Tíminn - 19.11.1978, Blaðsíða 4
24
Sunnudagur 19. nóvember 1978
Benjamin Franklin
Turn Sjálfstæöishallarinnar
PHILADELPHIA
ENDURREIST
Sjálfstæði Bandarikjanna var lýst yfir i
Philadelphia 1776, þar átti fyrsta þing ný-
lendnanna aðsetur og þar var hæstiréttur
Bandarikjanna fyrstu árin eftir að hann
var settur á stofn.
1 Philadelphia eru fjölmargar minjar
frá fyrstu árum sjálfstæðisins,merkust er
Sjálfstæðisklukkan sem hringt var þegar
lýst hafði verið yfir sjálfstæði. Þar er lika
Sjálfstæðishöllin, standmyndir ýmissa
fyrstu leiðtoga hinna ungu lýðvelda og
fjölmargt annað.
Sjálfstæðisklukkan er merkur minja-
gripur en hefur verið harla misheppnuð
sem klukka. Hún er steypt i Lundúnum
árið 1752 og kom i hana brestur er henni
var hringt i fyrsta sinn. Tókst að gera við
hana og var henni siðan hringt 16 sinnum.
Loks brast hún með öllu 1846, er henni var
hringt á afmælisdegi Washingtons.
Þjóðgarðastofnunin bandariska hefur
nú varið 30 milljónum dollara til þess að
endurbyggja miðbik Philadelphia i sama
stil og var 1776. Hafa mörg hús verið rifin
og önnur endurbyggð i þessu skyni.
$8$ '«r
Sjálfstæöisklukkan