Fréttablaðið - 06.10.2006, Qupperneq 32
6. október 2006 FÖSTUDAGUR4
Flestir bera fram kaffi með
eftirréttum þegar staðið er
fyrir matarboði. En af hverju
ekki að læra að gera kaffi-
drykki sem eru sjálfir eftirrétt-
irnir.
Unnsteinn Jóhannsson er meðlimur
í landsliði kaffibarþjóna og kann því
nokkuð vel til verka við kaffivélina.
Hann vinnur hjá Te og kaffi og hjálp-
ar landanum að seðja kaffiþörf sína
dags daglega. Unnsteinn segir kaffi-
menningu á Íslandi verða sífellt
fjölsbreyttari. „Fólk er alveg búið að
átta sig á því að espressó er drykkur
en ekki skot,“ segir Unnsteinn og
hlær. „Fólk er líka duglegra að nýta
sér kaffið eitt og sér sem eftirrétt,“
bætir Unnsteinn við. „Ég held það
ætti líka að leita meira til okkar í Te
og kaffi verslununum og fá leiðbein-
ingar um hvað er hægt að gera og
heyra um allar þær vörur sem eru á
boðstólum. Til dæmis eigum við
mikið úrval af sírópi sem gerir mikið
fyrir cafe latte. Einnig má bræða
appelsínusúkkulaði í mjólk og bæta
við espressó, það er svo margt hægt
að gera.“
Í bókabúðum og á netinu er hægt
að nálgast uppskriftabækur, með
alls kyns kaffiuppskriftum, vilji
menn prófa sig áfram. Hér koma þó
nokkrar uppskriftir frá Unnsteini
sem koma lesendum upp á kaffi-
bragðið.
Bara tíu dropa takk
HVÍTT SVISS MOKKA
„Hér er notað hvítt súkkulaði, Cafe tassé eða annað súkkulaði, sem er brætt í mjólk.
Í eitt glas er notaður einfaldur espressó eða bara eftir smekk hversu mikið kaffibragð
fólk vill hafa. Súkkulaðið fer heitt ofan í glasið og kaffið þar á eftir. Hvíta súkkulaðið
gerir það að verkum að þessi drykkur verður svolítið sætur þannig að fólk verður að
prófa sig áfram. Síðan má toppa drykkinn með rjóma og setja síróp ofan á rjómann.“
KAFFIFRAUÐ
„Þetta er kannski aðeins flóknara
og krefst smá þolinmæði að ná
fullri leikni. Maður notar um einn
fimmta af matarlími sem er sett
í kalt vatn. Þegar búið er að kæla
matarlímið þá er því blandað
saman við tvo klaka og fjórfaldan
espressó og sett í rjómasprautu.
Sprautunni er lokað og hrist vel.
Notið tvö gashylki. Leyfið fyrra
gashylkinu að klárast ofan í, takið
það í burtu, setið hitt á, hristið og
þá ertu kominn með frauðið. Þetta
er rosalega gott kaffifrauð. Síðan
set ég vanillurjóma/tíramísúsósu
ofan á. Í þá sósu nota ég Irish
cream eða tíramísúsíróp, fínt að
nota eina eða tvær matskeiðar af
sírópinu, blandið saman við rjóma
og vanillukrem og hrærið saman.
Svo má setja kremið í sprautu til
að sprauta ofan á frauðið.“
Unnsteinn Jóhannsson, kaffibarþjónn hjá Te og Kaffi, segir lítið mál að gera góða kaffidrykki sem standa einir og sér sem eftirrétt-
ir.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
ÍSSÓSA À LA UNNSTEINN
„Þetta er alls ekki flókin
uppskrift. Ég notaði dökkt
súkkulaði, Cafe tassé,
miða við svona hálfa
plötu á manninn og set
einfaldan espressó út í.
Svo er bara að margfalda
eftir fjölda matargesta.
Síðan notaði ég ís ársins
2005, sem er Mjúkís frá
Kjörís með karamellusósu
og kexkúlum, en hann
hentar rosalega vel með
sósunni.“
- leggur heiminn
að vörum þér
Njóttu ilmandi kaffisopans frá Kaffitári. Við höfum lagt allan
okkar metnað í að hann gleðji þig. Veldu þitt bragð og styrkleika
í kaffihúsum okkar og verslunum um land allt.
www.kaffitar.is
H
2
hö
nn
un