Fréttablaðið - 13.01.2007, Qupperneq 86
„Já, hann er búinn að bóka ferð
heim, þessi gleymdi sonur
Íslands,“ segir Einar S. Einars-
son, talsmaður RJF-hópsins sem
barist hefur fyrir frelsun og
heimkomu Arons Pálma Ágústs-
sonar.
Að sögn Einars lýkur Aron
Pálmi afplánun 17. ágúst, á skráð-
an miða heim 25. ágúst næstkom-
andi og lendir að morgni þess 26.
á Keflavíkurflugvelli.
Mál Arons Pálma hafa verið
fréttamatur allt frá því að Krist-
inn Hrafnsson þá fréttastjóri á
DV greindi frá aðstæðum hans og
refsivist í Texas snemma árs
2004. Aron Pálmi, sem fæddur er
árið 1983, var dæmdur árið 1997 í
tíu ára refsivist fyrir að hafa barn
að aldri sýnt af sér refsiverða
kynferðislega tilburði. RJF-hóp-
urinn, sem telur skákjöfra á borð
við Einar, Guðmund G. Þórarins-
son, Garðar Sverrisson, Helga
Ólafsson og fleiri, tók málið upp á
sína arma. Áður hafði hópurinn
lagt sitt af mörkum svo að Bobby
Fischer gæti komið til landsins
og fengið íslenskan ríkisborgara-
rétt úr fangelsi í Japan. Til þess
vísar nafn hópsins – upphafsstafa
Roberts James Fischer.
„Aron Pálmi er nú búinn að
afplána tíu ár í refsivist, þar af
fjögur ár í stofufangelsi. Hann
hefur notið þess síðasta eina og
hálfa árið að geta stundað nám
við Lamor-háskóla í Texas. Þar
eru átta þúsund nemendur,“ segir
Einar og kveður skólavist Arons
Pálma hafa gengið að óskum.
Hann hefur
meðal
ann-
ars
verið valinn í stúdentaráð og
kjörinn ritstjóri árbókar skól-
ans.
Einar segir það öllu máli skipta
að Aron hafi um eitthvað að hugsa
í þeirri viðkvæmu stöðu sem hann
er. Til dæmis hafi menn veist að
honum og Aron Pálmi ekki þorað
að svara fyrir sig af ótta við að
borið sé á hann að Aron hafi átt
upptökin. Það þýði að hann þurfi
að endurtaka refsivist sína. Aron
Pálmi er því taugaóstyrkur og
varfærinn sökum erfiðrar stöðu.
„Hann má ekki lenda í neinu
núna þessa síðustu mánuði,“ segir
Einar sem heyrir reglulega frá
Aroni Pálma. Að sögn Einars
hefur hann einsett sér að léttast
um 100 pund í það minnsta fyrir
heimkomuna. „Hann er vel í hold
kominn. Enda hefur hann örugg-
lega lifað á einhverju ruslfæði og
hormónakjöti,“ segir Einar.
RJF hefur stutt Aron Pálma
dyggilega að sögn Einars og greitt
fyrir skólagöngu hans nú vel á
aðra milljón. „Þetta er eitthvað
sem við höfum verið að öngla
saman og safnað. Nei, við erum
ekki enn farnir að undirbúa komu
hans,“ segir Einar, enda nokkrir
mánuðir í að Aron lendi.
Til marks um það hversu sterk-
ur karakter Aron Pálmi er nefnir
Einar að hann hefur gengið með
GPS-staðsetningartæki í á fjórða
ár sem mun einsdæmi í heimin-
um, í það minnsta vestanhafs, en
hámarkið hefur verið eitt ár. „Og
hann er að rita bók um reynslu
sína af refsikerfinu í Texas. Hann
hefur sent mér kafla: „Welcome
to the system“ heitir hann og er
sláandi.“
Kvikmyndin Zidane: Andlit 21.
aldarinnar sló heldur betur í gegn
hjá Frökkum um jólin en DVD-
diskur myndarinnar seldist í yfir
hundrað þúsund eintökum. Í
myndinni er fylgst með öllum
hreyfingum knattspyrnugoðsins
Zidane í leik með spænska risa-
veldinu Real Madrid þar sem
leikmaðurinn var meðal annars
rekinn út af fyrir slagsmál.
