Tíminn - 01.12.1978, Side 7
Föstudagur 1. desember 1978
miiitiBijii'
Er betta ..hinn
nvi ferski bvtur”
— að halda sér stöðugt
í sviðsljósinu?
Kaflar úr þingræðu-
um þingsályktun-
artillögu um
sérstakt gjald á
veiðileyfi sem seld
eru útlendingum
Framsögumaöur fyrir þessari
þingsályktunartillögu, háttvirt-
ur þm. Arni Gunnarsson, gat
þess f lok framsöguræöu sinnar,
aöhannværi aö gangafrá frum-
varpi og mundi leggja þaö frm á
Alþingi einhvern næsta dag, um
sama efni og felst I þessari
tillögu, sem hann var þá aö tala
fyrir og er hér mi til umræöu.
Þessi þingsályktunartillaga
er um þaö, aö fela hæstvirtri
rikisstjórn aö láta semja frum-
varp um ákveöin afmörkuö
efnisatriöi.
En um leiö og háttvirtur þm.
talar fyrir þessari tillögu, getur
hann þess, aö hann sé nú búinn
aö vinna þetta verkefni. Hver er
þá tilgangurinn meö þessum
tillöguflutningi?
Ég hef átt sæti hér á Alþingi i
rúman áratug, en ég minnist
þess ekki, aö á þeim tlma hafi
veriö haföur í frammi slikur
málatilbúnaöur og ég hygg aö
lengi megi leita, til aö finna
dæmi þess.
Háttvirtir alþingismenn hafa
tvo möguleika á aö flytja mál
hér á hinu háa Alþingi i álykt-
unarformi eöa frumvarpsformi.
Sé máliö flókiö og vandasamt,
viss atriöi sem þarf aö
rannsaka, álitamál um hvernig
aö málinu skuli standa til aö ná
þeim markmiöum, er flutnings-
maöur eöa flutningsmenn
stefna aö, þá er aö jafnaöi
ályktunarleiöin valin. Sé á hinn
bóginn máliö einfalt er rökrétt
aö setja máliö fram i frum-
varpsformi.
En aö flytja sama mál eftir
báöum þessum leiöum, og þaö
samtimis, hygg ég aö sé
einsdæmi. Enda sé ég ekki
annan tilgang meö þvf en þann
aö reyna aö vera sem mest i
sviösljósinu. En er þaö nú alveg
einhlitt, aö í öllum tilfellum sé
ávinningur aö þvi? Eöa hafa
mál nú aö undanförnu þróast á
þann veg, aö a.m.k. sumir hátt
virtir þingmenn séu farnir aö
trúa þvi, aö þaö sem skipti máli
I stjórnmálabaráttu sé aö flytja
nógu mörg mál, tala og skrifa
nógu mikiö, hvaö sem innihald-
inu liöur. — Er þetta „hinn nýi
ferski þytur”, sem fer um
þjóölif iö, og á aö sögn sumra aö
þeyta I burtu öllum óhreinind-
um út i hafsauga?
Þessi þingsályktunartillaga
gefur ekki tilefni til mikilla um-
ræöna.Hún er um þaö eitt, aö
Alþingi álykti aö fela rflcis-
stjórninni aö undirbúa löggjöf
um aö leggja áerstakt gjald á
veiöileyfi, sem seld eru útlend-
ingum til veiöa I islenskum lax-
veiöiám. Og aö gjaldiö renni I
rflcissjóö og skal fjármunanna,
sem þannig aflast, variö til
tilrauna meö fiskirækt I sjó og
vötnum.
Tillagan er um þaö eitt, aö
gjald skuli lagt á veiöileyfi,
þegar erlendir menn eiga I hlut,
og svo til hvers eigi aö nota þá
fjármuni, sem inn koma meö
þessari fyrirhuguöu gjaldtöku.
— En þvi ekki sömu reglur um
silunginn f ám og vötnum, hvers
á hann aö gjalda aö dæmast til
aö veröa bráö erlendra manna?
