Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 2

Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR BÍLL DAGSINS OPEL ASTRA 1.6GL Nýskr. 02.00 - Sjálfskiptur - Ekinn 90 þús. km. - Allt að 100% lán. Verð 660.0 00.- Ólafur, er syndaflóð á Selfossi? Slæmt veður, rok og rigning var á landinu í gær. Herjólfur var bundinn við bryggju í Vestmannaeyjum síðdegis í gær og fór ekki seinni ferð sína til lands vegna veðurs. Samkvæmt skrifstofu Herjólfs í Vestmannaeyjum olli þetta ekki teljanlegum óþægind- um fyrir þá sem áttu bókað far. Vitað hafi verið af því með talsverðum fyrirvara að svo færi og því hefði verið hægt að bjóða fólki að fara með ferjunni um morguninn í staðinn, eða bíða til morguns, en í gærkvöld var gert ráð fyrir því að siglt yrði strax í morgun. Fólki var boðið að fara fyrr 26 ára karlmaður, Ívar Smári Guðmundsson, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í gær fyrir tvö rán, fjársvik, þjófnaði, hús- brot, eignarspjöll, fíkniefna- og umferðarlagabrot. Ránin voru framin með stuttu millibili í júlí á þessu ári. Í því fyrra ruddist Ívar inn í skóverslun við Fiskislóð í Reykjavík, tók tólf þúsund krónur úr afgreiðslukassa verslunarinnar og nefbraut starfs- mann hennar á flótta sínum. Hann var handtekinn samdægurs. Rúmum tveimur vikum síðar fór hann inn í verslun Bónusvídeó í Hafnarfirði og réðst að tveimur starfsstúlkum. Annarri stúlkunni tókst að læsa hann inni á skrif- stofu á annarri hæð verslunarinn- ar en hann braut þá glugga og stökk út. Hafði honum þá tekist að komast yfir um eina og hálfa milljón króna. Árvökulir vegfarendur sáu til Ívars og náðu honum þar sem hann reyndi að komast inn í bif- reið skammt frá. Tókst vegfarend- unum að draga Ívar Smára út úr bifreiðinni og halda honum þar til lögreglu bar að. Ökumaður bif- reiðarinnar komst þó undan með ránsfenginn og er enn ófundinn. Við handtökuna reyndist Ívar Smári vera í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu og sagðist síðar ekki muna eftir ráninu. Ívar Smári afplánar nú þegar dóm á Litla Hrauni. Hann flúði úr haldi lögreglunnar í síðasta mán- uði þegar leiða átti hann fyrir dóm og kom ekki í leitirnar fyrr en tveimur sólarhringum síðar. Strokufanginn í 4 ára fangelsi Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að óska eftir formlegum viðræðum við ríkisstjórnina um aðstöðu fyrir náttúrugripa- og vísindasafn í Reykjavík auk starfsemi Náttúru- fræðistofnunar. Borgarráð minnir á vilyrði fyrir lóð fyrir slíkt safn á svæði Háskóla Íslands í Vatnsmýri sem veitt var fyrir meira en áratug. Enn fremur minnir borgarráð áform um fræðslu- og fjölskyldu- garð í Laugardal þar sem mætti staðsetja náttúrugripa- og vísindasafn í tengslum við rekstur Fjölskyldugarðsins og hugsanlegt sjávardýrasafn. Náttúrugripir í Laugardalinn Mál ákæruvaldsins gegn Einar Benediktssyni, Geir Magnússyni og Kristni Björns- syni, forstjórum olíufélaganna á árunum 1993 til og með 2001, verð- ur þingfest í Héraðsdómi Reykja- víkur 9. janúar á komandi ári. Einar er enn forstjóri Olíu- verslunar Íslands, Olís, en Geir og Kristinn eru hættir sem forstjórar Olíufélagsins hf., nú Kers, og Skeljungs. Forstjórarnir hafa verið ákærðir meðal annars fyrir samráð við gerð tilboða fyrir útboð, skiptingu markaða og samráð um verð á söluvörum og ákvörðun afslátta. Ákæran á hendur þeim er í 27 liðum. Þingfesting í byrjun janúar Lögreglan í San Salvador, höfuðborg El Salvador hefur handtekið morðingja Jóns Þór Ólafssonar og kærustu hans Brendu Salinas. Þau fundust látin við þjóðveginn á milli San Salvad- or og borgarinnar Santa Ana aðfaranótt 13. febrúar síðastlið- inn. Í samtali við Fréttablaðið á miðvikudag staðfesti yfirlög- reglumaðurinn Tobar Prieto hjá lögreglunni