Fréttablaðið - 13.01.2007, Page 83
Viðskiptamaðurinn Jafet
S. Ólafsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar hf., til-
kynnti í gær að hann myndi bjóða
sig fram til formanns KSÍ. Jafet
er annar maðurinn sem tilkynnir
un framboð en Geir Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri KSÍ, hafði
áður tilkynnt um framboð.
„Ég hef mikinn áhuga á fótbolta
og hef starfað töluvert innan
hreyfingarinnar. Ég vil taka þátt í
að efla knattspyrnulífið á Íslandi
og gera það enn betra,“ sagði hinn
55 ára gamli Jafet við Fréttablaðið
í gær. Hann var formaður Bad-
mintonsambandsins í fjögur ár á
sínum tíma en hefur undanfarin
ár starfað í viðskiptalífinu þar
sem hann var framkvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar síðustu tíu ár
en lét af því starfi á dögunum.
Hann situr eigi að síður í stjórn
fyrirtæksins. Jafet var áður úti-
bússtjóri Íslandsbanka og fram-
kvæmdastjóri Íslenska útvarpsfé-
lagsins.
Stærsti sjáanlegi munurinn á
framboðunum tveimur er sá að
Geir hyggst gera formannsstarfið
að fullu starfi en það hyggst Jafet
ekki gera nái hann kjöri.
„Ég fer í þetta á þeim forsend-
um að starfið sé ekki fullt starf.
Ég býð mig heldur ekki fram þar
sem ég sé ósáttur við núverandi
forystu því ég tel hana hafa unnið
mjög gott starf. Í mínum augum
þá á framkvæmdastjórinn að sjá
um daglegan rekstur og að við
séum líka með öflugt starfsfólk
sem og stjórn. KSÍ er stórt fyrir-
tæki og ég horfi þannig á það. Ég
er ekki með miklar áherslubreyt-
ingar en ég hef samt alltaf horft á
íþróttir sem mikið forvarnarstarf
og vil nota íþróttir meira tengt
forvarnarstarfi,“ sagði Jafet, en
hvað hefur hann fram að færa í
starfið? „Ég hef reynslu úr íþrótta-
hreyfingunni og mikla reynslu úr
viðskiptalífinu til að nefna eitt-
hvað.“
Jafet segist ekki bjóða sig fram
nema hann telji sig geta lagt Geir
í formannskjörinu. „Það gefur
auga leið að ég væri ekki að bjóða
mig fram nema ég teldi mig eiga
góða möguleika á kosningu. Það er
búið að kanna baklandið og ég tel
mig eiga góða möguleika,“ sagði
Jafet.
Tel mig eiga góða möguleika á að ná kosningu
Heildarverðmæti fimm
ára samnings Davids Beckham
við LA Galaxy eru talin vera í
kringum 250 milljónir dala, eða tíu
milljarðar íslenskra króna. Að
minnsta kosti 80 prósent þessarar
upphæðar fær Beckham fyrir eitt-
hvað allt annað en að sparka
bolta.
Beckham fær „aðeins“ 50 millj-
ónir dala fyrir að spila fótbolta
þessi fimm ár en hvaðan kemur
afgangurinn? „Mesta verðmætið
kemur í gegnum styrktarsamn-
inga Davids úti um allan heim. Það
er allt annar samningur og kemur
MLS ekki við,“ segir Ivan Gazidis,
forseti MLS-deildarinnar. „Koma
hans til Bandaríkjanna mun auka
verðmæti Beckham-vörumerkis-
ins og gróðinn mun einnig aukast.
Það er aftur á móti ekki okkar mál
og við komum hvergi nærri slík-
um samningum.“
50 milljóna dala leikmanna-
samningur Beckhams bliknar í
samanburði við samning hafna-
boltamannsins Alex Rodrigues
sem fær 252 milljónir dala á tíu
ára tímabili fyrir að spila hafn-
bolta. Annar hafnaboltamaður,
Derek Jeter, fær síðan 189 millj-
ónir dala fyrir tíu ára samning.
Scott Branvold, prófessor í
íþróttamarkaðsfræðum, er ekki
viss um að Beckham muni ná 200
milljónum dala í gegnum styrktar-
aðila á fimm árum.
