Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 12

Fréttablaðið - 12.02.2007, Page 12
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu hlutverki í íslensku viðskiptalífi Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og trausta fjármálaráðgjöf. Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert kleift að dafna og ná settu marki og á sama tíma stuðlum við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu viðskiptalífi á Íslandi. Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu. Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 35 82 2 01 /0 7 Í síðasta mánuði réðst breska lögreglan inn í nokk- ur hús í Birmingham og handtók þar níu manns vegna gruns um að þeir tengdust hryðjuverkaáform- um. Á föstudaginn voru fimm hinna handteknu ákærðir, einn þeirra fyrir að hafa áformað að ræna og drepa breskan hermann. Tveir þeirra voru hins vegar látnir laus- ir í síðustu viku og annar þeirra, Abu Bakr, sagði múslima upplifa Bretland sem „lögregluríki“. Eftir hryðjuverkin í þremur neðanjarðarlestum og einum strætisvagni í London sumarið 2005 hefur handtökum breskra múslima fjölgað gífurlega, en stór hluti hinna handteknu hefur síðar verið látinn laus án þess að neinar ákærur hafi verið gefnar út. Veruleg reiði hefur magnast meðal múslima í Bretlandi vegna þessa. Múslimum finnst að sér vegið með ómaklegum hætti og fá það á tilfinninguna að þeir séu óvelkomnir í landinu, jafnvel þeir sem eru þar fæddir og aldir upp. Tayib Rauf var handtekinn í Birmingham um miðja nótt í ágúst síðastliðnum vegna gruns um aðild að áformum um að sprengja upp farþegaflugvélar á leið yfir Atlantshafið. Fyrstu þrjá dagana í fangelsinu fóru engar yfirheyrsl- ur fram. „Síðan byrjuðu þeir að spyrja mig fjölmargra heimskulegra spurninga: „Hvað gerirðu? Hverja umgengstu? Vandræðalegasta spurningin var þegar þeir spurðu mig hvers konar múslimi ég væri. Hvernig svarar maður því?“ Hann segir minningarnar hafa hellst yfir sig þegar mennirnir níu voru handteknir á svipuðum slóð- um nú fyrir skemmstu. Rauf, sem er 22 ára, var sleppt eftir tvær vikur í haldi, en hann hefur ekki enn komist að því hvers vegna hann var handtekinn. Hann segist þó gruna að það sé vegna þess að bróðir hans, Rashid, sem býr í Pakistan, sé grunaður um að hafa skipulagt árásirnar auk þess sem annar maður í London, sem einnig var leystur úr haldi án ákæru, hafi einu sinni unnið hjá fjölskyldu- fyrirtæki Raufs. „Þetta er eins og keðja,“ sagði Rauf. „Maður er handtekinn vegna þess hverja maður umgengst.“ Sífellt fleiri handteknir Múslimar í Bretlandi eiga í vök að verjast vegna baráttu öryggisstofnana gegn hryðjuverkaógninni. Sífellt fleiri múslimar eru handteknir. © GRAPHIC NEWS Biskup Íslands hefur auglýst laust til umsóknar embætti héraðsprests í Kjalar- nessprófastsdæmi. Í auglýsingu embættisins segir að það sé hugsað til aðstoðar við prófast og til afleysinga innan prófastsdæmisins. Embættið er veitt frá 1. maí næstkomandi. Biskup skipar í embættið til fimm ára samkvæmt meðmælum vígslubiskups, að fenginni umsögn héraðsnefndar. Umsóknarfrestur er til 15. mars. Mun aðstoða prófastinn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.