í San Salvador að málið teldist upplýst. Mennirnir sitja allir í fangelsi og að sögn Juans Carlos Bara- hona, sem skrifað hefur um málið í dagblaðið La Prensa Gráfica, mun ákæruvaldið væntanlega höfða mál á hendur þeim í byrjun næsta árs. Juan Carlos segir að lögreglan hafi mjög góðar sann- anir gegn mönnunum. Fimmmenningarnir tilheyra gengi í hverfinu Zona Rosa í San Salvador og eru á aldrinum 24 ára til 31 árs. Að sögn Juan Carlosar sátu mennirnir fimm allir í fang- elsi fyrir aðra glæpi þegar dómari kvað upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þeim fyrir morðið á Jóni og Brendu í byrjun október og voru þeir því ekki viðstaddir þegar hann var kveðinn upp. Juan Carlos segir að lögreglan útiloki ekki að fleiri menn hafi komið að morðun- um. Það sem leiddi til þess að morð- ingjarnir fundust var byssa sem lögreglan lagði hald á í Zona Rosa í lok mars á þessu ári eftir að lög- reglumenn höfðu lent í skotbar- daga við fjóra af mönnunum. Við rannsókn á byssunni kom í ljós að um sömu byssu var að ræða og notuð var til að myrða Jón og Brendu. Glæpamennirnir drápu einn lögreglumann í skot- bardaganum. Juan Carlos segir að ástæðan fyrir morðunum hafi verið að kærasta Jóns Þórs hafi átt í ástar- sambandi við einn af morðingjun- um. Hann segir að tilgangurinn með morðunum hafi verið að hefna sín á Brendu og Jóni Þór. Lárus Hjálmarsson, fram- kvæmdastjóri hjá orkutækni- fyrirtækinu Enex, sem Jón Þór starfaði hjá í El Salvador, segir ánægjulegt að morðingjarnir hafi náðst og að þeir muni þurfa að svara til saka fyrir dómi. Hann segir jafnframt að ekkert geti bætt fyrir þann missi sem aðstand- endur Jóns Þórs og vinir urðu fyrir þegar hann myrtur. Morðingjar Jóns Þórs sitja í fangelsi Fimm menn í gengi drápu Jón Þór Ólafsson og Brendu Salinas. Morðin teljast upp- lýst segir lögreglumaður. Einn morðingjanna átti í ástarsambandi við Brendu. Tuttugu beiðnir um aðstoð hjálparsveita bárust milli klukkan hálf fimm og hálf sex þegar veður snöggversnaði í gær að sögn Jónasar Guðmundssonar sem er í svæðisstjórn höfuðborgarsvæðis- ins. „Við vorum með um 50 manns að störfum í nokkrum hópum í verkefnum úti um allan bæ.“ Hjálparsveitirnar voru mest- megnis í að festa niður þakplötur og tryggja skúra sem fuku til. Um var að ræða snarpan hvell sem gekk hratt yfir og var vind- hraði á höfuðborgarsvæðinu um 20 metrar á sekúndu þegar mest var en fór upp í 35 metra á sek- úndu í vindhviðum, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Jónas sagði hugsanlegt að hjálparsveitir yrðu með sérstakan viðbúnað í kvöld þar sem álíka snörpum hvelli væri spáð um mið- nætti. „Mikið af okkar fólki er í jólatréssölu og flugeldasölu og við erum að dansa í kringum það að tvinna þetta allt saman. En við leysum svona fyrst, það er frum- skilyrði.“ Allt innanlandsflug lá niðri eftir hádegi í gær. Morguninn fór að mestu í að vinna upp tafir dags- ins á undan. Miklar tafir urðu á millilandaflugi vegna hvassviðris á Keflavíkurflugvelli. Öðrum snörpum hvelli spáð í kvöld Skólanefndir Álftaness, Garðabæjar og Mosfellsbæjar hafa enn ekki svarað fyrirspurn landssamtaka foreldra um Vinaleið Þjóðkirkjunnar og „sálgæsluviðtöl“ sem henni tengjast. Fyrirspurnin var send þann 13. nóvember. María Kristín Gylfadóttir, formaður landssamtaka Heimilis og skóla, segir fyrirkomulag Vinaleiðarinnar óljóst og brýnt að vita um hvað hún snúist. „Þetta er sama og með markaðssetningu og kostun í skólum. Ég held að hvert skólasamfélag eigi að ráða því hvort það velji þessa þjónustu eða aðra og að við þurfum engin lög yfir það. En fólk verður samt að vera upplýst um þetta áður en þjónustan er veitt.“ Skólanefndir ekki enn svarað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.