Fréttablaðið - 22.12.2006, Blaðsíða 16
Saparmurat
Niyazov, forseti Túrkmenistans,
lést í fyrrinótt af völdum hjarta-
áfalls. Hann var 66 ára gamall og
verður jarðaður á sunnudaginn í
heimabæ sínum, Kipchak, þar sem
hann hafði látið reisa stærstu
mosku í Mið-Asíu.
Niyazov var einráður í landinu,
leyfði hvorki frjálsa fjölmiðla né
neina stjórnarandstöðu. Hann lét
kalla sig Turkmenbasi, sem þýðir
faðir eða leiðtogi allra Túrkmena.
Niyazov hafði stjórnað Túrk-
menistan frá því árið 1985, þegar
það var enn eitt af lýðveldum
Sovétríkjanna. Eftir fall Sovétríkj-
anna árið 1991 hélt hann áfram
völdum og hefur jafnt og þétt hert
tökin á öllu þjóðlífi.
Hann lét reisa styttur af sjálf-
um sér víða um land og skipaði svo
fyrir að dagar vikunnar og mánuðir
ársins skyldu nefndir í höfuðið á
honum sjálfum og fjölskyldu hans.
Bók eftir hann var skyldulesning í
skólum landsins og nemendur hófu
hvern skóladag á því að heita
honum ævarandi tryggð sinni.
Íbúar höfuðborgarinnar, Ashga-
bat, voru þöglir í gær og virtust
undrandi. Allar hátíðarskreytingar
og nýárstré voru fjarlægð af
götum borgarinnar strax í gær og
verslunum sem selja áfengi var
skipað að hafa lokað.
Mikil óvissa ríkir um framtíð
landsins eftir fráfall Niyazovs,
sem hafði ekki valið neinn eftir-
mann sinn.
Ríkisöryggisráð landsins ákvað
í gær að Kurbanguli Berdymuk-
hamedov aðstoðarforsætis-
ráðherra myndi gegna forseta-
embætti til bráðabirga, jafnvel
þótt stjórnarskrá landsins geri
ráð fyrir því að þingforseti eigi að
taka við ef forsetinn fellur frá.
Þingforseti er Overzgeldy
Atayev, en ríkisöryggisráðið sagði
í gær að hafin væri rannsókn á
glæpsamlegu atferli hans. Þetta
bendir til þess að valdabarátta
milli andstæðra afla geti sett svip
sinn á nánustu framtíð Túrkmen-
istans.
Turkmenbasi er fallinn frá
Framtíð Túrkmenistans er í óvissu eftir lát sérviturs einræðisherra. Hann leyfði enga stjórnarandstöðu og
hafði ekki tilnefnt eftirmann sinn. Hátíðarskreytingar voru fjarlægðar í gær og bannað að selja áfengi.
Annar mannanna sem komust lífs af úr
banaslysi á Reykjanesbraut nærri IKEA í Garðabæ
hinn 11. nóvember hefur viðurkennt að hafa ekið
bílnum þegar slysið varð.
Maðurinn, sem áður hafði neitað því að hafa setið
undir stýri, viðurkenndi að hafa skömmu fyrir slysið
ekið á mikilli ferð auk þess sem niðurstöður úr
áfengisrannsókn á blóði allra mannanna sem í
bílnum voru sýna að þeir hafi allir verið ölvaðir
þegar slysið varð.
Þrír pólskir karlmenn voru í bílnum þegar hann
lenti á steypuklumpi við vegaframkvæmdir á
veginum og lést einn þeirra. Hinir tveir reyndust
lítið meiddir og voru úrskurðaðir í farbann þar sem
þeim bar ekki saman um það hvor þeirra hefði ekið
bílnum.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur yfirheyrt mennina
og við skýrslutöku í fyrradag viðurkenndi annar
maðurinn að hafa ekið bílnum. Að sögn lögreglu er
gert ráð fyrir að rannsókn málsins ljúki um eða eftir
áramót. Ekki fengust upplýsingar um það hjá
lögreglunni í Hafnarfirði hvort ökumaðurinn verði
kærður fyrir manndráp af gáleysi.
Minningarskjöldur
um þá sem látist hafa í umferðar-
slysum á Suðurlandsvegi var
afhjúpaður nú í vikunni. Minnis-
varðanum hefur verið komið
fyrir við þá 54 krossa sem reistir
hafa verið til minningar um þá
sem látist hafa í umferðarslysum
á Suðurlandsvegi frá árinu 1972.
Viðstaddir afhjúpun minnis-
varðarins voru samgöngu-
ráðherra, sýslumaðurinn á
Selfossi, fulltrúar sveitarfélaga í
byggðinni og fulltrúar áhugahóps
um tvöföldun Suðurlandsvegar.
Í máli þeirra sem fluttu ræðu
af þessu tilefni kom meðal annars
fram að brýnt væri að ökumenn
minntust ábyrgðar sinnar í
umferðinni og færu að lögum.
Háværar raddir hafa komið
fram um að nauðsynlegt sé að
tvöfalda Suðurlandsveginn.
Minnisvarði við
Suðurlandsveg
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti útskrifaði í fyrradag
79 stúdenta. Þá útskrifuðust 39
sjúkraliðar svo og nemendur af
snyrtibraut, húsasmíðabraut og
rafvirkjabraut.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra ávarpaði samkomuna og
afhenti dúx sjúkraliðabrautar,
Bergþóru Viktorsdóttur, viður-
kenningarskjal. Þá var nýútskrif-
uðum sjúkraliðum færðar gjafir
frá Reykjavíkurdeild Sjúkraliða-
félagsins og Gideonfélaginu.
Við útskriftina flutti Kristín
Arnalds, rektor FB, ávarp ásamt
fulltrúa nýstúdenta og kórar
nemenda og kennara sungu.
79 nýstúdentar
brautskráðir