Ekki leyndi sér hvaö fyrir
háttvirtum flutningsmönnum
þessarar tillögu vakir meö
henni, ef marka má framsögu-
ræöu þá, sem háttvirtur fyrsti
flutningsmaöur fíutti fyrir
henni. — Þaö er ekki af
umhyggju fyrir landeigendum,
þaö kom berlega i ljós hjá
háttvirtum framsögumanni, og
hefur ef til vill engum komiö þaö
á óvart. Umhyggjan var fyrir
þeim Islendingum, sem þessa
iþrótt stunda, veiöileyfin eru
oröin ofdýrfyrir þá. Þaöveröur
aö dómi þessara háttvirtu þing-
manna aö gera veiöileyfin þaö
ódýr, aö lslendingar geti hver
sem er veitt sér þennan munaö,
aö~veiöa lax. Framboö og eft-
irspurn eiga ekki aö ráöa verö-
inu á veiöileyfunum eins og á
fjármagninu.
Háttvirtur framsögumaöur
talaöi um slæm gjaldeyrisskil
vegna seldra veiöileyfa og
nefndi tölur f þvi sambandi.
Hann ræddi um, aö þörf væri á
aöláta koma framhvaöaf þess-
um gjaldeyrisé skilaö. Ég veit
ekki betur en þaö sé hlutverk
Seölabankans aö fylgjast meö
öllum gjaldeyrisskilum, og ég
held aö háttvirtur þingmaöur
ætti aö benda Seölabankanum á
þessar grunsemdir sem hann
ber I brjósti og óska eftir betra
eftirliti i þessum efnum.
Stefán
Valgeirsson
alþingismaður
Mér er mikil forvitni á aö vita
hvernig háttvirtur flutn-
ingsmaöur hyggst tryggja þaö,
aö erlendir laxyeiöimenn veröi
látnir borga hinn fyrirhugaöa
skatt. Mér skilst aö þaö sé
hugsaö þannig, aö ef Islending-
ur kaupir veiöileyfiö, þá eigi
hann aö fá þaö fyrir verulega
minna verö, en ef erlendur
maöur á i hlut. Og aö þessi
verömunur hlýtur aö eiga aö
vera verulegur, þar sem hann á
aö sögn háttvirts framsögu-
manns aö veröa til þess aö
ásókn erlendra manna f laxár
okkar minnki til muna frá þvi
sem veriö hefur.
Og hver á aö hafa á hendi sölu
á veiöileyfum hér I framtföinni,
svo þaö veröi öruggt aö enginn
erlendur maöur komist i
islenska laxveiöiá, nema hafa
borgaö skattinn hans Arna?
A ef til vill aö setja upp nýja
stofnun, sem heföi meö aö gera
sölu á öllum laxveiöileyfum i
allar ár i landinu, sem einhver
von er um aö iax gangi í. Og
halda háttvirtir flutningsmenn,
aö þó slik skipan komist á, aö
öruggt yröi aö enginn erlendur
maöur komist f lax, án þess aö
borga skattinn? Eöa er á til vill
veriö aö semja nýtt frumvarp
um aö setja á stofn nýja sveit
lögreglumanna, sem mundi ef
tíl vill ganga undir nafninu Lax-
veiöilögregla rikisins, og ætti þá
aö hafa þaö verkefni aö fylgjast
meö þvi aö enginn erlendur
maöur renni fyrir lax nema
hafa áöur borgaö skattinn.
Nema þó aö von sé á einni
þingsályktunartillögunni enn
þess efnis aö öllum erlendum
mönnum sé bannaö aö koma til
Islands yfir laxveiöitimann,
nema hann sýni viö komuna til
landsins aö hann sé búinn aö
kaupa laxveiöileyfi meö
sérstökum skattstimpli. Sem
sagt, aö á laxveiöitlmanum
komist enginn erlendur maöur
inn i landiö, nema hann sýndi
laxveiöivegabréf.
Ég sé ekki aörar leiöir færar,
ef þessi bráösnjalla hugmynd á
aö komast til framkvæmda.
Annað hvort fjölmenna laxa-
lögreglu eöa banna erlendum
mönnum aögang aö landinu,
nema þeim sem hafa lax-
veiöivegabréf. Auövitaö eru
báöar þessarleiöir áhugaverðar
i meira lagi.
