Tíminn - 24.11.1978, Blaðsíða 14

Tíminn - 24.11.1978, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 24. ndvember 1978 Alexander Stefánsson: Fólksbílar #Jeppar 13009 23340 BILALEIGAN EKILL EINHOLTI4 Mjög alvarlegur aðstöðumunur sveitarfélaga, er reka taeilsu- gæslustöðvar - en eru ekki í beinum tengslum við sjúkrahús Alexander Stefánsson A Alþingi fyrir skömmu voru teknar til umræðu fyrirspurnir Alexanders Stefánssonar (F) til heilbrigðisráöherra. Þegar Alex- ander fylgdi fyrirspurnum sinum úr hlaöi flutti hann eftirfarandi ræðu: „Lögin um heilbrigöisþjónustu, nr. 56 1973, sem tóku gildi 1. jan 1974, mörkuðu áreiðanlega djúp og heillarlk spor til framfara á þessu sviði. Megintilgangur lag- annakemur fram i 1. gr. þeirra: Allir landsmenn skulu eiga kost á fullkomnustu heilbrigðisþjón- ustu, sem á hverjum tlma eru tök á að veita til verndar andlegri, líkamlegri og félagslegri heil- brigði. —• Einn mikilvægasti þátt- ur laganna, ekki slst fyrir lands- byggðina, er III. kaflinn, um heilsugæslu, en heilsugæsla merkir I lögunum heilsuverndar- starf og allt lækningastarf sem unniö er vegna heilbrigðra og sjúkra sem ekki dveljast á sjúkrahúsum. 1 samræmi við lög- in frá 1973 var hafist handa um byggingu heilsugæslustööva víös^ vegar um land og læknisbústaðir teknir undir lögin þar sem það var framkvæmanlegt. Eftir gildistöku eldri laganna frá 1. jan. 1974 var fastlega gert ráö fyrir aö settar yrðu reglu- geröir um framkvæmd laganna, um ýmsa mikilvæga rekstrar- þætti, t.d. um 19.-22. gr., og var mjög eftir þvi leitað. Þetta var hins vegar ekki gert, hverju sem um er aö kenna. Uröu fljótlega árekstrar um það milli sveitarfé- laga annars vegar og sjúkrasam- laga og heilbrrn. hins vegar, hvernig túlka bæri kostnaðar- hluta I rekstri heilsugæslustööv- anna. Kom strax I ljós að útgjöld sveitarfélaga viö rekstur heilsu- gæslustööva, sem eru án tengsla við sjúkrahús, yrðu nær óviö- ráðanleg, þar sem engir tekju- stofnar voru til að mæta þessum auknu útgjöldum. Þar viö bættist að sum sjúkrasamlögin töldu sig ekki eiga að greiða til heilsu- gæslustöövanna neinn hluta rekstrar. Heilbrrn. neitaði greiðslum til þátttöku i rekstri fyrir árið 1976. Sem sýnishorn af þessari afstööu rn. vil ég lesa hér bréf sem ein heilsugæslustöðin fékk 19. des. 1977 vegna rekstrar þessarar stöðvar áriö 1976, með leyfi hæstv. vorseta: „Þar sem einsýnt er nú að f jár- lög veröa afgreidd án þess að fjárveiting fáist til aö taka þátt I kostnaði heilsugæslustöðva við viðhald og áhöld og tækjakaup i daglegum rekstri, endursendast hér nieð þeir reikningar sem þessu rn. voru sendir með bréfi 24. mars s.l. Fjárlaga- og hag- sýslustofnun hvarflar ekki frá þeim skilningi slnum, að rlkis- sjóður eigi engan þátt að taka i greiðslu þessa kostnaðar.” Hv. Alþ. tók lögin til endursköp- unar á slðasta þingi og afgreiddi þau sem lög 5. mai 1978. Breyt- ingar uröu ekki til