Tíminn - 20.02.1979, Side 6
4
Þriðjudagur 20. febrúar 1979.
r
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þóararinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og augiýsingar Siðumúla 15. Simi
86300. — Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 125.00. Áskriftargjald kr.
2.500.00 á mánuði. . Blaöaprent
J
Efnahagsfrumvarp
forsætisráðherra
Eins og Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra
rakti á blaðamannafundinum sl. föstudag, þegar
hann afhenti fjölmiðlum efnahagsfrumvarp sitt, á
það alllangan aðdraganda. í fyrsta lagi rekur það
rætur sinar til samstarfsyfirlýsingar stjórnarflokk-
anna, þegar núverandi stjórn var mynduð, i öðru
lagi til greinargerðarinnar með desemberlögunum,
en þar er lýst ýmsum framtíðarmarkmiðum, sem
rikisstjórnin hafi orðið sammála um, og i þriðja lagi
til álits ráðherranefndarinnar, sem falið var að
gera tillögur um efnahagsaðgerðir til frambúðar.
Fyrsti kafli frumvarpsins, sem fjallar um stefnu-
mótun i efnahagsmálum, er i algeru samræmi við
álit ráðherranefndarinnar. Annar kafli frumvarps-
ins, sem fjallar um samráð við stéttasamtökin, er
einnig byggður á þvi áliti ráðherranefndarinnar, að
komið skyldi á samvinnunefnd við þessa aðila.
Þriðji kaflinn, sem fjallar um rikisfjármál, bygg-
ist einnig i meginatriðum á áliti ráðherranefndar-
innar. í sambandi við þennan kafla hefur verið beitt
þeirri rangtúlkun, að 9. greinin feli i sér afnám
skyldubundinna framlaga rikissjóðs til ýmissa
sjóða og framkvæmda. Greinin fjallar um, að laga-
ákvæði um þessi efni skuli endurskoðuð. Það
ákvæði 12. greinar, að heildartekjur og útgjöld fjár-
laga haldist innan marka, sem svarar til 30% af
vergri þjóðarframleiðslu á árunum 1979 og 1980, er
byggt á þvi, að þessu marki var fylgt við afgreiðslu
fjárlaganna nú með fullu samþykki allra stjómar-
flokkanna. Við þetta ákvæði er svo bætt þeim var-
nagla i frumvarpinu, að frá þessu ákvæði megi
vikja, ef atvinnuöryggi sé talið i hættu.
Fjórði kaflinn, sem fjallar um fjárfestingar og
lánsfjáráætlun rikisstjórnarinnar, er einnig i
megindráttum i samræmi við álit ráðherranefndar-
innar. Fimmti kaflinn, sem fjallar um peninga- og
lánamál, er að verulegu leyti i samræmi við álit
ráðherranefndarinnar. Það ákvæði er þó nýtt, að
stefnt skuli að þvi, að aukning peningamagns i um-
ferð fari ekki yfir tiltekið hámark 1979. Hér er um
stefnumið en ekki bindandi ákvörðun að ræða, sbr.
24. grein.
Um efni sjötta kaflans, sem fjallar um verðtrygg-
ingu sparif jár og lánsfjár, var ráðherranefndin ekki
sammála. Kaflinn er byggður á þvi, að allir
stjórnarflokkarnir eru fylgjandi verðtryggingu,
þótt þeir vilji ganga mismunandi langt.
Sjöundi kaflinn, sem fjallar um verðbætur á laun,
gat ekki stuðzt við álit ráðherranefndarinnar, þvi að
hún hafði algera eyðu i áliti sinu varðandi þetta
atriði. Þessi kafli styðst við greinargerð desember-
laganna,en þar lýsa stjórnarflokkarnir allir yfir þvi
að stefnt skuli að þvi að launahækkanirnar verði
ekki meiri en 5% 1. marz, 1. júni, 1. september og 1.
desember.
Áttundi kaflinn, sem fjallar um vinnumarkaðs-
mál, og 9. kaflinn, sem fjallar um verðlagsmál, eru
að öllu leyti byggðir á áliti ráðherranefndarinnar,
nema að gildistöku verðlagslaganna frá i fyrra er
flýtt um tvo mánuði. Tiundi kaflinn, sem fjallar um
jöfnunarsjóði sjávarútvegsins, er i samræmi við
samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna.
