Tíminn - 10.11.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 10. nóvember 1978
3
Uppbygging
og hlutverk
FIDE
ESE-Eftir að Friðrik ólafsson skákmeistari var
kosinn forseti Alþjóðasambandsins s.l. miðvikudag/ á
þingi þess sem nú er haldið í Buenos Aires í Argentínu
er Ijóst að töluverðar breytingar verða á starfsemi
FIDE í framtiðinni því að m.a. er kveðið svo á um í
reglum sambandsins/ að aðalstoðvar FIDE skuli
ávalit vera í sama landi og forseti þess er frá/ en það
er þó tekið fram/ að þó að forsetinn flytjist á milli
landa þá megi það ekki verða til þess að trufla eða
hindra starfsemi FIDE.
Til þess að fá nánari upp-
lýsingar um uppbyggingu FIDE
og hugsanlegar breytingar, sem
kunna aö veröa á starfsemi
sambandsins við það að Friðrik
Ólafsson sest á forsetastól, sneri
Timinn sér i gær Jóhanns Þóris
Jónssonar, ritstjóra Timaritsins
Skák, en hann þekkir vel til
þessara mála og var hann fyrst
að þvi spurður hvert hlutverk
forseta FIDE væri.
★ Á aö stuðla að
útbreiðslu
skáklistarinnar
—Hlutverk forseta FIDE er
fyrst og fremst það að vera
talsmaður sambandsins út á
við. Formaðurinn, sem er æðsti
maður FIDE, á einnig aö stuöla
að útbreiðslu skáklistarinnar
t.a.m. á svæðum þar sem
skákin hefur litið verið stunduð
og einnig á formaöurinn að
vinna að ýmsum öörum mál-
efnum, sem kunna að Verða
skáklistinni til framdráttar.
Þetta er mikið starf, einkum
eftir að pólitisk átök innan
sambandsins fóru harðnandi og
er ég þeirrar skoðunar, að
Friðrik sé réttur maður til að
uppræta þessar pólitisku deilur
og hefja FIDE til vegs og virð-
ingar, þvi að vissulega hefur
sambandið sett nokkuö niður að
undanförnum árum vegna fyrr-
greindra deilna, sem einkum
standa á milli Sovétmanna og
annarra skáksambanda innan
FIDE.
sérstakt svæði á þvi þingi, sem
nú er haldið I Buenos Aires.
Fyrir hverju svæöi er siðan
svæðisstjórn og svæðisstjóri. Þá
hefur FIDE nokkra fasta
starfsmenn og ber þar fyrst að
nefna ungfrú Ineke Bakker, sem
- rætt við
Jóhann Þóri
Jónsson,
ritstjóra
tímaritsins
Skákar
er eins konar framkvæmda-
stjóri FIDE, en hún er að þvi
mér skilst mjög fær starf-
kraftur, auk þess sem hún gjör-
þekkir til málefna FIDE, en hún
hefur stjórnað sambandinu að
meira eða minna leyti undan-
farin ár. Auk ungfrú Bakker þá
hefur FIDE einn eða tvo aöra
starfsmenn i Amsterdam sem
eru á launum. Forseti FIDE er
ólaunaöur, svo og gjaldkeri
þess, en báðir hafa þeir
einhverja risnu, auk þess sem
ferðakostnaöur og uppihald á
feröum er greitt fyrir þá af
FIDE.
Húsnæði Skáksambands islands að Laugavegi 71, en hugsanlegt er að FIDE fái þar inni,
a.m.k. til bráðabirgða.
Timamynd Tryggvi.
Jóhann Þórir Jónsson
Alls munu tekjur FIDE nema
um 200 milljónum Isl. króna á
ári.
Hvernig gengur að innheimta
gjöldin frá skáksamböndunum?
,Ég held að það gangi mjög
misjafnlega. FIDE hefur þó
verið aö vaxa fiskur um hrygg
fjárhagslega á undanförnum
árum, þrátt fyrir að útgjöldin
séu sifellt að aukast, en ég held
að Friðrik sé réttur maöur til aö
efla sambandið á þessum
vettvangi.
★ FIDE flyst hingað
til lands
Nú hefur verið talaö um það
aö starfsemi FIDE flytjist
hingað smám saman og þá I
húsnæði það sem Skáksamband
tslands hefur fest kaup á viö
Laugaveg. Er þetta heppilegt
húsnæði fyrir FIDE?
—Já það hefur staöið til að
starfsemi FIDE flytjist hingaö I
áföngum, en persónulega held
ég aö húsnæöi Skák-
sambandsins veröi aldrei
heppilegt fyrir starfsemi FIDE,
auk þess sem'Skáksambandinu
veitir ekkert af þessari hæð
sem það hefur keypt.
Þá hefur einnig verið rætt um
það að ekki megi blanda þessu
tvennu of mikið saman þ.e.
stafsemi FIDE og SI, og þvi er
llklegt aö annaö húsnæði veröi
fengiðfyrir FIDE, þó aö Friörik
muni e.t.v. koma til meö aö hafa
einhverja aðstöðu i húsnæði S1
til að byrja með.
