Tíminn - 01.12.1978, Side 9

Tíminn - 01.12.1978, Side 9
Föstudagur 1. desember 1978 9 Ályktun um afkomu sjávarútvegsins á E^kiþingi: Þórleifur Bjarnason $ú grunna lukka é - Morósaga frá 18. öld jr ,gnEp»yl (h<\ »' iY tmm mMmmm t’óríélfur Bjariíason Sú gritnua líikka Örn og Örlygur l 'i’xturf’otu 42, sirtii 25722 Tvö hórsck hjú restan aj fjörö- um stclast hrott úr átthögum síttunt ofi leita á Hornstrandir í ron unt að sckir mcnn scu ckki framscldir yjirröldum norÖur þar. Sá grunnu lukka cr hcimilda- suga um raunrerulega athurði, cn skáldskapur Itennar skil- grcinir þcnnan örlagaríku harmlcik frá löngu liðnum tíma og þokar Itottum ótrúlcga mcrri lescndum og samtíð í nærfœr- inni og listrœnni túlkun höf- undar. Ráðstafamr til skamms tíma duga ekki v ■ ^ .e~v > Kás — Nú er nýlokiö Fiskiþingi, því 37. i rööinni. í itarlegri ályktun þess um afkomu sjávarútvegsins segir, að það sé álit Fiskiþings, að lengur sé ekki hægt að una þeim vanmætti sem stjórnmálamenn þjóðar- innar hafi sýnt, til að taka af fullri ábyrgð á þeim vanda, sem snýr aðrikisfjármálum og opin- berum framkvæmdum sérstak- lega. Þvi skorar þingið á Alþingi og rikisstjórn að ganga nú til verka af fullri einurð og kveða verðbólguna niður. Þá eru nefnd þrjú atfiöi, sem þingið telur aðsérstaklega verði aö taka tillit til þegar slíkt verk yrði unnið. 1 fyrsta lagi dygðu ráðstafanir til skamms tima ekki. 1 annan stað yrði að hafa I huga sérstöðu sjávarútvegsins meðal atvinnuveganna, þvi hann yrði að langmestu leyti að sæta þvi verölagi fyrir fram- leiðslu sina, sem á erlendum mörkuöum væri á hverjum tima. i þriðja lagi er lagt til, að við afgreiöslu fjárlaga fyrir 1979, veröi tekin upp ströng samræming þeirra þátta, sem fólgnir eru I rikisrekstrinum, fjárfestingarmálum, kjara- málum og peningamálum almennt. Allir þessir þættir yrðu að stefna að verulegum tekjuafgangi rikissjóðs. Þá segir i ályktun þingsins: 37. Fiskiþing varar við þeirri viðleitni, sem nú er höfö i frammi um stórhækkaða útlána vexti. Þaö er álit þingsins að sú vaxtahæð er útgerö og fisk- vinnsla búa við hverju sinni segi ekki alla sögu um þá vaxta- byrði, er þessar atvinnugreinar verða að standa undir. 1 þessu sambandi skal bent á að útgerð og fiskvinnsla hafa þá sérstööu aö geta ekki á borð við aðrar atvinnugreinar i landinu velt vaxtakostnaöi beint út i verölagið. Við þessa aðstöðu hafa hins vegar þjónustugreinar útgerðar og fiskvinnslu búið, svo segja má að sjávarútvegurinn I heild sinni hefur oröiö að bera vaxta- kostnaö langt út fyrir sitt eigið svið. Þingið vill sérstaklega benda á, að vextir og verðtrygging lána, sem tekin eru vegna ný- smiöi skipa miðað viö sl. ára- mót eru útgerö slikra skipa algjörlega ofviöa. Sem dæmi um það má nefna, að I af- borganir, vexti og verð- tryggingu geta farið 60% af aflaverömæti skipanna, miðað við rekstur á heilu ári. Aukning á sölu mjólkurvara — til styrktar starfi íslandsdeildar Amnesty International ESE— Frá þvi að verö breyttist á mjólkurvörum i september s.l. hefur orðið nokkur breyting á verðiagi eggjahvitu og fitu til samræmis við breytta eftirspurn. Nokkur hlutí neytenda óskar þess nú aö fita sé fjarlægö úr mjólkinni aö hluta til eða að öllu leyti, og vill þessi hluti neytenda ekkert gefa fyrir fituna, en sækist þess i staö eftir