Fréttablaðið - 22.12.2006, Síða 110

Fréttablaðið - 22.12.2006, Síða 110
„Þulirnir eru byrjaðir að lesa þær inn á band en jólakveðjurnar hafa aldrei verið fleiri,“ segir Lárus Guðmundsson sem tekið hefur á móti jólakveðjum landsmanna en þær verða að venju fluttar á Rás 1 á Þorláksmessu. „Ég hef reyndar ekki nákvæma tölu en þetta eru í kringum fjórtán til fimmtán klukkustundir,“ útskýrir Lárus. „Gæti giskað á að fjöldi þeirra væri á bilinu átta til níu þúsund,“ bætir hann við. Jólakveðjurnar á gömlu gufunni eru að margra mati stór hluti af jólahaldinu og segir Lárus að starfs- fólkið í Efstaleitinu finni vel fyrir því hversu miklu máli þetta skipti fyrir fólk. „Margir panta í gegnum netið en þeir eru líka ófáir sem koma hingað og skrifa jólakveðj- una hjá starfsfólkinu hérna,“ segir Lárus en lokað var fyrir móttöku á miðvikudaginn. „Nokkrir hafa hringt með kökkinn í hálsinum eftir að við hættum að taka við og grát- beðið okkur um að taka við kveðju,“ segir Lárus og flestir hafa fengið ósk sína uppfyllta. Lárus segist bera mikla virðingu fyrir þulunum sem lesa jólakveðj- urnar og vildi óska þess að hann væri gæddur sömu þolinmæði og þeir. Landsmenn eiga hins vegar örugglega eftir að sakna Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur sem for- fallast í ár sökum veik- inda. „Hún hefur lengi verið stór hluti af þess- ari hefð en við vonumst til að sjá hana aftur á næsta ári,“ segir Lárus en meðal þeirra sem lesa jólakveðjurnar í ár eru þau Gerð- ur G. Bjarklind og Sigvaldi Júlíusson. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Þetta var ekki alveg sanngjarnt að mínu mati,“ segir Harold Burr, fyrrum söngvari hljómsveitarinn- ar The Platters. Á föstudaginn síð- asta datt Harold úr sjónvarps- þættinum X-factor. Einar Bárðarson setti hann ekki í hóp þeirra sem komust áfram, en Har- old segir að einhver vafi hafi þó blundað í mönnum. „Ég var í hópi þeirra tólf sem komust áfram fyrst, en svo var ég beðinn um að koma og mér sagt að mistök hefðu átt sér stað. Eftir það var ég keyrð- ur þangað sem hinir voru og okkur sagt að við hefðum ekki komist áfram,“ segir söngvarinn. Harold hefur getið sér gott orð í Reykjavík sem hrífandi djass- söngvari. Undanfarin ár hefur hann spilað út um alla borg og vekur það mikla lukku þegar hann flytur gömul lög frá Platters-árum sínum. „Ég hef sungið lengi og verið mikið í kringum tónlist og aðra söngvara. Ég var alveg viss að minn flutningur hefði dugað til þess að koma mér áfram, því ég heyrði marga söngvara sem voru síðri,“ segir Harold án þess að hljóma hrokafullur. En að mörgu þarf að huga við gerð sjónvarpsþáttar eins og X-factor og segir Har- old að það hafi hugsanlega verið sinn banabiti. „Þeir vilja auðvitað gera góðan sjónvarps- þátt og þess vegna er ekki alltaf hægt að leggja mestu áhersluna á söng- inn sjálfan. Því það eina sem ég gat séð verulega að mínum flutn- ingi var sviðsfram- koman og kannski aldurinn ef því er að skipta.“ Fyr- irkomu- lag X- factor er ólíkt því sem við þekkjum úr Idol. Nú er það þannig að fólki er skipt í þrjá hópa eftir dómurum, og var Harold látinn fylgja Einari Bárðarsyni eins og aðrir eldri keppendur í þættinum. „Harold Burr er náttúrlega góður söngv- ari, eins og allir þarna, það var enginn lélegur,“ segir Einar og bætir því við að hann hafi látið sviðsframkomu keppenda spila stóra rullu í vali sínu, vegna þess hve leikar voru annars jafnir. „Það sem stóð í mér er að Harold horfði í gólfið í þau þrjú skipti sem hann söng fyrir mig. Ég lagði það saman við reynslu hans og tók heldur sénsinn á einhverjum öðrum,“ segir Einar að lokum. Harold er ekki af baki dottinn og segist ekki bitur eftir reynsl- una í X-factor, þvert á móti gæti hún heldur gert honum gott. Á nýju ári stefnir Harold á stórræði og hyggst ætla að byrja aftur með The Platters-kvöld sín sem vöktu mikla lukku hér áður fyrr. … fær Garðar Thór Cortes sem troðfyllir tónleikasali Englands og var nú síðast líkt við hetjutenórinn Luciano Pava- rotti af gagnrýnanda. Aldrei fleiri jólakveðjur á RÚV „Þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer með Bubba, jú það er rétt,“ segir Jón Atli Jónasson rithöfundur. Jón Atli verður í föruneyti Bubba Mort- hens þegar hann heimsækir fanga á Litla-Hrauni á aðfangadag, skemmtir þeim og messar yfir. Þetta mun vera í 23. skiptið sem Bubbi skemmtir á Litla-Hrauni á aðfangadag, einstök hefð og til stökustu fyrirmyndar. Jón Atli segist ekki vera búinn að ákveða nákvæmlega hvað hann muni lesa fyrir fangana, víst er þó að hann muni grípa eitthvað niður í Ballöðuna um Bubba Morthens, skáldævisögu sína um kónginn sjálfan. „Svo er aldrei að vita nema ég skrifi jólasögu og lesi, það verð- ur þá glæpasaga sem gerist á jólum,“ segir Jón Atli sem er spennt- ur fyrir ferðinni. „Já, ég les sjaldan upp en þetta verður alveg glæsi- legt.“ Þetta árið verður föruneyti Bubba í yngri kantinum. Auk Bubba og Jóns Atla verða í hópn- um tónlistarkonan Lovísa Elísa- bet Sigrúnardóttir, Lay Low, og tónlistarmaðurinn Toggi. Bæði gáfu þau út fyrstu plöt- ur sínar á þessu ári og hafa fengið frá- bærar viðtökur. Þetta er sömuleið- is í fyrsta skipti sem þau koma á Litla-Hraun. „Ég hefði nú ekki boðið mig fram ef mér hefði litist ekki vel á þetta,“ segir Toggi. „Annars geri ég bara það sem mér er sagt, mæti með gítarinn og jóla- skapið.“ Ungt föruneyti Bubba á Litla-Hraun í ár
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.