Tíminn - 19.11.1978, Síða 11

Tíminn - 19.11.1978, Síða 11
Sunnudagur 19. nóvember 1978 31 Guölaugur Arason Vikursamfélagiö Skáldsaga Bókás hf. tsafiröi Þessi saga var lesin I Utvarp f fyrravetur og birtist nú I bókar- formi. Höfundur lýsir hér mannlifi I sjóþorpi á tslandi. Þetta er virö- ingarverö tilraun til aö lýsa þvi sem okkur snertir og varöar, nánast aö lýsa okkur sjálfum. Þess vegna stendur þetta skáld- verk miklu nær okkur en þau skáldverk sem eru alþjóöleg þvæla — og aö sama skapi er þetta þvi timabærara verk fyrir Islenska lesendur. Þaö er góöra gjalda vert þeg- ar ungir og efnilegir höfundar velja sér viöfangsefni beint úr samtlö sinni. Guölaugur Arason er efnilegur höfundur. Og hon- um hefur tekist i þessari sögu aö lýsa ýmsu fólki vel og skemmti- lega. Þó brestur mikiö á aö verkiö sé gallalaust. Þaö er nú sér á blaöi aö próf- arkalestur er ekki góöur. Stafa- vlxl og slikar prentvillur eru alltof margar. Merking snýst viö vegna þess aö neitunarorö vantar o.s.frv. Hitt er ekki prentvilla þegar segir aö þau „sátu I sitthvorum stólnum” og þess háttar. I minni sveit var sagt, aö sæti hvor I slnum eöa sinn I hvorum. En Guölaugur hefur annan rithátt og er ekki fyrir einum aö lá. Kaupfélag stofnar útibú I vlk- inni. Sumir vilja stofna sjálf- stætt kaupfélag en þeir eru I miklum minnihluta. Fjalar, sem er ungur maöur meö kenn- arapróf, er helsti talsmaöur þeirra. Honum veröur svo mikiö um þennan ósigur aö hann hverfur burt frá heimili og unn- ustu og er a'rum saman I sigling- um án þess aö hafa samband heim annaö en aö senda móöur sinni árlega jólakort og skrifa unnustunni nokkur bréf framan af, en hún hefur taliö sig til- neydda aö bindast sem skjótast öörum manni og giftast. Af þessum bréfum fær þó lesand- inn ekkert aö vita fyrr en löngu síöar aö vikiö er aö einu þeirra I viötali. Þetta er nánast forsagan. Fjalar kemur heim eftir 14 ár. Og þá gerist sagan. Þessi saga er um draum Fjal- ars og félaga hans um aö at- vinnutækin I vikinni séu eign þeirra sem þar búa. Þeir tala oft um þaö ófrelsi aö útibúinu sé stjórnaö frá öörum kaupstaö. Sömuleiöis kemur fram sú skoö- un aö kaupfélagiö sé horfiö frá hugsjón fyrstu kaupfélags- mannanna aö selja félagsmönn- um ódýrt. Nú sé þaö eins og hver önnur kaupmannsverslun, hugsium aö græöa og fjárfesta. öll fræöslan um kaupfélagiö kemur fram I þessu umtali, þar sem þaö á sér aö vlsu stundum málsvara. Þaö er ekkert sagt frá viöhorfum kaupfélags- manna, hvaö fyrir þeim vakir o.þ.h. Þaö væri gaman aö búa til les- hring utan um þessa sögu. Hún vekur svo spurningar um sam- félagsmál. Þaö eru aö vlsu nokkrar veilur I grundvellinum. Kaupfélagiö hefur útibússtjóra og deildarstjóra I vikinni. Ekki kemur fram hvaö hlutverk deildarstjórans er,en helst er þó aö skilja aö þaö sé fullt starf og vikukaupiö greiöir hann. Aldrei er minnst á deildarfund. Kaup- félagiö á frystihús I vikinni. Þaö viröist þó vera hlutafélag þvl margir vikurbúar eiga hlut I þvi og eru þess vegna I