Fréttablaðið - 22.12.2006, Side 54
SIRKUS22.12.06
6
stelpubögg með
Siggu Dögg
S enn líður að jólum. Þeim yndislega tíma árs þar sem
gleðin yfir að gefa breytist í andhverfu
sína. Jólagjöfin hefur ákveðið gildi sem
oft er metið út frá hugsuninni sem var
lögð í hana og hjá sumum, krónufjöld-
anum. Ég eyði mörgum andvöku-
stundum í að spá og spöglera hvað ég
geti föndrað persónulegt frá hjartanu.
Mér finnst hugurinn bak við gjöfina
númer eitt, tvö og þrjú en alls ekki
hversu dýr hún var.
Ef hún er ekki „ekta ég“ þá getur þú
alveg eins sleppt þessu.
Mér finnst fólk oft tapa sér í jólagjafa-
innkaupum. Það æðir um verslanirnar
á Þorláksmessu með „verðmiða-
blindu“ og kaupir það sem hendi er
næst, „æ, hún verður örugglega
ánægð með þetta, annars skiptir hún
því bara“.
Fallegustu gjafirnar eru þær sem lýsa
einlægar en ekki þær sem kostuðu
flestar krónurnar.
Ég var nýverið í Bandaríkjunum þar
sem ég varð vitni að þessari
„verðmiðablindu“ í troðnum verslana-
klasanum þar sem fólk var ókurteist
og fýlt. Ekki beint stemningin sem ég
var í. Það virtust allir keppast við að
rumpa þessu af.
Rumpa af þessari hátíð ljóss og friðar,
fjölskyldustundar, frídegi frá vinnu og
dóli frameftir í náttfötunum að borða
góðan mat. Hér þarf að verða
hugarfarsbreyting.
Jólin eru eini tími ársins þar sem það
er fullkomlega réttlætanlegt að vera
sykursætur og væminn. Þetta er sá
tími þar sem játningar líkt og „mér
finnst þú æði“ mega flakka og fyrir
vikið hljóma aðeins sætar en á
nokkrum öðrum tíma. Við erum meyr
fyrir svo þetta er kjörið tækifæri fyrir
hvers kyns kærleikstjáningar og
tilburði.
Ég er með róttæka nýja hugmynd sem
gæti gert jólin ögn ánægjulegri og
einlægari. Auk þess að létta
þrýstinginn á pyngjunni og hugar-
angrinu sem fylgir því að standa í röð í
verslun.
Gefðu gjöf frá hjartanu.
Brenndu geisladisk með lögunum
„ykkar“. Þetta passar einnig fyrir
foreldra, systkini og ömmu og afa, þú
getur t.d. notað lögin sem voru vinsæl
þegar þau voru upp á sitt besta.
Ódýrt, skemmtilegt og einfalt. Það
hlusta líka allir á tónlist.
Keyptu þér fallegan pappír og
skrifaðu eitthvað einlægt líkt og
„Þú ert einstök, takk fyrir að vera
til“. Ef hver einasta manneskja í
þessum heimi vissi að hún væri metin
að verðleikum þá væri heimurinn
eflaust annar.
Bakaðu smákökur eða lagaðu
frægu sósuna þína og útbúðu körfu
með tilheyrandi.
Láttu framkalla mynd af ykkur
saman og settu hana í ramma.
Búðu til I.O.U. (ég skulda þér)
inneignarmiða þar sem þú telur upp
nokkur atriði líkt og ferð í bíó/sund/
keilu og ísbíltúr, viðkomandi á þessar
stundir svo inni hjá þér.
Í öllu gjafaflóðinu þá eru það
„einföldustu“ gjafirnir sem standa upp
úr og virkilega segja „mér þykir vænt
um þig“.
Gleðileg jól …
Gefðu ást í
jólagjöf …
Sirkus býður lesendum sínum upp á heimasmíðað spil. Þetta er dæ
migert ten-
ingaspil, líkt og hið sígilda slönguspil. Það eina sem þarf er tenin
gur og einhvern
smáhlut sem gefur til kynna hvar hver og einn er staddur. Leikm
enn eru í hlut-
verki helgarpabba í 101 Reykjavík og lenda í ýmsum hremmingum
sem árstíðinni
fylgja. Markmiðið er að lifa af það amstur sem fylgir jólum og á
ramótum. Þetta
er eitt fárra spila sem menn geta lesið sér til ánægju. Góða skemm
tun!
Enn eitt jólaspilið
Þú ert kallaður á
húsfund af því að þú ert
sá eini sem ert ekki með rauðar
perur á svölunum. Þú stendur á
rétti þínum til að hafa bláar perur og þegar
nágranni þinn býðst til að borga nýjar perur
handa þér sakar þú hann um jólaperufasisma.
Um leið og þú rýkur á dyr heyrirðu að konan á
móti segir: „Hann er búinn að eyðileggja
blokkina þessi jólin.“ Situr hjá í eina umferð.
22.
DES
Annar í jólum er yfirleitt bara
gott djamm hjá þér. Þú
hringir í Capone bræður sem eru
með jólaþátt og færð miða á ball
með Magna um kvöldið. Hringir í
gamlan drykkjufélaga og þið
mætið eldhressir á Nasa. Áttið
ykkur þó fljótt á því að Í
Svörtum Fötum eru á sviðinu.
Þú ferð upp á svið og tekur
lagið „Það er ekkert mál“ við
mikla hrifningu stelpnanna. Fram
um einn reit.
26.
