Fréttablaðið - 13.01.2007, Blaðsíða 24
Fiðluleikarinn góðkunni Sigrún
Eðvaldsdóttir heldur upp á fertugs-
afmæli sitt í kvöld á veitingastaðnum
Angelo á Laugaveginum.
Veislan stendur yfir frá klukkan 19
til 21 og verður um „smart kokteilboð“
að ræða, eins og Sigrún orðar það. Sig-
rún, sem hefur starfað sem kon-sert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands
undanfarin níu ár, spilar á tónleikum
fyrr um daginn og kemur síðan nánast
beint í veisluna. Hún segist þó ekki
ætla að taka fiðluna með sér og spila
fyrir gestina, sem verða hátt í níutíu
talsins. Engin önnur tónlistaratriði séu
heldur plönuð. „Vonandi koma bara
allir í góðu skapi og hafa það kósí. Ég
hef aldrei gert svona áður og vonandi
verður maður ekki stressaður,“ segir
Sigrún, eldhress að vanda. Vonast hún
að sjálfsögðu til að þessi fyrsta stóra
afmælisveisla sín gangi snurðulaust
fyrir sig. Hún segist ekki hafa óskað
eftir neinni sérstakri afmælisjgöf.
„Það er allt saman aukaatriði. Það er
bara gaman þegar allir eru saman og
léttir á því. Mér finnst það svo
skemmtilegt,“ segir hún og bætir við:
„Mér finnst voða gott að vera að nálg-
ast þennan aldur. Ég finn rosamun á
mér og finn fyrir meiri orku og sjálfs-
öryggi. Það er eins og ég sé orðin lítil
stelpa aftur og þegar ég lít til baka þá
er ég líka nokkuð sátt.“
Aðspurð hvort hún hafi sett sér ein-
hver markmið í lífinu, nú þegar þess-
um merka áfanga sé náð, vill Sigrún
lítið sem ekkert gefa upp og segir það
„algjört leyndó“.
Vinur Sigrúnar, klarinettuleikarinn
Sigurður Ingvi Snorrason, er „gourmet
listakokkur“ að hennar sögn og hefur
hann veitt henni dygga hjálp við skipu-
lagningu veislunnar í kvöld.
„Við ætlum að hafa æðislega munn-
bita og búa til ýmislegt saman. Svo er
mamma, systir mín og frænka að
hjálpa, en það er gott að hafa einhvern
sem skipuleggur þetta með manni,“
segir Sigrún.
Sovétmenn snupra öryggisráðið
80 ára
Petrea Guðný
Pálsdóttir
frá Grundarfirði verður 80 ára
14. janúar 2007.
Hún tekur á móti ætting jum og vinum
í Góðtemplarahúsinu við Suðurgötu 7,
Hafnarfirði, kl. 14.00 til 17.00
sunnudaginn 14. janúar.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Leó Hálfdánarson
Hábæ 33,
andaðist að heimili sínu miðvikudaginn 10. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ragnhildur Oddný Guðbjörnsdóttir
Jónína Haraldsdóttir
Stefanía Halldóra Haraldsdóttir
Sigurður Már Haraldsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
22 nýir ökukennarar voru
brautskráðir við hátíðlega
athöfn frá Kennaraháskóla
Íslands hinn 9. desember.
Flestir eru þeir af suðvest-
urhorninu en 6 úr hópnum
eru búsettir á Norður-
landi.
Símenntunarstofnun
KHÍ hefur haft menntun
ökukennara á sinni könn-
um frá árinu 1993 og hafa
nú alls verið brautskráðir
124 ökukennarar frá skól-
anum. Þann tíma hefur
nám ökukennara þróast og
eflst og nú telst námið vera
30 einingar á háskólastigi,
sem samsvarar fullu náms-
ári en til inngöngu í námið
er meðal annars krafist
stúdentsprófs eða sam-
bærilegrar menntunar.
Sólrún B. Kristinsdóttir,
forstöðumaður Símenntun-
arstofnunar KHÍ, stjórnaði
athöfninni en Arnaldur
Árnason, verkefnastjóri
ökukennaranáms, flutti
ræðu þar sem hann gerði
grein fyrir námi hinna
nýju ökukennara og afhenti
þeim síðan prófskírteini
sín.
Ökukennarar útskrifaðir
AFMÆLI
FÆDDUST ÞENNAN DAG