Fréttablaðið - 13.01.2007, Qupperneq 48
14
„Fjölbreytileiki hausa skiptir einna
mestu máli í vali á gaseldavélum,“
segir Þór Austmar hjá fyrirtækinu
Gasco, sem sérhæfir sig í uppsetn-
ingu og viðgerðum á gaseldavélum.
„Með öðrum orðum verður vélin að
hafa tvær miðlungsstórar hellur, eina
litla og aðra stóra, öfluga, eða svo-
kallaða vókhellu, sem er mestmegnis
notuð til steikinga. Síðan er hægt að
velja um fleiri hellur, eða allt eftir
smekk hvers og eins.“
Þór varar menn við því að halda
að hátt verð á gaseldavélum jafngildi
gæðastimpli. „Í raun er lítill merkj-
anlegur munur á vélunum þótt verð-
ið kunni að gefa annað til kynna.
Það er kannski helst að dýrari gerð-
irnar séu með hreinni og betri loga
og úr sterkara efni heldur en þær
ódýru. Það skiptir þó raunverulega
litlu máli nema fyrir fagmenn eins
og mig. Staðreyndin er sú að menn
geta gert alveg jafn góð kaup með
því að fjárfesta í ódýrari gerðum gas-
eldavéla. Svo er öryggiskerfið svipað
í flestum vélum.“
Eftir að gaseldavél hefur verið
valin segir Þór mikilvægt að kalla
í fagmann til að setja hana upp.
„Mælst er til þess að fólk láti gas-
mönnum eftir uppsetningu á
gastækjum og -búnaði. Fagmennirn-
ir kunna náttúrlega best til verka. Til
dæmis er algengt að fólk gangi ekki
vel frá útigaskútnum í þar til gerðri
forðageymslu, sem hlífir kútnum og
þrýstibúnaðinum fyrir veðri og vind-
um. Stór hætta getur nefnilega skap-
ast sé frágangurinn slæmur.“
Þór segir fagmenn jafnframt
aðstoða við að koma gasskynjara
fyrir á réttum stað. „Skynjarinn
hefur svipaða virkni og dæmigerður
reykskynjari,“ útskýrir hann. „Hann
er hafður niðri við gólf, þar sem gas
leitar alltaf niður á lægsta punktinn.
Þeir sem eru með öryggiskerfi heima
hjá sér ættu að fá eftirlitsaðilann sem
setti það upp til að ganga frá gas-
skynjaranum í leiðinni. Innbyggðu
skynjararnir í nýju vélunum er ann-
ars orðnir svo góðir að lítil hætta er á
að þeir bili og gas fari að leka út. Bili
þeir hins vegar lokar öryggislokinn
fyrir gasið.“ -rve
Verð enginn gæðastimpill
Þór Austmar hjá Gasco segir verð gaseldavéla ekki haldast í hendur við gæði og öryggi.
Eftirfarandi eru nokkur góð ráð um
þrif á eldhústækjum og fleiru í eld-
húsinu, úr smiðju fyrirmyndarhús-
freyjunnar Mörthu Stewart:
ELDAVÉLIN: Þurrkaðu af eldavél-
inni um leið og þú ert búinn að elda.
Það verður erfiðara að ná blettum af
eftir að þeir harðna í hitanum.
Taktu stillihnappana reglulega af
eldavélinni og þrífðu í volgu sápu-
vatni. Láttu þá svo þorna vel áður
en þú setur þá aftur á.
OFNINN: Láttu ofngrindur og skúff-
ur liggja í volgu sápuvatni í nokkra
tíma (t.d. í baðkari). Skrúbbaðu vel
með grófum svampi, skolaðu og
láttu þorna.
Hreinsaðu ofninn líka að innan
á eins mánaðar fresti, eða ef það
myndast reykur inni í honum þegar
þú notar hann.
ÍSSKÁPURINN: Hreinsaðu ísskápinn
að innan einu sinni í mánuði. Þá
tæmirðu hann og þrífur með blöndu
af tveimur msk. af matarsóda á móti
einum fjórða lítra af vatni. Þurrkaðu
ísskápinn að innan með litlu hand-
klæði og þrífðu svo glerplötur og
grindur í heitu vatni en láttu þetta
ná herbergishita áður en það er sett
aftur í ísskápinn til að koma í veg
fyrir sprungur.
S K Á P A R :
S t r j ú k t u
reglulega af
höldum og
skápahurðum
til að koma í
veg fyrir að
b a k t e r í u r
nái að setjast þar að. Skipuleggðu
skápa og skúffur þannig að það sem
er minnst notað sé innst í skápnum
og það sem er mest notað sé yst.
VASKUR: Vaska og blöndunartæki
ber að þrífa á hverju kvöldi með
borðtusku, vættri með svolitlu sápu-
vatni. Gott er að setja uppþvotta-
bursta og svampa í uppþvottavélina
annað slagið. Til að forðast að stífla
myndist í vaskinum má hella í hann
einum lítra af sjóðandi vatni viku-
lega. Aldrei setja olíur eða dýrafitu í
vaskinn þar sem fita er mjög stíflu-
myndandi.
RAFTÆKI: Brauðristina á að tæma
af brauðmylsnu vikulega. Taktu
hana úr sambandi og strjúktu líka
reglulega af henni með sápuvættum
klút, en sé hún með krómáferð á að
nota glerhreinsiúða á það.
Örbylgjuofna má hreinsa að
innan með því að nota blöndu af
tveimur matskeiðum matarsóda á
móti einum fjórða lítra af vatni. Til
að ná erfiðum blettum er gott að
sjóða skál með heitu vatni í ofn-
inum og láta hana standa svolitla
stund. Þegar móða myndast í ofn-
inum losnar um bletti og það verður
auðveldara að strjúka þá af.
Kaffikvörn er gott að hreinsa
að innan með því að mala ósoðin
hrísgrjón í kvörninni.
Þetta losar um olíur,
krydd og annað sem
hefur áður verið malað
í kvörninni.
Gangi þér vel.
mhg@frettabladid.is
Hreint og fallegt
Eldhús og eldhústæki er gott að þrífa reglulega
á markvissan hátt.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
{ heimilið }
Í versluninni Art Form á Skóla-
vörðustíg má fá fallegar vörur
fyrir heimilið. Verslunin selur
meðal annars vörur frá ítalska
merkinu Iittala sem er þekkt
fyrir klassíska hönnun, falleg
form og fágun. Einnig má finna
þar vörur frá ítalska fyrirtækinu
Egizea sem stendur framarlega í
hönnun, vinnslu og tækni ásamt
vörum frá Senta og Kartio.
Margir kjósa þessi merki umfram
önnur sökum vandaðrar hönn-
unar, fegurðar og umfram allt
að öll þessi hönnunarfyrirtæki
framleiða muni sem standast
tímans tönn og falla seint eða
aldrei úr tísku.
Klassísk
hönnun