Það, sem hér hefur verið rakið, sýnir glöggt, að
forsætisráðherra hefur i meginatriðum bundið sig
við það, sem samkomulag var orðið um hjá
stjórnarflokkunum. Um viss atriði var hins vegar
ekki orðið samkomulag. Þar setur hann fram sinar
eigin hugmyndir, en ekki sem úrslitakosti. Nú er
það hinna flokkanna að koma með sinar tillögur um
þau efni og sjá hvort ekki næst um þær samkomu-
lag. Þ.Þ.
Inorth
KOREA
MONGOLIA
CHINA
BHUTAN
nepal'
LAOS'
THAILAND
INDIA
MALÁYSlAí
CAMBOOIA
SOVIET UNION
POSSIBLE AREAS
OF CONFLICT
Innrásin í Víetnam er fyrsti áfanginn
E'INRAS Kinverja I Vietnam
rifjar upp atburði sem gerðust
fyrir rúmum 40 árum. Að
morgni hins 1. september 1939
hafði Hitler kvatt saman þýzka
rikisþingið til að flytja þvi
þýðingarmikinn boðskap. Ég
hefi ákveðið sagði Hitler að tala
viö Pólverja á sama máli og
þeir hafa talað viö okkur
mánuöum saman. I nótt hófu
pólskar hersveitir skothrið á
þýzkt land. Siöan klukkan 5.45
höfum viö svaraö skothriöinni
og munum hér eftir svara meö
sprengju á móti sprengju. Siðan
i dögun hafa þýzkar hersveitir
haldið uppi vörnum gegn árás
Pólverja. Þessar varnaraö-
geröir okkar má ekki túlka sem
styrjöld heldur takmarkaða
viðureign sem er afleiöing af
pólskri árás.
Hitler sagði ennfremur:
Pólsk stjórnarvöld hafa
hafnað öllum tillögum um friö-
samlega lausn á sambúðar-
vandamálum rikjanna. Haldið
hefur veriö uppi stöðugum árás-
um við landamærinog friðhelgi
þeirra ekki virt. Stórveldi getur
ekki látið bjóða sér slikt. Pól-
verjar hafa sýnt, að þeir vilja
ekki lengur viröa landamærin.
Tii þessað binda enda á þetta
ófremdarástand, hefi égekki átt
annars kost en að láta hart
mæta hörðu.
Þeir voru fáir utan Þýzka-
lands, sem trúðu þvi að Pólverj-
ar sem voru miklu hernaöar-
lega veikari en Þjóöverjar
heföu ógnað þeim meö stöðug-
um árásum viö landamærin og
neytt þá til að gripa til gagnað-
gerða. Hitler setti meintar
landamæraárásir Pólverja á
svið til þess að réttlæta innrás-
ina I Pólland.
RETTLÆTING Kínverja á
innrásinni f Vietnam sem hófst
siðastliöinn laugardag, minnir
mjög á framangreindar full-
yrðingar Hitlers, þegar hann
var aö réttlæta innrásina I Pól-
land fyrir fjörutiu árum. Raun-
ar var þessi málatilbúnaöur
Hitlers ekki nýr, heldur höföu
stórveldi um aldaraðir reynt að
réttlæta árásir á máttarminni
nábúa á þennan hátt. Hitler
gerði þetta hins vegar á öllu
óskammfeilnari hátt en áður
voru dæmi til.
Klnversk stjórnarvöld segja I
tilkynningu, sem þau birtu eftir
að innrásin hófst, að hún hefði
veriö óhjákvæmileg vegna
Btöámfrar áreitni Vietnama við
Hua Kuo-feng
landamærin. Vietnamar hafi
hvað eftir annað farið yfir
landamærin og grafið jarö-
sprengjur og komið fyrir
varnarvirkjum á kinversku
landi. Siðan i lok ágústmánaðar
hafi þetta ekki gerzt i færri en
162 stöðum og samtals 705 sinn-
um og um 300 kinverskir landa-
mæraverðir hafi falliö eöa særzt
I þessum átökum. Af hálfu Viet-
nama hefur hins vegar hinu
gagnstæða veriö haldið fram.
