Fréttablaðið - 22.12.2006, Síða 106
Finnski ökuþórinn
Heikki Kovalainen mun aka
fyrir Renault-liðið í formúlu 1 á
næsta keppnistímabili, í stað
Fernando Alonso sem skipti yfir
til McLaren. Kovalainen var
tilraunaökumaður hjá Renault á
síðasta keppnistímabili en keppti
þar áður í GP2-mótaröðinni.
Hann hefur þó verið hjá Renault
síðan 2002 sem hluti af ökuþóra-
teymi liðsins.
„Mér finnst eins og Renault
sé eins og fjölskyldan mín. Ég
fer oft í verksmiðjuna og þar
þekki ég alla með fornafni,“
sagði Kovalainen.
„Allt liðið styður mig heils-
hugar og sjálfstraustið er mikið
hjá okkur. Við teljum okkur geta
endurtekið afrek síðustu ára.“
Alonso hefur tvö síðustu ár
unnið heimsmeistaratitil öku-
þóra hjá Renault og voru félaga-
skipti hans afar umtöluð og
áberandi. Kovalainen mun því
aka við hlið Ítalans Giancarlo
Fisichella sem hann lofar í
hástert.
„Ég hef alltaf litið á hann sem
minn liðsfélaga. Hann stóð sig
vel á síðasta tímabili og var
stundum fljótari en Alonso í
tímatökunum en Alonso var
yfirleitt alltaf skrefinu á undan
í sjálfum keppnunum.“
Spurður hver markmið hans
væru fyrir næsta tímabil sagði
hann: „Einfaldlega að komast í
mark í fyrstu keppninni og ná í
einhver stig fyrir Renault. Það
eru allar forsendur til staðar til
að við getum staðið okkur vel.
En ég vil ekki byggja upp mikl-
ar væntingar fyrir fyrstu keppn-
ina því það er tilgangslaust. Við
munum taka eina keppni fyrir í
einu.“
Renault er mín fjölskylda í formúlu 1
Í DHL-deild karla eru hlutir að
þróast nokkurn veginn í samræmi
við spá liðanna sjálfra og eru Vals-
menn, sem spáð var Íslands-
meistaratitlinum, efstir þegar
deildin er hálfnuð. Valsliðið hefur
engu að síður ekki verið nægjan-
lega sannfærandi og leikur liðsins
of sveiflukenndur. Liðið hefur
verið að missa leiki niður og oft á
tíðum ekki klárað leiki sem sönn-
um meistaraefnum sæmir.
HK, sem kemur fast á hæla
Vals, hefur hins vegar sýnt ágætis
tilburði og að mörgu leyti komið á
óvart. Hins vegar ef mannskapur-
inn er skoðaður nánar auk þess
sem liðið fékk til liðs við sig einn
efnilegasta þjálfara landsins,
Gunnar Magnússon, þarf staða
liðsins ekki að koma svo á óvart.
Hið sameinaða lið Þórs og KA
Akureyri kemur í þriðja sæti og
kemur það mér lítið á óvart. Þar
eru saman komnir leikmenn með
mikla reynslu og þyngd (í orðsins
fyllstu!). Varnarleikur er þeirra
aðalsmerki en sóknarleikur liðs-
ins hefur ekki verið nægjanlega
sannfærandi og virkar hann oft á
tíðum mjög tilviljanakenndur og
þunglamalegur. Stjarnan sem
kemur í 4. sæti hefur verið að
rétta úr kútnum eftir þjálfara-
skipti og verið að mjaka sér
þangað sem liðið á klárlega
heima.
Haukar sem eru í fimmta sæti
hafa valdið vonbrigðum og engan
veginn staðið undir þeim vænting-
um sem gerðar voru í upphafi.
Fróðlegt verður hins vegar að sjá
hvernig þeir koma undan hléinu.
Þær fréttir hafa borist að Aron
Kristjánsson sé á heimleið frá
Danmörku til að taka við Hauk-
um.
