Fréttablaðið - 31.08.2006, Side 33
FIMMTUDAGUR 31. ágúst 2006
Á hverju ári og í hverri árstíð er
einhver klæðnaður eða fylgihlut-
ur meira ómissandi en annar. Í
fyrra voru það pilsin víðu, í
sumar espadrillur en í vetur er
það gamli góði rykfrakkinn sem
er ómissandi. Hann á sér hins
vegar langa sögu en það var Eng-
lendingurinn Thomas Burberry,
stofnandi Burberry-fyrirtækis-
ins, sem fann upp þennan fatnað
árið 1870. Frakkinn var úr sterku
efni sem ekki krumpaðist og var
að auki vatnshelt, hugsað fyrir
þá sem stunduðu veiðar. Þetta
efni var ofið sérstaklega þétt og
Burberry fékk seinna einkaleyfi
á það. Efnið hlaut nafnið gabardín
og átti langa lífdaga fyrir sér.
Í lok nítjándu aldar var efnið
notað fyrir enska herinn í Suður-
Afríku en endanleg útgáfa ryk-
frakkans kemur þó ekki fram
fyrr en í heimstyrjöldinni fyrri
undir nafninu ,,trench coat“ sem
þýðir í raun skotgrafarfrakki, og
dró nafn sitt af skotgröfum her-
mannanna þar sem þeir notuðu
þessa frakka. Á þessum tíma
fylgdi honum belti með járn-
hringjum sem voru til þess að
hengja í handsprengjur.Uppruni
og nafngift rykfrakkans er því
langt frá því að vera rómantísk.
Frakkinn þótti svo upplögð yfir-
höfn að hermennirnir skiluðu
ekki frökkunum eftir stríð. Þetta
hratt af stað nýrri tísku og aðrir
fataframleiðendur fóru að hanna
frakka. Burberry hélt þó sér-
stöðu sinni og kynnti árið 1924
hið fræga skoska köflótta fóður
sem enn í dag er sérkenni Bur-
berrys. Rykfrakkinn varð eins
og gallabuxurnar ómissandi í
klæðaskápinn, notaður af konum
og körlum, í seinni tíð í ótrúleg-
um litum og sniðum. Líklega má
þó segja að kvikmyndaiðnaður-
inn hafi átt sinn þátt í að gera
þessa flík svo vinsæla. Gary
Cooper reið á vaðið 1935 í Today
we Live. Humphrey Bogart var
ógleymanlegur í Casablanca
1942, Meryl Streep var í einum í
Kramer gegn Kramer og Brad
Pitt skellir sér meira að segja í
frakka í Ocean’s Twelve á síðasta
ári. Þær eru líka óteljandi stjörn-
urnar sem hafa í gegnum tíðina
látið sjá sig í ,,trench coat“ eins
og Greta Garbo, Katherine Hep-
burn, Jane Fonda og Catherine
Deneuve, svo einhverjar séu
nefndar.
Í dag eru það frægustu hönn-
uðir í heimi tískunnar sem hafa
tekið að láni gamlar hugmyndir
Thomas Burberry og endur-
hanna á hverju ári nýjar útgáfur
af rykfrökkum. Einna duglegast-
ur er Jean-Paul Gaultier sem
hefur frá 1983 hannað fjölmarga
frakka, allt frá stuttum til síðra,
aðra í kjólformi, enn aðra boleró.
Annar sem í vetur hefur hannað
nýjan frakka er Karl Lagerfeld
hjá Chanel. Svo er auðvitað hægt
að fá sér einn á 70 evrur hjá
H&M sem á hverju ári býður upp
á nýja frakka.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Skotgrafarfrakkinn ómissandi
Þetta kemur fram í Forbes
tímaritinu en þetta er annað
árið í röð sem hún trónir á
toppnum.
Giesele Bundschen, sem nýlega
varð 26 ára, hefur verið áberandi
bæði í tískutímaritum og slúður-
blöðum á síðustu árum. Hún hefur
landað hverjum risasamningnum á
fætur öðrum og ekki skemmdi
samband hennar við leikarann Leon-
ardo DiCaprio sem blöðin þreytast
seint á að fjalla um hvort sé enn í
gangi.
Útlit er fyrir frekari annir hjá
Bundchen. Næst flýgur hún til Sao
Polo í myndatöku fyrir Nivea. Í kjöl-
farið situr hún fyrir í auglýsinga-
herferðum fyrirtækja á borð við
Liverpool, Stefanel og Tug. Sam-
kvæmt heimasíðu Vogue gengur sá
orðrómur að hún muni einnig skrifa
undir samning við stóran skart-
gripaframleiðanda sem einnig mun
fela í sér hönnun á hennar eigin
línu.
Bundchen er um þessar mundir í
Porto Alagre í Brasilíu ásamt systur
sinni sem nýverið eignaðist barn.
Hún ætti að hafa efni á ágætis
skírnargjöf. - tg
Bundchen
þénar mest
Giesele Bundchen er hæst launaðasta og
ein áhrifamesta fyrirsætan í dag að mati
Forbes. NORDICPHOTO/GETTY IMAGES
MIKIÐ ER UM NÝJUNGAR Í VARA-
GLOSSUM OG -BLÝÖNTUM HJÁ
LANCOME.
Juicy Gelée varaglossið frá Lancome
er selt í litlum sætum krukkum og er
fáanlegt í mörgum litum.
Olían í glossinu er mjög glans-
andi og meira fljótandi og klístrast
ekki eins og þær olíur sem nú eru
notaðar í varagloss. Olían tryggir
mýkt varanna og glossið tryggir
rakagjöf í fjórar klukkustundir.
Einnig eru komnar nýjar tegundir
af Juicy Tubes glossi; Juicy Tubes
Plump, Juicy Tubes Swirl, sem er
gloss með þremur mismunandi
litum, og Juicy Tubes Pure.
Enn fremur eru átta nýir
og ferskir litir komnir á
markað í Contour
Pro varablýönt-
unum. - lkg
Nýtt á varirnar
frá Lancôme
Contour Pro
varablýantur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Síðumúla 3, s.553 7355
Undirföt-Sundföt-Náttföt
30-60% afsláttur
Síðustu dagar útsölunnar
Við spáum
úlpuveðri
Týr barnaúlpa, verð frá
10.290 kr.
5.145 kr.
Hanskar
990 kr.
495 kr.
Trefill
1.450 kr.
500 kr.
Faxafeni 12, 108 Reykjavík. Opið 8-18 virka daga og 10-16 laugardaga.
SPÖNGINNI S: 587 0740
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
Stærðir 36-41
verð kr: 9.695.-
Stærðir 37-40.1/2
verð kr: 9.995.-
Stærðir 36-41
verð kr: 4.545.-
Stærðir 40-46
verð kr: 3.995.-
SKÓR
NÝ VERSLUN
SPÖNGINNI
Velkomin
Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf.
Nýtt á Íslandi! NO STRESS
Lífræn og rakagefandi
sturtusápa fyrir
allar hú›ger›ir
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI