, Halli og Laddi hafa
verið á faraldsfæti um lands-
byggðina i sumar og, þar sem
þeir hafa haldið fjölmarga
hljómleika. — Hljómleikarnir á
Laugardalsvellinum, verða þeir
siöustu i sumarferð þeirra.
Mynd: Tryggvi
Skólastjórinn, Halldór borsteinsson.
Guðný og
Jenkins
— halda tónleika
á Akureyri
A morgun halda Ouöný Guð-
mundsdóttir, f iðluleikari, og
Philip Jenkins, pianóleikari, tón-
leika á Akureyri. Tónlcikarnir
hefjast klukkan 17 og vcrða
haldnir I Borgarblói.
Guöný, sem er, einsog kunnugt
er, konsertmeistari Sinfóniu-
hljómsveitar islands, mun á
Jenkins og Guðný
þessum tónleikum leika á eitt
dýrmætasta og merkasta hljóö-
færi, sem til er á tslandi. betta er
Guarneriusfiðla, smiöuð á 17. öld
og er hún i eign Rikisútvarpsins.
Philip Jenkins er velkunnur is-
lenskum tónlistaráhugamönnum.
Hann kemur frá London, þar sem
hann starfar sem Prófessor i
pianóleik við Royal Academy of
Music.
A efnisskránni er vorsónata
Beethovens og sónötur eftir
Debussy, Brahms og Prokofieff.
Aðgöngumiðasala verður við
innganginn.
Nú vantar ekki umræðuefnin, — átta glænýir ráðherrar og nyr páfi suður I Róm! Eöa er þaö ef til vill
nýi trollvirinn á bilpailinum, sem er umræðuefni þessara höfðinga, sem Róbert rakst á hjá verðbúð-
unum á Grandanum um daginn?