Tíminn - 20.02.1979, Blaðsíða 12

Tíminn - 20.02.1979, Blaðsíða 12
Þriöjudagur 20. febrúar 1979. „Við lékum léleg- an handbolta” Þór bætti stöðu sina — með sigrum yfir Ármanni og Leikni og umfram allt erum við að reyna að læra af reynsl- unni — forðast þau mistök er einkenndu sorgarsögu landsliðsins í Danmörku. Þaö er óhætt aö segja aö þaö hafi ekki veriö neinn „klassi” yfir leik landsliösins er þaö mætti „úrvalinu” á sunnudaginn i Höll- inni. Liöiö var fremur stiröbusa- legt og var litt gaman aö horfa á leikliösins. „(Jrvaliö”, þrátt fyrir enga samæfingu,sýndi öllu betri leik og uppskar aö lokum sigur 19:18 eftir aö hafa leitt 10:9 i hálf- leik. Menn rak i rogastans strax i upphafi þegar liöin gengu inn á völlinn. Þaö vantaöi nefnilega bæöi Öla Ben. og Bjarna Guö- mundsson 1 landsliöiö. Bjarni braut i sér tönn en ástæöurnar fyrir fjarveru Ólafs voru ekki alveg ljósar. „Úrvaliö”, vel stutt af áhorfendum, tók forystuna meö marki Gústafs, en áöur haföi Jens byrjaö leikinn á þvi aö verja vita- kast frá Jóni Karlssyni og lands- liöiö klúöraöi þremur sóknarlot- um i röö. Landsliöiö sýndi ágætis- leik næstu min og tókst þá aö ná forystu 3:1 og siöan 4:2. „Press- an” jafnaöi þennan mun fljótt en landsliöiö náöi á ný forystu 9:7. Þrjú siöustu mörk leiksins komu hins vegar frá „úrvalinu.. „tirvaliö” hélt siöan vel fengn- um hlut i seinni hálfleik og leiddi allan timann og vann i raun Geir Hallsteinsson var besti rnaöur vallarins, þegar úrvaisliö Ingóifs óskarsson ar mætti landsliöinu á sunnudaginn. öruggan sigur 19:18. Þaö veröur aö segjast eins og er, aö landsliöiö olli miklum vonbrigöum og ekki eru eins og þriggja marka sigrar á Fram og Haukum um helgina neitt til aö hrópa húrra fyrir. Nýt- ingin var afleit hjá báöum liöum. Markvarslan var sæmileg, Jens varöi vel I byrjun siöan tók Brynj- ar viö og varöi þokkalega Ragnar byrjaöi i marki „pressunnar” en fann sig ekki og Jón Gunnarsson úr Fylki tók viö og varöi ágætlega — betur en Jens og Brynjar. héldu Þórsarar lengst af, t.d. stóö 19:16 en undir lokin virtist svo sem Armenningum ætlaöi jafnvel aö takast aö sigra. Pétur jafnaöi 20:20 úr vitakasti fyrir Armann en Sigtryggur svaraöi um hæl 21:20. Björn Jóhannesson skoraöi siöan 21. mark Armanns — hans eina i þessum leik en lokaoröiö i leiknum átti Arnar Guölaugsson sem skoraöi 22:21 fyrir Þór skömmu fyrir leikslok. Þórsarar fögnuöuaö vonum mjögeftir leik- inn og þeir eiga nú mjög góöa möguleika á aö komast i 1. deild- ina. Reyndar eiga nær öll liöin ut- an Leiknis góöa möguleika á aö komast upp. Ármenningar viröast hins vegar hafa kastaö frá sér möguleikanum á 1. deildar- sæti. Mörk Þórs: Sigtryggur 7 (1), Ragnar 4, Siguröur 3, Aöalsteinn 2, Gunnar 2, Jón 2 og Arnar 2. Mörk Armanns: Pétur 9 (3) Friörik 4, Óskar 3, Þráinn 2, Jón V. 1, Björn 1 og Jón A. 1 Maður leiksins: Pétur Ingólfsson Armanni. Þórsarar frá Akureyri geröu svo sannarlega góöa ferö til höfuöborgarinnar nú um helgina. Unnu Armann á laugardaginn 22:21 og I gær unnu þeir liö Leiknis fyrirhafnarlltiö 30:15, en snúum okkur aö viöureign þeirra gegn Ármenningum. Leikurinn var jafn framan af en um miðbik fyrri hálfleiksins kom afleitur kafli hjá Armenningum og Þórsarar geröu þá I raun út um leikinn. Staöan var 6:6 en siöan dundi skriöan á Armanni og Þór geröi næstu 5 mörk og komst i 11:6 og leiddi slöan 14:9 í hálfleik. Armenningum tókst aö minnka muninn I 13:16 en þessum mun Leikurinn í tölum Tölur segja e.t.v. ekki alla söguna en gaman er aö lita á hvernig mörkin i leiknum voru gerö. L táknar mark meö lang- skoti, Li af linu, G gegnumbrot, H úr horni, Hr úr hraöaupp- hlaupi og V úr vitakasti. Landsliöiö L Li G H Hr V Þorbjörn Guömundsson............... 11 2 = 4 Steindór Gunnarsson................ 5 =5 Páll Björgvinsson..................2 1 =3 Arni Indriöason ................... 1 1 = 2 JónP.Jónsson ......................1 1 =2 Ólafur Jónsson..................... 1 =1 Viggó Sigurösson................... 