Með fullri virðingu fyrir Páli
Ólafssyni og því góða starfi sem
hann hefur skilað þá er það hár-
rétt ákvörðun hjá Haukum að
næla sér í Aron því þar er á ferð-
inni mjög svo áhugaverður þjálf-
ari sem hefur náð sér í fína reynslu
í Danmörku og á eflaust eftir að
koma með ferskar áherslur inn í
íslenskan handbolta.
Jafnir Haukum að stigum í
sjötta sæti koma Íslandsmeist-
arar Fram. Fram var spáð
öðru sæti og er staða liðsins
því eflaust nokkur vonbrigði.
Hins vegar virðist þátttaka
Fram í Meistarakeppninni
hafa tekið sinn toll og því
verður fróðlegt að sjá
hvort þátttaka þjálfara
liðsins í HM 2007 í janúar
nk. muni taka sinn toll. Í
tveimur neðstu sætun-
um koma síðan Fylkir
og ÍR. Fylkir gerði
nýlega það sama og
Stjarnan og skipti
um þjálfara.
Er það frekar óvanalegt að tvö
lið séu búin að skipta um þjálfara
fyrir jól en þar ræður eflaust
miklu um að lið eiga það nú á
hættu að geta fallið um deild.
Hvort sú skipting hafi verið rétt
get ég ekkert sagt um en það er
spurning engu að síður hvort
Sigurður hefði ekki átt að fá að
klára leikina fram að áramótum
því liðið á von á góðum liðsauka.
Ekki nema þessi skipting hafi á
einhvern hátt tengst heimkomu
Heimis Arnar Árnasonar. Staða
Fylkis er í samræmi við spá
liðanna en engu að síður
hefur liðið verið frekar
óheppið hvað meiðsl leik-
manna varðar auk þess
sem liðið leigði
sinn besta
varnarmann
fram að ára-
mótum til
Gummersbach í Þýskalandi. Fylkir
gat einfaldlega ekki hafnað því
leigutilboði sem kom í Guðlaug
enda um dágóða upphæð að ræða
og var sú upphæð mun hærri en
Fram fékk frá Gummersbach fyrir
söluna á Sverre Jakobssyni. Það
hlýtur að vera súrt fyrir Fram og
sérstaklega í ljósi þeirra leiðinda
sem upp komu sl. sumar í kringum
félagaskipti Sverres. Með tilkomu
Heimis og endurkomu Guðlaugs
hefur Fylkir því fína möguleika til
að gera mun betur.
Lestina rekur síðan ÍR sem í
sjálfu sér kemur ekki á óvart.
Liðið varð fyrir mikilli blóðtöku
fyrir þetta keppnistímabil en engu
að síður hefur liðið náð sér í fjög-
ur stig, m.a. með sigri á Haukum,
auk þess sem liðið hefur verið
mjög nálægt því að landa fleiri
stigum. Það verður því fróðlegt að
fylgjast með eftir áramót því
spennan á eflaust eftir að haldast
fram í síðustu umferð.
Haukar og Fram hafa ekki staðið undir væntingum
Bandaríska íþrótta-
blaðið Sports Illustrated komst á
dögunum yfir skjöl sem sýna laun
allra leikmanna í NBA-deildinni. Í
raun sýna gögnin sem blaðið
komst yfir laun fram til ársins
2012. Einnig kemur fram í gögn-
unum hvaða sérákvæði eru í samn-
ingum leikmannanna og hvaða
laun leikmenn fá frá liðum sem
þeir hafa yfirgefið. Þar kemur til
að mynda fram að Dallas greiðir
Michael Finley fáránleg laun þótt
hann sé ekki lengur á leikmanna-
skrá félagsins.
Launin sem um ræðir eru ein-
göngu þau laun sem félögin greiða
leikmönnunum og auglýsinga-
samningar eða aðrar aukatekjur
koma ekki fram í þessum tölum.
SI hefur búið til sinn eigin lista
yfir þá leikmenn sem fá greitt of
mikið að þeirra mati og leikmenn
sem fá greitt of lítið miðað við
getu. Efstir á listanum yfir þá leik-
menn sem fá greitt of mikið að
mati SI er bakvarðapar New York
Knicks, Stephon Marbury og Steve
Francis, en þeir eru samtals með
rúmar 32 milljónir dollara í laun á
þessu leiktímabili. Tímabilið hjá
Marbury er hans versta á ellefu
ára ferli og Francis hefur einnig
lítið getað.
