Fréttablaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 26
31. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR26
hagur heimilanna
„Það hefur komið fyrir að ég hafi keypt of
mikinn mat vegna þess að ég var svang-
ur í verslunarleiðangrinum. Þetta verður
til þess að maður situr uppi með fullan
ísskáp af mat sem síðan endar í ruslinu.“
Guðlaugur ræktar yfirleitt kartöflur úti í
garði og stefnir einnig að því að rækta
þar grænmeti. „Það er stemning í því að
taka upp eigin uppskeru á haustin og
nýuppteknar kartöflur með smjöri eru
herramannsmatur.“
Guðlaugur viðurkennir að
hann sé ekki góður í viðgerðum
og kallar óhikað á iðnaðar-
menn ef þess er þörf. „Það
gæti reynst dýrt að láta laga
það sem maður reynir að
gera sjálfur í kunnáttuleysi.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
SADDUR AÐ VERSLA
■ Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis-
maður segist forðast að fara svangur
að versla því þá eyði hann í óþarfa.
Margir hafa upplifað þá skelfingu sem fylgir því að harði diskurinn á tölvunni hrynur.
Viðkvæm persónuleg gögn á borð við myndir, tónlist, myndskeið, skólaglósur og
vinnuskjöl geta þannig tapast á svipstundu.
Síminn hefur sett á markað nýja miðlæga gagnageymslu sem nefnist Safnið, þar
sem viðskiptavinir geta geymt stafræn gögn á öruggan hátt og hægt er að miðla
þessum gögnum til annarra á einfaldan og öruggan hátt.
Hægt er að nálgast gögnin eftir margvíslegum leiðum, gegnum
tölvuna, ADSL sjónvarp og farsíma. Einnig er hægt að vista ljósmyndir í
Safninu og hafa myndasýningu í sjónvarpi.
Ekki þarf að greiða fyrir geymslurými Safnsins allt að 500 megabit-
um. Hægt er að kaupa stærra rými og kostar tveggja gígabita geymsla
290 krónur á mánuði, fimm gígabitar kosta 490 krónur og tíu gígabit-
ar kosta 890 krónur.
■ Tölvur og tækni
Geymsla stafrænna gagna
„Á mánudögum eru alltaf kálbögglar, kjötbollur með
hvítkáli sem þessa dagana kemur úr Skólagörðunum,“
segir Össur Skarphéðinsson,
þingmaður Samfylkingarinn-
ar. „Í gamla daga hjá mömmu
var þetta alvöru, þeir voru
bundnir með seglgarni og
krossbundið fyrir. En núna
er ég alltaf að flýta mér,
kaupi bara tilbúið fars, sýð
kjötbollurnar og svo set ég
hvítkálsblöðin ofan í pottinn,“ segir
Össur.
Össur býr að þeirri reynslu að
hafa verið kokkur eitt sumar á sjó.
„Ég átti góða frænku á Ísafirði
sem lánaði mér mat-
reiðslubók Helgu Sig-
urðar og ég var kokkur
út sumarið. Það er erfiðasta starf sem ég hef unnið á
ævi minni, að elda ofan í fjórtan kalla sem allir voru
matvandir og síhungraðir,“ segir Össur.
Þrátt fyrir gífurlegt magn af grænmeti sem dætur
Össurar rækta í skólagörðunum gengur illa að koma
kálinu ofan í mannskapinn. „Það er dagskipun að
allir á heimilinu verða að minnsta kosti að borða
eitt kálblað. Dætur mínar sýna því takmarkaðan
skilning að menn eigi að éta þetta líka,“ segir Össur,
en segir að það komi ekki að sök því þá lendir það
á honum að borða grænmetið. „Maður eru jú alltaf
að fá ábendingar um að borða meira grænmeti og
kaloríusnautt fæði, það er smá sumarátak í gangi
með góðum árangri.“
Össur segir að nóg bragð sé af farsinu og því
óþarfi að krydda réttinn, en hann hellir smá ediki í
pottinn og bragðbætir kjötbollurnar með bræddu
smjöri, í hófi að sjálfsögðu. Með kálbögglunum hefur
Össur kartöflur úr skólagörðunum.
HVERSDAGSMATUR: ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ÞINGMAÐUR
Kálbögglar með skólagarðakáli
Útgjöldin
> Verð á kjúklingi í febrúar, í krónum á hvert kíló
KÁLBÖGGLAR:
Kjötfars
hvítkál
smá balsamedik
brætt smjör
kartöflur
London 9.900 kr. 9.960 kr. 146 kr.