„Knattspyrnan hefur alltaf átt
mjög erfitt uppdráttar í Banda-
ríkjunum og því verður maður að
spyrja sig hvort þetta sé raunhæf-
ur möguleiki. Kannski mun hann
taka þátt í raunveruleikaþætti,“
sagði Branvold.
Hafnaboltamenn fá betur greitt en Beckham
Stjörnustúlkur geta
komist á topp DHL-deildar
kvenna í handbolta með sigri á
Haukum í Ásgarði í dag. Miklu
var búist við af Stjörnunni í vetur
en illa hefur gengið hjá liðinu að
komast í toppsætið þar sem
Grótta og nú Valur hafa verið
stærsta hluta tímabilsins.
Stjarnan vann góðan sex marka
útisigur á Gróttu í vikunni og nær
Val með sigri á Haukum en 1.
sætið væri þeirra á hagstæðari
markahlutfalli.
Haukaliðið vann öruggan sigur
á Íslandsmeisturum ÍBV í vikunni
og fær þarna eitt af sínum síðustu
tækifærum til þess að blanda sér
í baráttuna um Íslandsmeistara-
titilinn. Leikurinn hefst klukkan
13.00 en klukkutíma síðar fara
þrír aðrir leikir fram í deildinni:
Fram-FH, Akureyri-ÍBV og
Grótta-HK.
Langþráð topp-
sæti í boði
Blackburn tekur á móti
Arsenal í kvöldleik ensku úrvals-
deildarinnar í dag en margt
jákvætt hefur gerst hjá Rovers-
liðinu síðan þessi lið mættust í
síðasta mánuði. Arsenal vann
Blackburn 6-2 á Emirates-
vellinum á Þorláksmessu og eftir
leikinn bjuggust flestir við
erfiðum jólum og áramótum hjá
lærisveinum Marks Hughes.
Annað kom þó á daginn því
rasskellurinn í London kveikti
greinilega í liðinu sem síðan
hefur unnið fjóra leiki í röð og er
markatalan úr þeim 10-2.
Einu mörkin sem liðið hefur
fengið á sig í þessum leikjum
komu úr vítaspyrnum og í þeim
tveimur síðustu vann liðið
stórsigra (3-0 á Wigan og 4-1 á
Everton í bikarnum). Nú er að sjá
hvernig Blackburn gengur þegar
þþað mætir aftur Arsenal á
Ewood Park í kvöld.
Rassskellurinn
kveikti í Rovers
Helena Sverrisdóttir,
fyrirliði Hauka, í Iceland
Express-deild kvenna í körfubolta
setti nýtt met í fyrrakvöld í 96-44
sigri Íslandsmeistara Hauka á
bikarmeisturum ÍS. Þriðja
stoðsending Helenu var hennar
hundraðasta í deildinni á tímabil-
inu og hefur engum leikmanni
tekist að náð að gefa sína
hundruðustu stoðsendingu svo
snemma á tímabilinu. Helena
bætti sitt eigið met frá því í fyrra
um 7 daga og tvo leiki en hún er
aðeins ein þriggja leikmanna sem
gefið hafa 100 stoðsendingar á
einu tímabili.
Hinar eru Alda Leif Jónsdóttir
og Andrea Gaines. Þetta er þriðja
tímabilið í röð sem Helena gefur
á annað hundrað stoðsendingar.
Helena fljótust
í hundrað
Steve Nash, leikmaður
Phoenix Suns, gaf 21 stoðsendingu
á félaga sína í 109-90 sigri á
Cleveland Cavaliers í fyrri nótt.
Með þessu varð hann fyrsti
leikmaðurinn í níu ár til þess að
eiga tvo 20 stoðsendinga leiki á
sama tímabilinu. Nash skoraði
aðeins 4 stig og skaut 7 skotum en
réð engu að síður ríkjum á
vellinum með útsjónarsemi sinni
og yfirsýn.