1 = 1 „Úrvaliö” Geir Hallsteinsson..................3 2 = 5 Pétur Ingólfsson................... 3 =3 Jón Karlsson.......................1 1 1 = 3 Gústaf Björnsson................... 12 =3 Magnús Teitsson.................... 1 1 =2 Sigurbergur Sigst.................. 1 =1 Viöar Simonarson................... 1 = 1 Andrés Kristjánsson................ 1 =1 Jóhanna Halldórsdóttir svifur hér ákveöin á svip inn I teiginn og skorar gegn Haukum fyrir stuttu. Anna skoraði 7 en Fram vann Þór samt 14:10 Kvennaliö Þórs geröi aö sama skapi lélega ferö i bæinn um helg- ina ognú er öruggt aö liöiö fellur I 2. deild — áberandi slakasta liö deiidarinnar. A laugardag kepptu þær viö Fram og komu mjög á óvart i byrjun — komust i 3:1, en siöan ekki söguna meir fyrr en undir lok leiksins. Framstúlkurnar tóku leikinn fljótlega í sinar hendur og leiddu 9: 5 i hálfleik. Fram komst síöan I 14:7, en Þórsstúlkurnar áttu þr jú siöustu mörk leiksins og lokastaðan varö þvi 14:10. Mörk Fram: Guöriöur 6 (3), Guörún 3, Oddný 2, Jóhanna 1, Jenný 1 og Helga 1. Mörk Þórs: Anna Gréta 7, Guöný 1, Hanna 1 og Dýrfinna 1. KA og Haukar leika fyrsta leikinn tslandsmótiö mun aö öllum llkindum veröa leikiö á möl a.m.k. fyrstu umferöirnar ef eitthvað er aö marka niöur- rööun mótanefndar KSÍ. Fyrsti leikur mótsins er á milli KA og Hauka á Akureyri og sama dag leika Þróttur og tBV á Laugardalsvellinum. Þetta mun veröa þann 12. mai. Þann 14. leika svo Vikingar og Fram, 15. mai leika KR og Valur og þann 16. leika svo Keflavik og Akranes. sagði Jóhann Ingi eftir 18:19 tap landsliðsins gegn „úrvalinu” — Við lékum virkilega lélegan handbolta í dag, sagöi Jóhann Ingi Gunn- arsson í viðtali við Tímann eftir leikinn. — Það kemur margt til. — Leikmenn eru vafalaust orðnir þreyttir eftir nokkuð erfitt æfinga- prógramm og svo hefur það vafalítið haft sín áhrif á heildina, að óli Ben. lék ekki með í dag. — Við höfum t.d. aldrei getað mætt allir á æf ingar, það hefur ætíð vantað einn eða tvo og jafnvel fleiri. — Ég er fjarri því aö vera ánægður með leikinn í dag, en við ætlum okkur að gera okkar besta á Spáni Þór eygði aldrei glætu Stelpurnar úr Haukum áttu ekki i miklum erfiðieikum meö afar slakt liö Þórs frá Akureyri á sunnudaginn. Lokatölur uröu 15:9 eftir aö Haukar höföu leitt i háif- ieik 7:4. Þaö var augljóst strax I byrjun hvert stefiidi. Margrét Theodórs- dóttír skoraöi fyrsta mark leiks- ins en hún viröist aöeins vera aö ná sér upp úr lægö sem hinn hefur veriö I aö undanförnu. Halldóra og Kolbrún bættu siöan viö mörk- um og staöan var 3:0 eftir 10 min. Þessi þriggja marka munur hélst svo út hálfleikinn. Haukarnir geröu svo út um leikinnstrax i upphafi seinni hálf- leiks meöaö gera þrjú mörk i röö og breyttu stööunni I 10:4 siðan var þaö sama sagan og i fyrri hálfleiknum og j.afnt var eftir þetta. I raun voru yfirburöir Hauka allt of miklir til þess aöum einhverja keppni væri aö ræöa. Stúlkurnar í Haukum eru flestar mjög ungar og ætti liöiö aö standa sig enn betur næsta keppnistima- bil. Hjá Haukunum var Halldóra best en einnig áttu þær Margrét, Sesselja, Guörúnarnar báöar og Sóley i markinu allar prýöisleik. Hjá Þór var Harpa langbest en Anna Gréta lét litiö á sér kræla i þetta sinniö. Þá var Guöný ágæt 1 horninu. Markvarslan var slök. Mörk Hauka: Halldóra 5 (4), Margrét 4 (2), Gubrún G. 2, Guö- rún A 1, Sjöfn 1, Sesselja 1, Kol- brún 1. Mörk Þórs: Anna 3, Harpa 3, Guöný 2 og Dýrfinna 1. Kona leiksins: Halldóra Mathiesen, Haukum. Mjög góður árangur Kraftlyftingamót IBV var haldiö um helgina, og var árangur á því mjög góöur og undirstrikaöi enn frekar hina öru þróun i þessari Iþrótt I Eyjum. Kristján Kristjánsson setti þrjú met I 56 kg flokki. Hann lyfti 130 kg I hnébeygju, 167.5 i réttstööulyftu og 367,5 i samanlögöu. Þá setti hinn 18 ára gamii og bráöefnilegi Gunnar Stein- grlmsson met I rréttstööulyftu I 90 kg flokki og lyfti kappinn þar hvorki meira né minna en 292,5 kg, en gamla metiö átti Friörik Jósepsson — einnig úr Eyjum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.