Fréttablaðið - 12.02.2007, Side 8
Sími 590 5000
Opið kl. 10–18 á Laugavegi 174
13.990kr. afborgun á mánuði fyrir hverja milljón *
* M.v. 10% útborgun og gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
1
0
2
Eigum frábært úrval nýlegra lúxusfólksbíla og jeppa frá Volkswagen, Audi og Mercedes-Benz með allt að
90% lánum á afar hagstæðum kjörum. Í boði eru jafnlöng lán og á nýjum bílum, sem lækkar greiðslubyrðina
til muna. Bílarnir eru til sýnis á Bílaþingi, Laugavegi 174.
Mercedes-Benz C-200
Avantgarde
Nýskráður 19.10.2005
Ekinn 22 þús. km, sjálfskiptur
leðurinnrétting, sóllúga
Verð 3.590.000 kr.
Dómur Hæstaréttar frá
því 1. febrúar yfir karlmanni sem
sakfelldur var fyrir kynferðisbrot
gagnvart þremur stúlkubörnum og
fyrir vörslu barnakláms er í þyngri
kantinum þegar hliðstæð mál sem
tekin hafa verið fyrir á undanförn-
um árum í Hæstarétti eru athuguð.
Þetta segir Svala Ólafsdóttir, lög-
fræðingur og kennari við lagadeild
Háskóla Reykjavíkur.
Mikið hefur verið fjallað um
dóminn í fjölmiðlum og dómarar
verið gagnrýndir fyrir að milda
dóm héraðsdóms úr tveggja ára
fangelsi niður í 18 mánuði. Á und-
anförnum árum hafa refsingar
fyrir kyn-ferðisbrot verið að þyngj-
ast og er umræddur dómur í takt
við þá þróun þegar bornir eru
saman dómar, þar sem málsatvik
eru hliðstæð, frá upphafi árs 2002
og þar til nú.
Svala segir að án efa hafi verið
litið til þess að ákærði braut gegn
trúnaðartrausti barna sem hann
þekkti og voru vinir barna hans. Í
ljósi þess hve alvarlegar afleiðing-
ar kynferðisleg misnotkun hefur á
sálarlíf barna segir Svala að eðli-
legt sé að fólk velti fyrir sér hvort
rétt sé að þyngja dóma í þessum
brotaflokki.
Í könnunum sem gerðar hafa
verið á viðhorfi almennings hefur
berlega komið í ljós að fólki þykir
þurfa að þyngja refsingar yfir kyn-
ferðisbrotamönnum. Svala bendir
á að svar við þeirri kröfu liggi nú
fyrir á Alþingi í frumvarpi dóms-
málaráðherra.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að kynmökum við börn yngri en
fjórtán ára verði skipað á bekk
með nauðgunum. Þá gerir frum-
varpið ráð fyrir því að hámarks-
refsing fyrir kynferðislega áreitni
gegn barni yngra en fjórtán ára
geti orðið sex ára fangelsi í stað
fjögurra eins og nú er. Lágmarks-
refsing fyrir samræði eða önnur
kynferðisbrot gegn börnum verði
eins árs fangelsi en hámarksrefs-
ing hækkar úr tólf árum upp í sex-
tán.
„Tvennt þarf að hafa í huga í
þeirri umræðu sem hefur átt sér
stað í kjölfar dómsins. Í fyrsta lagi
er þessi ákveðni dómur þungur
miðað við sambærilega dóma þar
sem málsatvik eru svipuð og í
öðru lagi liggur fyrir frumvarp
sem gerir ráð fyrir því að refsing-
ar í þessum brotaflokki þyngist,“
segir Svala. Hún bendir enn frem-
ur á að löggjafarvaldið hafi það nú
í hendi sér hvort frumvarpið verði
samþykkt. Verði það gert muni
dómstólar án efa svara því kalli
með því að þyngja refsingar enn
frekar.
Refsingar fyrir kynferðisbrot
hafa þyngst undanfarið
Átján mánaða fangelsisdómur sem kveðinn var upp í Hæstarétti í byrjun mánaðarins var í þyngra lagi sé
hann borinn saman við svipaða dóma. Lögfræðingur segir dóminn í takt við þá þróun sem verið hafi.