bóta fyrir sveitarfélögin. Var ekki tekiö til- lit til ákveðinna óska og tillagna stjórnar Sambands isl. sveitarfé- lagaum ýmis mikilvæg atriöi. SU breyting var þó gerð, að ríkið greiddi 50% af viðhaldskostnaði og endurnýjunarkostnaði fast- eigna og tækja heilsugæslustöðv- anna, þrátt fyrir að eignarhluti rikisins sé 85%. Eins og ég hef áður sagt er að- stöðumunur þeirra sveitarfélaga, er eiga að reka heilsugæslustööv- ar, eneruekki Ibeinum tengslum við sjúkrahús, mjög alvarlegur. Þessi rekstrarkostnaöur veröur á þessu ári á bilinu 15-20 þús. á hvern Ibúa, auk þess hluti sveit- arfélaganna i rekstri sjúkrasam- laga.Éggetnefntsemdæmi Höfn I Hornafiröi, Borgarnes, Ólafsvik ogfleiristaði. Þessi greiðslubyrði er óveruleg hjá þeim sveitar- og bæjarfélögum þar sem heilsu- gæslustöðvareruvið sjúkrahúsin. Þar greiöir rikið nær allt. A þessu þarf aö ráða bót. Þess vegna hef ég lagt fram eftirfarandi fyrir- spurnir: ■l) Hvenær má vænta þess, að gefnar veröi Ut reglugerðir samkv. lögum um beiibrigðis- þjónustu, sbr. nú 2. mgr. 19. gr. laga nr. 57/1978? 2) Hvernig er háttað greiöslum sjúkrasamlaga tii heilsugæslustööva og lækna he il sugæsius töðva ? ■ 3) Hefur verið sett gjaldskrá um greiðslu sjúkrasamlaga til heils ugæsiustöðva samkv. 20. gr. laga nr. 57/1978, sbr. áður lög nr. 56/1973, um heilbrigðis- þjónustu? ■ 4) Hvað liður gerð áætlunar um byggingu heilbrigðisstofn- ana, samkv. 33. gr. laga um heilbrigðisþjónustu og hver eða hverjir taka ákvarðanir um stærð og gerð slikra stofn- ana, þ.á.m. bústaöa fyrir lækna og hjúkrunarfólk? alþingi ■ 5) Eru væntanlegar ráðstaf- anir af hálfu heilbrigðisráðu- neytisins til að jafna þann mikla aðstööumun sveitarfé- laga, sem er varðandi greiðslu kostnaðar við rekstur þeirra heilsugæslustöðva, sem ekki eru reknar I beinum tengslum við sjúkrahús? 1 svari sinu við 1. spurningunni sagði heilbrigðisráöherra, Magnús H. Magnusson, m.a.: Þaðeruaðmlnu mati aöallega tvær reglugeröir, sem nauðsyn- legt er að setja sem allra fyrst samkv. nefndum lögum um heil- brigöisþjónustu, þá fyrri samkv. 19. gr. og þá slöari samkv. 24. gr. 119. gr. segir svo: „Ráöherra set- ur með reglugerð ákvæði um stærð heislugæslustöövar og fyrirkomulag, læknafjölda og annaö sérmenntað starfslið, tækjabúnað og starfsháttu og fyrirkomulag heilsuverndar- starfs á hverjum staö, þ.á.m. um móttöku sjúklinga utan stöðva. Ráðh. getur með reglugerð ákveðið aö fjölga stöðvum I um- dæmum að höfðu samráði við landlækni og hlutaöeigandi heil- brigöismálaráð”. Fljótlega eftir setningu eldri laganna, sem gildi tóku 1. jan. 1974, var starfshópi frá heilbrrn. og landlækni undir forystu land- læknis falið aö semja reglugerö i samræmi við þessa grein. AIl- mikiö starf var unnið aö reglu- gerðasmlð ogkomu fram drög að reglugerð á árinu 1975, en I þeirri reglugerð voru tekin saman I eitt mál ýmis ákveöin reglugerðar- atriöi samkv. lagagr. og þar