DES
Þér er boðið í árlegt jólapartí til Gísla
Marteins. Húsið er orðið
fullt og þú festist í
fatahenginu því Ólafur Teitur
heilsar þér með virktum, en réttir
þér svo frakkann þinn og hinir
gestirnir fylgja fordæmi hans. Þú
kemst við illan leik inn í eldhús þar
sem þú slærð í gegn meðal
kvennanna með því að vera sá
eini sem er búinn að lesa
Margréti Frímanns
og Ein til frásagn-
ar. Færist fram um
þrjá reiti.
27.
DES
Eina platan sem þú fékkst í jólagjöf var
sólóplatan hans Bigga í Maus. Þú
ákveður því að fara niður í Skífu til
þess að skipta henni. Strákurinn í
búðinni neitar þó að taka við plötunni
þar sem það er ekki lengur pláss fyrir
Biggaplötur í rekkanum. Þú sleppur
þó með að taka aðra Biggaplötu í
staðinn. Nærð að snúa upp á
strákinn með því að taka plötu með
Bigga Ármanns, eitthvað flipp sem
hann gerði fyrir kosningarnar. Ferð
samt aftur um tvo reiti.
28.
DES
Þú varst búinn að lofa að
fara í kirkju með mömmu
þinni og svo vill til að
séra Hjálmar er að messa í
Dómkirkjunni í kvöld. Þú bítur á
jaxlinn og telur þig geta þolað við
í klukkutíma. Vakan dregst hins
vegar á langinn því séra
Hjálmar syngur eins og
engill og er sífellt klappað-
ur upp. Þú missir úr eina
umferð.
29.
DES
Blaðamaður frá DV hringir í þig og
biður þig að minnast þess markverð-
asta á árinu. Þú færist allur í aukana,
talar eitthvað um frið fyrir botni
Miðjarðarhafs og vanmátt Sameinuðu
þjóðanna. Blaðamaður spyr þig þá hvort þú sért
ekki örugglega Krummi í Mínus? Viðvarandi
misskilngur því þú heitir Krummi og konurnar í
bankanum kalla þig alltaf Krumma í Mínus. Þú
lýsir skoðunum þínum á DV og óvandvirkni
blaðamanna. Bíddu eina umferð.
30.
DES
Áramótaboðið fer allt til fjandans eftir skaupið.
Móðursystir þín var ekki alveg að fíla húmorinn hjá
Hugleiki og Þorsteini Guðmunds. Strákurinn
neitar líka að skjóta upp rándýra fjölskyldupakk-
anum sem þú keyptir og vill frekar horfa á
Palla Magg. „Hann var svo fyndinn í
Strákunum.“ Vonbrigði. Þú klárar viskíflösk-
una og drepst uppi í rúmi hjá móður þinni.
Aftur um tvo reiti.
31.
DES
Þegar þú sérð mynd af þér í
Mogganum við grein um
áramótaskaupið undir fyrirsöginni:
„Hvað er fyndni?“ sérðu strax eftir því að
hafa skrifað hana. Hún lítur út einsog
umsókn um skaupið að ári. Það er
hringt í þig frá þremur útvarpsstöðvum
og þú beðinn um að segja betri
brandara en voru í skaupinu. Á eftir er ljóst
að þú verður ekki ráðinn. Farðu aftur um
einn reit.
1.
JAN
Jóladagur er ömurlegasti
dagur ársins hjá piparsvein-
um í 101. Þú gerir þó alltaf
góðverk á jóladag fyrir félaga
þinn Guðmund Jónsson í Byrginu.
Hangikjötið frá vinnunni fer yfirleitt til fyrrverandi
fíkla. Þegar þú mætir á svæðið er fótbrotinn
Guðmundur að láta stúlkur hjúkra sér svo hann
komist á lappir. Þú lætur hann fá hangikjötið og
færð að kíkja aðeins á internetið í staðinn.
Stenst ekki mátið og sendir nokkra tölvupósta.
Áfram um tvo reiti.
25.
DES
Það er Þorlákur sem þýðir skata á Óðinsvé í
hádeginu. Fljótlega eftir hádegið færist smá
brennivínsskjálfti í kallinn og ákavítið er drukkið
grimmt. Strákurinn hringir í þig og rukkar þig
um jólatré sem þú lofaðir að kaupa. Þú ferð í
Blómaval en örfá tré eru eftir. Fljótlega sérðu
fallegt tré en það er einhver fljótari að grípa
það. Þú kannast við kauða og spyrð hvort
þar fari ekki örugglega Siggi stormur. Að
sjálfsögðu
segistu ver
mikill áhuga-
maður um
krakkaveðrið og ljós-
myndasamkeppni
NFS. Hann brosir
og gefur þér tréð.
Áfram um einn
reit.
23.
DES
Aðfangadagur og þú átt eftir að kaupa gjöf handa
barnsmóður þinni. Þú ferð í Mál og menningu
fyrir hádegi og kaupir Ævisögu Hannesar
Hólmsteins eftir Óttar Martin Norðfjörð.
Einnig grípurðu nokkra reyfara eftir MacLean
og Bagley. Þá rekstu á skólasystur
þína sem þú varst skotinn í og fór í
bókmenntafræði, losar þig
snöggt við reyfarana og kaupir íslenska
stílfræði og Tvílýsi eftir Thor Vilhjálmsson í
staðinn. Hleypur síðan niður í Eymunds-
son, skiptir bókunum aftur í reyfara og
tefst eina umferð.
24.
DES