Tíminn - 07.12.1978, Qupperneq 13

Tíminn - 07.12.1978, Qupperneq 13
Jólablað 1978 '9 13 heimavistarskólar eins og þessi skóli. Og þaö besta sem viö get- um gert fyrir vaxandi kynslóö> fyrir framtiö þjóöarinnar.þaö er held ég aö reisa marga vandaöa unglingaskólaoggeraþá allaaö fyrirmyndarheimilum.” Þorsteinn Gislason skáld og ritstjóri gaf skólanum kvæöi eins og fyrr segir. Þaö hefur æ slöan veriö skólasöngur. í kvæöinu er talaö þannig til æskunnar: Lögö er skyldan þarfa, þunga þínar heröar á: reisa býlin, rækta löndin, ryðja um uröir braut... Vermd af nýrra vona ljósi vinn þú dýrust heit: sárin græöa,hefja i hrósi hérað þitt og sveit... Jafnframt er æskunni gefiö þetta fyrirheit: Sértu viljug,svo mun höndin sigra hverja þraut. Tónskáldin Páll Isólfsson og Sigvaldi Kaldalóns geröu og gáfu skólanum sitt lagið hvor viö þetta kvæöi. Voru bæöi lögin æfö og sungin. Jakob skáld Thorarensen gaf einnig skólanum kvæði. Þar er borin fram þessi hvatning: Hér mun vakinn vösku taki vitaðsgjafi Suöurlands:, leiftur margt og ljóma bjartan leggja skal frá stöövum hans, nýjar menntir — minna af prenti, meira af llfi og vori i senn... Tónskáldið Emil Thoroddsen geröi lag viö þetta kvæöi og gaf skólanum. Þetta gefur til kynna,aö ýmsir af fremstu embættismönnum landsins og listamönnum heilsuöu fyrir hálfri öld með nokkurri viöhöfn Laugarvatns- skóla,sem þá var stofnsettur. IV Voriö 1930 var ég braut- skráður úr Laugarvantsskóla eftir tveggja vetra nám. Aö þvi loknu þurfti ég á ný aö feröast milli Laugarvatns og öræfa- sveitar. Þá varö mér kunnugt aö Siggeir Lárusson á Kirkju- bæjarklaustri hafði um þaö leyti keypt nýjan vörubll I Reykjavlk og hugðist aka bllnum þaöan austur á Slöu. Hann lét mér I té sætií vörubllnum. Þá voru vegir viöa ófullkomnir, jafnvel hættu- legir fyrir bila og mörg vötn óbrúuð s.s. Þverá og Markar- fljót I Rangárvallasýslu, Hafursá, Klifandi og Kerlingar- dalsá i Mýrdal, Múlakvlsl á Mýrdalssandi o.fl. Siggeir á Kirkjubæjarklaustri lét þetta samt ekki hamla ferð sinni. Og meö dugnaöi og góöri útsjón komst hann leiöar sinnar. Valiö var brot á Þverá viö Fljótshliö innanveröa, slöan farið suöaustur aurana til aö komast yfir Markarfljót. Viö komumst á einum degi frá Reykjavlk til Vlkur, en þaö var ströng dagleiö. Daginn eftir var feröinni haldið áfram austur aö Kirkjubæjarklaustri. Þar varö ég þá aö leggja á hesta til að komast austur I öræfi. En sú leið var rúmlega þriöjungur þess vegar sem ég haföi áöur ferðast á hesti. A fjóröa áratug þessarar ald- ar voru geröar brýr á Þverá, Ala, Affall og Markarfljót I Rangárvallasýslu ogennfremur unniö af káppi viö vega- og brúageröir i Vestur-Skaftafells- sýslu. A þvl tlmabili tókst að leggja samfelldan akveg frá Reykjavlk austur á Slöu. Eftir þaö var gert stórátak við brúa- geröic, fyrirhleöslur vatna og vegalagningu I Austur-Skafta- fellssýslu er lauk aö kalla meö tengingu hringvegarins og opn- un Skeiðarárbrúar til umferöar á þjóðhátiöarárinu 1974. Þetta veldur slikri breytingu á sam- göngum sunnan lands, aö nú tekur feröalag Ur öræfasveit til Laugarvatns nálega jafn marg- ar klukkustundir og þaö tók marga daga fyrir fimmtiu árum, sé fariö landveg. A sama tíma hafa flugferöir einnig komið til sögu. V Hvernig hefur þjóöllfiö al- mennt breytstá fimmtíu árum? Breytingarnar eru svo miklar og margvislegar aöþeim veröur ekki lýst I stuttu máli. Sem dæmiskal hér nefna,að nú liggja akfærir vegir um allar byggöir landsins, flugferöir eru milli margra staöa innan lands og milli landa,simi og rafmagn eru á hverjum bæ, landsmenn njóta útvarps, sjónvarps o.s.frv. Glæsileg skólahús hafa veriö reist viöa um land. A Laugar- vatni eru nú t. d. a uk héraösskól- ans, menntaskóli, Iþrótta- kennaraskóli, húsmæöraskóli og grunnskóli. Mikla fyrir- hyggju hefur þurft til aö gera hinar stórfelldu framkvæmdir og þær hafa kostað áreynslu og fjármuni af aflafé þjóöarinnar. Framtak og fyrirhyggja kemur viöa i ljós I verkum frá liönum árum. Einkum hafa þeir menn, sem nú eru rosknir lagt mikið af mörkum á verklegu sviöi á löngum starfstlma. NU situr á skólabekk um þriðjungur landsmanna, ef miöað er viö skólana I heild frá grunnskólum til háskóla. Þessir nemendur leggja ekki á sig langar feröir á hestum um ófull- komnar vegaslóöir og yfir óbrú- uö vötn.né feröir á litlum skipum milli hafna. Þeir geta á skammri stund fariö frá einum landshluta til annarra i flugvél eða bll — og spara þaö ekki. Unga fólkiö i landinu nýtur þeirra gæöa og þæginda, sem framkvæmdunum fylgja og þaö tekur viö þeim gæðum Ur hönd- um eldri kynslóöar. Þegar litiö er til verklegra framkvæmda I landinu, geta átt viö þá lands- menn, sem stunda nám, orö Skarphéðins Njálssonar: Eftir er enn yövarr hluti. Skólar landsins mynda nú samfellt skólakerfi meö mörg- um námsbrautum. Eigi aö slöur er i fullu gildi sú ábending,sem gáfaöur ogsnjall ræöumaöur tók fram I tækifærisræöu á Laugarvatni fyrir fimmtlu ár- um og þvl fremur sem skóla- kerfiö verður æ viöameira og áhrifarikara I þjóölifinu: Eina ráöið,sem hugsanlegt er aö dugi,hvort heldur er til aö varna því aö menn fari I hund- ana I stórborginni eöa i bók- menntunum, er aö gera þá næma fyrir mismun góös og ills, kenna þeim aö greina hollt frá óhollu,fagurt frá ljótu^satt frá lognu. Hérer hiö mikla hlutverk skólanna aö kenna mönnum aö lesa sér til gagns og þar meö aö velja sér andlegan félagsskap. Páll Þorsteinsson Vandaðar vélar horga sig LOFT KÆLDU bezt dráttaivélamar Með eða án framdrifa Fullnægja ströngustu kröfum Hagsymr bændur velja ed'^ X sér hagkvæmar vélar, þeir {v^J***** ' velja DEUTZ dráttarvélar við sitt hæfi ÓSKAVÉL ÍSLENZKA BÓNDANS HFHAMAR VeLADEILD SlMI 2-21-23 TRYGGVAGoTU REYKJAVl K

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.