Fréttablaðið - 12.02.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 12.02.2007, Síða 4
Geir H. Haarde forsætisráðherra ber mest traust landsmanna af íslenskum stjórn- málamönnum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, og segjast nú 32,5 prósent af þeim sem tóku afstöðu treysta honum best. Þetta er nokkuð minna en í könnun blaðsins sem gerð var 28. júní á síðasta ári. Þá sögðust 42,6 prósent treysta Geir best af öllum stjórnmálamönnum. Sérstaklega eru það konur sem segjast nú í minni mæli treysta Geir mest, nú eru það 25,3 prósent kvenna, en í könnun blaðsins í júní sögðust 45,0 prósent kvenna bera mest traust til Geirs. Flestir karlar, eða 37,8 prósent þeirra, segjast treysta Geir best. Þá segjast færri íbúar höfuð- borgarsvæðisins bera mest traust til Geirs nú en í júní. Nú segjast 32,5 prósent íbúar höfuðborgar- svæðisins bera mest traust til Geirs, og sama hlutfall íbúa landsbyggðarinnar. Í júní sögð- ust 45,4 prósent íbúa höfuðborg- arsvæðisins bera mest traust til Geirs. Fleiri nefna nú Steingrím J. Sigfússon, formann Vinstri grænna, sem þann stjórnmála- mann sem þeir treysta mest, 25,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu. Í júní nefndu 18,3 prósent nafn Steingríms. Sérstaklega eykst traust kvenna á Steingrími og segjast nú flestar konur, eða 28,6 pró- sent, bera mest traust til Stein- gríms. Í könnun blaðsins í júní sögðust 14,5 prósent kvenna treysta Steingrími best. Aðeins minna hlutfall, eða 23,6 prósent, karla, segist bera mest traust til Steingríms. 12,1 prósent segist nú bera mest traust til Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, formanns Sam- fylkingarinnar. Eilítið fleiri segj- ast nú bera mest traust til Ingibjargar Sólrúnar en í síðustu könnun, þegar 8,7 prósent sögð- ust bera mest traust til Ingibjarg- ar Sólrúnar. Mun fleiri konur en karlar treysta Ingibjörgu Sólrúnu mest stjórnmálamanna, 16,5 pró- sent kvenna en 8,9 prósent karla. Aðrir stjórnmálamenn eru nefndir í innan við tíu prósentum tilfella. Í fjórða sæti er Össur Skarphéðinsson og segjast nú 4,4 prósent treysta honum mest. Þá segjast 2,6 prósent treysta Guð- jóni Arnari Kristinssyni, for- manni Frjálslynda flokksins, best. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og við- skiptaráðherra, er í tíunda sæti yfir þá stjórnmálamenn sem mest traust er borið til og er hann nefndur í 1,2 prósentum tilfella. Aðeins fleiri, eða 2,1 prósent, nefna Guðna Ágústsson, varafor- mann flokksins. Einnig var spurt til hvaða stjórnmálamanns væri minnst traust borið um þessar mundir. Þá nefndu flestir Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, en hún var í þriðja sæti í júní, þegar Halldór Ásgrímsson var oftast nefndur og Valgerður Sverrisdóttir næst- oftast. Nú segjast 27,3 prósent þeirra sem afstöðu tóku bera minnst traust til Ingibjargar Sólrúnar. Í júní var það 11,1 prósent. Sér- staklega eru það karlar sem nefna Ingibjörgu Sólrúnu, 34,0 prósent þeirra en 17,6 prósent kvenna. Í júní voru það 18,6 pró- sent karla sem nefndu Ingibjörgu Sólrúnu. Geir H. Haarde er næstoftast nefndur, í 11,9 prósentum tilvika, en 7,3 prósent sögðust bera minnst traust til Geirs í könnun blaðsins í júní og er aukningin aðallega meðal kvenna. Nú segj- ast tæp fjórtán prósent kvenna treysta Geir minnst, en í júní var voru það rúm sex prósent. Í þriðja sæti yfir þá sem minnst traust er borið til er Björn Bjarnason, en 8,8 prósent nefna hann, í stað 6,8 prósenta sem nefndu hann í júní. Valgerður Sverrisdóttir, sem var næstoftast nefnd í könnun blaðsins í júní, virðist njóta þess að hún er nú utanríkisráðherra en ekki iðnaðar- og viðskiptaráð- herra og nefna nú 6,2 prósent nafn hennar, í stað 14,2 prósenta í júní. Guðjón Arnar Kristinsson er í fimmta sæti yfir þá sem minnst traust er borið til, nefndur í 5,2 prósentum tilfella. Þá er Jón Sig- urðsson í sjötta sæti, nefndur í 4,0 prósentum tilfella, og Stein- grímur J. Sigfússon í sjöunda sæti með 3,2 prósent. Hringt var í 800 kjósendur laugardaginn 10. febrúar og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir kjör- dæmum. Spurt var „Til hvaða stjórnmálamanns berð þú mest traust um þessar mundir?