aö auki ýmis fyrirmæli um vinnu- fyrirkomulag og vinnumáta, sem vafasamt var aö ætti heima i slikri reglugerð. Reglugeröinni var þvi ekki að fullu lokiö. Þaö var ekki fyrr en á s.l. ári, að reglugeröardrögin voru send til umsagnar lækna á heilsugæslu- stöðvum og komu til umræöu á aöalfundi Læknafélags Islands. Égmun gera ráðstafanir til þess, að aftur verði hafist handa um reglugerðarsmiðina og þá verði notast við þau drög, sem fyrir liggja, og þeim breytt i samræmi við þá reynslu sem fengist hefur af rekstri heilsugæslustöðva. 1 svari slnu viö 2. og 3. spurn- ingu sagði ráðherra m.a.: Meðan lög um heilbrigðisþjón- ustu, nr. 56 frá 1973 voru I gildi var sjúkrasamlögum ekki skylt að greiða fyrir önnur störf á heilsugæslustöö en þau sem lækn- ar unnu, og þá samkv. samning- unrsem Læknafélag Islands geroi fyrir hönd lækna við Trygginga- stofnun rikisins. Meö breytingu á þessum lögum, nr. 57 frá 1978, var gert ráð fyrir að ráðh. setti gjald- skrá um greiðslu sjúkrasamlaga fyrir rannsóknir og meðferð veitta á heilsugæslustöö aöra en læknishjálp. Þessi gjaldskrá hef- ur enn ekki verið sett, en ég tel að það þurfi að vinna bráðan bug að þvl, þar sem hér er um aö ræöa verulegt hagsmunamál sveitarfé- laganna, eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda — þeirra sveitarfélags sem stöðvarnar reka. Inn I núgildandi lög kom skylda sjúkrasamlaga til aö greiöa fyrir þær rannsóknir og meðferð sem hér um ræðir. Ég mun þvi stefna aö þvl, að gjald- skrá komist I notkun frá og með næstu áramótum. 1 áætlunum Tryggingastofnunar rikisins og sjúkrasamlaga fyrir yfirstand- andi ár er ekki áætlað fé til þess- ara greiðslna, enda tóku lögin ekki gildi fyrr en 20. mai á þessu ári. Um hvernig háttaö sé greiösl- um sjúkrasamlaga til lækna, verð ég aö vlsa til þeirra samninga sem geröir hafa verið við lækna- félögin um þessi störf. Þeir samn- ingareru m jög sundurliðaðir, þar sem hér er um gjaldskrársamn- inga að ræða og læknar fá greiðslu fyrir einstök verk, viðtöl og rannsóknir sem þeir fram- kvæma sjálfir, auk þess sem þeir fá ákveðna greiðslu fyrir allar gerðir sem þeir fara til sjúklinga. Samningar þessir eru gerðir af fulltrúum Tryggingastofnunar rikisins, fjmrn. og heilbrn. á hverjum tima og auk þess stað- festir af rikisstj. I svari viö 4. spurningu sagði ráðherra m.a.: 1 núgildandi lögum er gert ráö fyrir þvi, að áætlun, sem ráðh. lætur gera um byggingu heil- brigðisstofnana, verði gerð I sam- ráði við viökomandi heilbrigðis- málaráð, landlækni og I samráði við fjárlaga- og hagsýslustofnun- ina. Gert er ráð fyrir þvi, að for- menn heilbrigöismálaráða veröi kvaddir til fundar nú fljótlega eftir aö fjárlagaírv. veröur lagt fyrir Alþ. Eitt af þeim málum, sem tekið veröur fyrir á fundi rn. meðformönnum heilbrigðismála- ráða, er það, hvernig staðið verö- ur að þeirri áætlun, sem hér um ræðir. Enda þótt áætlun hafi ekki verið gerö