Fréttablaðið - 31.08.2006, Side 52

Fréttablaðið - 31.08.2006, Side 52
■■■■ { eldhús og bað } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12 Fallegar baðmottur geta sett mikinn svip á baðherbergið. Einnig er hægt að fá handklæði og þvottapoka í stíl við motturnar og jafnvel ýmsa smá- hluti í sama lit svo allt passi saman. Skemmtilegt er að hafa mottur og annað smálegt í öðrum lit en er á innréttingum og flísum til þess að lífga upp á baðherbergið. Þykkar, fallegar og litríka baðmottur fást víða og þurfa alls ekki að kosta svo mikið. Fallegar og notalegar á baðið Fátt er óþægilegra á morgnana en að koma hálfsofandi inn á bað og stíga á ískaldar gólfflísar. Þykkar og góðar mottur geta verið ágætis leið til að forðast gólfkuldann. Einfalt er að halda baðherberginu smekklegu með nokkrum fallegum vel völdum hlutum. Eftirfarandi atriði ber að hafa í huga þegar keyptir eru munir inn á baðherberg- ið sem bæði skreyta og gera gagn. 1. Hafðu handklæðin bara í einum eða tveimur litum, og haltu þig við sama mynstrið. Annars lítur bað- herbergið út eins og þvottahús. Baðmottan ætti að vera í stíl við handklæðin. 2. Vandaðu valið á sturtuhenginu. Gegnsætt sturtuhengi opnar og stækkar lítið baðherbergi, á meðan litað þarf að samræmast litasam- setningunni. 3. Hengdu upp hillu fyrir ofan klósettið fyrir hluti eins og samanbrotna þvottapoka. Notaðu litlar körfur fyrir hluti eins og sápur eða auka rakblöð. 4. Settu pappírsþurrkur í körfu sem er í stíl við tannburstaglasið og sápudiskinn. Gott andrúmsloft á baðherberginu Ormsson, Smáralind. 4.490 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ormsson, Smáralind. 4.990 krónur. Tekk Company, Bæjarlind. 2.900 krónur. Tekk Company, Bæjarlind. 5.900 krónur. Habitat, Askalind. 3.900 krónur. Debenhams, Smáralind. 3.290 krónur. 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.