Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 4

Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 4
 „Ég held því fram að síðasta karlavígið sé fallið,“ segir Valgerður Sverrisdóttir utanríkis- ráðherra, spurð út í skipulags- breytingar á utanríkisráðuneytinu sem hún kynnti í ræðu fyrir starfs- fólki ráðuneytisins í gær. Samkvæmt nýju skipuriti ráðu- neytisins verður faglegu starfi þess skipt upp í tvö svið – alþjóða- og öryggismálasvið og viðskipta- svið – og yfir þeim verða sviðs- stjórar sem taka sem slíkir yfir hluta af þeim verkefnum sem hingað til hafa verið á hendi ráðu- neytisstjóra. Bergdís Ellertsdóttir og Berglind Ásgeirsdóttir munu gegna hinum nýju sviðsstjórastöð- um, en Bergdís er skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu og Berglind skrifstofustjóri viðskiptaskrif- stofu. „Sviðsstjórarnir verða eins konar verkstjórar og munu meðal annars geta flutt starfsfólk til hvor innan síns sviðs,“ útskýrir Valgerður í samtali við Fréttablað- ið. „Ég er alveg sannfærð um að sá aukni sveigjanleiki, sem þetta býður upp á, mun auka skilvirkni og gera okkur færari um að takast á við verkefni sem geta komið upp skyndilega í utanríkisþjónustunni, án þess að bæta við mannskap,“ segir hún. Valgerður segir ráðuneytið hafa stefnt í framúrakstur á fjár- lögum á þessu ári, og því séu breytingarnar ekki síst hugsaðar til hagræðingar. „Með þessum aðgerðum vonumst við til að vera komin á rétt ról.“ Ráðherrann lýsti því yfir að fjöldi sendiherra væri „nokkuð umfram þarfir ráðuneytisins“. Hún hygðist því ekki ráða fleiri starfsmenn til ráðuneytisins það sem eftir lifir kjörtímabilsins, með þeirri einu undantekningu að reynt verði að ráða bót á mann- eklu Þýðingarþjónustu ráðuneyt- isins með því að opna útibú hennar á Akureyri. Til að draga frekar úr kostnaði hafa fjórir af bílum ráðuneytisins verið seldir, leiguhúsnæði í Þver- holti sagt upp og ákveðið að selja sendiherrabústaðinn í Danmörku. Með þessari síðastnefndu ráð- stöfun og kaupum á ódýrara hús- næði inni í miðborg Kaupmanna- hafnar er gert ráð fyrir að fé losni sem verja mætti til kaupa á aðal- ræðismannsbústað í Þórshöfn í Færeyjum. Í stað þess sendifull- trúa sem tekur við þeirri nýju stöðu verður staða í sendiráðinu í Stokkhólmi lögð niður, að sögn Valgerðar. Hún segir þó einna markverð- ustu breytingarnar felast í fram- gangi kvenna innan ráðuneytisins. Auk sviðsstjóranna tveggja eru konur nú í stöðum prótókollstjóra og umsjónarmanns Íslensku frið- argæslunnar, og Sigríður Snævarr sendiherra er staðgengill ráðu- neytisstjóra. „Það eru tiltölulega fá ár síðan utanríkisráðuneytið var mikið karlaveldi,“ segir Val- gerður. „Ég tel að með þessum breytingum [...] séum við í raun að losa okkur undan þeirri ímynd.“ Eitt síðasta karlavígið fallið Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra kynnti í gær víðtækar breytingar á skipulagi utanríkisþjónustunn- ar. Hún segir sendiherra vera of marga og ætlar ekki að ráða fleiri. Konur skipa lykilstöður í breyttu skipuriti. Rannsókn á meintum hlerunum á síma þáverandi utan- ríkisráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar, og Árna Páls Árnasonar, þáverandi starfsmanns utanríkisráðuneytisins, verður ekki framhaldið. Bogi Nilsson ríkissaksóknari fól Ólafi Haukssyni, lögreglu- stjóra á Akranesi, að rannsaka hvort símar Jóns Baldvins og Árna Páls hefðu verið hleraðir á árun- um 1992 til 1995 eins og þeir héldu fram í fjölmiðlum. Við rannsókn málsins voru teknar skýrslur af opinberum starfsmönnum sem unnu hjá útlendingaeftirlitinu, tollgæslu, lögreglunni og Pósti og síma á þeim tíma sem meintar hleranir áttu að hafa átt sér stað. Í tilkynningu frá ríkissaksókn- ara kom fram að ekkert hefði komið fram við rannsókn málsins sem styddi ummæli Jóns Baldvins um að símar hefðu verið hleraðir í ráðuneytinu. Við rannsókn málsins greindi Jón Baldvin frá því að hann hefði fengið kunningja sinn á fjarskipta- sviði til þess að kanna hvort símar hefðu verið hleraðir í ráðuneytinu og hann hefði lýst því yfir að svo hefði verið. Þessar athuganir fóru fram 1991, 1992 og 1993. Í tilkynningu ríkissaksóknara segir jafnframt að miklu skipti að fá upplýsingar um það „hver þessi kunnáttumaður er“ til að fá lýs- ingar hans á þeim mælingum sem hann gerði hvað þær sýndu. Jón Baldvin vildi ekki upplýsa um það við rannsókn málsins hver þessi maður væri. Rannsókn ekki haldið áfram Geir H. Haarde forsætisráðherra fer fyrir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík- urkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður fyrir listanum í Reykjavíkurkjör- dæmi norður. Listar flokksins í kjördæmun- um tveimur voru samþykktir á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfé- laganna í höfuðborginni í gær. Skipan fólks í efstu sætum er í samræmi við niðurstöður prófkjörs flokksins í október. Alþingismennirnir Guðmundur Hallvarðsson og Sólveig Péturs- dóttir, sem bæði láta af þing- mennsku í vor, skipa heiðurssæti listanna. Geir efstur í suður – Guð- laugur í norður „Vatnsyfirborðið hefur hækkað töluvert og hér eru bátar notaðir til þess að komast á milli bæja,“ segir Sigríður Pétursdóttir, bóndi á Ólafsvöllum á Skeiðum. Eins og fram kom í Fréttablað- inu í gær rann Hvítá nánast upp að bæjardyrum á Ólafsvöllum í fyrradag og reynt var að koma hrossum á þurrt land. „Þetta er meira en hefur verið hér nokkurn tímann áður. Það er mjög sérkennilegt að sjá yfir þetta. Stærstu traktorarnir hafa komist eftir aðalveginum en það er ekki meira en svo. Sem betur fer hefur flestum gripum verið komið í skjól,“ segir Sigríður. Fara á bátum á milli bæjanna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.