Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 17
[Hlutabréf]
Viðskipti með stofnfé Sparisjóðs-
ins í Keflavík hófust á skipulögð-
um stofnfjármarkaði sparisjóðs-
ins í gær. „Með tilboðsmarkaði og
skýrum reglum um framkvæmd
viðskipta með stofnfjárhluti, hæfi
til kaupa og upplýsingagjöf til
stofnfjáreigenda vill stjórn SpKef
leitast við að gera viðskipti með
stofnfé gagnsæ og tryggari fyrir
stofnfjáreigendur,“ segir í tilkynn-
ingu á heimasíðu sparisjóðsins.
Þetta er annar markaður sinn-
ar tegundar á Íslandi, en SPRON
hefur starfrækt eigin stofnfjár-
markað frá haustinu 2004.
Mikil viðskipti hafa verið með
stofnfé í SpKef á gráa markaðn-
um að undanförnu og hefur gengi
stofnfjárbréfanna hækkað um
þriðjung á skömmum tíma. Þenn-
an mikla áhuga má meðal annars
rekja til skráningar Existu í Kaup-
höll Íslands á haustdögum. SpKef,
sem átti þá þriggja prósenta hlut í
Existu, bókfærði 3.840 milljónir
króna í hagnað við skráninguna.
Til samanburðar var eigið fé
sparisjóðsins 4.662 milljónir
króna um mitt síðasta ár.
Stofnfé SpKef á
tilboðsmarkaði
Úrval ljósa á frábæru verði!
-30%
-50%
-30% -30% -50%
-30%
-50%
ÚTSALA
Allt að 70afsláttur%
-70%
-30%
Opið virka daga frá kl. 9-18 og laugardaga frá kl.11-16
Næturljós, 3 í pk.
Glitnir gekk í gær frá samningi um
skuldabréfaútgáfu fyrir 1,25 millj-
arða Bandaríkjadali eða um 89
milljarða króna til fimm ára.
Kjörin eru 47 punktum yfir
millibankavöxtum eða 10 punktum
yfir tryggingaálagi skuldabréfa
bankans og þykir endurspegla betri
stöðu frá síðasta ári, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Glitni.
Skuldabréfaútgáfan, sem er svo-
kölluð alheimsútgáfa, var seld til
fagfjárfesta í Bandaríkjunum, Evr-
ópu og í Asíu. Mikil umframeftir-
spurn var eftir skuldabréfunum og
óskuðu fjárfestar eftir að kaupa
fyrir sem svarar 240 milljörðum
íslenskra króna.
Skuldabréfaút-
gáfa hjá Glitni
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,26 prósent á milli mánaða, sam-
kvæmt útreikningum Hagstofunn-
ar. Þetta jafngildir því að verð-
bólgan hafi lækkað úr 7,0
prósentum í 6,9 prósent síðast-
liðna 12 mánuði.
Þetta er nokkuð meiri hækkun
en greiningardeildir bankanna
reiknuðu með en þær horfðu fram
á verðbólgutölur allt niður í 6,6
prósent á ársgrundvelli.
Í útreikningum Hagstofunnar
segir að vetrarútsölur séu í fullum
gangi og hafi verð á fötum og
skóm lækkað um 12,1 prósent milli
mánaða, sem þó er minna en grein-
ingardeild Landsbankans horfði
til. Á móti hækkuðu gjöld tengd
húsnæði um 13,3 prósent á milli
mánaða auk þess sem verð á mat-
vöru og bílum hækkaði sömuleið-
is, Þar af hækkaði kjötvöruverð
um 3,0 prósent. Greiningardeild-
irnar höfðu gert ráð fyrir hækkun
matvöruverðs en greiningardeild
Landsbankans bendir að hækkun
á verði kjötvara komi ekki á óvart
þar sem jólahátíðin sé nýafstaðin.
Deildirnar áréttuðu fyrri verð-
bólguspár sínar í gær og voru
sammála um að verðbólga lækki
skarpt eftir að aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar til lækkunar mat-
vælaverðs komi inn í verðbólguút-
reikningana í vor. Muni verðbólga
fara niður í allt að 4 prósent eftir
tvo mánuði og geti farið undir
verðbólgumarkmið Seðlabankans
um mitt ár.
Verðbólga umfram væntingar
Greiningardeildir segja verðbólgumarkmiðum Seðlabankans náð á vordögum.
Actavis kemst nærri því að vera
hið fullkomna fyrirtæki. Svo segir
í nýrri greiningu fjárfestingar-
bankans Merrill Lynch, sem kom
út í gær. Í greiningunni kemur
fram að Actavis sé tíu prósentum
undir meðalverði sambærilegra
félaga í Evrópu og Bandaríkjun-
um. Bankinn metur gengi félags-
ins á 67 krónur á hlut sem er í sam-
ræmi við núverandi gengi Actavis
á markaði. Þó kemur fram að
gangi bjartsýnisspár eftir eigi
félagið allt að tuttugu prósenta
verðhækkun inni á bréfum sínum.
Áður hafa Credit Suisse og
ABN Amro gefið út greiningar á
félaginu. Halldór Kristmannsson,
framkvæmdastjóri innri og ytri
samskipta hjá Actavis, segir sterkt
að geta vísað í greiningar erlendra
banka. „Við erum þeirrar skoðun-
ar að erlendar greiningar á íslensk
félög í kauphöllinni skipti bæði
fjárfesta hér heima og erlendis
miklu máli.“
Actavis nálægt
fullkomnun