„Mér líður vel að sjá félaga
mína ganga vel og skora. Það er
það sem ég legg áherslu á, að
koma félögum mínum inn í
leikinn. Þegar við komumst í gang
í sókninni þá eru önnur lið langt á
eftir okkur,“ sagði Nash eftir
leikinn. Hann gaf stoðsendingar á
sex leikmenn í leiknum (Shawn
Marion 5, Amare Stoudemire 4,
Leandro Barbosa 4, Tim Thomas
3, Boris Diaw 3 og Raja Bell 2).
Fimm af þessum körfum voru
troðslur, sex af þeim sniðskot og
Nash gaf aðeins tvær stoðsend-
ingar fyrir þriggja stiga skot.
Nash hefur gefið 353 stoðsending-
ar í 32 leikjum á tímabilinu eða
11,0 að meðaltali í leik sem er það
besta í NBA-deildinni.
21 stoðsending
á félaga sína
Íþróttasamband Íslands
ákvað í gær hvaða íþróttafólk fær
styrki á þessu ári. Styrkveitingar
ÍSÍ nema að þessu sinni rúmlega
63 milljónum króna en alls eru tut-
tugu íþróttamenn á A-, B- eða C-
styrk hjá Afrekssjóði ÍSÍ. Fimm
frjálsíþróttamenn eru á styrk,
fjórir sundmenn og þrír skíða-
menn en alls eiga níu íþróttagrein-
ar alls tuttugu íþróttamenn á
afreksstyrk.
Að þessu sinni er úthlutað
47.820 þúsund krónum úr Afreks-
sjóði ÍSÍ og 9.200 þúsund krónum
úr sjóði ungra og efnilegra íþrótta-
manna. Fimm íþróttamenn eru
síðan á styrk frá Ólympíusam-
hjálpinni fyrir leikana í Peking
2008. Sá styrkur er upp á þúsund
dollarar á mánuði eða um 828.000
íslenskar krónur á árinu 2007.
Auk alls þessa er A-landslið karla
í handknattleik á styrk frá Ólymp-
íusamhjálpinni fram að næstu
ólympíuleikum. Nemur greiðsla
ársins 28.000 dollurum eða um
1.950 þúsundum íslenskra króna.
Sundmaðurinn Örn Arnason,
sem vann brons á Evrópumeist-
aramótinu í 25 metra laug, kemur
nú aftur inn á A-styrk en hann
fékk eingreiðslustyrk á síðasta
ári. Örn er einn af fimm íþrótta-
mönnum sem eru á A-styrk en hin
eru frjálsíþróttafólkið Ásdís
Hjálmsdóttir, Þórey Edda Elís-
dóttir og Jón Oddur Halldórsson
og fimleikamaðurinn Rúnar Alex-
andersson. Jóhann Rúnar Kristj-
ánsson, borðtennismaður úr
röðum fatlaðra, er færður upp í B-
styrk en þar bætist einnig í hóp
styrkþega Baldur Ævar Baldurs-
son frjálsíþróttamaður úr röðum
fatlaðra.
Nokkrir einstaklingar sem
hafa verið á eingreiðslustyrkjum
undanfarin ár eru nú færðir upp í
C-styrk en nokkrir þeirra leggja
áherslu á að ná að tryggja sér sæti
á næstu ólympíuleikum.
Golfarinn Birgir Leifur Haf-
þórsson hlýtur einnig eingreiðslu-
styrk sem svarar til B-styrks
afrekssjóðs en Birgir Leifur
tryggði sér þátttöku á Evrópu-
mótaröðinni í ár.
Afrekssjóður hefur enn fjár-
magn til aflögu á árinu og verður
það fjármagn nýtt í samræmi við
árangur og verkefni sérsamband-
anna. Kostnaðaráætlanir þeirra
20 sérsambanda sem sóttu um
styrk vegna íþróttamanna og
verkefna til Afrekssjóðs ÍSÍ 2007
nema 323 milljónum króna.
Framlag Afrekssjóðs ÍSÍ til
sérsambanda nemur um 15 pró-
sentum af kostnaðaráætlun
þeirra.
Sundmaðurinn Örn Arnarson er aftur kominn á A-styrk en alls mun tuttugu
íþróttamenn fá afreksstyrk. Auk Arnar fá fjórir íþróttamenn A-styrk frá ÍSÍ.