★ Góð landkynning
Hvenær tekur Friðrik við
formlega sem forseti FIDE og
hvaða hugsanlega þýðingu
hefur kjör hans sem forseta
fyrir tsland?
—Ég veit þvi miður ekki
hvenær Friðrik tekur formlega
við embætti, en þó er eins og aö
mig minni að þaö sé um ára-
mót, eða i byrjun reikningsárs.
Hvaða þýðingu kjörið hefur
fyrir tsland er ekki gott að segja
en I fljótu bragði þá finnst mér
trúlegt, að þó'nokkrir íslend-
ingar verði kosnir I hinar ýmsu
nefndir FIDE, og mun þvi
Friðrik geta haft af þeim
stuðning I framtiðinni. Þá er
einnig hugsanlegt, að þetta hafi
verulegar gjaldeyristekjur fyrir
tsland i för með sér, þvi að með
timanum verður hægt að inna
ýmsa starfsemi FIDE af hendi
hérlendis, s.s. útgáfustarfsemi
o.þ.h., svo ekki sé minnst á þá
landkynningu sem þetta hefur 1
för með sér, sagði Jóhann Þórir
Jónsson aö lokum.
Brýnt hagsmunamál
— að jafna mjólkurframleiðsluna
★ Starf forseta
ólaunað
Hvermg er uppbyggingu
FIDE háttaö?
—I grófum dráttum þá má
segja að FIDE skiptist i fjöl-
mörg svæðissambönd sem hafa
vissa sjálfsstjórn, þó að þau
heyri undir FIDE. Hvað þessi
sambönd eru mörg nú er ég ekki
viss um, en sífellt eru að bætast
við ný, eins og t.a.m. Afrika,
sem var samþykkt sem
★ Arstekjur FIDE um
200 milljónir króna
Hvaðan hefur FIDE tekjur
sinar og hvað eru þær miklar?
—FIDE fær aöaltekjur sinar,
frá hinum ýmsu skák-
samböndum innan þess, en
einnig fær sambandið greiöslur
fyrir mót, sem haldin eru i nafni
þess, svo og tekjur af útgáfu-
starfsemi ýmiss konar og vegur
þar þyngst á metunum útgáfa
„Informator”, sem er handbók
um skák, sem er gefin út tvisvar
á ári i Júgóslaviu I nafni FIDE.
HEI — Eitt af þeim
vandamálum, sem við
er að etja i sambandi við
mjólkurframleiðsluna,
eða jafnvel réttara sagt
offramleiðslu á mjólk,
er hinn mikli munur á
innveginni mjólk til
mjólkurbúanna eftir
árstiðum. Getur þessi
munur orðið allt að því,
að þrefalt mjólkurmagn
berst til búanna yfir
sumarmánuðina miðað
við vetrartimann. Á
móti kemur siðan, að
talsvert minni mjólk
selst til neyslu yfir sum-
arið, og nemur það allt
að 30% á svæði Mjólkur-
samsölunnar i Reykja-
vik.
Þessi mikla umframfram-
leiösla mjólkur á sumrin leiöir til
þess aö öll framleiöslutæki til
ostageröareru þá fullnýttoghafa
þó engan veginn undan, þess
vegna verður að nýta þá mjólk
Benedikt heitir
Friðrik stuðningi
Blaðinu barst I gær eftir-
farandi fréttatilkynning frá
utanrikisráðuneytinu:
Utanri'kisráðherrahefur I dag
sent eftirfarandi- skeyti til
Friöriks ólafssonar stór-
meistara I tilefni kjörs hans til
forsetaembættis Alþjóðaskák-
sambandsins:
„Bestu hamingjuóskir með
glæsilega kosiningu sem er þér
og islensku þjóðinni til mikils
sóma. Utanrikisráðuneytið mun
reyna að styöja þig eftir bestu
getu I hinu mikilvæga starfi
þinu.”
Uta nrikisr áðune ytið,
Reykjavik, 9. nóvember 1978.
sem umfram er til smjörgeröar
og I mjólkurduft, en þaö eru af-
uröir sem mjög lágt verð fæst
fyrir á erlendum markaöi. Væri
mjólkurframleiöslanaftur á móti
jafnari árið um kring mætti
framleiða miklum mun meira af
ostum. En Óðalsostur, sem seldur
hefur verið til Bandarikjanna,
hefur verið sú búnaðarafurð, sem
skilaö hefur hlutfallslega mestu
af innlendaframleiðsluveröinu að
undanförnu, þ.e. sem minnstar
útflutningsbætur hefur þurft aö
greiða meö. Jafnframt er taliö að
selja mætti mun meira af Óöals-
osti á Bandarikjamarkað, en
hægt hefur veriö að framleiöa og
þá jafnvel fyrir hærra verö en nú
er.
Þetta er ekki geimfar, eins og hægt væri að láta sér detta I hug fljótt á
litið, heldur er þetta strokkurinn I Mjólkurbúi Flóamanna. Þessi mikli
strokkur getur framleitt 3,2 tonn af smjöri I einu og voru tveir slikir
skammtar framleiddir daglega I sumar leið meöan mjólkin var sem
mest. 1 hvert kg. af smjöri þarf 23 1 af mjólk.svo 73.600 I. hafa farið til
smjörgerðar daglega.