samkv. fyrri lögum, þá verður að benda á aö I grg. þeirri, sem hæstv. fyrrv. heilbrrh. lagði fyrir Alþ. I ársbyrjun 1977, er Magnús H. Magnússon mjög Itarlega rakið hvaða stofn- anir þurfi að byggja vegna heilsu- gæslu og sem embættisbústaði samkv. lögum. Þar var gerð itar- leg greiri fyrir þvi, um hve mikið verkefni hér væri að ræða. Hins vegar hefur við gerö f járlaga ekki veriö gerð áætlun lengra fram i timann en til fjögurra ára og þá fyrst og fremst áætlun um greiðslustreymi til þeirra fram- kvæmda, sem hafnar hafa verið, og till. um aðrar framkvæmdir, sem rn. ográðh.hafa talið aö ættu aö hafa forgang. Rn. hefur á hverjum tima sent fjárlaga- og hagsýslustofnun áætlun slna a.m.k. 2-3 ár fram i tímann, en áætlunin hefur ekki verið birt. Nú þegar ákvæöi eru komin inn í lög um aö áætlun þessa eigi aö gera i samráði við fjárlaga- og hag- sýslustoínun, sé ég ekkert þvi til fyrirstöðu, að undinn veröi aö þvi bráður bugur að gera áætlunina eins og lögin gera ráö fyrir og endurskoða hana árlega og leggja hana fram við gerð fjárl. A það ber þó að líta, að það er ekki gert ráð fyrir að þessi áætlun sé samþ. af Alþ. og verður hún því á hverj- um tíma að taka mið af gerö f jár- lagafrv. 1 svari sínu við 5. spurn. sagði ráðherra n.a.: Við endurskoðun laga um heil- brigöisþjónustu var tekiö tállit til þess kostnaðar, sem sveitarfélög bera vegna reksturs heilsugæslu- stöðva, svo sem áður greinir og um er rætt I 20. gr. laganna, þar sem ráöh. er gert að skyldu að setja gjaldskrá um greiðslu sjúkrasamlaga fyrir rannsóknir og meöferð veitta á heilsugæslu- stöö. Um það, hvort væntanlegar séu aörar ráðstafanir af hálfu heilbrn. til að jafna þann aöstöðu- mun sveitarfélaga, sem er varö- andi greiðslu kostnaðar á rekstri heilsugæslustööva, sem ekki eru reknar i beinum tengslum við sjúkrahús, þá er þvl til að svara, að ráöstafanir, sem rn. telur þurfa að gera, eru þær, að kostn- aöur við heilsugæslustöðvar sé ekki færður á sjúrkahúsrekstur- inn þannig yfir á sjúkratrygg- ingar, heldur sé gerö gangskör aö þvi aö þær stofnanir, sem bæði hýsa sjúkrahús og heilsugæslu- stöð, verði aö skilja sundur rekst- ur sinn þannig að eölilegur og hæfilegur kostnaður af heilsu- gæsluþjónustunni komi á sveitar- félögin I sama mæli og þar sem heilsugæslustöðvar eru reknar sjálfstætt. Enginnvafi erá þvi.aöþað hef- ur verið tilhneiging hjá sumum sveitarstjórnarmönnum til aö minnka kostnaö heilsugæslunnar á kostnað s júkrahúsanna. Hér tel ég að rn. þurfi að fara i saumana og kanna hvernig þvl verður best við komið aö þessi kostnaöar- skipting veröi eins og lögin gera ráð fyrir. Hv. fyrirspyrjandi má þvi vænta ráðstafana af hálfu rn. sem aö þessu stefna. Auk þess mun gjaldskráin, sem áöur getur og gildi á að taka frá næstu ára- mótum, létta talsveröum kostn- aði af þeim sveitarfélögum sem reka heilsugæslustöövar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.