Fréttablaðið - 31.08.2006, Side 36

Fréttablaðið - 31.08.2006, Side 36
[ ] Stefnt er að því að taka upp nýja heilsustefnu í grunnskóla Sveitarfélagsins Voga til að bæta þjónustu við íbúa enn frekar. „Í leikskólanum hefur heilsu- stefna verið rekin um nokkurt skeið, sem miðar að því að bæta mataræði og efla hreyfingu meðal leikskólabarna. Okkur þótti kjörið að innleiða það í grunnskólann vegna þess hversu vel hefur tek- ist til,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga, um nýju heilsustefnuna sem áætl- að er að taka upp í skólanum á þessu ári. „Líkt og í leikskólanum viljum við draga úr neyslu sykurs og unn- inna matvara án þess þó að fara út í einhverjar öfgar,“ heldur Róbert áfram. „Með því móti viljum við huga að fjölbreyttu mataræði og hafa fasta matmálstíma, sem eru jafnframt nýttir til að skapa róandi andrúmsloft og ná fram ákveðnum aga í skólastarfinu,“ bætir hann við. Að sögn Róberts hefur meiri áhersla verið lögð á hreyfingu í leikskólanum heldur en almennt tíðkast og það verði tekið upp í grunnskólanum. „Grunnskólabörn eru þegar í mikilli hreyfingu, bæði í íþróttakennslu og sundi, en okkur langar til að leggja enn meira upp úr henni,“ útskýrir hann og segir að meðal annars verði ókeypis í sund fyrir börn og ungmenni undir 18 ára aldri. „Stefnan byggir á þeirri heild- arhugmynd að sveitarfélagið sé fjölskylduvænt samfélag,“ segir Róbert. „Hluti af því er að gera Voga fyrsta sveitarfélagið sem býður grunnskólabörnum upp á gjaldfrjálsa máltíð í hádeginu. Við vonumst eftir því að foreldr- ar geti þannig nýtt peninginn sem sparast, um 30.000 kr., í íþróttir og tómstundir barnanna. Þetta er því í raun ákveðin skatta- lækkun á fjölskyldufólk.“ Róbert segir að miklar vonir séu bundnar við tilraunina, bæði innan sveitarfélagsins sem og annarra skólafélaga þar sem fulltrúar bíði spenntir eftir því að sjá hvernig til takist að inn- leiða nýju stefnuna. roald@frettabladid.is Betra fjölskyldusamfélag Róbert vill bæta enn frekar þjónustuna við íbúa Sveitarfélagsins Voga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nýjar rannsóknir benda til þess að D-vítamínríkt fæði hjálpi til við að styrkja beinin. Gerð var rannsókn á 230 mið- aldra og eldri karlmönnum í Sví- þjóð þar sem rannsökuð voru líkamleg áhrif af D-vítamínríkri fæðu. Niðurstöðurnar bentu til þess að karlmennirnir sem fengu nóg af D-vítamíni úr fæðu sinni voru að jafnaði með sterkari bein en þeir sem borðuðu D-vít- amínsnauðari fæðu. Svo virðist sem D-vítamínið nýtist þeim best sem virðast vera með ætt- artengda áhættu á beingisnun. Hingað til hefur verið talið að mannfólkið fái D-vítamín að mestu leyti frá sólarljósi en D- vítamín í fæðu hafi minna að segja. Sænska rannsóknin sýnir nú fram á að nauðsynlegt er að gæta að D-vítamínmagni í fæð- unni enda hefur vítamínið jákvæð áhrif á beinin í líkaman- um. - jóa D-vítamín styrkir bein Ný rannsókn sýnir fram á mikilvægi þess að neyta D-vítamínríkrar fæðu. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Góður koddi er mikilvægur fyrir góðan svefn. Fjölmargar tegundir kodda fást í verslunum og því ætti hver og einn að finna einhvern við sitt hæfi. Sænskt bóluefni gegn alnæmi lofar góðu. Sænskir vísindamenn segja niður- stöður rannsóknar á bóluefni gegn alnæmi lofa góðu. Bóluefnið er öruggt og fékk svörun frá ónæm- iskerfi líkamans í 90 prósentum tilfella þeirra fjörutíu Svía sem tóku þátt í tilrauninni. Um er að ræða svokallað DNA- mótefni sem virkjar ónæmiskerfi líkamans og leiðir það af sér að annað mótefni myndast sem hjálp- ar til við að styrkja ónæmiskerfið. Rannsóknir eru enn á fyrstu stig- um og er meðal annars verið að athuga þær aukaverkanir sem bóluefnið kann að valda. Bóluefni gegn alnæmi Fyrstu rannsóknir á bóluefni gegn alnæmi lofa góðu. Kíktu á www.volare.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.