Þeir teija, að Kfiiverjar hafi átt
frumkvæðið aö átökunum.
Menn veröa svo aö trúa þvl sem
þeim þykir liklegra. Eru Viet-
namar sem eru mörgum sinn-
um fámennari en Kinverjar og
miklu veikari hernaöarlega, lik-
legir til að hafa talið það hyggi-
legt að áreita hinn volduga ná-
grnna sinn með þessum hætti og
veita honum þannig tækifæri til
að réttlæta innrás i Vietnam?
Eöa er það trúlegra að stórveldi
hafi beitt hér gamalþekktri að-
ferð til aö geta réttlætt tilraun
til að beygja máttarminni ná-
búa til hlýðni við sig?
Kínversk stjórnarvöid segja
aö innrás þeirra sé aðeins gerö
til að koma á friði við landa-
mærin og þeir muni strax
JAPAN
Samkvæmt frásögn The Christian Science Monitor 12. þ.m. hafa
Kinvcrjar sent mikiö herlið aö undanförnu til landamæra Vletnam
og til Singkiang, þvi þar búast þeir helzt viö árás frá Rússum.
kveðja her sinn til baka þegar
Vietnamar hafi fullnægt settum
skilyrðum. En hver eru þau
skilyröi? Eru þau ef til vill þau
að ný stjórn sem er hliöholl Kfn-
verjum, komi til valda i Hanoi?
Þetta á eftir að koma i ljós.
HVORT sem Klnverjar halda
innrásinni áfram eða þeir
kveöja her sinn til baka eftir aö
hann hefúr unniö Vietnömum
mikið tjón, viröist tilgangurinn
augljós. Hann er sá, að veita
Vietnömum viðvörun um, að
þeir geti vænzt enn strangari
refsiaðgeröa ef þeir beygja sig
fyrir hinum volduga nábúa I
norðri. Og þegar búið verður að
beygja Vietnama þannig,
veröur auðveldara aö beygja
aörar þjóðir I Suöaustur-Asiu á
sama hátt. Innrásina er ekki
hægt að lita öðrum augum en að
hún sé upphaf á kinverskri yfir-
drottnunarstefnu, sem beinist
að þvi að gera Suðaustur-Aslu
að klnversku áhrifasvæöi. Aug-
ljóst er, hver hlutur Taiwans
yröi þegar svo væri komið.
Fyrir Bandarikjastjórn er
innrásKinverja I Vietnam veru-
legt áfall, þar sem hún kemur
rétt eftir heimsókn Tengs til
Washington. Klnverjar notfæra
sér bersýnilega hina nýju vin-
áttu milli þeirra og Bandarikja-
manna til þess að fara sin u fram
i Suðaustur-Aslu og láta sér
meinlausaryfirlýsingar Carters
sem vindum eyrun þjóta. Fyrir
Frakka og Breta getur innrásin
i Vietnam lika veriö nokkurt
ihugunarefni. Halda þeir áfram
við þær fyrirætlanir að selja
Kínverjum vopn og auka þannig
getuþeirratilaðkomavilja sin-
um fram i Suðaustur-Asíu? Og
hvað hugsa Japanir eftir að
landvinningastefna Kinverja er
þannig oröin augljós?
Þá verður fróölegt að sjá við-
brögð margra vestræna fjöl-
miöla. Bregðast þeir nú jafn
hart við og þegar Rússar hlut-
uöust til um mál Ungverja 1956
og málefni Tékka 1968?
Siðast, en ekki sízteru það svo
Rússar. Klnverjar setja þá I
mikinn vanda ef þeir halda inn-
rásinni I Vietnam áfram, þar
sem þeir hafa gert gagnkvæm-
an varnar- og vináttusáttmála
viö Vietnama. öneitanlega tefla
Kinverjar hér djarft, nema þeir
dragi her sinn svo fljótt til baka
að Rússar telji sig ekki neydda
til gagnaðgeröa. Eins og er,
viröast Rússar treysta á þaö.
Þ.Þ,
Erlent yfirlit
Kínverjar vilja ráða
yfir Suðaustur-Asíu