Tíminn - 02.11.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.11.1978, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 2. nóvember 1978 á víðavangi Hvers vegna ekki langafa og langönunu á barnaheimilin? Nii á dögum er allt mögulegt og ómögulegt gert aö vanda- málum „sem þarfnast bráörar órlausnar” svo notuö séuvinsæl orö margra þeirra sem sifellt eru aö ræöa þessi endalausu vandamál. Eitt þessara vandamála er kynslóöabiliö svokallaöa. Annaö er vandi gamla fólksins, sem sagt er aö slfellt sé veriö aö ein- angra meira og mcira, jafn- framt þvf aö reka þaö af vinnu- markaöi viö ákveöinn aldur, þött fullfriskt sé. Nú, þriöja vandamáliö er dagheimila- vandinn. Sá er aö visu sagöur mestur vandi i þvi máii, aö ekki sé séö fyrir nægu rými til aö anna eftirspurninni. Hins vegar erusamtekkiallir sammála um þaö aö börnhafi gott af aö alast upp á dagheimilum aö mestu leyti. Veröur þvf heldur varla á móti mælt aö heimur þeirra barna, sem hér eru á barna- heimilum, sem eru flest börn einstæöra mæöra, sem siöan al- ast upp aö mestu hjá kvenkyns fóstrum, er nokkuö einhæfur og óraunhæfur heimur. Er ekki vafi á þvf, aö þessi börn heföu gott af aö kynnast fleira full- orönu fólki af báöum kynjum. Meö þessum oröum er ekki á nokkurn hátt veriö aö draga I efa aö fóstrur vinni gott starf. Undirrituö hefur lesiö um nokkrar tilraunir sem geröar hafa veriö á Noröurlöndum, til aö blanda saman eldra fólki og börnum. Þykja þær hafa gefiö góöa raun, þótt ekki sé þetta al- gengt oröiö. Fyrir stuttu birtist stutt grein um þetta efni i Heim- ilispóstinum, blaöi fyrir vistfólk og starfsfólk á Grund. Greinin er eftir Friörik Asmunds- son-Brekkan, sem skrifar hana frá Gautaborg og þykir full ástæöa til aö birta hana hér, öörum til umhugsunar. Greinin hljóöar svo: V Sænsk kynslóðabrú „Veriö er aö gera mjög sér- staka tilraun á barnaheimili einu hér I Sviþjóö. Blandaö er saman gæslukonum, börnum á forskólaaldri og gamalmennum og kynslóöabiliö svonefnda bró- aö, eöa aö minnsta kosti gerö tilraun til þess. Þaö þykir sannaö mál, aö börn einangrast og lifa f óraun- verulegum barnaheimi ábarna- heimilum. Þetta gerir þeim erf- itt fyrir siöar i Ufinu, þvi bernskuáhrifin eru sterkust. Menn veröa ósjálfstæöari og eiga erfiöara um vik á allan hátt úti I Ufinu, ef þeir hafa alist upp á barnaheimilum. A umræddu barnaheimili hefur veriö blandaö saman hlut- um úr heimi barnsins, auk þess sem er I heimi hinna fullorönu, þaö er aö segja, búiö aö útbúa næstum þvl venjulegt heimili. Hinir öldruöu koma og fá sér kaffi. Laga þaö sjáifir frammi i eldhúsi og gefa krökkunum mjólk i glas. Allt eölilegt. Innan um leikföngin eru hægindastól- ar, útvarp ogstórt leikherbergi, þar sem hinir öldruöu eru i koddaslag viö börnin og mikiö um aö vera. Fastur kjarni aldr- aöra u.þ.b. 20 manns mæta af frjálsum vilja dag hvern, lesa sögur fyrir börnin, eru i bilaleik og eru virkir viö uppeldiö ásamt gæslukonum og mömmum. Ánægjan sem skin út úr andlit- um allra þarna er ótrúleg. For- eldrarnir eru i sjöunda himni. Börnin þagna ekki þegar þau koma heim á kvöldin, eru oröin hafsjór af fróöleik og ævintýr- um”. Þeir gömlu albestu prakkararnir „Sumir hinna eldri sögöust varla geta beöiö eftir, aö nóttin liöi til þess aö fá aö koma á ný á heimiliö. Litil stúlka sagöi, aö þeir gömlu væru albestu prakkarar, sem hún heföi hitt.og væri „ofsa gaman” aö leika viö þá. Persónuiega hef égalltaf litiö nútlma barnaheimili hornauga, en þessi tQraun kann aö opna nýjar leiöir til mikilla bóta. Þetta var skemmtUeg sjón I hinu annars nokkuö stifa og formlega velferöarþjóöfélagi og ég