Fréttablaðið - 22.12.2006, Qupperneq 86
Kl. 20.00
Balzamerhljómsveitin Bardukha
heldur útgáfutónleika á Súfistanum
í Reykjavík. Sveitin leikur tónlist
sem einkennist af sterkum þjóðleg-
um áhrifum, auk spuna í ríkulegu
magni. Ekki er óalgengt að þeim
hlaupi kapp í kinn sem getur leitt
tónlistina á óvæntar brautir og á
stundum eiga þeir til að bresta í
söng á erlendum þjóðtungum af
slíku listfengi að eftir er tekið.
Hinn sanni andi jólanna
Jólatónleikar sönghópsins VoxFox
verða haldnir í Fríkirkjunni í
Reykjavík í kvöld kl. 20. Tónleik-
arnir bera yfirskriftina „Hin
fyrstu jól“ og mun hópurinn flytja
jólalög úr mörgum áttum og skapa
huggulega stemningu við kerta-
ljós. Á efnisdagskránni eru bæði
innlendar og erlendar jólaperlur
sem allir þekkja.
VoxFox er sex manna sönghóp-
ur sem sérhæfir sig í flutningi
verka a cappella, eða án undirleiks
en hópurinn hefur víða troðið upp
á undanförnum árum, t.d. í brúð-
kaupum og á Listahátíð. Hópurinn
leggur mikið upp úr vönduðum og
krefjandi útsetningum. Efnisdag-
skrá kvöldsins er afar fjölbreytt,
popp, rokk, djass og klassík tónlist
í bland.
Tónleikarnir eru öllum opnir og
allir hjartanlega velkomnir.
Hin fyrstu jól
Í tilefni af vetrarsólstöðum 21.
desember verður hátíð haldin í
Tónlistarþróunarmiðstöðinni við
Hólmaslóð í kvöld. Þetta er í sjö-
unda sinn sem þessi árlega hátíð
groddalegu grasrótartónlistarinn-
ar er haldin og er búist við fjöl-
menni þar sem hlutur metal-
tónlistar fer mjög vaxandi.
Sólstöðuhátíðin í ár hefur á sínum
snærum fulltrúa allra geira innan
metaltónlistar – dauðarokk, black-
metal, thrash, grindcore, metal-
core og dark ambient.
Í ár verður leikið á tveimur
sviðum innan miðstöðvarinnar og
tekur ein sveit við af annarri svo
að tónlistin þagnar aldrei. Meðal
þátttakenda verða sveitirnar
Changer, Forgarður Helvítis, Den-
ver, Gjöll og Sólstafir. Fyrsta
hljómsveit byrjar kl. 19 og verður
spilað stanslaust til klukkan 23.
Aðgangseyrir er 700 kr. en Tónlistar-
þróunarmiðstöðin er til húsa við
Hólmaslóð 2, úti á Granda.
Sólstöðurokk
Það bætist við ljósadýrðina
á Laugaveginum í dag en
þá opnar sýning í gallerí-
inu Kling & bang. Fjórir
listamenn sýna þar undir
yfirskriftinni „Ljósaskipti
– Jólasýning Kling og
Bang“ enda eru vetrarsól-
stöður í dag.
Myndlistarmennirnir Hekla Dögg
Jónsdóttir, Daníel Björnsson,
Sirra Sigrún Sigurðardóttir og
Ásdís Sif Gunnarsdóttir lýsa upp
galleríið sem hefur staðið fyrir
margs konar sýningarhaldi og
uppákomum á þessum árstíma.
„Þetta er hugmynd sem kom upp
fyrir löngu síðan að við fjögur
myndum sýna saman því við
höfum öll notað ljós sem virkan
þátt í okkar verkum en öll á
mismunandi hátt,“ útskýrir Sigrún
Sirra. Listamennirnir hrífast af
verkum hvert annars af því að
þau tengjast í sameiginlegu sjón-
rænu tungumáli, skærum litum
og dularfullum atburðarásum í
daglegu lífi. Þau hrífast af við-
kvæmum efnum, sjá gersemar og
galdur í hlutum sem öðrum er oft
ekki sýnilegt. „Okkur fannst vera
ákveðin harmonía milli verkanna
okkar og þá fæddist þessi hug-
mynd að gera sýningu á myrkasta
tíma ársins.“ Sýningunni er líkt
við aldingarð sem fylltur er hand-
verki byggðu á vísindakerfi, gos-
brunnum, varðeldi, sykri, blikk-
andi ljósum, rjómtertum, frosti,
hvirfilbyl og sólkerfi.
Verk Sirru er að hennar sögn
unnið í beinu framhaldi af verki
sem hún sýndi á sýningunni Pakk-
hús postulanna í Hafnarhúsinu í
haust. „Þá sýndi ég einmitt í sama
rými og Ásdís Sif en þetta verk er
dálítill viðsnúningur. Þá var ég
með tjald sem áhorfendur komust
ekki inn í en þar var sýnd kvik-
mynd og ákveðið ljósaflökt. Nú
verða áhorfendur inni í tjaldinu
og birtan kemur utan frá.“
Hekla Dögg Jónsdóttir kveðst
einnig á kunnuglegum slóðum í
sínum verkum en hún sýnir tvö
vídeóverk sem varpað verður í
sýningarrýminu. „Þetta eru nokk-
urs konar glansmyndir þar sem
stjörnur myndast í vatni, svo er
þarna svanur líka svo þetta verð-
ur dálítið ævintýralegt.“ Hún seg-
ist vinna dálítið með brellur sem
gera hið efnislega andlegt. „Þetta
eru svona áhugamanna-tækni-
brellur sem maður beitir til þess
að gera hlutina huglæga. Ef eitt-
hvað lítur út fyrir að vera ofboðs-
lega sætt, til dæmis glansmyndir,
þá getur það samt verið ekta stað-
ur eða hlutur og ekkert sérstakt í
gangi.“
Listafólkið þekkist vel og ekki
síst í gegnum galleríið en Sirra
útskýrir að algjör tilviljun hafi
ráðið því að sýningunni var valinn
staður þar. „Við höfðum annað
sýningarrými í huga en svo bauðst
okkur þetta tækifæri á þessum
árstíma og því gátum við ekki
neitað,“ segir Sirra.
Verkin á sýningunni eru öll ný
af nálinni og á sýningartímanum
verður einnig skipulagður gjörn-
ingur í tengslum við hana og munu
Daníel Björnsson, Hildur Björg
Yeoman, Valdimar Jóhannsson,
Ásdís Sif og listamaðurinn Aux-
pan þá framkvæma „Turbulence
Chamber“.
Sýningin stendur til 28. janúar
og verður galleríið opið fimmtu-
daga til sunnudaga milli kl. 14-18
nema að lokað verður á gamlárs-
dag.
!