“ og tóku 53,5 prósent aðspurðra afstöðu til spurningarinnar. Þá var spurt „Til hvaða stjórnmála- manns berð þú minnst traust um þessar mundir?“ og tóku 50,4 pró- sent afstöðu til spurningarinnar. Minnst traust til Ingibjargar Tæp 33 prósent segjast nú bera mest traust til Geirs H. Haarde, en 42,6 prósent báru mest traust til hans í júní síðastliðnum. Flestir, rúm 27 prósent, segjast nú bera minnst traust til Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur. Helmingi fleiri konur en í júní segjast nú bera mest traust til Steingríms J. Sigfússonar. Hafist verður handa á þessu ári við ritun sögu Kaup- mannahafnar sem höfuðborgar Íslands í 500 ár. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í elsta sýningarsal Dana, Kunstforening- en Gammel Strand í Kaupmanna- höfn, en Fréttablaðið greindi frá áformunum fyrir skömmu. Íslensku sagnfræðingarnir Guðjón Friðriksson og dr. Jón Þ. Þór annast verkið, sem er áætlað að taki fjögur ár. Markmiðið er að gefa verkið samtímis út á íslensku og dönsku í tveimur bindum. Íslensku forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, voru viðstödd athöfnina. Fagnaði forsetinn þessari ráðagerð í ávarpi sem hann flutti. Tveir sjóðir fjármagna verkið; A.P. Møller og Hustru Chastine McKinney Møllers Fond til almene Formaal og Styrktarsjóð- ur Baugs Group. Höfuðborg Ís- lands gerð skil Ökumaður, sem grunaður er um ölvunakstur. keyrði aftan á fólksbíl í Stekkjar- bakka við Hamrastekk í Breið- holtinu rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt laugardagins. Við áreksturinn kastaðist bíllinn á vegrið við götuna, valt og lenti utan vegar. Ökumaðurinn sem olli árekstrinum, karlmaður um þrítugt, flúði af vettvangi. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu handtók manninn skömmu síðar. Hann var yfirheyrður í gær. Tveir karlar og tvær konur voru bílnum sem valt og voru þau flutt á slysadeild. Þau eru ekki alvarlega slösuð. Fernt slasaðist í aftanákeyrslu Aðfararmál Jóns Ólafs- sonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni vegna meiðyrða- dóms sem felldur var í Bretlandi fellur ekki sjálfkrafa niður þrátt fyrir að dómari ytra hafi fellt úr gildi sektardóm yfir Hannesi í desember síðastliðnum. Málið var tekið fyrir í Héraðs- dómi Reykjavíkur í liðinni viku. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lög- maður Jóns, segir að málinu sé ekki lokið í Bretlandi, þar hafi enginn endanlegur dómur fallið. Jón geti ennþá á grundvelli upphaflegrar kæru haldið meið- yrðamálinu áfram. Hún vildi hins vegar ekki segja til um það hvort það yrði gert, einungis að hún gerði þá kröfu fyrir héraðsdómi að aðfararmálinu yrði frestað þar til endanleg niðurstaða væri komin í meiðyrðamálið í Bretlandi. Heimir Örn Herbertsson, lög- maður Hannesar, sagði þegar málið var tekið fyrir á föstudag- inn síðastliðinn að hann hefði átt von á því að fjárnámskrafan yrði felld úr gildi eftir dóminn ytra en ágreiningur væri um það við lög- mann Jóns. Því hefði málinu verið frestað um viku til að láta þýða gögn. Eftir það tæki að líkindum við annar stuttur frestur þar til lög- mennirnir flyttu kröfur sínar fyrir dómi og dómari úrskurðaði í kjölfarið hvort halda skyldi áfram með málið eða ekki. Ekki endanlegur dómur ytra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.