Þvi engum getur dottiö I hug,
og sist háttvirtum framsögu-
manni, aö leiöa landa sina i
þvillka freistni, aö skapa hver j-
um sem er möguleika á aö
kaupa veiöileyfi fyrir erlenda
laxveiöimenn, vini sina aö nafn-
inu til, og bjóöa þeim í laxveiöi,
geta þannig veriö I laxveiöi
sjálfir nokkra daga a.m.k. Fá
siöan erlendan gjaldeyri fyrir
ómakiö, sem engin leiö er aö
gera grein fyrir og þvi ekki hægt
aö skila I banka. Ef til vill er
ekki sú stund langt undan, aö
ýmsir landar okkar hafa mögu-
leika á aö eyöa sumarfrii sinu i
laxveiöar án þess aö aö kosti
mikiö I krónum taliö. Væri þaö
ekki snjallt og göfugt verkefni
aö koma þvi I framkvæmd?
Væri þaö undarlegt þó sú
spurning sé farin aö gerast
nokkuö áleitin, hvort háttvirtir
alþingismenn, a.m.k. flestir
þeirra, beri ekki meiri viröingu
fyrir starfi sinu, sjálfum sér og
ekki sist þessari stofnun,
Alþingi tslendinga, en þaö aö
eyöa tíma þingsins I umræöu
um mál af þessu tagi?
Björn
Bergsteinn
Christensen
heitir hann og hann hefur veriö
framkvæmdastjóri Sambands
jóskra búnaöarfélaga siöan 1964
og er þaö enn. I dag er Björn
sextugur. En þvi aö geta þess I
islenskudagblaöi? Af þvl aö þaö
er vel viðeigandi, hann er að
hálfu Islendingur. Björnfæddist
I Borgarnesi þann 16. nóvember
1918 en fluttist meö foreldrum
sinum til Danmerkur fjögurra
ára aö aldri.
Móöir Björns hét Sigrlður Er-
lendsdóttir, hún var frá Vik i
Mýrdal en faðirinn danskur,
þess vegna er Björn auövitaö
danskur borgari þótt náin
skyldmenni eigi hér á landi,
m.a. eru þeir systkinasynir
hann og Erlendur forstjórí SIS.
Björnlauk prófi sem kandidat
Ibúvisindum áriö 1943 og hefur
siöan stundaö störf sem ráöu-
nautur, skólastjóri búnaöar-
skóla og ritstjóri landshluta-
málgagns landbúnaöarins, og
um siðastliöin 14 ár hefur hann
gegnt framkvæmdastjórastarfi
sam ba nds-búnaöar félag anna
jósku og þar veriö oddviti stór-
stigra framkvæmda og fram-
fara á flestum sviöum landbún-
aöarins.
Hann hefur helgað landbún-
aöinum alla krafta sina alit frá
æskuskeiöi ogernú merkisbergi
77.000 bænda i 91 búnaöarfélagi
um gjörvallt Jótland, ásamt
fjölgreindum athöfnum ráöu-
nautahópsins sem eru i tengsl-
um, beint og óbeint, viö miö-
stöövar félagsskaparins.
Meöal stærstu hlutverka hans
er forsjá hinna árlegu búfjár-
Björn Bergstein Christensen viö hin nýreistu miklu musteri sambands jóskra búnaöarfélaga
viö Arhus.
sýninga, sem ætiö krefjast mik-
ils undirbúnings og starfsliös, er
telur hátt á annaö hundraö
manns, kandidata, ráöunauta,
og tæknifræöinga.
Kerfun félagsskaparins og
starfanna vekur eftirtekt vitt
um lönd og langtimum saman
er meginhlutverk Björns aö
sinna heimsóknum útlendinga,
er koma til Danmerkur til þess
að kynna sér hiö trausta og
þróttmikla félagsstarf, sem
rómaö er langt út fyrir landa-
mæri Danmerkur. Viöurkennt
er aö aldrei hefur þróun þeirra
efna verið örari en einmitt í for-
sjá Björns. Ætt sinni og uppruna
hefur Björn knýtt heiöurssveig
með ævistarfi, sem enn á von-
andi langan veg og bjartan i
framsýn, og getum viö vel veriö
þekkt fyrir aö beina bestu ósk-
um til hálf-Islendingsins austan
Atlantshafsins viö þessi tima-
mörk á ævi hans.
16.nóv.l978 Gisli Kristjáiisson
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■'