Kaupmannahöfn 8.200 kr. 14.890 kr. 167 kr.
Reykjavík 10.990 kr. 2.520.000 kr. 180 kr.
VERÐ Í ÞREMUR BORGUM
(Hvorki var leitað eftir hæsta né lægsta verði. Verð eru með virðisaukaskatti.)
Fréttablaðið fór á stúfana á dögunum og lét kanna verð á þremur
algengum en ólíkum vörum í heimsborgunum London, Kaup-
mannahöfn og Reykjavík.
■ Að þessu sinni var kannað verð á boltanum sem var notaður á hm
í knattspyrnu, Nike Air Structure-hlaupaskóm og hálfum lítra af
Powerade.
367
556
20
06
20
04
20
02
391
Heimild: Hagstofa Íslands
Hægt er að fá starfsmannaskírteini sem er með innbyggðum Bluetooth-búnaði sem
gerir starfsmanni mögulegt að svara GSM-símanum sínum í gegnum
handfrjálsan búnað.
Skírteinið er afar þunnt og einfalt í notkun en býr engu að síður
yfir ýmsum möguleikum. Hægt er að hækka og lækka í símanum,
vísa símtali frá ef notandi er upptekinn og halda þriggja manna
fund í gegnum tækið svo dæmi séu tekin. Einnig er hægt að láta
tækið titra lítillega til þess að láta vita um símtal.
Taltími er allt að því 40 klukkustundir og hægt er að hlaða
tækið með því að tengja það með kapli við tölvu.
Hægt er að kaupa þennan búnað í Og Vodafone.
■ Farsímar og tækni
Tæknilegt starfsmannaskírteini
Um þessar mundir eru flestir
Íslendingar búnir að klára sumar-
fríin sín. Sumir eru eflaust með
samviskubit eftir sældarlíf í sumar-
fríinu sem þeir vilja bæta fyrir en
flestir vonandi vel hvíldir og fullir
orku. Það gæti skýrt þann fjölda
sem fjárfestir í líkamsræktarkort-
um núna en þetta er annasamasti
tími ársins í sölu líkamsræktar-
korta. Fréttablaðið kannaði verð á
þremur stærstu líkamsræktar-
stöðvunum á höfuðborgarsvæðinu.
Iceland Spa and fitness, sem
Sporthúsið, Baðhúsið, Þrekhúsið
og Betrunarhúsið heyra undir,
býður upp á sérstakt hausttilboð
sem er fjögurra mánaða Fitness-
kort á 13.900 krónur. Einnig er
hægt að ganga í ISF97 klúbbinn
sem hefur 12 mánaða binditíma á
2.990 krónur á mánuði. Tíu pró-
senta afsláttur af vörum og þjón-
ustu fylgir aðild að ISF97 klúbb-
num.
Hreyfing heilsurækt er með
hausttilboð á þriggja mánaða kort-
um á 14.900 krónur. Skólakort með
minnst tíu mánaða binditíma er á
2.990 krónur á mánuði. Í Bónus-
klúbbnum er hægt að velja milli
þriggja mismunandi binditíma.
5.990 krónur eru greiddar á mán-
uði fyrir sex mánaða lágmarks-
binditíma, 4.400 krónur fyrir 12
mánuði og 5.990 krónur fyrir 36
mánuði. Með aðild að Bónusklúbbi
fylgir 17.000 króna kaupauki sem
samanstendur af fríum mánuði,
vörum og fræðslu.
World Class er ekki með nein
sérstök hausttilboð. Árskortið kost-
ar 47.500 krónur en einnig er hægt
að skipta því niður á 12 mánuði þar
sem greitt er 4.400 krónur á mán-
uði. Sex mánaða kort er á 32.200
krónur. sdg@frettabladid.is
Flestir Íslendingar kaupa sér líkamsræktarkort á haustin:
Hrista af sér sumarbumbuna
VERÐ Í LÍKAMSRÆKT
1 MÁNUÐUR
1.
05
0
1.
17
0
1.
30
01
.0
50
1.
17
0
1.