kaupfélag- inu. Rúnavlk hefur fengiö rétt- indi sem sjálfstætt bæjarfélag en þó er kosin hreppsnefnd. Þetta eru fyrirbæri sem ég ekki þekki. Ef kaupfélag mynd- ar dótturfyrirtæki — félag um frystihús, er húsiö ekki kallaö frystihús kaupfélagsins. Ef dótturfélagiö er hlutafélag veröa menn ekki félagsmenn I kaupfélaginu þó aö þeir kaupi hlutabréf I þvl. Þaö væri vissu- lega betra aö þetta kæmi heim viö veruleikann. Eri vissulega getur þetta minnt á hugleiöing- ar fræöimanna um skekkjur og ónákvæmni I fornum sögum I sambandi viö ritunartlma þeirra. Hér gerist þaö aö góöur höfundur lýsir félagsmálum Guölaugur Arason Af þessari sögu mættu margir læra samtiöar sinnar ööru visi en þau eru. En þetta er nú krókur frá aöalefninu. Þaö eru spurningarnar sem sagan vekur. Er þaö vitleysa aö eitt kaupfélag nái yfir tvo versl- unarstaöi? Hlýtur þá annar aö missa sjálfstæöi sitt og veröa stjórnaö frá hinum? Er öll fjár- festing af hinu illa? Ég hélt aö eitt af þvl sem ein- kennir umbótamenn og fram- faramenn væri þaö aö þeir vildu búa I haginn fyrir framtlöina, byggja upp, fjárfesta. Hér virö- ist þaö vera óhæfa aö kaupfé- lagiö sem rekur útibú I vikinni er aö fjárfesta I mjólkurbúi inni I fjaröarbotni. Hins er ekki getiö hvort einhverjir mjólkurfram- leiöendur eru I deildinni eöa hvaöan vlkurbúar fá mjólk og mjólkurvörur. Draumur og hugsjón sumra trillukarlanna er aö mynda hrognasamlag, verka og hreinsa grásleppuhrognin sjálf- ir, svo aö kaupfélagiö græöi ekki á þeirri þjónustu. Og I sögulok er þaö eins og bjarmi nýs dags aö von er til þess aö trillukarlar fari aö salta fisk sinn sjálfir I staö þess aö leggja hann inn 1 frystihúsiö. Þeir trúa þvl karl- arnir aö þannig fái þeir marg- falt meira fyrir fiskinn. Hvergi er aö þvl vikiö aö kaupfélagiö geri viö gróöa sinn annaö en aö leggja hann I mjólkurbúiö. Hvergi kemur fram sá höfuömunur sem er á kaupfélagi og kaupmannsversl- un aö kaupfélagiö er öllum opiö og veröur ekki selt. Þaö er eign þess almennings I héraöinu sem á hverjum tlma vill I þvl vera. Hitt er annaö mál aö allar þær ádeilur á kaupfélög sem mönn- um eru lagöar I munn I þessari sögu eru sóttar beint til samtlö- arinnar —-og þaö er llka veröugt umhugsunarefni. Nýja sölt- unarfélagiö á aö veröa „félag þar sem enginn telur neitt vera sitt, heldur sameign allra”. Hvaö mega slik samtök vera viötæk svo aö menn finni þannig til? Ef eitt kaupfélag má ekki ná yfir heilan fjörö, — hvernig eig- um viö þá aö fara meö þjóöfé- lagiö? Sllkar spurningar vekur þessi samfélagssaga, en hún svarar engri þeirra. Fjalar segir I sögulok: „Tak- ist okkur aö ná öllum trillukörl- unum saman og gera þá sam- ábyrga, höfum viö unniö stærri sigur en nokkru sinni er hægt aö vinna i kosningum”. Þaö má segja aö þetta sé boö- skapur sögunnar og vlst er hann ttmabær. Hins vegar sé ég ekki hvernig þaö veröur líklegra I nýju söltunarfélagi en gömlu kaupfélagi eöa sveitarfélagi, nema ef menn eru svo smáir og þröngsýnir aö þeir greina ekki nema aöeins