Tíminn - 18.05.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. mal 1979.
5
||Frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
Skarpar umræður
í borgarstjórn 1 tilefni af 40 ára afmæli er félagsmönnum og mökum boðið i afmæliskaffi sunnudag- inn 20. þ.m. kl. 3-5 i félagsheimili Raf- magnsveitu Reykjavikur við Elliðaár.
Albert tók sæti forseta JXn.Tr“í,svv»SdS; Stjórn SVFR.
GP — Mjög skarpar umræður
urðu á fundi borgarstjórnar I
gær og höfðu sumir borgarfull-
trúar á orði að jafn furðulegar
umræður hefðu þeir ekki heyrt i
borgarstjórn.
Tvö helstu umræðuefni
borgarfulltrúa og um leið
ágreiningsefni voru breytingar
á malbikunarútlagningarvél
sem borgin hefur nýlega fest
kaup á ogsorphirðing sem Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir hóf máls á.
Lagði hún áherslu á það að
sorphirðing Reykjavikur-
borgar yrði boðin út og taldi það
fyrirkomulag sem nú er haft á
bæði dýrt og óhentugt. Gat hún
þess einnig að borgarmálaráð
Framsóknarflokksins hefði
gert, eins oghún sagði, þá sjálf-
sögðu ályktun að bjóða ætti út
sorphiröingu í Reykjavík.
A eftir komu ýmsir borgar-
fúlltrúar og sýndist sitt hverjum
m.a. sagði Adda Bára Sigfús-
dóttir aö I hvert sinn sem Sjöfn
heyröi minnst á sorp hlýpi hún
yfir til ihaldsins og við þann
óvænta liðsauka hresstust
borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins allir við.
var samþykkt meö atkvæðum i-
haldsins og Sjafnar Siguröar-
dóttur.
Inn I umræðurnar um sorp-
hirðinguna fléttuðust umræður
um malbikunarútlagningarvél
en Albert Guðmundsson hafði
vakið máls á þessari vél sem
dæmi um það hversu fram-
kvæmdaráð væri komiö langt út
yfir starfssviö sitt. Urðu um-
ræður um þessa vél mjög skarp-
ar og m.a. tók Sigurjón Péturs-
son forseti borgarstjórnar til
máls en áður varð hann að skipa
annan fundarstjóra i sirín stáð
Frh. á bls. 19.
Ummæli Vilhjálms
snerta ekki aðra
starfsmenn
í tilefni af ummælum Vil-
hjálms Hjálmarssonar á forsfðu
Tfmans I gær, fimmtud. 17. maf,
þar sem hann sveiar blaða-
manni Timans, þykir mér rétt
aðtaka fram aðégber vitaskuld
ábyrgð á efni blaðsins en ekki
einstakir starfsmenn sem rita
fréttir af kostgæfni og hafa rétt
eftir mönnum orð þeirra.
Eins og ég skildi orð Vil-
hjálms snerta þau þannig mig
einan af starfsmönnum Timans.
Ef það er hundsháttur aö
greina rétt orð manna og skýra
frá áliti þeirra meö því orðalagi
sem þeir sjálfir nota i viðtölum,
þá verður við það að búa. En
blaðamaðurinn, sem tók við-
talið við Pál Hermannsson, ber
jafnlitla söká oröum Páls og ég
berá skömmum Vilhjálms, þótt
ég hafi farið rétt með ummæli
hans.
Aftur á móti er það af og frá
að ég fari nokkuð að skammast
min fyrir þetta þó að Vilhjálmur
Hjálmarsson heimti það.
Jón Sigurðsson
ritstj.
„Verkefni fyrir loðnu-
veiðiflotann verði tryggð”
— er krafa skipstjóra og eigenda yfirbyggðra
loðnuveiðiskipa
ESE — Fyrir skömmu héldu
eigendur og skipstjórar yfir-
byggðra loðnuveiðiskipa sem
veriö hafa á netaveiðum, meö
sér fund og f ályktun fundarins,
sem borist hefur biaðinu segir
m.a.:
Þessi skip hafa stundaö veiðar
með netum frá þvi þau voru
byggð og nú á þessari vertið
voru þau ein skipa sem stunda
þorskveiðar, krafin þess að
koma með allan afla aðgerðan
og isaðan i kassa. Jafnframt var
þeim gert skylt umfram aðra
netabáta, að taka öll veiðarfæri
með i land, þegar farið var inn
til löndunar. Þetta þýðir að net-
in voru ekki að veiða i tvo til
þrjá daga hverju sinni.
