Fréttablaðið - 22.12.2006, Side 65

Fréttablaðið - 22.12.2006, Side 65
Ingu Eydal finnst hver jól sérstök. „Góðar endurminningar og fal- leg jólatónlist er það sem helst kemur mér í jólaskapið,“ segir Inga Eydal söngkona en hún er nýlega flutt á Selfoss og heldur sín fyrstu jól þar í ár. Inga vill prófa eitthvað nýtt um hver jól, hvort sem það er í mat eða skreytingum. „Hefðir eru fínar svo lengi sem þær trufla mann ekki. Ég er svo hepp- in að búa með fólki sem er tilbúið að prófa nýja hluti og við breyt- um reglulega til.“ Inga er komin af miklu tón- listarfólki og hefur sjálf sungið lengi, fyrst með Ingimar Eydal, föður sínum, og núna undanfarið hefur hún sungið með Ingimari syni sínum. „Jólin voru eini tíminn í minni barnæsku sem við sungum öll saman inni á heimilinu. Pabbi spilaði alltaf á píanóið um jólin og við sungum öll saman jólalög. Ég á margar fallegar minningar frá jólum þegar ég var yngri. Afi minn var mikið jólabarn og fyrsta desember fórum við alltaf til hans og ömmu og skreyttum allt húsið. Sjálf skreyti ég tölu- vert en er dugleg að breyta til.“ Prófar eitthvað nýtt á hverjum jólum Jólaskraut þarf alls ekki allt að vera til punts. Það vill oft brenna við að jóla- skraut er viðkvæmt og brot- hætt. Þá þarf að forða fallegu glerkúlunum úr greipum lítilla grallara sem heillast af falleg- um litum og styttum sem end- urkasta ljósinu úr ljósaseríum. Til að ekki þurfi stöðugt að vera að skammast í börnunum að passa sig í kringum dýrmætt jólaskrautið er sniðugt að fjár- festa í skrauti sem börnin geta leikið sér með og komið við án þess að hætta sé á að það skemmist. Slíkt skraut fæst til dæmis í Accessor- ize í Kringlunni þar sem þessar skemmtilegu fíg- úrur búa. Barnvænt og fjörlegt Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is Góðan dag! Við gerum okkur grein fyrir því að góður svefn er ein mikilvægasta for- senda vellíðunar og góðrar heilsu. Þess vegna höfum við nú ákveðið að bjóða til sölu Winx 300 heilsurúm frá Lattoflex í Þýskalandi. Lattoflex hefur verið í fararbroddi í þróun heilsurúma í hálfa öld og eiga Winx 300 rúmin sér enga hliðstæðu. Winx 300 heilsurúmin sóma sér vel í fallegum og vönduðum svefnherbergis- húsgögnum frá Zack. • Þau bæta blóðflæði með vöðva- slakandi örhreyfingum. Winx virkjar eðlilegar hreyfingar í svefni og skilar hreyfiorkunni mjúklega til líkamans ólíkt mörgum öðrum rúmum sem draga í sig orkuna. • Axla- og mjaðmasvæði eru mýkri til að halda bakinu beinu og losa spennu. Þrískipt fjöðrunarkerfi stuðlar að endur- nærandi svefni. Að auki veitir næmni sérhannaðra vængja líkamanum breyti- legan stuðning óháð þyngd. • Álagspunktar eru hverfandi vegna vængjanna sem Lattoflex hefur þróað ásamt Evo dýnunum sem eru hannaðar með tilliti til lögunar líkamans. • Rúmin eru að auki stillanleg undir baki og öxlum eftir breytilegum þörfum hvers og eins, og þau fást einnig með slakandi nuddkerfi. Winx heilsurúmin uppfylla fjögur skilyrði sem eru forsenda rétts stuðnings við bak og þess að vakna endurnærð og úthvíld að morgni: Fjárfestu í betri líðan! Skoðaðu vefsetur okkar www.eirberg.is til að fá nánari upplýsingar um Winx 300 heilsurúmin eða komdu í verslun Eirbergs að Stórhöfða 25 (gulu húsin). Í desember er verslunin opin á laugardögum kl. 11:00 - 16:00 og á virkum dögum kl. 9:00 - 18:00.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.