vona aö islenskir barna- spekúiantar spekúleri dálitiö I þessu fyrirkomulagi”. Svo mörg voru orö Friöriks og vUI undirrituö taka undir þau aö miklu leyti. Er einnig trúiegt aö svo geti margir fleiri gert og þá ekki sist þeir sem alist hafa upp aömiklu eöa nokkru leyti i nánd viö afa og ömmu, en þaö tel ég persónulega hafa veriö mitt mesta happ i llfinu, aö hafa hlotnast þaö. Aftur á móti eru áreiöanlega mjög börn nú á tim- um, þegar öllu er skipt niöur eftir aldursflokkum, sem varla komast i kynni viö gamait fólk alla sina barnæsku. Væri þaö svo fráleitt, aö byggja barnaheimili og heimili fyrir aldraö fólk samhiiöa, þannig aö þeir fullorönu sem þess óskuöu gætu fengiö nokk- urs konar fósturhlutverk nokk- urn tima dagsins? Trúi ég aö þaö væri til gagns og gamans fyrir báöa aöila. HEI Steingrímur Hermannsson, landbúnaðarráðherra: an emn megin byggðar víða t gær var á Alþingi tekiö til umræöu lagafrumvarp rfkis- stjórnarinnar um greiöslu verö- jöfnunargjalds af sauöfjár- afuröum. Landbúnaöarráö- herra, Steingrimur Hermanns- son, mælti fyrir frumvarpinu og fara hér á eftir nokkur atriöi úr ræöu hans. útflutningsbætur Frumvarp þetta er flutt i samræmi viö samstarfsyfirlýs- ingu stjórnarfl., þar sem sam- komulag náöist um þaö, aö endurgreiöa veröjöfnunargjald, sem Framleiösluráö landbún- aöarins ákvaö s.l. vor aö taka af framleiöslu sauöf járafuröa 1977. Um þaö var jafnframt samiö, aö 1 milljaröur af þessu gjaldi, sem er samtals 1300 milljónir u.þ.b. yröi greitt á þessu ári. Eins og háttvirtum þing- mönnum er aö sjálfsögöu kunn- ugt, er heimild til þess aö greiöa úr rikissjóöi 10% af framleiöslu- verömæti á veröi landbúnaöar- afuröa til bænda ár hvert sem útflutningsbætur. Þessi 10% hafa á siöustu tveimur árum ekki nægt til þess aö brúa þann verömun, sem hefur veriö á inn- anlandsmarkaöi og á erlendu veröi á landbúnaöarafuröum, en fram til ársins 1976 má segja hins vegar, aö þetta hafi nægt til þess. A verölagsárinu 1976-1977 varö heildarþörf útflutnings- bóta 2,8 miljaröar. Þá voru 10% útflutningsbætur 2,3 miljaröar. Hins vegar varö þá samkomu- lag um þaö I lok ársins 1977, aö bæta viö 488 milljónum kr. sem var taliö uppsöfnuö heimild þriggja ára á undan. A þvi verö- lagsári, sem nýlokiö er nú, þ.e.a.s. verölagsáriö 1977-1978 veröa 10% 3,6 miljaröar, en heildarþörfin um 5,5 miljaröar, þannig aö útflutningsbætur hafa hvergi náö þvi aö fullnægja allri veröjöfnunarþörfinni. Af þess- um mismun sem þarna er, tæpir 2 miljaröar, eru um 1300 milljónir vegna sauöfjárafuröa, en um 600 milljónir vegna mjólkurafuröa. Þvi tók Framleiösluráö land- búnaöarins þann kostinn s.l. vor, eins og fyrr segir aö leggja veröjöfnunargjald á sauöfjár- afuröir. Var taliö, aö þaö gjald þyrfti aö vera 90-100 kr. á hvert kg. Fyrir meöaldilk, sem er um 14 kg. yröi þetta þvi um 1400 kr., eöa fyrir meöalbú, viö skulum segja meö 500 dilka, þýöir þetta 700 þús. kr. skatt. Má öllum vera ljóst, aö hér er um veru- lega skattlagningu aö ræöa. Ég vil jafnframt geta þess strax, aö þvi miöur horfir ekki til bóta aö þessu leyti. Lltur út fyrir, aöá verölagsárinu sem nú er hafiö muni enn aukast um- frambirgöir af landbúnaöar- afuröum umfram þaö, sem 10% ná til aö veröjafna. Bráöa- birgöatölur i ár benda til þess, aö sauöfjárafuröir muni aukast um 8,4% og mjólkurafuröir aö öllum líkindum um 5% ef ekki eitthvaö meira. 