Fréttablaðið - 22.12.2006, Side 12
„Það er óhugur í okkur. Maður verður mjög
lítill í sér þegar maður sér þessi náttúruöfl að verki.
Maður hefur engin áhrif og enga möguleika á að breyta
atburðarásinni,“ segir Jón Eiríksson, en hann þurfti að
yfirgefa heimili sitt á bænum Arnarfelli í Eyjafirði
ásamt konu sinni, Unni Harðardóttur.
Íbúar fjögurra annarra bæja innst í Eyjafirði þurftu
einnig að yfirgefa heimili sín í fyrradag vegna hættu á
aurskriðum.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær féllu skrið-
ur í Eyjafjarðarsveit á miðvikudag og ollu miklum
skemmdum á vegum og mannvirkjum. Íbúðar- og
gripahús í Grænuhlíð voru nánast ónýt eftir atganginn
en húsráðendur sluppu undan skriðunni á dráttarvél.
Tólf kálfar drápust þegar fjósið hrundi.
Í gærmorgun höfðu nokkrar skriður fallið í Eyja-
firði um nóttina en engin þeirra lenti á húsum eða
öðrum mannvirkjum.
„Við gerðum þetta svona af öryggisástæðum, við
búum nú bara á næsta bæ við Grænuhlíð. Ég var þar
mestallan daginn í fyrradag en þegar kvölda tók töld-
um við ekki ráðlegt að sofa heima hjá okkur yfir nótt-
ina.“
Jón segist fæddur og uppalinn í Eyjafjarðarsveit
og hann muni ekki eftir því að hafa þurft að yfirgefa
heimilið yfir nótt vegna hættu á skriðuföllum.
„Það er mjög óvenjulegt að það sé svona mikill
vatnsgangur í fjallinu. Ég held að jarðvegsmyndun í
hlíðinni, sem hefur verið mjög mikil allt síðan hætt
var að beita fé þar, ásamt veðurfarinu hafi komið
þessu af stað. Það var óhugnanlegt að sjá hvernig þetta
fór í Grænuhlíð, skriðan fór bara inn í húsin og drap
skepnur,“ segir hann.
„Við gistum núna hjá vinafólki á Akureyri, við
höfum bæði stundað atvinnu þar. Þegar það fer að
kólna ættum við að geta snúið heim aftur, en því miður
er spáð áframhaldandi hlýindum. Ég er bara ekki viss
hvar við verðum um jólin.“
Vanmáttugur and-
spænis náttúrunni
Íbúar fimm bæja í Eyjafirði yfirgáfu heimili sín vegna skriðufallshættu í fyrradag.
Aurskriður ollu miklu tjóni þar í fyrradag. Maður verður lítill í sér andspænis
náttúruöflunum, segir Jón Eiríksson, einn þeirra sem þurftu að flýja heimili sitt.
„Við förum ekki heim á þessu ári, ég held að
það sé nokkuð ljóst,” segir Óskar Kristjánsson,
bóndi í Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit. „Við gistum
hjá vinafólki á nálægum bæ, Hrísum. Hvar jólin
verða er ekki víst, við lifum í núinu,“ segir hann.
„Það rann eitthvað meira á þessu svæði í gær-
kvöldi en ég held að ekkert hafi farið á bæinn. Hlíð-
in er enn öll á hreyfingu.“
Óskar segist enga tölu hafa á tjóninu sem skrið-
urnar hafa valdið en það sé mjög mikið. „Það drápust
hjá mér tólf gripir og íbúðarhúsið ásamt öðrum
húsum er ónýtt. Það eina sem hægt er að gera núna
er að koma kúnum í burtu.“
Hann segir að mjög líklega þurfi þau að skipta
um allar innréttingar í þeim húsum sem eftir
standa.
„Mér hefur alltaf verið mjög illa við fjallið, sér-
staklega í svona tíðarfari.“
Hefur alltaf verið illa við fjallið
Flóðin í Ölfusá voru enn í
hægum vexti í gær en reiknað var
með að draga myndi úr með kvöld-
inu. Fara þarf aftur til ársins 1948
til að finna sambærilegt vatns-
magn í ánni að sögn lögreglunnar
á Selfossi. Vatn flæddi inn í kjall-
ara verslunarmiðstöðvarinnar
Kjarnans og í kjallara Hótels Sel-
foss. Björgunarsveitaliðar höfðu
eftirlit með árbakkanum til að
gæta þess að fólk færi sér ekki að
voða.
Um 60 meðlimir björgunar-
sveita í Árnessýslu voru að störf-
um við að aðstoða fólk í sýslunni
og eru þetta umfangmestu aðgerð-
ir sem þeir hafa farið í vegna flóða
að sögn Ingvars Guðmundssonar,
formanns Björgunarfélags
Árborgar.
„Í gær var 70 hrossum bjargað
á þurrt við Vorsabæ á Skeiðum og
á miðvikudag var 100 hrossum
bjargað við Auðsholt á Flúðum.
Aðfaranótt fimmtudags fóru
björgunarsveitaliðar til að bjarga
kindum á þurrt við Björnskot á
Skeiðum.“ Fimm til sex bátar voru
í aðgerðum í gær á öllu svæðinu
að sögn Ingvars.
Mjög hafði dregið úr vatns-
magni í uppsveitum Árnessýslu í
gærdag. Ingvar gerði ráð fyrir að
þeir myndu fylgjast með ánni
fram eftir nóttu.
Ölfusá ekki verið
vatnsmeiri í 58 ár
Tugum hrossa var bjargað á
þurrt við Héraðsvötn í Skagafirði
í gær þegar vötnin bólgnuðu
vegna klakastíflna og flæddu yfir
stórt landsvæði.
Björgunarsveitarmenn frá
björgunarsveitinni Gretti,
Skagfirðingasveit og Flugbjörg-
unarsveitinni í Varmahlíð unnu á
nokkrum bátum við að reka
hrossin á þurrt og gengu aðgerðir
vel að sögn Ingimundar Ingvars-
sonar í svæðisstjórn.
„Það er lítill hæðarmunur við
vötnin og mikill flati þarna. Þetta
er bara á að líta eins og stórt
vatn.“
Tugum hrossa
bjargað á þurrt