Fréttablaðið - 22.12.2006, Blaðsíða 112
eru alveg staðfastir á því
að það sem liggur í augum uppi, geti
ómögulega verið staðreynd, einfald-
lega vegna þess að hún liggur í
augum uppi. Umræðan um að á
öllum málum séu margar hliðar fer
af stað og þarna hljóti að vera eitt-
hvað annað í gangi.
er út af þessum sumum sem
umræða um helstu spillingarmál
undanfarinna ára hefur alltaf þæfst
og útvatnast á ótrúlega stuttum tíma.
Tökum nokkur dæmi.
náfrændi forsætisráðherra
var skipaður hæstaréttardómari,
þótti það vera spilling í fimmtán
mínútur og svo tók þófið við. „Hvers
á aumingja maðurinn að gjalda?“
„Getur hann aldrei orðið hæsta-
réttardómari vegna þess að hann er
náfrændi forsætisráðherra?“ „Á
hann ekki jafnan rétt og aðrir?“.
besti vinur forsætis-
ráðherra var skipaður hæstaréttar-
dómari var það spilling í eina mín-
útu, en þá fór umræðan af stað um að
sá væri nú bara svo frábær lögmaður
að það væri bara sjálfsagt.
Árni Johnsen fékk náðun
frá handhafa forsetavalds, sam-
flokksmanni sínum. Þetta þótti svo
sjálfsagt að umræðan um að glæpa-
maður, sem hefði í skjóli opinbers
embættis misnotað almannafé til að
hagnast ætti hugsanlega að þurfa að
bíða lengur en ella með að fá náðun,
fór ekki einu sinni af stað. Nei nei,
hann tók út sinn dóm og batnandi
mönnum er best að lifa og allur sá
pakki.
sonur fyrrum forsætis-
ráðherra og aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra verður á næstu dögum
eða vikum skipaður héraðsdómari,
þá verður það ekki mikið tiltökumál,
vegna þess að dómsmálaráðherra
mun víkja sæti og láta annan um að
skipa hann. Það mun ekki verða talið
spilling nema í svona þrjátíu sekúnd-
ur, þá verður málið dautt.
nú þegar trúarleiðtogi er bók-
staflega sýndur með buxurnar
niðrum sig í sjónvarpinu, þá segja
sumir að „það geti nú bara ekki
verið“. „Þarna hljóta að vera ein-
hverjar myndfalsanir í gangi“.
„Hann segir að þetta sé lygi, og sver
það við börnin sín og eiginkonu“.
er lítil eyja, ekki mikið
stærri en Sikiley og hér þurfa allir
að búa í sátt og samlyndi. Við kom-
umst ekkert annað. Þess vegna er
þægilegra að horfa í hina áttina, út á
hafið og segja við sjálfan sig að
sannleikurinn liggi nú sjaldnast í
augum uppi.
Hvað liggur í
augum uppi?
edda.is
Ólafur
Jóhann
áritar
Ólafur Jóhann Ólafsson
„Ólafur Jóhann skrifar agaðan stíl sem er
gífurlega áhrifamikill ...
bók sem er skelfilega heillandi.“
Publishers Weekly
„Maður getur ekki hætt að lesa ... sögurnar tvinna saman
spennu, sorg og tilfinningalífi fólks á meistaralegan máta.“
Óttar M. Norðfjörð, DV
„Snjallar og vandaðar smásögur.“
Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós
„Sögurnar eru geysilega vel byggðar og nostrið við sögufléttuna
eitt og sér nánast tryggir ánægjulegan lestur.“
Ágúst Borgþór Sverrisson, vettvangur.net
„Ólafur Jóhann er gjörhugull höfundur með óvenjulegar stílgáfur ...
kemur lesanda sínum í opna skjöldu með snjöllum lausnum.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fbl.
„Aldingarðurinn er óvenjulega þéttofin bók ... efni sagnanna er þrungið
tilfinningum og átökum í mannlegri tilveru ... Þessi bók er með hans
[Ólafs Jóhanns] betri verkum.“
Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
Ólafur Jóhann áritar bók sína Aldingarðinn í Bónus Kringlunni í dag kl. 18.00.
Athugið – aðeins þetta eina sinn fyrir jólin!
Tryggið ykkur áritað eintak af Aldingarðinum og komið
með fyrri bækur Ólafs Jóhanns til áritunar.
Vinsælasta
smásagnasafn
ársins
Ný prentun
komin í
verslanir
6000
eintök seld