1 ár er áætlaö, aö 10% gjaldiö veröi um 5,5 miljaröar kr. Umframframleiðslan Þá vék landbúnaöarráöherra aö tillögum svokallaörar 7 manna nefndar um aögeröir til aö draga úr umframframleiöslu og sagöi m.a.: Nefndin leggur til, aö Fram- leiösluráöi landbúnaöarins veröi veitt allviötæk heimild til þess aö leggja bæöi innvigtun- argjald á sauöfjárafuröir og ákveöa tolla af innfluttum fóö- urbæti i þvi skyni aö draga úr framleiöslunni, þegar hún er of mikil. Kvótakerfi þessu, sem svo hefur gjarnan veriö nefnt, er lýst i tillögum nefndarinnar. Er gert ráö fyrir þvi, aö þaö veröi þvi hærra sem búiö er stærra, fari upp 110% hjá fram- leiöendum, sem eru utan lög- býla, veröi 8% hjá býlum meö yfir 800 ærgildi, 6% af grund- vallarveröi hjá býlum meö 600- 800 ærgildi, 4% hjá býlum meö 400-600 ærgildi, en hjá býlum land meö 400 ærgildi eöa minna veröi gjaldiö 2% af grundvallarveröi. 1 tillögum nefndarinnar er gert ráö fyrir þvl, aö þessu gjaldi veröi variö til þess aö aöstoöa bændur viö aö minnka sin bú eöa m.ö.o. aö halda tekjum þeirra uppi, meöan þessi skerö- ing fer fram. Af öörum tillögum 7 manna nefndarinnar vil ég nefna þá til- lögu hennar aö gera úttekt á bú- skaparaöstööu um land allt og gerir nefndin ráö fyrir þvi, aö slik úttekt yröi grundvöllur aö langtimastefnu á sviöi landbún- aöarins. Ég hef þegar faliö svo- nefndri áætlunarnefnd aö gera tillögur um þaö, hvernig slik út- tekt gæti fariö fram, en ég er 7 manna nefndinni sammála um þaö, aö þetta er mikilvægt skref tíl aö afla nauösynlegra upplýsinga, sem eru aö sjálf- sögöu grundvöllur aö skynsam- legri áætlun um framtíö islensks landbúnaöar. Stefnumörkun í landbún- aði I samstarfsyfirlýsingu rlkisstj. eru ákvæöi, sem eru til leiöbeiningar viö þaö starf, sem þegar er hafiö, stefnumörkun I landbúnaöi. Fyrst og fremst vil ég lesa eftirfarandi kafla úr samstarfsyf irlýsingunni: „Stefnt veröi aö sem hag- kvæmustu rekstrarformi á rekstrarstærö búa og aö fram- leiösla landbúnaöarvara miöist fyrst og fremst viö innanlands- markaö”. Sömuleiöis segir þar: „Endurskoöaö veröi styrkja- og útflutningskerfi landbúnaö- arins meö þaö aö marki, aö greiöslur komi bændum aö betri notum en nú er”. Og loks: „Lögum um fram- leiösluráö landbúnaöarins veröi þrjú meginmarkmið í langtimastefnu fyrir landbúnaðinn breytt, m.a. á þann hátt, aö teknir veröi upp beinir samn- ingar fulltrúa bænda og rlkis- valdsins um verölags-, fram- leiöslu- og önnur hagsmunamál landbúnaöarins. Jafnframt veröi framleiösluráöi veitt heimild til aö hafa meö verö- lagningu áhrif á búvörufram- leiöslu I samræmi viö markaös- aöstæöur”. Meö tilvlsun til þess, sem ég las siöast, vil ég vekja athygli á þvi aö þár er gert ráö fyrir, aö Framieiösluráöi veröi heimilt aö hafa meö verölagningu áhrif á búvöruframleiöslu I samræmi viö markaösaöstæöur. Ég tel tvlmælalaust aö tillögur 7 manna nefndarinnar falli undir þennan liö. Mér hefur borist bréf frá stjórn Stéttarsambands bænda, þar sem áhersla er lögö á, aö breytingar á framleiöslu- ráöslögum, sem fylgja tillögum 7 manna nefndar veröi fluttar hér á Alþingi sem fyrst og komi til framkvæmda svo fljótt sem unnt er. Er nú unniö aö þvl aö undirbúa þann málflutning. I ööru lagi vil ég geta þess, aö starfandi er framleiösluráös- laganefnd, sem fjallar um breytingar á framleiösluráös- lögunum I samræmi viö þaö ákvæöi samstarfsyfirlýsingar- innar, aö teknir skuli upp beinir samningar rikisvalds viö bænd- ur um kjör bændastéttarinnar og markaösverö. Meö tilliti til þess ákvæöis, sem ég las áöan um endurskoö- un á styrkja- og útflutningsbóta- kerfi landbúnaöarins, vil ég segja þetta: Þetta er nú i skoöun i landbúnaöarráöuneytinu. Mér er ljóst, aö gera þarf verulegar breytingar á þessu styrkjakerfi, fyrst og fremst til þess aö nota megi styrkina á samræmdan Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.