Myndin fékk óvænta athygli
þegar Zidane stal senunni í
úrslitaleik heimsmeistaramóts-
ins í Þýskalandi og skallaði móth-
erja sinn í brjóstkassann.
Sigurjón Sighvatsson, fram-
leiðandi myndarinnar, segir að
þrátt fyrir þessa miklu athygli
sem atvikið fékk hafi salan farið
fram úr björtustu vonum.
„Universal-dreifingarfyrir-
tækið hafði spáð
myndinni miklum
vinsældum en við
tókum orð þeirra
ekki trúanleg,
þetta er því alveg
frábær árangur,“
sagði Sigurjón þegar Fréttablað-
ið hafði upp á honum. „Þetta var
algjör hámarkssala,“ bætti hann
við en algengt er að stóru smell-
irnir frá draumaverksmiðjunni
Hollywood seljist í svipuðu upp-
lagi. Sigurjón segir það hins
vegar vonbrigði hversu lítinn
áhuga knattspyrnumaðurinn
sjálfur hafi sýnt myndinni þrátt
fyrir loforð um að koma til liðs
við þá eftir HM.
Sigurjón segir að nú takið við
kvikmyndahátíðar-ferðalag hjá
myndinni. „Hún verður meðal
annars sýnd á Sundance-hátíð-
inni í Bandaríkjunum og á Rot-
terdam-hátíðinni þannig að það
er ekkert lát á sigurgöngu Zid-
ane,“ segir Sigurjón.
Zidane vinsæl jólagjöf í Frakklandi
Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur
hefur verið úthlutað hið vanda-
sama verk að vera kynnir í undan-
keppni Sjónvarpsins fyrir Euro-
vision en fyrsta undankvöldið
verður á dagskrá eftir viku. „Ég
er enginn Gísli Marteinn eða Logi
Bergmann,“ svarar Ragnhildur
þegar hún er spurð hvort Euro-
vision sé mikið áhugamál hjá sér.
„Er svona meðalmanneskja í
þessu,“ bætir hún við.
Ragnhildur gerði sér fyllilega
grein fyrir því að hún mætti varla
misstíga sig í beinni útsendingu
því þá fengi hún öll Eurovision-
nördin á bakið. „Núna fer ég bara
að grennslast fyrir í bókum og
gömlum keppnum og reyni að
finna einhverja gullmola sem
ekki hafa verið sagðir áður þótt
það verði vissulega erfitt,“ segir
Ragnhildur sem á þó eftir að nýta
sér krafta áðurnefnds Gísla Mart-
eins. „Fáir ef einhverjir eru jafn
vel að sér í þessum fræðum og
hann,“ bætir hún við. Ragnhildur
verður ein á sviðinu og tekur við
keflinu af Garðari Thór Cortes
sem nú hefur tekið Bretland með
trompi og leikkonunni Brynhildi
Guðjónsdóttur en parið vakti
mikla athygli fyrir líflega fram-
komu í fyrra.
Ragnhildur Steinunn hefur haft
í nógu að snúast að undanförnu
því auk þess að vera í Kastljósinu
er hún að útskrifast úr sjúkra-
þjálfun í Háskólanum. Þá leikur
hún aðalhlutverkið í kvikmynd-
inni Astrópíu en Ragnhildur sagð-
ist ekki enn vera farin að stressa
sig fyrir frumsýninguna enda fer
myndin ekki í sýningar fyrr en í
sumar. „Ég er ekki enn farin að
leiða hugann að því en í júní verð
ég örugglega komin með hnút í
magann,“ segir Ragnhildur.
Gísli Marteinn verður mér innan handar
… fá Daníel Pollock og félagar í
Tónlistarþróunarmiðstöðinni
sem berjast með kjafti og klóm
fyrir að húsnæðið fái áfram að
vera miðstöð ungra tónlistar-
manna, þrátt fyrir fálæti
yfirvalda.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5