Í fyrsta lagi er þessi
ákveðni dómur þungur
miðað við sambærilega dóma
þar sem málsatvik eru svipuð og
í öðru lagi liggur fyrir frumvarp
sem gerir ráð fyrir því að refsing-
ar í þessum brotaflokki þyngist.
Stjórn Félags fasteignasala segist tilbúin
að afhenda Samkeppniseftirlitinu öll gögn félagsins.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu á föstudag neituðu
stjórnir Félags fasteignasala og Samtaka fjármála-
fyrirtækja að afhenda blaðamanni fundargerðir á
þeim forsendum að þær hefðu til þess lagalegan rétt
en Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka
fjármálafyrirtækja, sagði samkeppnisyfirvöld geta
skoðað öll gögnin.
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fast-
eignasala, segir þess ávallt hafa verið gætt að sam-
ráðsmál, eða önnur samkeppnismálefni, væru ekki
rædd á fundum stjórnarinnar. „Formaður Neytenda-
samtakanna [Jóhannes Gunnarsson] lét að því liggja
að FF hefði eitthvað að fela vegna þessarar ákvörð-
unar sinnar. Það er algerlega fjarlægt að svo sé og
óski samkeppnisyfirvöld eftir skoðun á hvers konar
samráði þá eru fundargerðir og önnur gögn þeim
algerlega opin. Þess hefur ávallt verið gætt að sam-
ráð eða önnur samkeppnismál séu aldrei rædd á fund-
um stjórnar og þá má bæta við að vandfundin er
starfsstétt þar sem samkeppni er meiri en meðal
fasteignasala,“ segir Grétar.
Velkomið að skoða öll gögn
Hvað heita samtökin sem
berjast gegn byggingu Helgafells-
brautar í Mosfellsveit?
Hvað heita stjórnmálasamtök-
in í Háskóla Íslands sem sigruðu
í kosningum til Stúdentaráðs á
fimmtudaginn?
Hvað heitir bandaríski öld-
ungadeildarþingmaðurinn sem
tilkynnti á laugardag að hann
sæktist eftir því að verða forseta-
efni Demókrataflokksins í forseta-
kosningunum í Bandaríkjunum
árið 2008?
Sendiferðabíll sem
stolið var fyrir utan Hótel
Blönduós aðfaranótt sunnudags-
ins fannst ónýtur ofan í skurði við
Svínvetningabraut, sveitaveg sem
er rétt fyrir utan bæinn, klukkan
átta í gærmorgun. Þjófarnir voru
þá horfnir af vettvangi.
Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi mátti sjá að bíllinn
hefði tekið nokkrar krappar
beygjur á veginum áður en hann
hefði farið út af, oltið og lent ofan
í skurði. Bíllinn er ónýtur að sögn
lögreglunnar.
Lögreglan vinnur að rannsókn
málsins en hefur engar vísbend-
ingar um hverjir stálu bílnum.
Bíl stolið og
ekið út í skurð
Dómstóll í Jekaterín-
burg í Úralfjöllum dæmdi á
föstudag fimm unglinga í fangelsi
fyrir að berja tvítugan gyðing,
draga hann inn í kirkjugarð og
reka hann þar á hol með málm-
krossi.
Ungmennin voru á aldrinum
tólf til sautján ára og drukkin
þegar ódæðið var framið hinn 1.
október 2005. Fjögur þeirra fengu
5-7 ára fangelsi og eitt tíu ára
fangabúðavist.
53 manns voru drepin og 460
hlutu líkamstjón í árásum vegna
útlendinga- og gyðingahaturs í
Rússlandi í fyrra, að sögn mann-
réttindaskrifstofunnar Sova.
Murkuðu lífið
úr gyðingi
Tveir menn ruddust
inn á stúlku sem býr í verbúð í
Sandgerði á laugardagsmorgun
og börðu mann sem ætlaði að
koma henni til varnar. Árásar-
mennirnir brutu upp hurð á
herbergi stúlkunnar til að komast
að henni og ætlaði maðurinn að
koma þeim út úr verbúðinni;
mennirnir réðust þá á hann og
gengu í skrokk á honum. Maður-
inn rifbeinsbrotnaði í árásinni.
Rannsóknardeild lögreglunnar á
Suðurnesjum veit hver annar
árásarmaðurinn er og var hans
leitað í gær. Ekki er vitað hver
hinn árásarmaðurinn er.
Brutust inn og
börðu mann