eggjahvituefnun- um. Til þess að bændur gætu fengið fullt verð fyir framleiöslu sina var undanrennuverö hækkaö, jafnframt þvi sem verö var lækkaö á rjóma og smjöri. Frá þvi að veröbreytingin var gerðhefur sala á mjólk aukist um 3%, rjómasala um 15%, jógúrt- sala um 25%, Kókómjólkursala um 6%, skyrsala er óbreytt, en undanrennusala hefur minnkaö um 30%. Heildaraukning á mjólkur- vörum á þessum tima samsvarar þvi 2,3%. Sunnudaginn 3. desember kl. 17.00 verða haldnir í Norræna húsinu kammertónleikar til styrktar starfi tslandsdeildar Amnesty International. Eru þeir haldnir að frum- kvæði hörpuleikara Sinfóniu- hljómsveitar Islands, Sophiu Cartledge frá Bret- landi, en hún hefur starfað með hinni bresku landsdeild Amnesty International og gengist fyrir hljómleikum á hennar vegum i Lundúnum. Auk Sophy Cartledge koma átta hljóðfæraleikarar fram á hljómleikunum I Norræna húsinu, frá Bretlandi, Bandarikj- unum, Astraliu og þrir íslend- ingar. Hljóðfæraleikararnir eru: Alan Weiss, flautuleikari Barbara Gilby, fiðluleikari, Einar Jóhannesson, klarinett- leikari, Helga Þórarinsdóttir, lágfiðluleikari, Kolbrún Hjalta- dóttir, fiðluleikari, Laurence Frankel, óbó- og planóleikari, Richard Korn, bassaleikari og Victoria Parr, sem leikur á kné- Fjórir af þeim toniistarmönnum sem fram koma á sunnudaginn — Sophy Cartiedge, Richard Korn, Barbara Gilby og Laurence Frankel. — Timamynd: Tryggvi. fiðlu. Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, Ibert, Rossini, Tele- mann, Schumann og Ravel. Allur aögangseyrir aö þessum tónleikum rennur til starfs Is- landsdeildar Amnesty Inter- national en hún er ein af 35 lands- deildum samtakanna. Þau telja nú samtals um tvö hundruö þús- und manna innan sinna vébanda, frá 109 löndum. Um tvö þúsund starfshópar I 31 landi starfa á vegum Amnesty International og hafa það sérstaka verkefni að vinna að frelsun nafngreindra skoðanafanga. Verkefnum út- hlutar aöalskrifstofa samtakanna i Lundúnum, en hver hópur vinnur að jafnaði að málum tveggja til þriggja fanga. —Markmiö alþjóðasamtakanna Amnesty International er aö vinna að þvi að þeir, sem fangelsaðir hafa verið vegna skoðana sinna, trúarbragða, litarháttar eöa kynþáttar, verði látnir lausir svo fremi sem þeir hafa ekki beitt valdi til aö vinna málum slnum brautargengi. Þá berjast samtökin fyrir þvi, aö fangar fái viðunandi réttarmeð- ferð, þau vinna gegn pyntinum fanga og að afnámi dauöarefs- ingar. Kamm- ertón- leikar Ymsir hafa þegar bætt aðstöðu fatlaðra tíl að komast leiðar sinnar Lagabreytingar, þar sem tillit er tekiö til þeirra, taka gildi um áramót SJ— Nú um áramótin taka gildi breytingar á byggingariögum og skipulagslögum, sem miða að þvi að auövelda ellihrumu og fötluðu fólki að komast leiðar sinnar. Eftir að lagabreytingarnar taka gildi skal tekið tillit til sérþarfa þess fólks, svo sem varðandi götur, gangstéttir, bifreiöastæöi og staðsetningu ibúðarhúsa, sem sérstaklega eru ætluö öldruðum og fötluðum. Ýmsir aðilar hafa þegar gengiö á undan með góöu fordæmi og hafa gjörbreytt aöstöðu við byggingar þær, sem þeir ráöa fyrir, til hins betra fyrir hreyfi- hamlaða. Viö nefnum hér sér- staklega Fossvogskirkju, Karvalsstaði og verslanirnar Vörumarkaðinn og Glæsibæ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.