Fundurinn lýsir undrun sinni
yfir þvi að veiðileyfi til þeirra
séu innkölluð á sama tima og
verið er að heröa ákvæði um
gæði fiskjarins. Það hefur kom-
iö I ljós að afli þessara báta
hefir verið í algerum sérflokki
bæði hvað varðar stærð og gæði
og ferskfiskmat verið um 90% i
fyrsta flokk þ.e. meðalverð yfir
150 kr. hvert kiló.
25 skip af þessari gerö not-
færöu sér netaleyfi að þessu
sinni og öfluðu samtals um 4.000
tonn eða sem svarar ársafla
eins skuttogara. Til saman-
burðar mega t.d. Færeyingar
veiða 6.000 tonn af þorski. Nú
mun þessum skipum heimilt að
veiöa botnlægar tegundir meö
þvi að breyta um veiðarfæri.
Það hefur hins vegar mjög mik-
ínn tilkostnað I för með sér, án
þess að skapa aukna fiskifriðun
og óséð eins og nú er á málum
haldiðhvort leyfi til slikra veiða
fást áfram.
Við viljum benda á, að þessi
skip eiga nú þegar mikið af
veiðarfærum, sem þeim er
óheimilt að nota svo sem bæöi
sildar- og þorskanætur, sem
þeim hefur veriö bannað að nota
vegna forgangs sem öðrum var
veittur.
Nú blasir það við að þessi skip
eru verkefnalaus þangað til
leyft verður að hefja loðnu-
veiðar að nýju og sjáum við ekki
fram á hvernig eigi að standa að
rekstri skipanna þar sem fyrir-
sjáanlegt er I ljósi aðgerða
stjórnvalda, aö skipin veröa
bundin i höfn i a.m.k. 4 mánuði
og 400 sjómenn verða atvinnu-
lausir sama tima.
Fundurinn beinir þvi til
stjórnvalda, að nú þegar verði
ákveöið með hvaða hætti af-
koma þessara aðila veröi tryggð
og þau sjái svo um, að þeim
verði tryggöur sami réttur til aö
nýta sin veiðarfæri og öðrum
sjómönnum.
Ráðstefna á vegum Jafnréttisráðs:
Jafnrétti á vinnu
markaðinum
HEI — t dag heldur Jafnréttis-
ráð ráðstefnu með aöilum
vinnumarkaðarins að Hótel
Loftleiöum. Ráðstefnan mun
fjalla um jafnrétti karla og
kvenna á vinnumarkaðinum og
er viðleitni Jafnréttisráös f þá
átt að jafnrétti komist á i reynd.
A dagskrá ráðstefnunnar sem
hefst kl. 9,15 verða haldin fjöl-
mörg framsöguerindi um eftir-
talda málaflokka: Er launamis-
rétti milli karla og kvenna —
Þátttaka kvenna i stjórnun
verkalýðs- og starfsmanna-
félaga og gerð kjarasamninga
— Atvinna, uppsagnir og At-
vinnuleysistryggingasjóður. —
Foreldraleyfi v/barnsburðar —
Breyttur og/eöa sveiganlegur
vinnutlmi — Vinnuálag kvenna
og dagvistunarmál.
Eftir framsöguerindin verður
skipað i starfshópa um eftir-
talda málaflokka og að lokum
almennar umræður.
Lausar stöður við
Sjúkrahús
Sjúkrahús Skagfirðinga,
Sauðárkróki
1 staða ljósmóður er laus frá 1. október.
2 stöður hjúkrunarfræðinga lausar.
í sumarafleysingar vantar hjúkrunar-
fræðinga og meinatækni.
Upplýsingar gefa yfiriæknir og
hjúkrunarforstjóri i sima 95-5270.
Frá Tónlistarskóla
Húsavíkur
3 kennara vantar að skólanum i haust:
Str en gj akenn ara
Blásarakennara og
Pianókennara
Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 41697
eða 41560
Kennarar
Nokkrar almennar kennarastöður lausar
við grunnskóla Akraness. Umsóknar-
frestur til 1. júni.
Skólanefnd.
Viljum róða
kennara
i eftir-
heilar
að Gagnfræðaskóla Sauðárkróks
farandi kennslugreinar: (allt
stöður)
íslenska
Enska
Samfélagsgreinar
Raungreinar
Verzlunargreinar.
Nánari upplýsingar veitir skólastjórinn,
Friðrik Margeirsson, i sima 95-5382 og for-
maður skólanefndar, Jón Ásbergsson, i
sima 95-5600.
SKÓLANEFNDIN A SAUÐARKRÓKI.
Afgreiðslustarf-
Lagerstarf
Maður óskast til starfa sem fyrst i vara-
hlutaverslun. Þarf að hafa einhverja
þekkingu á bilahlutum.
Þeir er hefðu áhuga, sendi bréf er greini
frá aldri, fyrri störfum og hvenær hægt
væri að hefja starf, á auglýsingadeild
blaðsins merkt „Varahlutir 1979”.