til næsta manns. Frystihússtjórinn ætlaöi aö lengja einn og einn kaffitima til aö fræöa fólkiö um framleiöslu hússins og rekstur þess. Fyrir þvi var enginn áhugi. Frá þessu er sagt en ég sé hvergi aö höf- undur geri mikiö úr þvl áhuga- leysi — en auövitaö er þess getiö til nokkurs. Og þar er sú skýr- ing sem nær yfir margt sem miöur fer. Þaö var ekki I samræmi viö hugsjónir Fjalars og félaga hans aö I víkinni var útibú frá ööru kaupfélagi og þaö kaupfé- lag átti frystihúsiö og þessir eig- endur fluttu fiskinn meö eigin skipum og höföu eigin skrifstof- ur og sölustofnanir I markaös- löndunum. Þessari skipan var mætt meö tortryggni. Margfalt meira vonuöu þeir aö fá fyrir fiskinn ef þeir seldu hann sjálfir úr landi. Sumir vildu aö bærinn yfirtæki eignir kaupfélagsins. Hitt sjáum viö auövitaö ekki hverju þaö heföi breytt og raun- ar ekki hverju þaö átti aö breyta. Sagan um Vikursamfélagiö er Islensk saga, ávöxtur samtlöar- innar. Höfundur hennar kann aö lýsa fólki og þess gætir vlöa aö hann segir frá þvi sem hann þekkir og er hugstætt. Eins má segja aö þetta verk sé undar- lega sjálfsett og óháö tlsku- kreddum, — undarlega þegar þess er gætt hve ungur höfundur er. Sagan fellur inn I þjóöfélags- umræöu og átökliöandi stundar meö kostum slnum og göllum. Hún er ekki saga kaupfélaganna á líöandi stundu og viöleitni þeirra. En hún er saga um kaupfélagsmenn, sem ekki vita hvaö er aö gerast — og hiröa lítt um aö vita þaö, menn sem tor- tryggja þaö sem þeir þekkja ekki og ímynda sér aö af sér sé haft og dreymir suma um aö laga þetta meö þvl aö gera fé- lagasamtök svo smá I sniöum.aö auövelt sé aö sjá út yfir þau. Af þessari sögu tel ég aö margir megi nokkuö læra, þrátt fyrir þaö sem höfundur hennar virö- ist eiga ólært. H.Kr. Húsbyggjendur Upphitun með HX rafmagnsþilofnunum er ódýr og þægileg ADAX rafmagnsþilofnarnir hafa fengið æðstu verðlaun, sem veitt eru innan norsks iðnaðar Stórlækkaður stofnkostnaður. — Hverfandi viðhald. ADAX rafmagnsþilofnarnir eru norskir og marg- verðlaunaðir fyrir fallega og vandaða hönnun. Þriggja óra óbyrgð er á öllum ADAX rafmagnsþilofnunum 3 gerðir. — Yfir 30 mismunandi stærðir. Gegnumstraumsofnar: 15 og 30 sm háir. Panilofnar: 28, 38 og 48 sm háir. Geislaofnar í baðherbergi. Fullkomið termostat er á öllum ADAX ofnunum. íslenzkur leiðarvísir, samþykktur af Raftækja- prófun Rafmagnsveitna ríkisins, fylgir hverjum ofni. Sendið okkur úrklippuna hér að neðan — og við sendum yður um hæl nákvæmar upplýsingar um ADAX rafhitun. Þér getið einnig sent okkur teikningu af húsinu og við getum aðstoðað yður um val á,vstaðsetningu ofnanna. Einnig getum við séð úm ú^réh|«iinga á hitaþörfinni. ----------------------------Xg — Til Einar Farestveit & Co hf Bergstaðastræti 10A Reykjavík Ég undirritaður óska eftir bæklingum yfir ADAX rafhitun Nafn Heimilisfang Gerum tilboð í búslóðir, málverk og aðra listmuni HÚSMUNASKÁLINN Aðalstræti 7 — Simi 10099

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.