30
0
17
.9
00
20
.6
90
20
.1
00
ICELAND SPA AND FITNESS
HREYFING HEILSURÆKT
WORLDCLASS
STAKUR TÍMI 3 MÁNUÐIR
Algengt er að fyrirtæki
bjóði upp á þátttöku í SMS-
leikjum þar sem kostur
gefst á að vinna vöru eða
þjónustu. Eftirvæntingin
við þátttöku í happdrætti
eða leik getur hleypt
skemmtilegri spennu í dag-
inn og fæstir telja eftir sér
að senda eitt stutt SMS.
Það kemur fyrir að tvær grímur
renni á fólk þegar auglýsingar í
formi SMS-skeyta fara að berast
stuttu seinna.
Neytendasamtökunum barst
nýlega kvörtun frá félagsmanni
um að tólf ára dóttir hans hefði
fengið SMS-skeyti frá versluninni
BT þar sem verið var að auglýsa
flatskjá. Félagsmaðurinn sagði að
dóttirin fengi reglulega send SMS-
skeyti eftir að hafa einu sinn tekið
þátt í SMS-leik og velti hann fyrir
sér hvort þetta væri lögleg
markaðssetning. Neytendasam-
tökin sendu fyrirspurn til BT og í
svari frá fyrirtækinu D3, sem sér
um SMS-þjónustu BT, segir að
vörur séu ekki auglýstar með SMS-
skeytum heldur sé ætíð um SMS-
leik að ræða. Þegar fólk taki þátt í
SMS-leik sé það sjálfkrafa skráð í
SMS-klúbb og fái í framhaldinu
upplýsingar um þá SMS-leiki sem
BT bjóði upp á hverju sinni.
Í afstöðu Neytendasamtak-
anna, sem kemur fram á vef sam-
takanna, segir að einkennilegt sé
að þeir sem taki þátt í SMS-leik
séu sjálfkrafa skáðir í SMS-klúbb.
Þó það sé auglýst sérstaklega að
þátttaka í SMS-leik þýði sjálf-
krafa aðild að SMS-klúbbi BT er
hvergi tekið fram hvað nákvæm-
lega felst í aðild að slíkum klúbbi
né hvernig hægt sé að sleppa við
aðild og SMS-áreitið.
Í lögum um persónuvernd segir
að meðferð persónuupplýsinga, á
borð við símanúmer sé aðeins
heimil ef hinn skráði hafi veitt
ótvírætt samþykki sitt. Einnig
segir að við meðferð persónuupp-
lýsinga skuli þess gætt að þær séu
fengnar í yfirlýstum, skýrum,
málefnalegum tilgangi og ekki
unnar frekar í öðrum og ósam-
rýmanlegum tilangi. Í grein um
SMS-markaðsrannsókn á heima-
síðu Persónuverndar kemur fram
að þegar símanúmers sé aflað
með þátttöku í leik eða happdrætti
sé tilgangurinn með því að nota
það vegna umrædds leiks eða
happdrættis og líta megi svo á
að samþykki fyrir notkun viðkom-
andi númers hafi verið veitt.
Notkun símanúmersins síðar
verði hins vegar að telja annan og
ósamrýmanlegan tilgang og hæpið
sé að líta svo á að samþykki sé
veitt fyrir notkun símanúmersins
við markaðssetningu síðar meir,
ef ekki sé tekið fram að það sé
ætlunin.
Í sömu lögum er kveðið á um
fræðsluskyldu ábyrgðaraðila sem
aflar persónuupplýsinga og skal
hann meðal annars upplýsa hinn
skráða um hver sé ábyrgðaraðili,
hvert sé markmið söfnunarinnar
og hverjum upplýsingarnar verði
afhentar.
Í fjarskiptalögum segir að
notkun tölvupósts, sem SMS-skila-
boð falla undir, fyrir beina mark-
aðssetningu sé óheimil nema
áskrifandi hafi veitt samþykki sitt
fyrir fram.
Þó sé heimilt að nota tölvupóst-
fang við sölu á vörum eða þjón-
ustu fyrir beina markaðssetningu
á eigin vörum eða þjónustu að því
tilskildu að viðskiptavinum sé
gefinn kostur á að andmæla slíkri
notkun þeim að kostnaðarlausu
þegar skráning á sér stað og sömu-
leiðis í hvert sinn sem skilaboð
eru send. sdg@frettabladid.is
Óumbeðið SMS-áreiti
TEKIÐ VIÐ SMS-SKILABOÐUM Vilji fólk kvarta vegna óumbeðins SMS-áreitis getur það
snúið sér til Persónuverndar eða Póst- og fjarskiptastofnunar.