Chris Webber er í öðru sæti
með sínar 20 milljónir dollara en
hann er nú að skjóta í fyrsta skipti
undir 40 prósentum. Laun hans
hækka í rúmar 22 milljónir doll-
ara á næsta ári. Bronsverðlaun SI
fær síðan Michael Finley en Dall-
as mun greiða honum rúmar 16
milljónir dollara í ár og 18 milljónir
dollara á næsta ári á meðan hann
leikur með San Antonio. Jalen
Rose er í svipaðri stöðu en NY
greiðir stærstan hluta launa hans
þótt hann spili með Phoenix.
Sá leikmaður sem fær minnst
greitt miðað við getu að mati SI er
stórstjarnan LeBron James en
hann er enn á nýliðalaunum sem
eru tæpar sex milljónir dollara
fyrir árið. Hann má ekki fá
„almennileg“ laun fyrr en á næsta
tímabili samkvæmt reglum NBA.
Næstur á þessum lista er Monta
Ellis hjá Golden State en hann er
næststigahæsti leikmaður liðsins
og hefur slegið í gegn frekar
óvænt. Hann þénar ekki nema
tæplega 700 þúsund dollara fyrir
árið. Þriðji er síðan DeShawn
Stevenson hjá Waizards en hann
er á lágmarkslaunum leikmanna
sem hafa verið sex ár í deildinni,
sem er tæp milljón dollara. Hann
er einn af þremur byrjunarliðs-
mönnum í deildinni á svo lágum
launum.
New York Knicks er með lang-
hæsta launaliðinn í deildinni en
Knicks greiðir leikmönnum sínum
rúmar 117 milljónir dollara í laun
á árinu. Það er langt í næsta lið
sem er Dallas en leikmenn
Mavericks munu kosta félagið
rúmlega 91 milljón dollara á
árinu.
Kevin Garnett, leikmaður Minnesota Timberwolves, fær hæst laun allra leikmanna í NBA-deildinni á þess-
ari leiktíð eða 21 milljón dollara sem er tæplega einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Hið slaka lið
New York Knicks er aftur á móti það félag sem er með langmestu launabyrðina eða 117 milljónir dollara.
Það er líf og fjör í
kringum José Mourinho, stjóra
Chelsea, eins og venjulega.
Á miðvikudag bað hann Andy
Johnson, framherja Everton,
afsökunar vegna ásakana um að
hann hefði kastað sér viljandi
niður í grasið í leik Everton og
Chelsea á dögunum. Aðeins
nokkrum klukkutímum síðar
gekk mikið á þegar Chelsea sótti
Newcastle heim í enska deildar-
bikarnum.
Chelsea vann 1-0 en Mourinho
lenti saman við Glenn Roeder,
stjóra Newcastle, eftir sigur-
markið. Ástæðan var að Mourinho
sýndi Nicky Butt, leikmanni
Newcastle, ímyndað gult spjald
eftir brot hans, sem leiddi til
marksins.
Roeder gerði lítið úr atvikinu
eftir leikinn og sagði þá aðeins
hafa verið að skiptast á skoðunum
og meira væri ekki um málið að
segja. Roeder sagðist heldur ekki
hafa séð handabendingar
Mourinho til Butt.
„Ég skil ekki af hverju fólk þarf
alltaf að vita nákvæmlega hvað var
sagt þegar stjórar skiptast á
skoðunum á hliðarlínunni,“ sagði
Roeder frekar fúll en hann var
einnig óánægður með hvar
aukaspyrnan var tekin. Roeder
segir það ekki vera spurningu að
um aukaspyrnu hafi verið að ræða
en var pirraður á því hvar
dómarinn setti boltann niður. Hann
sagði enn fremur að hans lið hefði
ekki beint verið óheppið í leiknum
en hefði skot Obafemi Martins fyrr
í leiknum farið inn hefði leikurinn
kannski endað öðruvísi.
„Sýndi“ Butt
gula spjaldið